Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 16
Ví 16 <?nnt JTAtJVTAI. p.\ .TOOAaUWTTJg aiGAJaWUOJÍOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 jf eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Hér hringmúr lukti um okkur einn, tvö afhrök manna þjáð, sem veröld hratt frá hjarta sér og himinninn svipti náð, uns hafði syndahefndin blind í hendi okkar ráð. Þannig þýðir Magnús Asgeirs- son hin nöpru orð Oscars Wilde í Kvæðinu um fangann, þann sem „myrti yndi sitt“ og galt fyrir með lífi sínu í Readingsfangelsi árið 1896. Tilhugsunin um innilokun fólks fær mig til þess að minnast ósjálfrátt þessara Ijóðlina þegar ég horfi heim að fangelsinu á Kópavogsbraut 17. Þótt ég segi við sjálfa mig að þetta yfirlætis- lausa hús minni iítt á fangelsi fyrri alda og ég eigi auk þess heldur skemmtileg erindi þangað inn, get ég ekki varið huga minn gegn (lapurlegum endurómi af hugsun Wildes þegar ég hringi á dyrasímann og stíg inn í Iokaðan heim fangelsins. Eg er þangað komin til að skoða nýtt þvottahús í kjallaranum, sem er merkilegt fyrir þær sakir að það er fyrsti vísir að skipulagðri fangavinnu innan veggja fangelsis á höfuð- borgarsvæðinu siðan menn þræl- uðu í „múrnum" forðum daga. Innan dyra hitti ég að máli Ara Ingimundarson yfirfangavörð og Áslaugu Ólafsdóttur fangavörð, sem er „þvottahússtjóri" eins og Ari kallar það. Einn fangavörður að auki, Dagný Ólafsdóttir, bæt- ist í hópinn þegar við setjumst inn í vistlega kaffistofu fangavarð- anna og tökum að ræða saman um nýja þvottahúsið og ýmis önnur mál sem tengjast starfi fangavarða. „Rekstur þvottahússins hófst fyrir þremur mánuðum. Þegar þetta kom til umræðu var kjallarinn ófrágeng- inn að mestu og fengið var leyfi yfir- valda til þess að innrétta hann til þess arna. Allt tók þetta sinn tíma en hafðist þó,“ segir Ari. „Enn sem komið er vinna aðeins tveir fangar að staðaldri í þvottahúsinu," segir Áslaug. „Þar er þveginn þvottur frá fangelsunum á höfuðborgarsvæðinu og Litla-Hrauni, sængurföt og slíkt. Auk þess að þvo og ganga frá þvott- inum er gert við hann ef þörf kref- ur. Einnig stendur til að endurnýja rúmfatnað fangelsanna er fram í sækir.“ Bæði karlar og konur hafa unnið í þvottahúsinu þessa þrjá mánuði. Ég spyr hvort fangarnir kunni al- mennt til slíkra verka. „Já, það sýn- ist mér,“ svarar Áslaug. „En við verðum þó að taka með í reikninginn að það er valið úr fangahópnum í þessi störf. Hér eru að jafnaði tíu til tólf fangar." Um önnur launuð störf er ekki að ræða innan veggja fangelsisins, nema hvað einn fanganna annast þar þrif og fær 175 krónur á tímann. Þeir sem vinna í þvottahúsinu fá sama kaup og vinna að jafnaði fjórar stundir á dag. „Þetta styttir mikið tímann hjá þeirn," segir Áslaug. Auk þess að annast verkstjóm í þvotta- húsinu og taka þar til hendi þegar þörf er á sækir Áslaug óhreinan þvott í hin fangelsin á þessu svæði og skilar honum hreinum og frá- gengnum til baka. Þvotturinn frá Litla-Hrauni kemur hins vegar með þeim daglegu ferðum sem jafnan falla til. Fangaverðimir þrír eru sammála um að allof lítið sé gert til þess að finna föngum verkefni sem stytti þeim stundir og hafi mannbætandi áhrif á þá. „Það vantar alltaf fjár- muni til þess að kenna eða fram- kvæma,“ segir Dagný. „Hér er t.d. engin handavinnukennsla, við sem hér vinnum höfum verið að reyna að segja konum til við_ saumaskap og að pijóna," segir Áslaug. „Við fengum það í gegn að hér voru keypt- ar fjórar nýjar saumavélar og sumir í fangahópnum hafa notfært sér það og saumað á sig föt.“ „Það er mjög misjafnt hvað áhug- inn er mikill á handavinnu, ef einn kemur inn sem vill vinna að slíku þá smitar það frá sér,“ segir Dagný. „Það er mjög breytilegt hvernig and- rúmsloftið innan fangahópsins er, það fer gftir því hverjir sitja inni á hveijum tíma,“ segir Áslaug. Konurnar kröfuharðari Þremenningarnir segja að fang- amir þurfi að skipta mikið saman, t.d. sé borðstofa og sjónvarpsher- bergi sameiginleg. „Mjög margt af þessu fólki þekkist áður en það kem- ur hingað og kemur yfirleitt sæmi- lega saman," segir Ari. „Þetta fólk hrærist flest í sama hóp og langflest- ir eru háðir víni og öðrum vímuefn- um. Hér er samsetning fangahópsins að ýmsu leyti öðru vísi en gerist í hinum fangelsunum. Hér afplána t.d. allar konur sína dóma. Kvenfangar eru miklu erfiðari í gæslu en karl- fangar. Hver kona er á við fjóra til fimm karla.“ Mér þykja þetta merkilegar frétt- ir. „Af hveiju er þetta svona," spyr ég. „Konur gera alls konar kröfur sem körlunum dettur ekki hug að gera,“ segir Áslaug og Dagný bætir við: „Það er alltaf miklu meira stand í kringum kvenfólk, bæði í sambandi við að draga að sér og hafa inni hjá sér, komast í búðir, komast í hár- greiðslu o.s.frv. Þær hafa sumar sem betur fer eldlegan áhuga á útliti sínu þó þær séu lokaðar inni.“ „Hér er blandaður fangahópur og það eykur kannski á tilhaldið," segir Ari. „Ég tel að það sé óheppilegt að blanda saman körlum og konum í fangelsi.“ Þær Áslaug og Dagný samsinna því. „Það skapast allt ann- ar andi við slíka blöndun, við höfum samanburð, því í þessu fangelsi voru í fyrstu aðeins konur. Svo kom í ljós að kvenfangar voru ekki nægilega margir að staðaldri til þess að sú stefna gengi upp,“ segir Ari. „Þetta skapar alls konar vandamál, til dæm- is í sambandi við tilfinningamálin, fólk verður ástfangið, afbrýðisamt o.s.frv. Þótt búrið sé gyllt „Ég myndi breyta þessu og mörgu öðru í fangelsismálum ef ég væri einræðisherra í einn dag,“ segir Dagný og hlær. „Lengst af voru t.d. aðeins einn sálfræðingur og einn félagsfræðingur starfandi fyrir öll fangelsin á landinu, nú hefur sá þriðji bæst við. Við teljum það alltof fá- mennt lið fyrir um 100 manna fanga- hóp sem á við hin margvíslegustu vandamál að stríða. Mér finnst fang- arnir alltaf vera eins og óhreinu börn- in hennar Evu.“ Ég hef orð á því að mér finnist, til að sjá, vel að öllu þarna búið. „Já, það er það að mörgu leyti,“ samþykkir Dagný. „En ef til vill er sama hvar fólk er lokað inni. Þótt búrið sé gyllt og slaufa á öllu saman þá líður því jafn illa að vera lokað inni. Kannski líður fólki bara betur í einhverri „rottuholu", það er í sumum tilvikum í meira samræmi I Kópavogsfangelsi eru að gerast athyglis- verðar breytingar. Þar er kominn fyrsti vísir að skipulagðri fangavinnu á höfuðborgarsvæðinu við sjálfsímynd fanga.“ Áslaug er ekki alveg sammála þessu: „Það eru margir sem sækjast eftir að koma hingað,“ segir hún. Það kemur í ljós að margir fangar koma aftur og aft- ur vegna síbrota. „Einna erfiðasta vandamálið sem við fangaverðir stríðum við er að reyna að hindra að vímuefni berist inn í húsið, en við getum það aldrei hvernig sem við reynum," segir Ari. „Við byijum kannski á öfugum enda í þessu efni,“ segir Dagný. „Ættum kannski að byija á áfengismeðferð fyrir fangana þegar þeir koma hingað. Þó AA- menn komi hingað með fundi, sem er góðra gjalda vert, þá dugar það ekki til. Einstaka fangar fara í áfeng- ismeðferð rétt áður en þeir Iosna.“ Ég spyr hvort þau þijú sjái oft árangur af starfi sínu með föngun- um. „Við sjáum mjög sjaldan jákvæð- an árangur," svarar Ári. „Við reyn- VINNAER MANNB/ETANDI - segir Guðmundur Gíslason forstöðumað- ur fangelsanna á höfuðborgarsvæðinu „AÐSTAÐA til þess að skapa atvinnutækifæri fyrir fanga innan veggja fangelsa hér á höfuðborgarsvæðinu hefur nánast engin verið fram til þessa,“ sagði Guðmundur Gíslason, forstöðumaður fangelsana á höfuðborgarsvæðinu, þegar blaðamaður hitti hann að máli á skrif- stofu hans í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg. „Hér í Hegningarhús- inu er t.d. ekkert hægt að gera nema bíða. Húsið er gamait og niðurn- ítt, enda byggt á síðustu öld og erfitt um vik að breyta því að ein- hverju marki. Fangelsið í Kópavogi var hins vegar tekið í notkun í apríl 1989. Kjallarinn var þá ófrágenginn en þar var meiningin að koma á fót einhverri tómstunda- og vinnuaðstöðu. Hugmyndin að þvottahúsinu kom seinna til sögunnar. Þvottahús í fangelsi er raunar sígild fangavinna, ef svo má segja, og þekkt sem slík út um allan heim, til þess að gera þessar stofnanir sjálfum sér nógar í þvottamálum. Mér finnst allt benda til að í framtíðinni færist starfsemi þvottahússins í aukana og hægt verðí seinna að skapa þar vinnu fyr- ir fleiri fanga en raun ber vitni í dag. Fangelsið í Síðumúla er sérstakt fyrir þær sakir að þar hefur nánast eingöngu verið fólk í gæsluvarðhaldi eða einangrun. Þar hefur ekki verið um neina atvinnustarfsemi að ræða af því að fangar mega ekki vera þar samvistum. Ef koma ætti þar á ein- hverri atvinnustarfsemi yrði það að vera í formi tómstundavinnu inni á herbergi hvers og eins. Fangelsin hér á höfuðborgar- svæðinu eru mjög ólík. Kópavogs- fangelsið er opnast að því leyti að þar geta nokkrir af föngunum farið út í bæ að vinna. Það er reynt að velja vel karlfanga sem þangað fara, hins vegar afplána allir kvenfangar sína dóma þar. í upphafí var gengið út frá að þar færi fram mun meiri atvinnu- og tómstundastarfsemi heldur en í hinum fangelsunum á þessu svæði. í fangelsunum á Litla- Hrauni og á Kvíabryggju hefur lengi verið reynt að skapa sem flestum föngum atvinnu. Það kostar peninga að koma á fangavinnu og hún skilar oft ekki miklum arði. Það er hins vegar álitið mannbætandi að fá mönnum eitthvað til þess að starfa meðan þeir afplána dóma sína. Það kunna hins vegar að vera aðrar leið- ir í þeim efnum en einber launa- \vinna. Kannski verður í fangelsum í framtíðinni lögð meiri áhersla á einhvers konar meðferð fyrir fang- ana eða tómstundastörf, nám o.þ.h. Hingað til hafa afskipti stjórn- I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.