Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C/D 15. tbl. 80. árg. Kínverjar í flugnastríð KÍNVERSK stjórnvöld, sem reyndu einu sinni að útrýma fuglunum, hafa nú Iýst yfir „föðurlandsstyijöld“ gegn flugum. Verður stríðið háð í Peking og er tilgangurinn sá að gera borgina „hreinni og skemmtilegri“. Stórkost- Iegar stríðsyfirlýsingar á hendur villt- um dýrum eru sérgrein kínverskra kommúnista og frægasta dæmið er frá 1958, á tíma „Stóra stökksins framávið“, þegar Maó formaður skip- aði landsmönnum að drepa fuglana, sem ætu kornið. I margar vikur voru barðar bumbur og málmskálar um allt landið til að fæla fuglana og helst að halda þeim á flugi þar til þeir ör- mögnuðust og dyttu niður dauðir. í mörg ár á eftir var merkilega lítið um fugla í Kína en þeim hefur þó farið fjölgandi. Það var fréttastofan Nýja Kína, sem skýrði frá flugnastríð- inu, sem nú er á næsta leiti, en upp- lýsti ekki hvernig að því yrði staðið. Frosið fóstur orðið að barni Annabelle Shorte, 37 ára áströlsk kona, ól í vikunni stúlkubarn á Konunglega norðurstrandarsjúkra- húsinu í Sydney sem þykir tíðindum sæta sakir þess að frosnu fóstri var á sínum tíma komið fyrir í legi hennar. Mun það vera í fyrsta sinn sem frosið fóstur verður að lifandi veru. Þá þyk- ir fæðingin einnig sérstök þar sem nýrri tækni var beitt við fijóvgunina. Sæði manns hennar var sprautað inn í sex egg úr legi konunnar með smá- sjártækni. Þegar þau höfðu fijóvgast var þremur komið fyrir í leginu en hin fryst. Fyrri þungunartilraunin varð árangurslaus en þá voru hin egg- in þýdd upp og komið fyrir á sínum stað með fyrrgreindum árangri. Er þetta fyrsta barn konunnar, en þau hjónin Annabelle og John Shorte höfðu árangurslaust reynt að eignast barn eftir venjulegum leiðum. Vart var stúlkubarnið, sem gefið var nafnið Madeleine, komið í heiminn er þau sögðust myndu reyna að stækka fjöl- skylduna enn frekar. DAUDI KREMLVERJÍNS STOFNAÐ 1913 SUNNUDAGUR 19. JANUAR 1992 PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS Ráðstefna í Washington í næstu viku: Meira en 50 ríki ræða um aðstoð við nýja samveldið Washington. Reuter. RÁÐHERRAR og háttsettir embættismenn hington í Bandaríkjunum í næstu viku til a stoð við sovétlýðveldin fyrrverandi. George una en það getur farið eftir niðurstöðum ht veldisríkja tekst að þrauka af veturinn. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, boðaði til ráðstefnunnar 12. desember sl. án þess að hafa um það samráð við Evrópu- ríkin og hefur það valdið nokkurri óánægju. Evrópumönnum finnst, að Bandaríkjamenn eigi ekki að gangast fyrir þessari ráðstefnu vegna þess, að þeir hafi staðið sig illa í hjálp- arstarfínu við samveldisríkin, aðeins lagt af mörkum 20% matvælaaðstoðarinnar til þessa. Störfum ráðstefnunnar verður þannig hátt- að, að á þriðjudaginn leggja sérfræðingar fram áætlun um hvernig mætt skuli skamm- tímaþörf fyrir matvæli, húsaskjól, orku, lyf og tæknilega aðstoð. Gert er síðan ráð fyrir, ‘rá meira en 50 rílgum koma saman í Was- ð skipuleggja margra milljarða dollara að- Bush Bandaríkjaforscti mun setja ráðstefn- nnar hvort Rússum og íbúum annarra sam- að þátttökuríkin myndi óformleg samtök eða stofnun, sem starfi næstu árin og samræmi hjálparstarfið. Ráðstefnan er í samræmi við þá stefnu Bush forseta, að sem flest ríki axli ábyrgðina á þeim málum, sem hæst ber á alþjóðavett- vangi, enda hefur bandarískur almenningur ýmislegt að athuga við aðstoð við erlend ríki á tímum efnahagssamdráttar og atvinnuleys- is. Samveldisríkjunum hefur nú þegar verið heitið 11 milljörðum dollara í aðstoð, þar af fjórum milljörðum frá Bandaríkjunum og tæplega fjórum frá Evrópubandalaginu, en Baker segir, að meira þurfi að koma til. Er haft eftir bandarískum embættismönnum, að vonast sé til, að ríki, sem lítið eða ekkert hafa komið nærri aðstoðinni til þessa, fáist til að leggja eitthvað af mörkum. Er þá með- al annars átt við olíuríkin við Persaflóa og aðildarríki Suðaustur-Asíubandalagsins. Munu fulltrúar þeirra sitja ráðstefnuna í Washington. Eitt ríkasta iðnríkið, Japan, hefur veitt einna minnstu aðstoðina og er ekki búist við, að mikil breyting verði þar á. Japönsk stjórn- völd hafa að vísu ábyrgst vörukaup samveldis- ríkjanna í Japan fyrir tvo milljarða dollara en nokkur hundruð milljón dollara neyðarað- stoð, sem lofað var tvisvar á síðasta ári, hef- ur ekki skilað sér. Er kennt um skriffinnsk- unni jafnt í Japan sem samveldisríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.