Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.01.1992, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUINJ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1992 j VORIÐ HANS INGÓLFS í PRAG Steinunn Ingólfsdóttir og Haraldur V. Haraldsson. eftir Steinunni Ing- ólfsdóttur og Harald V. Haraldsson Það var með athygli og ánægju, sem við lásum grein Ingólfs Guð- brandssonar „Vorið í Prag“, sem birtist í Morgunblaðinu 18. júlí sl. Þessi ferðasaga hans til hinnar merku borgar kom sér vel, þar sem hún varð okkur mikilvægur leiðar- vísir við heimsókn okkar til borgar- innar dagana 2.-4. ágúst sl. Þessi ferð okkar var ákveðin fyrir nokkuð löngu, þannig að grein Ingólfs kom eins og hvalreki rétt fyrir brottför. Við höfðum að vísu þýska bæklinga til að styðjast við. Ferðin hófst í Numberg, Þýska- landi, á föstudegi, sem helgarheim- sókn og höfðum því ekki nema tvo daga til að skoða Prag. Þar sem tíminn var naumur, en mikið að skoða, fórum við nánast alveg eftir ferðleiðsögn Ingólfs í skoðunarferð okkar um gamla borgarhlutann í Prag. Það fór fyrir okkur eins og Ingólfi að komast ekki inn á gott hótel í miðborginni. í staðinn lent- um við inn á 13 hæða stúdenta- garði í útjaðri borgarinnar, við götu sem heitir Cerymost. Herbergi að vísu rúmgóð, en gistiþjónusta í lág- marki. Hugsanlegt er að við höfum gist sama „stúdentagarð" og Ing- ólfur. Það er sagt öðrum til viðvör- unar, sem hyggjast fara keyrandi til Tékkóslóvakíu, að ætla sér rúm- an tíma til ferðalags, sérstaklega frá Þýskalandi, vegna tafa við tékk- nesku landamærin, einkum um helgar. Bílferð frá Niirnberg til Prag tekur venjulega um 5 tíma. Þennan föstudag tók það okkur 8 tíma að komast þangað, þar af 2ja tíma bið við landamærin. Mikill straumur ferðamanna hefur verið frá Þýskalandi til Prag í sumar. Hef ég það eftir þýskum kunningj- um, að Prag sé í ár „tískuborgin", sem allir vilja fá að sjá og njóta. Enda er hún ein af ódýrustu höfuð- borgum Evrópu til dvalar nú um stundir. Ingólfur fer ekki með fleip- ur þegar hann lýsir fjársjóðum þess- arar borgar: þverskurður bygging- arlistar Evrópu í þúsund ár í öllum stíltegundum; borg hinna þúsund turna; hjarta Evrópu — tónlistar- skóli álfunnar. Við urðum líka snortin af þessum — „þunga straumi listar og sögu, sem hrífur mann aftur í aldir“. Borgin er í einu orði sagt stórkostleg og yfírbragð hennar sérlega aðiaðandi. Það er ekki ætlunin hér að lýsa nýrri ferðasögu til Prag. Til þess er ferðasaga Ingólfs nægilega ýtar- leg og skemmtileg að litlu er þar við að bæta fyrir þá, sem eru í stuttri heimsókn. Það var hins veg- ar sérkennilega óvænt atvik, sem henti okkur, sem gerði þessa ferð sérstaklega eftirminnilega. Okkur fmnst við hæfí, að sagt sé frá þessu hér. Laugardaginn 3. ágúst var byij- að á að skoða hið merka Vemeslas- torg, fórum við eftir líflegri göngu- götu til Púðurturnsins, þar sem ætlunin var að byija skoðunarferð samkvæmt ábendingum Ingólfs. Við gengum niður Kóngabrautina eða Celetná-stræti í átt að gamla ráðhúsinu. Á miðri leið, nánast fyr- ir tilviljun, lendum við inn á hliðar- götu til vinstri út frá Kóngabraut, sem heitir Ovocny. Þessi gata var lokuð allri umferð, þar sem verið var að endurbyggja hana, stein- leggja og setja upp gömul Ijósker í stfl löngu liðins tíma. Við götuna blöstu við Barockhallir á báðar hendur og var nýbúið að endurvinna húshliðamar í sitt upprunalega form og útlit. Forvitni okkar teymdi okkur inn eftir þess'ari fallegu götu. Við vorum ein á ferli, með kvik- myndavél að festa á filmu þessar skrautlegu húshliðar, þegar komið var að byggingarskúr í miðri göt- unni. Handan skúrsins var gatan alveg lokuð, en við hinn enda henn- ar, spölkorn frá, blasti við forvitni- leg bygging í barokkstíl og virtist vera leikhús eða óperuhús. í sömu svipan snaraðist ungur maður, með nafnspjald utan á bijóstvasa, út úr skúrnum og sagði á frumstæðri þýsku að öll umferð á þessu svæði væri bönnuð og að hann væri eftir- litsmaður hér. Við sögðum honum að við værum íslendingar að koma frá Þýskalandi og hefðu sérstakan áhuga fyrir þessum byggingarsögu- legu gersemum. Við spurðum hvort við mættum fara að þessu fallega húsi við enda götunnar og taka myndir. „Ekki nema í fylgd með mér,“ sagði maðurinn. Þetta er „Tyl“-leikhúsið, sem á sér merki- lega sögu. Það er verið að endur- byggja það innan sem utan. Við- gerðir hafa staðið yfir í mörg ár. Eg skal fara með ykkur þangað og gera meira, fara með ykkur inn í húsið og sýna ykkur nokk- uð, sem ekki er aðgengilegt venjulegum ferðamönnum, sjálft musterið. Við litum vantrúuð hvort á ann- að, en þáðum boðið og röltum af stað með manninum. Á leiðinni minntist hann á afmælishátíð Moz- arts, sem nú stæði yfir. Við tjáðum honum að við ætluðum einmitt um kvöldið á leiksýningu um ævi tón- skáldsins. „Don Giovanni eftir Moz- art var frumsýnt hér í Tyl-leikhús- inu 1787. I þessu húsi þarna bjó Mozart meðan á æfíngum stóð,“ sagði fylgdarmaður okkar og benti á gamalt hús skammt frá leikhús- inu. Maðurinn opnaði nú bráða- birgðahurð með hengilás inn á bak- rými leikhússins. Við gengum inn, maðurinn kveikti ljós og við blasti baksvið með turni og tjöldum í full- búnu ástandi. „Komið þið með mér inn í þennan dimma gang, ég þarf að kveikja meiri ljós,“ sagði ungi •maðurinn. „Ætlarðu að treysta þessu manni?“ sagði Steinunn. „Eigum við virki- lega að fara með honum — við verð- um rænd hérna inni.“ „Ég treysti manninum, við tökum áhættuna," svaraði ég. Það var ekki að ástæðulausu að Steinunn var með beyg. Við lentum nefnilega í lífsháska í Napólí fyrir nokkrum árum undir áþekkum kringumstæðum. Það átti að leiða okkur í gildru, en við sluppum. Það er nú önnur saga. Hér vorum við stödd, það var að hrökkva eða stökkva, svo við fórum inn í dimma ganginn með þessum vinsamlega manni. „Opnið þið þessa hurð þarna, ég þarf að fara upp þennan stiga til að kveikja ljós,“ og þar með var maðurinn horfínn. Spenningurinn var nú í hámarki. Við opnuðum nú þessa leyndardómsfullu hurð — og hvflík opinberun! Við tókum andk- öf. Við blasti leikhússalur í rokokóstíl, nýuppgerður. Plastdúk- alengjur lágu yfír rokokóstólum með bláu plussáklæði í sal með upphækkuðum sætaröðum. Á veggjum allan hringinn voru stúkur á svölum upp fjórar hæðir og hver stúka eins og klefí með hurð inn í, eins og tíðkaðist fyrr á öldum. Kristalljósakrónur voru í lofti og fínleg 17. aldar ljósker við hveija stúku. Veggir voru í hvítu með lá- réttum gullbrydduðum listum. Allir stólar voru hvítbæsaðir með gyll- ingum og þessu ljósbláa pluss- áklæði. Loftið í salnum er hvelfíng málað ævintýramyndum. Fremst við sviðið voru viðhafnarstúkur til beggja handa. Tjaldið fyrir sviðinu var listaverk út af fyrir sig, marg- slungin samsetning af ýmsum lituð- um flötum með gylltum brydding- um. Salurinn var tilbúinn. Við vor- um orðlaus af hrifningu. Þvflík ger- semi. Einstök samstilling lita, efnis og áferðar í 18. aldar stfl. Nú birtist fyldarmaður okkar í neðstu viðhafnarstúkunni hægra megin. „Ég ætlaði að koma ykkur á óvart, ég held mér hafí tekist það,“ sagði hann. Þetta er stúka forseta vors Vaclavs Havel. Hér mun hann setjast fýrsta sinn, þegar nýuppgert húsið verður vígt í októ- ber. Við sögðum honum að forsetinn hefði heimsótt Island og hitt forseta okkar Vigdísi Finnbogadóttur. Ef til vill ætti hún eftir að sitja hér með honum á leiksýningu eða tón- leikum og hrífast af þessum stór- kostlega sal. Hann er ekki stór, Bókmenntakenningar ' Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Árni Sigurjónsson: Bókmennta- kenningar fyrri alda. M&m 1991. í formálagerir Árni ágæta grein fyrir hugmyndinni að baki þessu verki og tilganginum með -því. Hann ætlar sér að r^<?a sögu bok-• inenntakenninga' Yrá upphafi og fram til 1500. Hitt sýnist honum hefði líka komið til greina, að sk'rifa þessa bók út frá kerfísbund- inni greiningu. En þá hefði um leið verið um allt annað verk að ræða. Hugsanlega er afstaða Áma til marks um að fræðileg umfjöllun á sögulegum forsendum sé í sókn. Það er mikil þekking saman komin á þessum 240 blaðsíðum. En samt er víða farið hratt yfír sögu, nöfn og kenningar rétt nefndar án þess að víst sé að les- andinn hljóti nógu djúpstæðan skilning á viðfangsefninu. Nefna má sem dæmi þegar sagt er frá þrískiptri frummyndakenningu Platóns. Bæði er hægt að kvarta yfir því að henni skuli ekki vera gerð ýtarlegri skil en um leið má viðurkenna hve gagnorður texti Árna er á þessum blaðsíðum (34-37). Þegar þetur er <pð gáð verður að viðurkenná að' öðmvísi getur framsetninffrP varla verið, einfaldlegá vegna þeirra skilyrða sem bókinni eru sett: á 240 blað- síðum er farið yfir 27 alda þróun bókmenntakenninga. Forvitnilegt er að sjá Snorra Sturluson og fyrstu íslensku mál- fræðingana setta í hóp með öðrum merkum fræðimönnum hámiðalda. Á þessum tíma eru Vesturlandabú- ar að uppgötva forngríska speki á mörgum sviðum, þ.á m. skáldskap- arfræði og mælskulist. Geoffrey frá Vinsauf skrifaði ritgerð sem nefnist Nýja skáldskaparfræðin. Þar kynnir hann ýmis hugtök mælskulistarinnar sem enn í dag mega kallast algeng: myndhverf- ingar, nafnskipti, ýkjur, hluti fyrir heild og breytt orðaröð. Og sumt í kenningu hans er jafnvel eins og sniðið fyrir áróðursmenn 20. aldar- innar: „Flytjirðu ræðu, skaltu láta þijár tungur mæla: fyrst tunguna í munni þér, næst svip þinn og í þriðja lagi bendingar“ (143). Á 11. og 12. öld tóku menntaset- ur í Evrópu enn frekar en áður að leggja áherslu á klassískar menntir og háskólar voru stofnað- ir. Hér er um að ræða undanfara endurreisnarstefnunnar. Að lokum náðu Vesturlandabúar menntum forngrikkja og fóru að lokum fram úr þeim. í þessu sambandi má spyija: Hvernig gat kirkjan leyft að fræði sem voru afsprengi heið- ins hugsunarháttar næðu þvílíkri útbreiðslu? Árni kemur víða að Árni Sigurjónsson þessu athyglisverða atriði og end- urspeglar það í afstöðu einstakr a fræðimanna. Snorri Sturluson kom fornum átrúnaði norrænna manna í hendur okkar gegnum Eddu. Til þess að forna skáldamálið skildist varð norræn goðafræði að fylgja með. Þess vegna skrifaði Snorri Gylfaginningu. Hafi hann ævar- andi þakkir fyrir þa ð. Dante var að sama skapi tilbúinn til að iðka ákveðna hugarleikfimi til að sigla skáldskap sínum fram hjá ásteyt- ingarsteinum kristindómsins. Hann andæfði Tómasi frá Akvínó sem áleit að skáldskapurinn væri lygi. Dante varði hina svokölluðu „fögru lygi“ sem hann taldi að gæti einmitt verið siðbætandi. Dante gekk jafnvel svo langt að telja að viss skáld fomaldar hefðu verið kristin án þess að vita það, s.s. Hómer, Hóras og Virgill. Bókmenntakenningar fyrri alda verður eflaust vel þegin bæði í framhaldsskólum landsins og í háskólanum. Framsetning efnisins er til þess fallin að kveikja áhuga hjá lesendum á ákveðnum stefnum og kenningum. Til að öðlast dýpri skilning í einstökum tilfellum verða menn að leita í önnur rit. Bókinni fylgir gagnleg atriðis- orðaskrá sem tekur yfir bók- menntasöguleg og stílfræðileg atr- iði jafnt á latínu og íslensku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.