Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANUAR 1992 ERLEIMT Bæir um- flotnir í Borgarfirði Vegna óvenjulegra hýinda flæddu ár í Borgarfirði yfir bakka sína á mánudag og þriðjudag og urðu af töluverðar skemmdir. Sem dæmi um flóðin má nefna að aldr- ei hefur verið meira vatn í Norð- urá, í flóðunum var rennslið þrít- ugfalt meðalársrennsli. Nokkrir sveitabæir voru umflotnir um tíma og flæddi inn í hús. Milljónatjón varð á vegum og einnig urðu skemmdir á eignum bænda, m.a. girðingum og ræktun. SHdarláni til Rússa hafnað Landsbankinn synjaði á mánu- dag beiðni Síldarútvegsnefndar um að annast lánsútvegum fyrir Rússa vegna saltsíldarkaupa þeirra hér á landi á yfirstandandi síldarvertíð. Sverrir Hermannsson bankastjóri segir að bankinn byggi ákvörðun sína á svari ríkisstjómarinnar þar sem með vísan til álits Seðlabank- ans sé talið of áhættusamt að lána peningana. Mikil fundahöld voru í Seðlabankanum vegna þessa máls í vikunni. Niðurstaðan var að senda mann til Rússlands til að ræða við fulltrúa utanríkisviðskiptabanka ERLENT Júgóslavía heyrir nú sögunni til Aðildarríki Evr- ópubandalagsins viðurkenndu fullt sjálfstæði Slóveníu og Kró- atíu á miðviku- dag, 15. janúar, og er júgóslav- neska sam- bandsríkið þar u'.gur Króati með liðið undir lok. Búist er við, að sjálfstæði Makedóníumanna verði viðurkennt fljótlega eða þegar jafnaður hefur verið ágreiningur Grikkja og þeirra en meiri óvissa er um Bosníu- Herzegovínu. Þar búa Serbar, Króatar og múslímar og ekki ljóst hver er vilji meirihluta íbúanna. Króatar og Slóvenar fögnuðu ákaflega viðurkenningu EB-ríkj- anna og margra annarra ríkja en sambandsstjómin í Belgrad, sem er næstum eingöngu skipuð Serbum, mótmælti viðurkenning- unni sem broti á alþjóðalögum. Serbar segja einnig, að Króatar geti aðeins gert kröfu til sjálf- stæðis á því landi, sem þeir ráða nú, eða með öðrum orðum, að Serbar ætli að halda því króatíska landi, sem þeir hafi lagt undir sig. Evrópubandalagið hefur vís- að þessu á bug. Lítið miðar í viðræðum Þriðju Iotu viðræðnanna um frið í Miðausturlöndum milli ísraela og araba lauk í Washington á fimmtudag án samkomulags um Rússlands en bankastjóri Lands- bankans segir að synjun bankans á síldarláni sé endanleg. Ríkis- stjórnin ákvað að greiða fyrir sal- tíldarviðskiptum með því að opna á ný Tryggingadeild útflutningsl- ána við Ríkisábyrgðarsjóð til að ábyrgjast 150-160 milljóna kr. lán. Samskip kaupa Esju Frakkland: Leitin að arftaka Ríkið hefur leigt Samskipum hf. strandferðaskipið ms. Esju með kauprétti eftir sex mánuði. Kaup- verðið er metið á tæpar 120 milljón- ir kr. Viðræður halda áfram um sölu á fleiri eignum Ríkisskipa. Formaður starfsmannafélags Rík- isskipa segir að mikil óvissa ríki meðal starfsmanna um áframhald- andi störf hjá fyrirtækinu. Hluta starfsmanna hefur verið sagt upp og búist er við frekari uppsögnum um mánaðarmót. Loðnukvótinn aukinn Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra ákvað á föstudag að auka heildarloðnukvótann á vertíð- inni um 300 þúsund tonn, upp í 740 þúsund tonn, og þar af koma 577 þúsund tonn í hlut íslendinga, sem er nálægt meðalveiði okkar síðustu fimm árin. Utflutnings- verðmæti loðnuafurða gæti með þessu orðið 5,4 milljarðar kr. á vertíðinni. Lést eftir hnífsstungu Ungur maður lést af völdum áverka sem hann hlaut þegar sam- býliskona hans stakk hann með hnífí á heimili þeirra í Vestmanna- eyjum á laugardagsmorgun. Konan hefur verið úrskurðuð í 30 daga gæsluvarðhald og henni gert að sæta geðrannsókn. Flugleiðir kaupa ferðaskrifstofur Úrval-Útsýn hí'., dótturfyrirtæki Flugleiða bg Eimskiþs, keypti í vik- unni ferðaskrifstofuna Sögu og yfirtók utanlandsferðir Atlantik hf. Með þessu og gjaldþroti Veraldar er búist við að markaðshlutdeild Flugleiða og dótturfyrirtækja í sölu orlofsferða verði um 50%. nýjan fundarstað en þó var ákveðið að næstu fundir yrðu 10. febrúar. Yitzhak Shamir, forsæt- isráðherra ísraels, ætlar senn að ijúfa þing og boða til kosninga vegna þeirrar ákvörðunar tveggja lítilla flokka harðlínumanna að segja sig úr stjórninni, sem hefur þá ekki lengur meirihluta á þingi. Eru harðlínumenn andvígir þátt- töku í friðarviðræðunum við araba. Borgarastyrjöld í Georgíu? Zvíad Gamsakhúrdía, forseti Ge- orgíu, sem flýði til Armeníu fyrir tæpum tveimur vikum, sneri aft- ur til landsins á fírnmtudag. Er hann nú staddur í borginni Zugdidi í Vestur-Georgíu og í ræðu, sem hann flutti, hvatti hann stuðningsmenn sína til að grípa til vopna gegn núverandi valdhöfum í höfuðborg landsins, Tbílísí. Lýsti hann yfir, að borga- rastyijöld væri hafín í landinu en leiðtogar herráðsins, sem fer með völdin, sögðu enga ógn stafa lengur af Gamsakhúrdía. Brundtland hlynnt EB Gro Harlem Brundtland, for- sætisráðherra Noregs, hefur loksins rofið þögnina um af- stöðu sína til Evrópuband- alagsins, EB, og segir utanríkis- og öryggishagsmuni Norðmanna best tryggða með aðild að band- alaginu. Er litið á ummælin sem stuðningsyfírlýsingu við EB-aðild en Brundtland mun taka af öll tvímæli um það í apríl næstkom- andi. I nóvember ætlar svo flokk- ur Brundtlands, Verkamanna- flokkurinn, að taka formlega af- stöðu til Evrópubandalagsins. Brundtland Mitterrands hafin Nýkjörnum formanni sósíalista falið að lífga upp á ímynd flokksins o g laga hann að breyttum tímum FORM ANN ASKIPTIN í franska sósíalistaflokknum á dögunum sýna, að flokkurinn hefur hafið undirbúning fyrir þingkosningarnar á næsta ári og forsetakosningarnar árið 1995. Sósíalistaflokkurinn, sem nú fer með völd, hefur átt í miklum erfiðleikum síð- ustu misseri og óttast flokks- menn að bæði forsetastóllinn og ríkissljórnin gangi þeim úr greipum. A sama hátt og vinstri menn þjappa sér sam- an, er búist við að hægri menn nái meiri einingu og að Jacqu- es Chirac verði fyrir valinu sem næsti forsetaframbjóð- andi, enda þótt þrjú ár séu eftir af kjörtímabili Francois Mitterrands. Francois Mitterrand Frakklandsforseti og einn af líklegum arf- tökum hans, Laurent Fabius, hinn nýkjörni formaður franska sósíalistaflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra. Sósíalistaflokkurinn hefur átt við margvíslegan vanda að glíma. Honum hefur ekki tekist að sigrast á mesta áhyggjuefni þjóðarinnar, atvinnuleysinu, og vinsældir forystumanna flokks- ins hafa farið minnkandi. Þannig hefur Mitterrand forseti aldrei hlotið jafn slæma útreið í skoð- anakönnunum á sínum forseta- ferli og nú um áramótin og Ed- ith Cresson, forsætisráðherra, nýtur aðeins trausts 20% kjós- enda. Nú þegar aðeins tveir mánuð- ir eru í héraðs- og sveitastjórnar- kosningar, óttast sósíalistar að tap í þeim geti haft keðjuverk- andi áhrif á kosningar til þings á næsta ári og til forseta tveim- ur árum síðar. Þannig á Laurent Fabius, hinn nýkjömi formaður, að lífga uppá ímynd flokksins og laga hann að breyttum tím- um, allt fram til aldamóta. Þessi formannaskipti þykja áfangasig- ur fyrir Mitterrand innan flokks- ins, því hann hefur um árabil viljað fá Fabius sem formann. „Sonur“ Mitterrands Það hefur lengið gustað um Laurent Fabius innan Sósíalista- flokksins. Hann hefur ávallt átt sér bæði trausta stuðningsmenn og harða and- stæðinga, en eiriingin um hann sem form- ann í síðustu viku sýnir að flokkurinn hefur ekki lengur efni á að láta innanflokksdeilur spilla út frá sér. Fabius komst fyrst í sviðsljósið árið 1984 þegar Mit- terrand útnefndi hann forsætis- ráðherra. Faibus var þá aðeins 37 ára gamall og yngstur allra forsætisráðherra í sögu lýðveld- isins. Hann tók við af Pierre Mauroy, sem verið hafði forsæt- isráðherra frá fyrri kosningasigri Mitterrands árið 1981. Laurent Fabius var aðeins for- sætisráðherra í tvö ár, því hægri flokkarnir unnu sigur í þingkosn- ingunum 1986 og Jacques Chirac tók við stjórnartaumunum. Fab- ius var þannig tilvalinn blórabög- gull fyrir ósigrinum og lenti af þeim sökum uppá kant við ýmsa flokksmenn. Eftir að Mitterrand var endurkjörinn forseti 1988 missti ríkisstjórn Chiracs þing- meirihluta, því „sambúðin“ svo- kallaða, forseti úr röðum vinstri manna og hægri ríkisstjórn, gekk ekki vel. Þannig þurfti að grípa til þingkosninga á ný og þá unnu sósíalistar sigur á ný. A sama tíma styrkti Michel Rocard stöðu sína innan flokksins og varð forsætisráðherra. Fabius varð hinsvegar forseti þingsins og gegnir því hlutverki enn. Enda þótt staða Mitterrands hafi verið mjög sterk eftir kosn- ingasigurinn 1988, tókst honum ekki að ná samstöðu um Fabius sem flokksformann. Þess í stað sættust menn á Pierre Mauroy sem nokkurs konar málamyndar- lausn. Tveimur árum síðar reyndi Fabius að ná formannssætinu á flokksþingi sósíalista og aftur hafði hann beinan stuðning Mit- terrands. Eftir mikið þref á þing- inu náði Mauroy að halda sæti sínu, en bæði Fabius og Michel Rocard, þáverandi forsætisráð- herra, höfðu einnig mikið fylgi á bakvið sig. Delors vinsæll Nú þegar Fabius tekur sæti Mauroys er ljóst, að sósíalistar eru teknir að huga að arftaka Francois Mitterrands í Elysée- forsetahöllinni. Margir hafa ótt- ast að hörð bar- átta á milli Fab- iusar og Roeards myndi spilla fyr- ir möguleikum sósíalista á að halda völdum. „Ég fel Fabius formannssætið með þeim skil- yrðum, að hann viðurkenni Roc- ard sem forsetaefni flokksins," sagði Mauroy þegar hann hvarf á brott. Enda þótt Fabius virðist hafa gengið að þessum skilmál- um, er of snemmt að afskrifa hann úr væntanlegri kosninga- baráttu. Auk þess hefur komið fram sú krafa, að Jacques Delors, for- seta framkvæmdastjórnar Evr- ópubandalagsins, verði kallaður heim frá Briissel, en Delors er nú vinsælastur allra stjórnmála- manna í Frakklandi. Reyndar segja franskir fréttaskýrendur ólíklegustu öfl innan Sósíalista- flokksins hafa sameinast um Rocard sem forsetaefni til að koma í veg fyrir, að Delors eða Fabius bjóði sig fram. Hvorugur þeirra hefur svarað fréttamönn- um um fyrirætlanir sínar, en lík- legt er að Mitterrand muni styðja annan hvorn þeirra gegn Michel Rocard. Forsetinn hefur fullan hug á að hafa áhrif á hver verð- ur eftirmaður hans. „Hann verð- ur að vera klár í kollinum og maður fólksins. Þjóðernissinni, en umfram allt evrópskur. Hann þarf að hafa aðra hæfileika en ég og helst ekki vankanta mína,“ sagði Mitterrand á blaðamanna- fundi. Franskir húmoristar sjá engan, sem fellur inni í þessa lýsingu. Hægrimenn sameinast Á meðan sósíaiistar hafa te- kist á hefur verið heldur hljótt á hægri væng franskra stjórn- mála. Samkvæmt skoðanakönn- unum munu hægri flokkarnir vinna sigur í næstu kosningum, en þeir leggja allt kapp á að ná þingmeirihluta á næsta ári. Ta- kist það mun forsetaframbjóð- andi þeirra eiga góða möguleika á sigri árið 1995, því flestir vilja forða frekari „sarnbúð". Undanfarna mánuði hafa staðið yfir samningaviðræður á milli hægri flokkanna, RPR og UDF, um sameiginleg framboð, enda hafa flokkarnir sömu stefnu í grundvallaratriðum. Formenn þessara flokka, Jacqu- es Chirac (RPR) og Valéry Gisc- ard d’Estaing (UDF), renna báð- ir hýru auga til Elyséehallarinn- ar, en Chirac verður að teljast líklegri frambjóðandi. Ciscard d’Estaing hefur það gegn sér, að hafa þegar verið „notaður", þar sem hann var forseti lýð- veldsins 1974—81. Það gæti hins vegar háð Chirac, að hann hefur beðið ósigur í tveimur síðustu kosningum og honum gekk ekki nógu vel sem forsætisráðherra. Framtíð franskra stjórnmála munu líklega ráðast á næstunni, þar sem hveijar kosningar hafa áhrif á þær næstu. Enda þótt Sósíalistaflokkurinn reyni nú að fegra ímynd sína hefur komið í ljós, að nærri 80% þjóðarinnar er sama um hver fer með völd í flokknum. Á sama hátt verða hægrimenn að halda einingu sinni. Annað gæti gefið öfga hægrimanninum Jean-Marie Le Pen byr undir báða vængi, en flokkur hans á ekkert sameigin- legt með öðrum stjórnmálaflokk- um Frakklands. BAKSVID Þorfmnur Ómarsson skrifar frá París

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.