Morgunblaðið - 21.06.1985, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAWÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1985
Morgunblaöiö/Fríóþjófur
• Þriðja mark Skagastúlknanna í gærkvöldi staöreynd. Haildóra Gylfadóttir (lengst til hægri) fagnar marki sínu ásamt Laufeyju Siguróardóttur. Ragna Lóa Stefánsdóttir (no. 14)
fagnar úti á velli. Blikastúlkurnar eru daufar í dálkinn. Svava Tryggvadóttir — Margrét Sigurðardóttir heldur fyrir andlitiö.
Dýrmæt stig Skaga-
stúlknanna í Kópavogi
— sigruðu Breiðablik 3:1 í fyrstu deild kvenna
Blikastúlkurnar miklir klaufar að tapa leiknum
íslandsmeistarar ÍA í knatt-
spyrnu kvenna sigruöu Breiöa-
blik á Kópavogsvelli í gærkvöldi í
1. deildinni, 3:1. Skagastúlkurnar
fengu þar þrjú stig sem eiga eftir
aö reynast dýrmæt í keppninni
um íslandsmeistaratitilinn. Þessi
tvö lið viröast bera höfuö og
heröar yfir önnur liö landsins og
berjast örugglega um efsta sæti
deildarinnar.
Skagastúlkurnar skoruöu 2
mörk strax í byrjun leiksins á tyrstu
6 minútunum. Eftir þaö voru Blik-
arnir sterkara liöiö. Skagastúlk-
urnar léku skynsamlega. Drógu sig
aftar á völlinn, vöröust vel og
böröust af krafti.
Strax á 2. mín. var dæmd vita-
spyrna á Breiöablik er skotiö var í
hönd eins varnarmanns liösins.
Ragnheiöur Jónsdóttir skoraöi úr
vítaspyrnunni af miklu öryggi.
Fjórum mín. síðar skoraöi Lauf-
ey Siguröardóttir mjög fallegt
mark fyrir ÍA. Löng aukaspyrna var
tekin inn í teig UBK, Laufey átti í
höggi viö tvo varnarmenn og skaut
fallega meö vinstra fæti á milli
þeirra og í netiö Varnarmennirnir
voru steinsofandi þarna en engu
aö síöur mjög vel gert hjá Lauf-
eyju.
Eftir hálftíma leik var dæmd
vítaspyrna á ÍA. Eftir hornspyrnu
skallaöi Erla Rafnsdóttir aö marki,
knötturinn small í hendi varnarm-
anns og víti dæmt. Asta skaut úti
viö stöng en Vala Úlfljótsdóttir,
markvöröur, henti sór í hornið og
varöi mjög vel. Sló knöttinn í
stöngina. En Ásta María var fyrst
aö knettinum á ný og skoraöi á
síöustu stundu. Renndi sér á bolt-
ann og skoraöi meö vinstra fæti.
Aöeins mínútu seinna átti Mar-
grét Siguröardóttir sannkallaö
þrumuskot i samskeytin í ÍA-
markinu. Glæsilegt skot. Þar
sluppu Skagastúlkurnar fyrir horn.
• Ómar Torfason
Framarar í þremur
efstu sætunum í
keppni um Gullskóinn
TVEIR leikir eru í kvöld í 1. deild-
inni í knattspyrnu. Á Akureyri
leika Þór og Víóir og í Laugardal
Víkingur og Þróttur. Báðir leikírn-
ir hefjast ki. 20.
Þórsarar sigruöu Val, 2:1, fyrir
noröan i síöustu umferö og veröur
(aö telja þa sigurstranglegri í viöur-
’ eigninni. Víöismenn eru þó þekktir
fyrir allt annaö en aö gefast upp og
kom þaö bersýnilega I Ijós um síö-
ustu helg. er þeir töpuöu aðeins
meö einu marki, 3:4, gegr Frarr
syöra. En Þór hefur unniö alla þrjá
leiki sína á heimavelli í sumar
Víkingar hafa byrjað keppnis- j
tímabiliö illa og eru í botnbaráttu.
Þróttur er hins vegar í toppbarátt-
unni þrátt fyrir aö liöiö hafi ekki
leikið sérstaklega vel. Þrjú stig
fékk liöiö sem kunnugt er eftir tap-
leikinn gegri KR — leikinn sem
kæröur var vegna Jóns G. Bjarna-
sonar
Staöari i deildinni er nú þannig,
eftir leik KR og Fram í gærkvöldi.
Fram 6 5 10 18:8 16
ÍA 5 3 11 12:3 10
Þróttur 5 3 0 2 6:3 9
ÞórAk 5 3 0 2 8:7 9
Valur 5 2 1 2 9:7 7
ÍBK
KR
FH
Víkingur
Víöir
5 2 12
6 13 2
5 113
5 10 4
5 10 4
Markahæstu menn deildarinnar
nú eru þessir:
Guömundur Torfason, Fram 6
Ómar Torfason, Fram 6
Guömundur Steinsson, Fram 5
Bjarni Sveinbjörnsson, Þór 4
Ragnar Margeirsson, ÍBK 4
Guömundur Þorbjörnsson, Val 4
Páll Ólafsson, Þrótti 4
Höröur Jóhannesson, iA 4
Einni mínútu fyrir leikhlé skoraði
ÍA svo sitt þriöja mark. Guörún
Gísladóttir tók góöa aukaspyrnu
úti á velli — sendi háan bolta inn á
markteiginn þar sem Halldóra
Gylfadóttir skallaöi örugglega í
netiö. Fjórir varnarmenn voru í
kringum hana en enginn þeirra
hreyfði legg né lið og markvöröur-
inn „fraus“ á línunni.
i siöari hálfleiknum sóttu Blik-
arnir linnulítiö — fengu nokkur
góö færi, Erla og Ásta B. komust
tvívegis hvor einar inn á teig en
knötturinn vildi greinilega ekki i
lA-markiö oftar. Sérstaklega fékk
Erla dauöafæri undir lokin. Ásta B.
tók þá langa aukaspyrnu — Erla
var alein á markteignum en skaut
hárfint framhjá. Laufey Siguröar-
dóttir fékk eina færi lA í seinni
hálfleik. Var alein á vitateig en
skaut beint of laust, markvöröur-
inn varöi auöveldlega.
Blikastúlkurnar geta sjálfum sér
um kennt aö hafa ekki unniö leik-
inn. Þær fengu nægilega góö færi
til þess. Vörn liösins var mjög léleg
í leiknum. Miðveröirnir Svava og
Sigríöur hafa ekki leikiö verr í lang-
an tíma. Vörnin fylgdi illa fram
þannig aö mikið bil myndaöist milli
varnar og sóknar. Og þó Blika-
stúlkurnar væru meö knöttinn
langtímum saman j síðari hálfleik
voru sóknaraögeröir liösins alls
ekki nægilega markvissar.
Skagastúlkurnar geröu hiö eina
rétta eftir aö hafa komist 2:0 yfir
Tóku enga áhættu enda mikið í
húfi. Utileikur gegn aöalkeppinaut-
unum. Liöiö getur leikiö vel. Mark-
vöröurinn er öruggur, vörnin góö
og miöja og sókn hættuleg í
skyndiupphlaupum. Besti maöur
liösins var Ragna Lóa Stefánsdótt-
ir í vörninni. Geysilega sterkur leik-
maöur.
—SH.