Morgunblaðið - 21.06.1985, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNf 1985
Evrópumetið
ekki staðfest?
PATRIK Sjöberg frá Svíþjóö
setti á dögunum Evrópumet í
hástökki, stökk 2,38 metra, á
móti í Eberstadt í Vestur-
Þýskaiandí. Nú er hins vegar
komió babb í bátinn — Frjáls-
íþróttasamband Evrópu mun að
öllum líkindum ekki staöfesta
þar sem Sjöberg var með aug-
lýsingu á keppnistreyju sinni,
en það er stranglega bannað
skv. reglum alþjóðasambands-
ins og Evrópusambandsins.
Frjálsíþróttasamband Norður-
landanna hafa undanfarin ár bar-
ist fyrir því aö auglýsingar veröi
leyfðar á búningum keppenda á
alþjóöamótum — en alþjóöa-
sambandiö hefur þverneitaö því.
í fyrra setti norska stúlkan
Ingrid Kristiansen heimsmet í
5000 metra hlaupi í Noregi — og
var þá meö auglýsingu á treyju
sinni. Minnstu munaöi aö al-
þjóðasambandiö neitaði aö staö-
festa þaö met — en þar sem
norska sambandiö haföi viöur-
kennt auglýsinguna og mótiö fór
fram í Noregi var þaö staöfest.
Síöan hefur alþjóðasamband-
ið enn hert reglur — nú veröa öll
frjálsíþróttasambönd aö fylgja
reglum IAAF (alþjóöasambands-
ins). Noröurlandasamböndin
veröa því greinilega að gefa eftir
í þessu máli.
Svo gæti farið aö Sjöberg yröi
dæmdur í keppnisbann á IAAF-
mótum í einhvern tíma skv. frá-
sögn Sænska dagblaösins.
• Sjöberg fagnar Evrópumeti sfnu — 2,38 m í Eberstadt um aíöustu helgi. Fæst metiö ekki staðfest?
Hann var með auglýsingu frá skóframleiðandanum Tiger á keppnistreyju sinni.
„Jóns-málinu“ vísað frá:
KR kærir næst
til dómstóls ÍSÍ
svo var ekki, viö vorum aö kæra
þaö aö aganefnd skyldi dæma í
málinu. Viö teljum hana ekki hafa
lögsögu i málinu,“ sagöi Steinþór
Guöbjartsson, framkvæmdastjóri
knattspyrnudeildar KR, í samtali
viö Morgunblaöiö.
Steinþór sagöi KR-inga myndu
senda máliö áfram til dómstóls ÍSÍ.
k
• Rummenigge skoraði tvö fyrir
Inter.
Inter burstaöi Verona
í ítölsku bikarkeppninni
Neyðaróp frá
Augnabliki!
DÓMSTÓLL Knattspyrnuráös
Reykjavíkur vísaði frá kæru
KR-inga í „Jóns-málinu“ svo-
nefnda á fundi sínum í fyrradag.
„Þeir viröast hafa misskiliö
okkur. Meðlimir dómstólsins virö-
ast hafa haldiö aö viö værum aö
áfrýja úrskuröi aganefndar KSi,
INTER Milan sigraði nýbakaða ít-
alíumeistara, Veróna, 5:1, í ítölsku
bíkarkeppninni f knattspyrnu í
fyrrakvöld eftir framlengdan leik.
Þetta var síöari viðureign liö-
anna. Veróna haföi unnið þá fyrri
3:0. Þannig lauk einnig leik liöanna
í fyrrakvöld og þvi þurfti aö fram-
lengja.
Hetja Inter-liösins í leiknum var
Vestur-Þjoöverjinn Karl Heinz
Rummenigge sem lék mjög vel og
Jónsmessu-
mót hjá
GR í kvöld
JÓNSMESSUMÓTIÐ hjá Golf-
klúbbi Reykjavíkur, sem skv.
mótaskrá á að vera á laugardag,
hefur verið fœrt fram og verður í
kvöld. Keppni hefst kl. 20.30.
Þetta er parakeppni — annar
keppandinn slær inn á flöt og
hinn púttar.
Að gefnu tilefni
í miðvikudagsblaðinu birtist
mynd frá Akureyrarvelli þar sem
lögreglumenn leiddu burtu tvo
menn vegna atviks er flösku var
kastað inn á völlinn í leik Þórs og
Vals. Að gefnu tílefni skal tekiö
fram aö fremri maöurinn á mynd-
inni, sem leiddur er í burtu, var í
hópferð Vals á leikinn — og var
hann engan veginn viöriöinn
þennan leiðindaatburð. í Ijós kom
aö hann hafði aöeins ætlað aö
stilla til friöar í stúkunni. Sleppti
lögreglan honum þá þegar í staö
og bað hann afsökunar.
skoraöi tvívegis. Þá lék Irinn kunni
Liam Brady sérlega vel einnig og
skoraöi fimmta og síöasta mark
liösins — á 118. mín. Danski
landsliösmaöurinn Preben Elkjær
Larsen skoraöi eina mark Veróna í
leiknum.
Inter komst þar meö í fjögurra
liöa úrslit keppninnar. Önnur liö
sem tryggt hafa sér sæti í undan-
úrslitunum eru AC Mílanó, Samp-
doria og Fiorentina.
AC Milanó sigraöi Juventus,
Sampdoria sigraði Torinó 4:2 og
skoraöi Englendingurinn Trevor
Francis tvö mörk í þeirri viöureign.
Fiorentina, sem lék án Argentínu-
mannsins Daniel Passarella og
Brasiliumannsins Socrates, sigraöi
2. deildarliöiö Parma 3:0.
Morgunblaöinu hefur boríst
eftirfarandi fréttatilkynning:
„Þaö hefur varla farið framhjá
neinum aö knattspyrnufélagiö
Augnablik í Kópavogi hefur ekki
tapaö leik í islandsmóti 4. deildar í
ár. Eru Augnabliksmenn farnir aö
örvænta um aö þeirra kunni aö
bíöa þaö hlutskipti aö leika í 3.
deild á næsta ári og er þá fræöi-
legur möguleiki aö öll Kópavogs-
liöin leiki í sömu deild. Stjórn fé-
lagsins hefur samþykkt aö viö svo
búiö má ekki standa og grípa þurfi
til ráöstafana strax. Hefur veriö
ákveöiö aö i næsta heimaleik fé-
lagsins, laugardaginn 22.06.85
sem er viö Snæfell og hefst kl.
14.00 á Kópavogsvelli, leiki félagiö
í nýjum búningum sem bera aug-
lýsingu frá auglýsingastofunni
Tímabæ enda er tímabært aö
þessari þróun veröi snúiö viö.
Ennfremur munu veröa ýmsar
uppákomur í tengslum viö leikinn
til aö reyna aö draga athygli
Augnabliksmanna frá leiknum t.d.
munu „kraftajötnar" reyna meö sér
í rómverskum hjólbörudrætti, sæt-
ir strákar munu vera fánaberar,
nýju búningarnir munu veröa af-
hentir meö viöhöfn o.fl. Heiöurs-
gestir á leik þessum veröa tveir;
eigandi auglýsingastofunnar Tíma-
bær viö annan mann og munu þeir
fá sérstaka meöferö.
Þjálfara liösins Kristjáni Hall-
dórssyni hefur veriö gefiö „frí“ i
þessum leik og hafa jafnvel heyrst
raddir um aö til standi aö ráöa
hinn gamla þjálfara félagsins Ara
Þórðarson sem ávallt hefur tekist
aö halda félaginu í réttri deild.
Þaö er von Augnabliksmanna
aö sem flestir sjái sér fært aö líta
viö á Kópavogsvelli þegar leikurinn
fer fram og leggja sitt af mörkum
til aö hagstæö úrslit fáist.
Stjórn Augnabliks.“
MorgunbtoMS/ (totgl Bjwnmon
Vinningshafar á þjóöhátíöarmótunum í Borgarnesi
Á þjóðhátíöardaginn 17. júní var að vanda mikiö um aö vera á íþróttasviöinu hjá krökkunum í Borgarnesi. Hiö árlega 17. júní mót var í
sundiauginni og 17. júní hlaupið á íþróttavellinum. Á útiskemmtun í Skallagrímsgarði fengu allir vinningshafar vinningspeninga, gull,
silfur og brons og var þá aö sjálfsögu mikið gaman. Myndin var tekin í Skallagrímsgarði af flestum vinningshöfum sem stilltu sér saman
upp við myndatöku.