Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 LIST Kolaportið verður fjölsóttasti sýningar- salur landsins Umsjónarmenn útimarkaðarins í Kolaportinu eru nú sem óðast að vinna í því að koma þar upp sölugalleríi fyrir frístundamálara og aðra áhugamyndlistarmenn. Gallerí Port skal það heita og er áætlað að það opni 25. janúar næst komandi. Við viljum opna þama farveg fyrir þessa listamenn að koma verkum sínum á framfæri,“ sagði Helga Mogensen hjá Kclap- ortinu í samtali við Morgunblaðið. Hún sagði enn fremur, að þau hefðu einmitt notið mikils stuðn- ings listamanna við að lífga upp á Kolaportið með ýmsum hætti og þá ekki síst þess tóra hóps listmál- Helga Mogensen og Jens Ingólfsson. ara sem hefur myndskreytt alla veggi Kolaportsins „með frábær- um árangri“, eins og Helga segir. Helga sagði enn fremur að gall- eríið yrði fastur liður í starfsem- inni og myndi vera opið ala venju- lega markaðasdaga. Boðin yrði geymsla listaverka á milli opnanna og þama gæti þessi hópur myndli- stafólks komið verkum sínum í umboðssölu. Sérstakir aðilar á veg- um markaðarins verða þarna til eftirlits, en vonast er til þess að listamenn verði einnig á staðnum til að kynna verk sín. Jens Ingólfs- son hjá Kolaportinu sagði í sam- tali við Morgunblaðið að vart gæti á annan veg farið en að þetta mæltist vel fyrir, markaðsdaga. kæmu að jafnaði 10.000 manns í Kolaportið og því yrðiþetta„fjöl- sóttasti sýningarsalur landsins", eins og hann komst að orði. NYÖLD Röddín notuð til að finna rétta sveiflutíðni Nýaldarsamtökin hafa boðið þekktri bandarískri söngkonu, Molly Scott, hingað til lands daganna 22. - 26. janúar næst komandi. Molly Scott er söngvari, tónsmiður og kennari og hún mun m.a. kynna í fyrsta sinn hér á landi það sem hún kallar hljóðmögnunarheilun, en þar kennir hún fólki að samstilla andlega og líkamlega sveiflut- íðni með hjálp tónlistar. Að sögn Guðlaugs Berg- mann formanns Nýaldar- samtakanna hefur Molly fengist við svokallaða hljóð- mögnunarheilun síðustu 17 árin, í Bandríkjunum, Evrópu og Mið Ameríku. Hún starf- aði í upphafi við leiklistarstörf í leikhúsum og sjónvarpi, en fljótlega fór hún að semja tónlist „sem endurspeglaði skilning hennar á sambandi manns og náttúru,“ eins og Guðlaugur sagði. Guðlaugur sgaði enn frem- ur, „tónlistarstarf hennar hef- ur leitt til þess að hún hefur skapað aðferð til heilunnar sem hún nefnir hljðmögnun- arhéilun. Sú aðferð byggir á því að nota röddina til að finna rétta sveiflutíðni sem virkar heilandi á líkamann. Einnig notar Molly aðrar heilunaraðferðir til að losa Molly Scott. um djópstæð sárindi og áföll og endur- heimta þannig jafnvægi í líkama, sál og huga. Hljóðmögnunarheilun er beitt til að losa um andlega jafnt sem líkamlega streitu og skapa þannig heildarflæði í orkusviði ein- staklingsins.“ í fréttatilkynningu frá Nýaldarsamtökunum segir jafn framt, að hljóðmögnunarheilun auki á hæfni okkar til samúðar og tilfinningalegs sveigjanleika sem aftur gerir kleift að nýta sér eigin orkuforða til sköpunar og heilunar. Aðferð þessi er einnig mikilvægt tæki til þess að takast á við ein- angrun, missi, andlegar kreppur og umrót. Höfuðmarkmið þessarar tegundar heilunar sé að öðlast „samhljómun í eigin tjáningu í heiminum“, eins og þar stendur. Eitt þekktasta lag Molly Scott heitir „We Are All One Planet" og hefur heyrst nokkuð hérlendis að undanförnu. HRESS IVETUR Hvort heldur ætlun er að styrkja, liðka, megra, auka þol eða allt þetta I senn þá getur þú verið viss um að finna námskeið við þitt hæfí hjá HRESS, á tíma sem þér hentar. Frábærir kennarar og góð aðstaða tryggja góðan árangur. Meiri styrkur og þol gefur þér nýjan lífsþrótt, bætt útlit og aukið sjálfsöryggi og vellíðan. Vertu með í hressum hópi. Ukamsrækt Átak í megrun Vaxtamótun Fitubrennsla (Púl) Fyrir barnshafandi Start Nýr lífsstíll Old boys Kvennaleikfimi Morguntímar Dagtímar (azzballettet Vigtun Matseðlar Fitumæling Ráðgjöf Æfingar með lóðum Æfingar með teygjum Vatnsgufubað Ótakmörkuð mæting Frábærir Ijósabekkir Barnagæsla frá 9.30 -16.00 7 mínútur úr Breiðholti HRESS iJkamsimlKT cx; ijos bæjwrhraum a/vno kehavkurveonn/sim 652212 %

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.