Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992 Great Icelandic Waters Inc.: Söluskrifstofa fyrir 13 fylki í vest- ur- og miðríkjum Bandaríkjanna VERIÐ er að ganga frá stofnun söluskrifstofu á vegum Great Icelandic Waters Inc. í San Fransico í Bandaríkjunum. Á skrifstofan að annast sölu á ís- lensku bergvatni fyrir dreifing- arfyrirtækið sem stofnað var í þessari viku. Það er einn stjórn- armanna fyrirtækisins sem veit- ir skrifstofunni forstöðu. Davíð Scheving Thorsteinsson sem sæti á í stjórn Great Ice- Fjórir bílar óökufærir eftir sjö bíla árekstur Sjö bílar skullu saman í röð aftanákeyrslna á Hringbraut í gærmorgun. Fjórir þeirra skemmdust svo mikið, að þá varð að fjarlægja með aðstoð kranabíls. Engan sakaði, en vanfær kona, sem var farþegi í einum bílnum, var flutt á sjúkrahús til rannsóknar. VEÐUR IDAGkl. 12.00 Heimlld: Veöurstola Islanös 'Byggt á veðurspá kl. 16.1S í gær) / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 5 rigning Reykjavik 5 léttskýjaS Bergen 7 skýjaö Helsinki 11 skýjað Kaupmannahötn 12 skýjað Narssarssuaq 2 snjókoma Nuuk +6 snjókoma Ósló 12 skýjað Stokkhólmur 11 skúr Þórshöfn 8 skýjað Algarve 23 heiðskírt Amsterdam vantar Barcelona 17 léttskýjað Berlín 145 hátfskýjað Chieago 8 þoka Feneyjar 12 rigning Frankfurt 14 rigning Glasgow 12 rigning Hamborg 13 skýjað London 11 rigning Los Angeles 15 reykur Lúxemborg 10 skýjað Madríd 20 léttskýjað Malaga 21 iéttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Montreal 10 alskýjað New York 10 skýjað Orlando 16 alskýjað Paris 12 skýjað Madeira 18 skýjað Róm 12 rigning Vín 10 rigning l/Vashington 11 alskýjað Winnipeg 7 úrkoma landic Waters Inc. segir að hluta- bréfin í dreifingarfyrirtækinu verði skráð á mörkuðum í New York, London, Ziirich og Kanada 15 maí nk. en áður þarf Eftirlits- ráð með verðbréfum í Vancouver (Vancouver Securities Commissi- on) að samþykkja bréfin. „Við höfum fengið staðfestar fréttir af því að bréfin gangi nú kaupum og sölum á genginu 2,30 til 2,50 og miðað við það sem fróðir menn segja hér eru allar líkur á að þau verði skráð á því gengi þegar þau fara fyrst á hlutabréfamarkað," segir Davíð. „Stjórn fyrirtækisins hefur síðan heimild til að auka hlutaféð í 20 milljónir dollara og ég reikna fastlega með að það verði gert er Iíður á árið.“ Eignaraðild að Great Icelandic Waters Inc. skiptist nú þannig að Great Icelandie Waters Dist. á 65% en þetta er fyrirtæki í sameign Sólar hf. og Vestur-íslendingsins Gunnars J. Helgasonar. Aðir eiga 35%. í fyrstu stjórn Great Ice- landic Waters Inc. voru kosnir Morris Rollins stjórnarformaður, Gunnar J. Helgason framkvæmda- stjóri, Jon Johnson, Poul Marshall, George Horrigan og Davíð Svheving Thorsteinsson. Að sögn Davíðs hefur fyrirtæk- ið nú í höndum hundruð sölusamn- inga fyrir íslenskt bergvatn og verið er að ganga frá opnun sölu- skrifstofu fyrirtækisins í San Fransisco. Sú skrifstofa á að ann- ast sölumálin í 13 ríkjum vestur- og miðríkja Bandaríkjanna. Sá er veita mun þeirra skrifstofu for- stöðu er George Horrigan. Davíð segir að nú sé hann að skoða þann möguleika að breyta hlutafé Sólar hf. í Great Icelandic Waters Dist. yfir í hlutafé í Great Icelandic Waters Inc. og á hann ,von á að það verði úr. Hann vildi ekki gefa upp hve stór eignarhluti Sólar hf. er. Sykurmolarnir: Bandaríkja- för lokið SYKURMOLARNIR luku á miðvikudag við tónleikaför sína til Bandaríkjanna. För- inni lauk í Los Angeles, þar sem hljómsveitin lék á auktón- leikum vegna mikillar eftir- spurnar og kom síðan fram í sjónvarpsþætti Arsenio Hall, vinsælasta spjallþætti Banda- ríkjanna. Sykurmolarnir iuku á mið- vikudag tónleikaför sinni um Bandaríkin með því að koma fram í þætti Arsenio Hall, sem er vinsælasti spjallþáttur Banda: ríkjanna um þessar mundir. í þættinum lék hljómsveitin lag sitt „Hit“ og eftir lagið brugðu þeir Einar Órn Benediktsson og Arsenio Hall, stjórnandi þáttar- ins, á leik fyrir framan sjón- varpsvélarnar. Hljómsveitin lék í Los Angeles fyrir fullu húsi fyrir stuttu og þurfti reyndar að bæta öðrum tónleikum við á síð- ustu stundu vegna eftirspumar eftir miðum. Hljómplata hljómsvejtarinn'ar, Stick Around for Joy, hefur nú selst í um 250.000 eintökum í Bandaríkjunum, en hún er í 142. sæti á breiðskífulistanum þar í landi. Platan situr nú í öðru sæti háskólavinsældalistans þriðju vikuna í röð, en nýjásfa smáskífa hljómsveitarinnar, Walkabout, er á leið upp vinsæld- alista vestan hafs. Slæmt að vera með lóttaúthlutanir í ‘iskútflutningi - sagði sjávarútvegsráðherra á aðalfundi ÍS „MJÖG SLÆMT er að vera með það geðþóttaúthlutunarkerfi til fárra aðila sem nú er við lýði í saltfiskútflutningi héðan. Það getur leitt til gæðingakerfis sem ég hélt raunar að búið væri að leggja niður hér. Þetta er verkefni sem við þurfum að taka á og betra er að leyfa einungis einum aðila að flytja út saltfisk, eða þá gefa þenn- an útflutning alveg frjálsan," sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra í ræðu sinni á aðalfundi íslenskra sjávarafurða hf. í gær. Þorsteinn Pálsson sagði einnig verður erfítt að sætta öll sjónarmið í þessu máli. Rætt hefur verið um hvort taka eigi sérstakt gjald af sjávarútveginum vegna aflaheim- ildanna en viðbótarskattar munu ekki leiðrétta þá skekkju, sem fram- leiðsluatvinnuvegirnir hafá búið við. Við skulum hins vegar vona að umtalsverður hagnaður verði af veiðum og vinnslu í framtíðinni og sjávarútvegurinn geti því greitt það sem honum ber á grundvelli tekju- og eignarskattslaga." Þorsteinn sagði að átök væru milli neyslu og framleiðslu, þéttbýl- is Og dreifbýlis. „Frá mínum bæjar- dyrum séð væri hins vegar óráðlegt að draga meira út úr sjávarútvegin- um en gert hefur verið og við þurf- um þvert á móti að láta hann hafa meira. Hagvöxtur á íslandi er und- ir því kominn og það er nauðsyn- legt fyrir þjónustugreinarnar. Við sjáum það ekki síst í því atvinnu- leysi sem verið hefur hér á höfuð- borgarsvæðinu. Hins vegar virðast ekki vera nægar upplýsingar fyrir hendi um það á hverju þjóðin lifir.“ m.a. í ræðu sinni að hér hefði verið unnið að mótun fiskveiðistefnu allt frá árinu 1984. Nú sé hins vegar komin nokkuð heildstæð fiskveiði- stjórnun og í fyrra hafi í fyrsta skipti tekist að halda veiðum innan þeirra marka sem ákveðin hefðu verið. Nauðsynlegt sé að það fisk- veiðistjórnunarkerfi sem við byggj- um við leiddi til þess að við næðum þeim markmiðum sem við hefðum um verndun fiskstofnanna og há- marksafrakstur þeirra. Hann hefði hins vegar ekki séð að önnur kerfi en kvótakerfið tryggði þetta tvennt. Aftur á móti þurfi að vera sem mest athafna- frelsi innan sjávarútvegsins. Um það megi deila hvort menn hefðu átt að gefa sér svo skamman tíma til að endurskoða fiskveiðistefnuna. „Hins vegar vænti ég þess að endurskoðunamefndin komist að þeirri niðurstöðu á haustdögum að við getum skipað þessum málum á þann veg að hægt verði að skapa festu í sjávarútveginum. Hins vegar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.