Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA/VEÐUR SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 9 GUÐ Hugmyndin eða tilfinningin fyrir því að eitthvert það afl sé til sem kalla má Guð virðist vera hluti af eðli og sögu mannanna. Reyndar hafa góðir fræðimenn einmitt ráðist á trúarbrögðin almennt á þeim for- sendum að þau séu ekkert annað en endurspeglun ótta mannsins við dauðann eða draumur hans um fegurra og betra líf en það sem býðst á jörðinni. Þeir halda því fram að maðurinn varpi öllum óuppfylltum óskum sínum í himininn og kalli þær Guð. Til gamans má á móti spyija, á hvað er óskun- um varpað? Þegar við horfum á mynd frá myndvarpa sæist hún ekki ef ekki kæmi til tjaldið sem gefur myndinni líf. Gæti Guð ekki verið það tjald er menn varpa draumum sínum á? Hvað sem því öllu líður og um það mætti rita langt mál, þá er trúarþörf manna staðreynd og hefur ætíð verið. í sögu trúarbragðanna er hægt að greina þrenns konar megin hug- myndir um Guð eða guði. Þær endurspeglast í öllum þeim trúar- brögðum og trúarhugmyndum sem við hittum fyrir í dag. Þar má fyrsta nefna algyðistrúna. Hún gerir ráð fyrir því að Guð sé ópersónulegt afl er býr í öllu og felur í sér kraft sem mótar allt og hægt er að komast í sam- band við með íhugun og ýmiss konar atferli. Guð er allt, allt er Guð. Ekki er hægt að hafa per- sónuleg samskipti við þennan kraft. Hugtakið „persóna“ er komið úr gríska leikhúsheiminum í fornöld. Leikarar þar báru grímu og kölluðu í gegnum hana, létu röddina hljóma í gegnum hana. Persóna leiksins var sá er bar grímuna, einstaklingur er hafði samskipti við annan einstakling. KRISTNIA KROSSGÖTUIVI Þórhallur Heimisson Önnur hugmynd um Guð birtist í fjölgyðistrú. Samkvæmt henni er til fjöldinn allur af guðum. Stund- um blandast algyðistrúin og fjöl- gyðistrúin eins og t.d. í hindúasið, þar sem hinir mörgu guðir eru álitnir skapaðar eða hugsaðar verur líkt og mennirnir, einungis æðri. En ofar öllu er alheimsaflið sem býr í öllu, ópersónulegt og tímalaust. Gagnvart því eru guð- irnir einskis megnugir. Þriðja guðshugmynd mannanna birtist í eingyðistrú. í þeim bás má finna islam, gyðingdóm og loks kristna trú. Hverri þjóð fylgir einnig þjóðtrúin, sem stundum er alþjóð- leg en mótast alltaf af þeim ríkj- andi, opinberu trúarbrögðum er hún mætir á hveijum stað. Ein- gyðistrúin er mjög afdráttarlaus, hvort sem hún birtist í því hvern- ig það afl er að baki öllu býr hef- ur birst, opinberað sig einum eða fleiri körlum og konum. Þar má líkja saman opinberunum Páls postula á veginum til Damaskus, sýn Jósefs Smiths stofnanda mormóna, sýnum Múhainmeðs spámanns og fleiri og fleiri. Ekki skal hér dregið í efa að frásagnir þessara manna af birt- ingu hins guðlega fyrir augliti þeirra eru sannar. Að upplifa afl- ið er að baki öllu býr er sam- merkt öllum trúarbrögðum á einn eða annan hátt. Um líka opinber- um eða sýn er hinsvegar ekki að ræða þegar kristin trú játar að Guð hafi opinberað sig sem mað- urinn Jesús. Þar er verið að segja að Guð hafi orðið maður en ekki birst í sýn, draumi, hugleiðslu eða neinu slíku. Á því tvennu er grundvallarmunur. Sú skilgrein- ing sem mér finnst komast hvað næst því að segja hvað menn eigi við þegar þeir tala um „Guð“ er þessi: Guð er það afl er mestu máli skiptir í lífí hvers og eins. Það er að segja það afl sem menn setja allt traust sitt á, trúa öðru fremur fyrir tilveru sinni, finna tilveru sinni öðru fremur grund- völl í. Ef við gefum okkur það að „Guð“ sé það afl er menn treysta á öðru fremur, þá er hægt að greina enn fleiri guðategundir en hér að ofan hefur verið gert. Póli- tískir „guðir“ verða til þegar menn taka að setja ákveðið pólitískt markmið ofar öllu öðru, gefa því æðsta gildi í lífinu. Á okkar tímum höfum við orðið vitni að því hvern- ig ölf er kenndu sig við guðleysi gerðu stjórnskipulag að átrúnaði. Má þar nefna hinn nýfallna kom- múnisma er setti drauminn um alræði öreiganna ofar öllu og einnig þjóðernissósíalisma Þjóð- veija um miðbik aldarinnar er setti ríkið, þjóðernið og flokkinn ofar öllu. Allt annað varð að víkja. Einstaklingar og þjóðir skiptu þar engu máli, nema sem efniviður í hið nýja þjóðfélag. Öll þau er ekki beygðu sig undir þessi trúarbrögð var reynt að afmá. Sérstaklega átti það við um kirkjuna eða kristnina sem neitaði að lúta öðr- um en Jesú Kristi. Að lokum skal bent á efnishyggju og neyslu- hyggju Vesturlanda sem dæmi um guðsmynd sem nú fer sigurför um heiminn eftir fall kommúnismans í Evrópu. Hvað sem því líður. Postullega trúaijátningin er til- raun kristinna manna til þess að skilgreina hvað þeir eigi við þegar þeir nota hugtakið „Guð“. Guð trúaijátningarinnar er sá Guð sem kemur inn í heiminn og breytir sögunni. Hvemig það hefur gerst er síðan efni í vangaveltur okkar næsta sunnudag. Höfundur er fræðslufulltrúi Þjóðkirkjunnar á Austurlandi. Httmðd: Veöumiofa tslands (Byggt á veöurspá w 16.15 igæn VEÐURHORFUR I DAG, 19. JANUAR YFIRLIT í GÆR: Við Hvarf er djúp lægð, sem hreyfist norður og norðaustur, en yfir Englandi er 1.036 mb hæð. HORFUR í DAG: Vestlæg átt og heldur kólnandi veður. Vestan- lands verða skúrir, en austanlands rignir í fyrstu, en léttir svo til. HORFUR Á MÁNUDAG: Vaxandi sunnan átt og hlýtt. Rigning um sunnan- og vestanvert landið, en annars þurrt að mestu. HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Suðvestlæg átt og fremur hlýtt víðast hvar. Skúrir um sunnanvert landið, slydduél um vestanvert landið, en annars þurrt að mestu. Svarsími Veðurstofu íslands - veðurfregnir: 990600. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6.00 í gær að ísl. tíma Staður hiti veður Staður hiti veður Akureyri 10 alskýjað Glasgow 6 mistur Reykjavik 7 alskýjað Hamborg 5 súld Bergen 7 súld London 1 þokumóða Helsinki ■í-1 1 skýjað Los Angeles vantar Kaupmannahöfn 2 alskýjað Luxemborg vantar Narssarssuaq vantar Madrid vantar Nuuk vantar Malaga vantar Ósló +2 skýjað Mallorca þoka í grennd Stokkhólmur *6 léttskýjað Montreal vantar Þórshöfn vantar NewYork vantar Algarve 6 heiðskírt Orlando 7 alskýjað Amsterdam 5 þokumóða París 3 alskýjað Barcelona 4 léttskýjað Róm 0 þokuruðningur Vín 3 alskýjað f r r Heiðskírt r r r f Rign|ng V Skúrir r r r Q 4 Hálfskýjað ♦_ * * * * 72^ Skýjað * * * * Snjókoma y Él ilÍllk Alskýjað ’ , 9 Súld OO Mistur í Léttskýjað * f * i r * r * Slydda V Slydduél r * r Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er tvö vindstig. —w Vindstefna 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus = Þoka = Þokumóða Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótekanna í Reykjavík dagana 17. janúar til 23. janúar, að báðum dögum meðtöldum, er í Lyfjabúðinni Iðunni, Laugavegi 40a. Auk þess er Garðs Apótek, Sogavegi 108, opið til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema sunnudag. Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópavog í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg frá kl. 17 til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og helgidaga. Nánari uppl. í s. 21230. Lögreglan í Reykjavík: Neyðarsími 11166 og 000. Læknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndimóttaka rúmhelga daga 10-16, s. 620064. Tannlæknavakt - neyðarvakt um helgar og stórhátíðir. Símsvari 681041. Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans s. 696600). Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami sími. Uppl. um lyfjabúðir og læknaþjón. í símsvara 18888. Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskírteini. Alnæmi: Læknir eða hjúkrunarfræðingur veitir upplýs- ingar á miðvikud. kl. 18-19 í s. 91-622280. Ekki þarf að gefa upp nafn. Samtök áhugafólks um alnæmisvandann styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra í s. 28586. Mótefnamælingar vegna HIV smits fást að kostn- aðarlausu í Húð- og kynsjúkdómadeild, Þverholti 18 kl. 9-11.30, á rannsóknarstofu Borgarspítalans, virka daga kl. 8-10, á göngudeild Landspítalans kl. 8-15 virka daga, á heilsugæslustöðvum og hjá heimilislæknum. Þag- mælsku gætt. Samtökin ’78: Upplýsingar og ráðgjöf í s. 91-28539 mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 20-23. Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabba- mein, hafa viðtalstíma á þriðjudögum kl. 13-17 í húsi Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, s.621414. Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718. Mosfells Apótek: Opið virka daga 9-18.30. Laugard. 9-12. Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12. Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12. Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apó- tekið: Virka daga kl. 9-18.30. Laugardaga kl. 11-14. Hafnarfjarðarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardög- um kl. 10-14. Apótek Norðurbæjar: Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum 10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14. Uppl. vaktþjónustu í s. 51600. Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100. Keflavík: Apótekið er opið kl. 9-19 mánudag til föstu- dag. Laugardaga, helgidaga og almenna frídaga kl. 10-12. Heilsugæslustöð, símþjónusta 4000. Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um lækna- vakt fást í símsvara 1300 eftir kl. 17. Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. - Apótekið opið virka daga til kl. 18.30. Laugardaga 10-13. Sunnudaga 13-14. Heimsóknartími Sjúkrahússins 15.30-16 og 19-19.30. Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Neyðarathvarf opið allan sólarhringinn, ætlað börnum og unglingum að 18 ára aldri sem ekki eiga í önnur hús að venda. Opið allan sólarhringinn. S. 91-622266. Grænt númer 99-6622. Símaþjónuta Rauðakrosshússins. Ráðgjafar- og upplýs- ingarsími ætlaður börnum og unglingum að 20 ára aldri. Ekki þarf að gefa upp nafn. Opið allan sólarhringinn. S: 91-622266, Grænt númer: 99-6622. LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki, Ármúla 5, s. 812833. Opið þriðjudaga kl. 12-15 og laugardaga kl. 11-16. G-samtökin, landssamb. fólks um greiðsluerfiðleika og gjaldþrot, Vesturvör 27, Kópavogi, opið 10—14 virka daga, s. 642984, (símsvari). Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s. 622217, veitir foreldrum og foreldrafél. Upplýsingar: Mánud. 13-16, þriðjud., miðvikud. og föstud. 9-12. Áfeng- is- og fíkniefnaneytendur. Göngudeild Landspítalans, s. 601770. Viðtalstími hjá hjúkrunarfræðingi fyrir að- standendur þriðjudaga 9-10. Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 611205. Húsa- skjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Stígamót, Vesturg. 3, s. 626868/626878. Miðstöð fyrir konur og börn, sem orðið hafa fyrir kynferðislegu of- beldi. Virka daga kl. 9-19. MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s. 688620. Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Pósth. 8687 128 Rvík. Símsvari allan sólarhringinn. Sími 676020. Lífsvon - landssamtök til verndar ófæddum börnum. S. 15111. Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22. Fimmtud. 13.30 og 20-22. Vinnuhópur gegn sifjaspell- um. Tólf spora fundir fyrir þolendur sifjaspella miðviku- dagskvöld kl. 20-21. Skrifst. Vesturgötu 3. Opið kl. 9-19. Sími 626868 eða 626878. SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Síðu- múla 3-5, s. 82399 kl. 9-17. AL-ANON, aðstandendur alkohólista, Hafnarstr. 5 (Tryggvagötumegin). Mánud.-föstud. kl. 9-12. Laugar- daga kl. 10-12, s. 19282. AA-samtökin, s. 16373, kl. 17-20 daglega. FBA-samtökin. Fullorðin börn alkohólista. FundirTjarnar- götu 20 á fimmtud. kl. 20. í Bústaðakirkju sunnud. kl. 11. Unglingaheimili ríkisins, aðstoð við unglinga og foreldra þeirra, s. 689270 / 31700. Vinalína Rauða krossins, s. 916464 og grænt númer 996464, er ætluð fullorðnum, sem telja sig þurfa að tjá sig. Svarað kl. 20—23 öll kvöld. Skautar/skíði. upplýsingar um opnunartíma skautasvells í Laugadal, skíðabrekku í Breiðholti og troðnar göngu- brautir í Rvík, s. 685533. Uppl. um skíðalyftur í Bláfjöll- um/Skálafelli s. 801111. Upplýsingamiðstöð ferðamála Bankastr. 2: Opin vetrar- mán. mán./föst. kl. 10.00-16.00, laugard. kl. 10.00-14.00. Fréttasendingar Ríkisútvarpsins til útlanda daglega á stuttbylgju: Útvarpað er óstefnuvirkt allan sólarhringinn á 3295, 6100 og 9265 kHz. Hádegisfréttum er útvarpað til Norðurlanda, Bretlands og meginlands Evrópu: Dag- lega kl. 12.15-12.45 á 15790 og 13830 kHz. og kvöldfrétt- um. Daglega kl. 18.55-19.30 á 11402 og 13855 kHz. Til Kanada og Bandaríkjanna: Daglega: kl. 14.10-14.40 á 15770 og 13855 kHz. Hádegisfréttir. Daglega kl. 19.35- 20.10 á 15770 og 13855 kHz. kvöldfréttir. Daglega kl. 23.00- 23.35 á 15770 og 13855 kHz. Að loknum lestri hádegisfrétta á laugardögum og sunnudögum er lesið fréttayfirlit liðinnar viku. ísl. tími, sem er sami og GMT. SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar Landspítalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin. kl. 19-20.. Sængurkvennadeild. Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyrir feður kl. 19.30-20.30. Fæðingardeildin Eiríksgötu: Heimsókn- artímar: Almennur kl. 15-16. Feðra- og systkinatími kl. 20-21. Aðrir eftir samkomulagi.Barnaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspítal- ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Geð- deild Vífilstaðadeild: Laugardaga og sunnudaga kl. 15- 17. Landakotsspítali: Alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: Heimsóknartími annarra en foreldra er kl. 16- 17. - Borgarspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstu- daga kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugar- dögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðir: Alla daga kl. 14-17. - Hvítabandið, hjúkrunardeild og Skjól hjúkrunarheimili. Heimsóknartími frjáls alla daga. Grens- ásdeild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 - Laugar- daga og sunnudaga kl. 14-19.30. - Heilsuverndarstöðin: Heimsóknartími frjáls alla daga. Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kkl. 15.30-16.00. - Kleppsspítali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. - Kópavogshæl- ið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vífils- staðaspítali: Heimsóknartími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St. Jósefsspítali Hafn.: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlíð hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heimsóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkra- hús Keflavíkurlæknishéraðs og heilsugæslustöðvar: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð Suðurnesja. S. 14000. Keflavík - sjúkrahúsið: Heimsókn- artími virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgar og á hátíð- um: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akureyri - sjúkra- húsið: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30 -16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavarðstofusími frá kl. 22.00- 8.00, s. 22209. BILANAVAKT Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hita- veitu, s. 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgidögum. Rafmagnsveitan bilanavakt 686230. Rafveita Hafnarfjarðar bilanavakt 652936 SÖFN Landsbókasafn íslands: Aðallestrarsalur opinn mánud. - föstud. kl. 9-19 og laugardaga kl. 9-12. Handritasalur mánud.-fimmtud. kl. 9-19 og föstud. kl. 9-17. Útlánssalur (vegna heimlána) mánud.-föstud. kl. 13-16. Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opið mánudaga til föstudaga kl. 9-19. Upplýsingar um útibú veittar í aðalsafni, s. 694326. Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s. 79122. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheima- safn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud. - fimmtud. kl. 9-21, föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn - Lestrarsalur, s. 27029. Opinn mánud. - laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47, s. 27640. Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud. - föstud. kl. 15-19. Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir víðsvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið í Gerðubergi fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miðvikud. kl. 10-11. Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12. Þjóðminjasafnið: Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnudag kl 11-16. Árbæjarsafn: Opið um helgar kl. 10-18. Ásmundarsafn í Sigtúni: Opið alla daga 10-16. Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud.-föstud. kl. 13-19. Nonnahús alla daga 14-16.30. Náttúrugripasafnið á Akureyri: Opið sunnudaga kl. 13-15. Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. Sýn- ingarsalir: 14-19 alla daga. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi. Opið alla daga 12-18 nema mánudaga. Sumarsýning á íslenskum verkum í eigu safnsins. Minjasafn Rafmagnsveitu Reykjavíkur við rafstöðina við Elliðaár. Opið sunnud. 14-16. Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti: Opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Húsdýragarðurinn: Opinn virka daga, þó ekki miðviku- daga, kl. 13-17. Opinn um helgar kl. 10-18. Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnu- daga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn opinn daglega kl. 11-16. Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11-18. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laug- ardaga og sunnudaga kl. 14-17. Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið sunnudaga milli kl. 14 og 16. S. 699964. Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. 13.30-16. Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opin sunnudaga kl. 13.30- 16. Á öðrum tímum eftir samkomulagi. Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.-fimmtud. kl. 10-21. Föstud. 10-19. Lesstofan opin frá mánud.- föstud. kl. 13-19. Byggðasafn Hafnarfjarðar: Opið laugardag-sunnudag kl. 14-18 og eftir samkomulagi. Sjóminjasafn íslands, Hafnarfirði: Opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 14-18. Bókasafn Keflavíkur: Opið mánud.-miðvikud. kl. 15-22, þriðjud. og fimmtud. kl. 15-19 og föstud. kl. 15-20. ORÐ DAGSINS Reykjavík sími 10000. Akureyri s. 96-21840. SUNDSTAÐIR Sundstaðir í Reykjavik: Þessir sundstaðir: Laugardals- laug, Vesturbæjarlaug og Breiðholtslaug eru opnir sem hér segir: Mánud. - föstud. 7.00-20.30, laugard. 7.30- 17.30, sunnud. 8.00-17.30. Sundhöll Reykjavíkur: Mánud. - föstud. kl. 7.00-19.00. Lokað i laug kl. 13.30-16.10. Opið í böð og potta fyrir fullorðna. Opið fyrir börn frá kl. 16.50- 19.00. Stóra brettið opið frá kl. 17.00-17.30. Laugard. kl. 7.30- 17.30, sunnud. kl. 8.00-17.30. Garðabær: Sundlaugin opin mánud.-föstud.: 7.00-20.30. Laugard. 8.00-17 og sunnud. 8-17. Hafnarfjörður. Suðurbæjarlaug: Mánudaga - föstudaga: 7.00-21.00. Laugardaga: 8.00-18.00. Sunnudaga: 8.00- 17.00. Sundlaug Hafnarfjarðar: Mánudaga - föstudaga: 7-21. Laugardaga. 8-16. Sunnudaga: 9-11.30. Sundlaug Hveragerðis: Mánudaga - fimmtudaga: 7-20.30. Föstudaga: 7-19.30. Helgar: 9-15.30. Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga - fimmtud. kl. 6.30-8 og 16-21.45, (mánud. og miðvikud. lokað 17.45- 19.45). Föstudaga kl. 6.30-8 og 16-18.45. Laugardaga kl. 10-17.30. Sunnudaga kl. 10-15.30. Sundmiðstöð Keflavíkur: Opin mánudaga - föstudaga 7-21, Laugardaga 8-18. Sunnudaga 9-16. Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga - föstudaga kl. 7-20.30. Laugardaga og sunnudaga kl. 8-16.30. Siminn er 41299. Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga - föstudaga kl. 7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnudaga 8-16. Sími 23260. Sundlaug Seltjarnarness: Opin mánud. - föstud. kl. 7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.