Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJOIMVARP SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 39 < ( I < < < ( i í I á I 0 I Ljósmyndarinn — Jóhannes Long Hjónaband: Jónína Waagfjörð og Gunnar Snævar Sigurðsson voru gefin saman í Bústaðakirkju 28. desember sl. Prestur var sr. Pálmi Matthíasson. Heimili þeirra er í Bandríkjunum. Hjónaband. Þetta eru brúðhjónin Vedeja Cepela og Guðmundur Sig- urðsson, Flateyri. Þau voru gefin saman í hjónaband í Kristskirkju, Landakoti, á síðastliðnu sumri. Ljósmyndarinn — Jóhannes Long Hjónaband: Sigrún Helgadóttir og Karl Karlsson voru gefin saman í Dómkirkjunni 28. desember sl. Prestur var sr. Ægir Frímann Sig- urgeirsson. Heimili þeirra er í Ana- landi 2, Reykjavík. Ljósmyndarinn — Jóhannes Long Hjónaband: Huldrún Þorsteins- dóttir og Andri Lindbergsson voru gefin saman í Fellahelli 28. desem- ber sl. Heimili þeirra er í Möðru- felli 7, Reykjavík. Ljósmyndarinn — Jóhannes Long Hjónaband: Anna Bjarnadóttir og Högni Guðmundsson voru gefin saman í hjónaband í Kópavogs- kirkju 14. desember si. Prestur var sr. Valgeir Ástráðsson. Heimili þeirra er í Álftamýri 28, Reykjavík. Ljosmyndarinn — Jóhannes Long Hjónaband: Sveinbjörg Gunnars- dóttir og Bjarni Jóhannesson voru gefin saman í Dómkirkjunni 28. desember sl. Prestur var sr. Hjalti Guðmundsson. Heimili þeirra er í Bremen, Þýskaiandi. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagskrá: Dægurmálaútvarp og fréttir. Starfs- menn dægurmálaútvarpsíns, Anna Kristine Magnúsdóttir, Bergljót Baldursdóttir, Katrin Bald- ursdóttir, Þorsteinn i. Vilhjálmsson, og fréttaritar- ar heima og erlendis rekja stór og smá mál. Kristinn R. Olafsson talar frá Spáni. 17.00 Fréttir. Dagskrá heldur áfram, m.a. með máli dagsins og landshornafréttum. Meinhornið: 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóöarsálin — Þjóðfundur i beinni útsend- ingu. Sigurður G. Tómasson og Stefán Jón Haf- stein sitja við símann, sem er 91 68 60 90. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Ekki fréttir. Haukur Hauksson endurtekur fréttimar sinar frá því fyrr um daginn. 19.32 Rokkþáttur Andreu Jónsdóttur. (Einnig út- varpað aðtaranótt laugardags kl. 2.00.) 21.00 Gullskifan: „Scott Walker sings Jacques Brel." 22.07 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Úr- vali útvarpað kl. 6.01 næstu nótt.) 0.10 í háttinn. Gyða Dröfn Tryggvadóttir leikur Ijúfa kvöldtónlist. 1.00 Nseturútvarp é báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00,8.30,9.00,10.00,11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24.00. NÆTURÚTVARPIÐ 1.00 Sunnudagsmorgunn með Svavari Gests. (Endurtekinn þáttur.) 2.00 Fréttir. Þáttur Svavars heldur áfram. 3.00 i dagsins önn. Kirkjan er opin í miðri viku. Umsjón: Sr. Halldór Reynisson. (Endurtekinn þáttur frá deginum áður á Rás 1.) 3.30 Glefsur. Urdægurmálaútvarpi mánudagsins. 4.00 Næturlög. 4.30 Veðurfregnir. Næturlögin halda áfram. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson spjallar við hlustendur til sjávarog sveita. (Endur- tekið úrval frá kvöldinu áður.) 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 6.01 Morguntónar. Ljúf lög i morgunsárið. LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Norðurland. AÐALSTÖÐIN FM 90,9/ 103,2 7.00 Útvarp Reykjavík. Fulltrúar stjórnmálaflokk- anna stjórna morgunútvarpi. 9.00 Stundargaman. Umsjón Þuríður Sigurðar- dóttir. Kl. 9.15. (slenskt mál, Guðni Kolbeinsson. 10.00 Við vinnuna með Bjarna Arasyni. [þróttafrétt- ir kl. 11.30 í umsjón Böðvars Bergssonar. (Opin lína í sima 626060). 12.00 Fréttir og réttir. Jón Ásgeirsson og Þuriður Sigurðardóttir. 13.00 Við vinnuna. Umsjón Bjarni Arason. 14.00 Svæðisútvarp. Umsjón Erla Friðgeirsdóttir. Norðurland/Akureyri/Sauðárkrókur. 15.00 í kaffi með Ólafi Þórðarsyni. 16.00 Á útleið. Erla Friðgeirsdóttir. Kl. 16.30 íþrótt- afréttir. 17.00 islendingafélagið. Umsjón Jón Ásgeirsson. 19.00 Lunga unga fólksins. Þessum þætti stjómar Lækjarskóli i umsjón Böðvars Bergssons. 21.00 Undir yfirþorðinu. Þáttur þar sem rædd eru þau mál sem eru yfirleitt ekki á yfirborðinu. ( kvöld er umsjónamaður þáttarins Guðrún Ág- ústsdóttir frá Kvennaathvarfinu. 22.00 Blármánudagur. Umsjón PéturTyrfingsson. ALFA FM 102,9 7.00 Morgunþáttur. Tónlist, fréttir, o.fl. 9.00 Jódis Konráðsdóttir. 9.30 Bænastund. 9.50 Fréttaspjall. 11.50 Fréttaspjall. 13.00 Kristbjörg Jónsdóttir. 13.30 Bænastund. 17.30 Bænastund. 18.00 Natan Harðarson. 20.05 Ævintýraferð Odysseys. 20.35 20 vinsælustu lögin.Umsjón Jim Channell. 21.35 Bænastund með Richard Perinchief. 21.50 Vinsældalistinn ... íramhald. 22.50 Fræðsluþáttur um fjölskylduna. Umsjón: dr. James Dobson. 24.00 Dagskrárlok. Bænalinan s. 675320. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Morgunútvarp Bylgjunnar. Eirikur Jónsson og Guðrún Þóra. Fréttir kl. 7, 8 og 9. Fréttayfir- lit kl. 7.30 og 8.30. 9.00 Anna Björk Birgisdóttir. Hlustendalina er 671111. Mannamál kl. 10 og 11, fréttapakki i umsjón Steingrims Ólafssonar og Eiriks Jónsson- ar. Fréttir kl. 12.00. 13.00 Sigurður Ragnarsson. iþróttafréttir kl. 13.00. Allt það helsta sem gerðist í iþróttaheimi um helgina. Mannamál kl. 14 og 16 i umsjón Stein- gríms Ólafssonar. 16.00 Reykjavík siðdegis. HallgrimurThorsteinsson og Steingrimur Ólafsson. Fréttir kl. 17 og 18. 17.15 Reykjavík síðdegis. Þjóðlif og dægurmál, tónlist og spjall. 18.05 Landsiminn. Bjarni Dagur Jónsson tekur púlsinn á mannlifinu og ræðir við hlustendur. 19.19 Fréttir. 20.00 Kristófer Helgason. 23.00 Kvöldsögur. Umsjón Eiríkur Jónsson. 24.00 Næturvaktin EFFEMM FM 95,7 7.00 Jóhann Jóhannsson i morgunsárið. 9.00 Ágúst Héðinsson á morgunvakt. 12.00 Hádegisfréttir. 15.00 íþróttafréttir. Kl. 15.05 Anna Björk Birgisdóttir. 19.00 Kvölddagskrá FM. 21.00 Ragnar Már Vilhjálmsson. 21.15 Pepsí-kippa kvöldsins. 24.00 Haraldur Jóhannesson á næturvakt. HUÓÐBYLGJAN Akureyri FM 101,8 17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson fylgir ykkur með góðri tónlist. Tekið á móti óskalögum og af- mæliskveöjum i síma 2771 1. Fréttir frá frétta- stofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 18.00. STJARNAN FM102/104 7.00 Arnar Albertsson. 11.00 Siggi Hlö til tvö. 14.00 Ásgeir Páll Ágústsson. Hlustendasími 679102. 18.00 Adam og Eva. 20.00 Magnús Magnússon. 24.00 Næturvakt. ÚTRÁS FM 104,8 16.00 FB. 18.00 Framhaldsskólafréttir. 18.15 IR. 20.00 Kvennó. 22.00 MR. 1.00 Dagskrárlok. Rás 1: Þvíeinn þjjóðarfundur í dag, mánudag, hefst þáttaröð á Rás 1, sem nefnist Þrí- 1 K 03 einn þjóðararfur og fjallar um menningararf Skota, ná- Á O grannaþjóðar, sem íslenidngar hafa gjarnan heimsótt í viðskiptaerindum, jafnt á víkingaöld sem nú. Ætiunin er að kynnast hugarheimi þessarar sérkennilega samsettu þjóðar, sem komin er af Keltum, Engilsöxum og norrænum mönnum. Þrátt fyrir ólíkan uppruna er þjóðarvitund hennar sterkari en flestra annarra, jafnvel þó að í landinu séu enn töluð þijú tungumál, skoska, gelíska og enska. Þessi þjóðarvitund á sér rætur í sögunni, trúarbrögðum og síðast en ekki síst bókmenntum. Sagan segir okkur hvernig þjóðin sameinaðist gegn andskotum sínum, hvernig trúarbrögðin sundruðu henni, svo að víða í þorpum eru þijár kirkjur, og hvernig togstreitan skóp af sér bókmenntir sem eru í senn þjóðlegar og alþjóðlegar. í fyrsta þættinum verður leitast við að rekja sögu Skota í grófum dráttum í bland við bókmenntasöguna. Þar er sagt frá upphafi kon- ungsríkisins og baráttu Skota við að halda sjálfstæði sínu gegn hin- um volduga granna í suðri, fram til þess tíma er ríkin sameinast undir einum konungi. Reynt er að sjá hvernig bókmenntirnar endur- spegla þjóðarvitundina þegar hún er að mótast og mynda um leið þann grunn sem höfundar síðari tíma byggðu á. Þættirnir eru fjórir talsins. Umsjónarmaður er Gauti Kristmannsson. ÁRNAÐ HEILLA Cárur eftir Elínu Pálmadóttur Svona eiga sýslu- menn ekki að vera Svona eiga sýslumenn ekki að vera. Þessi öfugmælaútfærsla á gömlu og góðu tilsvari skaust upp í hugann af gefnu tilefni. Neitun- in hefur þann stóra kost að nú er lag að gera eitthvað í málinu. Téð sýslumannsembætti er ekki til — ennþá. En verður það á þessu ári. Þarmeð tækifæri til að dusta gamalt ryk af málum og steinrunnum aðferðum. Borg- arfógetaembættið í Reykjavík er að kveðja og við málum tekur sýslumaður, samkvæmt nýjum lögum. Sparnaður er orð orð- anna um þessar mundir. Spamaður boðar víst víða samdrátt. Með minnkandi fjárráðum talað um að taka fyrir yfirvinnu og jafnvel fækka starfsfólki. En hefur að nokkrum hvarflað að gera starfs- fólkinu auðveldara að sitja ótruflað við sam- fellda vinnu, sem þarf þá væntanlega að afgreiða á skemmri ráðstöfunar- tíma? Krefst iðni við kol- ann! Þá getur farið í verra. Fólk þarf nú að gera ýmislegt í vinnutímanum annað en að vinna. Skreppa frá í eitt og ann- að, sem ekki er hægt að gera á öðrum tíma. Getur orðið býsna snúið. Kaup og sala og allir löglegir gerningar í höfuðborginni þurfa að þinglýs- ast hjá borgarfógeta. Margur lent í klandri fyrir að hafa látið það undir höfuð leggjast. Gáru- höfundur ætlaði rétt sí svona að koma þar við og leggja inn kaup- samning til þinglýsingar um leið og hann færi í vinnuna einn morguninn. Ók á staðinn upp úr níu. En nei, þar er aðeins opið kl. 10-3. Þessvegna taka 190 manns sig upp á vinnutíma á hveijum degi og halda í bíl, strætisvagni eða gangandi upp í Hlíðar til þess að leggja inn samninginn sem þarf að þinglýsa og svo aftur að nokkrum dögum liðnum til þess að sækja hann. Vísast að óvanir átti sig ekki á því að áður verður að rölta niður í Borgartún til þess að hafa með sér vottorð um eigendaskipti. Þarna eru ekki svo fáar manneskjur á ferð. Býsna margar stundir frá vinnu á hveij- um degi. Starfsstúlka á staðnum upplýsti að árlega væru þarna afgreiddar 47.289 þinglesningar að viðbættum nokkrum flugvéla- skráningum eða að meðaltali 189,92 þinglesningar á dag. Önn- ur sagði uppörvandi að fasteigna- salar gerðu þetta nú oft fyrir fólk, og auðvitað fyrir borgun. Kannski væri ráð að fá fasteigna- sala á launum í snúningana til þess að þurfa ekki að svíkjast um í vinnunni. Hvað ætli fari margar vinnu- stundir á degi hveijum í þetta? Þetta er rétt að verða 100 þús- und manna borg og vegalengdir dijúgar. Þeir sem eru svo heppn- ir að hafa bíl þurfa kannski ekki nema hálftíma til klukkutíma í ferðina í hvort skipti — ef þeir þá rata og finna aðkeyrsluna gegn um flókið einstefnuaksturs- netið. Fyrir utan það að standa upp frá verki, sækja bílinn og finna honum aftur stæði eða bíða eftir strætó. Hugmyndaflug skoitir til þess að giska á hve langan tíma þetta gæti tekið fót- gangandi á miðjum vinnudegi. Frá því að reyna árangurslaust að reikna hve margar vinnu- stundir hve margir menn missa úr eigin vinnu í þinglýsingar á . viku eða ári lá beint við að spyija hve lengi þetta fyrirkomulag hefði verið svona. Allir spurðir svöruðu einum rómi: Frá ómuna- tíð! Reikningsdæmið er nú orðið svo risastórt að uppgjöf er óumf- lýjanleg. En hvað ætli megi nú í þreng- ingum spara af vinnustundum fólksins í borginni með því einu að hagræða svo að hver maður þyrfti ekki að fara á miðjum degi tvisvar sinnum til að fá þinglýs- ingu? Þó skrefið yrði ekki stigið nema til hálfs. Að strax klukkan 9, svo maður nefni ekki enn fyrr, sé þarna einn starfsmaður til þess að taka við plöggum og af- henda þau sem tilbúin eru og svo aftur til klukkan 6 eða háif sex. Þá gæti allur þessi sægur sparað sér að taka nema helming tímans í vinnutímanum. Er bara ekki þarna búið að finna meiri vinnu- sparnað en margar hagræðing- artilraunir sem gumað er af? Kannski mætti snúa sér að því að drýgja vinnustundir alls liðsins á fleiri stöðum. Svo lengi hefur það tíðkast hér hjá okkur að gengið sé út frá nauðsyn þess að fólk skreppi til að leysa sín mál í vinnutímanum, að engum hefur sjálfsagt dottið í hug svona snjallræði: Að með hagræðingu í þjónustunni í samfélaginu geti starfsfólk kannski nýst til vinnu á sínum stað og komist yfir það sem gera þarf. Ekki er svo langt síðan við^ tekið var að fólk gerði öll sín innkaup í vinnutímanum — skryppi frá áður en búðum væri lokað. Nú er það horfið. Kannski mætti þetta takast víðar. Hvað um það. Nú er lag. Á þessu ári á að verða breyting á fyrirkomulagi þinglýsinga, hvorki meira né minna. Nýtt sýslumannsembætti tekur við. Kannski á nýjum og aðgengilegri stað í bænum? Jafnvel með ha- græðingu? Hver veit? Þarna er brýn þörf á að neytendur eigi sér málsvara. Neytendasamtökin ættu að vera með. Og vinnuveit- endur! Svona eiga sýslumenn a.m.k. ekki að vera. Vonandi verður sýslumaðurinn í Reykjavík ekki svona. Megi hann spara Reykvík- ingum ótal vinnustundir. P.s. Stóðst ekki freistinguna að ræna þessari ágætu mynd um vinnusparnað og hagræðingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.