Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992 25 lyndari einstaklingum innan þjóð- kirkjunnar, og vill fylgja orðum Frelsarans: „I húsi mínu eru marg- ar vistarverur“ sem og: „Og dæm- ið eigi, þá munuð þér eigi heldur verða dæmdir“. Söfnuðurinn hefur ekki tekið þátt í fordæmingu á t.d. „nýtrúarhópum", því að þar er einnig að finna kristilegan kær- leiksbrodd, sem því miður vantar svo mikið af í nútíma samfélagi. Miklu nær væri að virkja þann góða kraft sem þar og víðar er að finna til vegsauka fyrir hina kristnu kirkju, og leita þess' sem sameinar menn undir merkjum Krists og kærleika Hans. Samstarf fríkirkju og „þjóðkirkju“ Eins og ljóst má nú vera, er það miklu meira sem sameinar frí- kirkju og „þjóðkirkju" en skilur í milli. Fríkirkjan er hluti af þjóð- kirkju landsins, en hún er þó sjálf- stæð gagnvart „þjóðkirkjunni“. Hún tekur ekki þátt í kirkjuþingi eða biskupskjöri, né annarri starf- semi innan stjómkerfis hennar, en á samvinnu um þau málefni sem menn em samstíga um. Þannig hafa þessar tvær stofnanir um áratugi átt prýðilegt samstarf sín í milli og munu eiga um ókomna framtíð. Flestir fríkirkjupresta hafa hlotið vígslu sína til þjónustu við hina lútersku kirkju af biskupi Islands, en þó hefur núverandi safnaðarprestur Fríkirkjunnar í Reykjavík hlotið sömu vígslu er- lendis. Einnig hafa margir af frí- kirkjuprestum þjónað „þjóðkirkju- söfnuðum“ áður, og jafnvel horfið til þjónustu þangað aftur. Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykja- vik hefur verið í mikilli uppbygg- ingu á síðustu árum. Safnaðar- starfið hefur tekið stakkaskiptum með þátttöku um 100 sjálfboð- aliða, sem vinna að margvíslegum verkefnum, s.s. æskulýðsstarfi, opinni kirkju að næturlagi um helgar, fræðslu- og útbreiðslu- starfi, og í öflugu kvenfélagi. Að- sókn að kirkjunni og þátttaka í safnaðarstarfi hefur aukist til muna, og. settur hefur verið á fót Fermingarskóli fríkirkjunnar til að styrkja þann þátt starfseminnar og jaftm aðstöðumun við hverfis- kirkjur. I síðasta mánuði var lokið við að byggja nýtt safnaðarheimili fyrir söfnuðinn á Laufásvegi 13 og hefur með því ræst áratuga langur draumur. Eftir tvö ár mun kirkjan okkar við Tjörnina eiga 90 ára vígsluafmæli, og verður stefnt að því að gera nauðsynlegar endurbætur á henni fyrir þann tíma. Kostnaður við safnaðarstarfið er eins og áður segir borinn af safnaðargjöldum hvers safnaðar- félaga. Þess vegna skiptir okkur máli að fá hvern nýjan félaga til liðs við okkur, m.a. til að efla enn frekar barna- og unglingastarf, kosta opna kirkju að næturlagi um helgar og auka fræðslu- og útbreiðslustarf og kosta viðhald og endurbætur á kirkjunni okkar. Við erum því að vonum ánægð með að nú fjölgi í söfnuðinum á nýjan leik. Hvað með þig? Eins og áður segir var tilefni þessarar greinar ákveðin ummæli í Morgunblaðinu 5. april sl., og sá misskilningur sem þau virðast ha/a valdið um eðli Fríkirkjunnar á íslandi. Ljóst er að á umliðnum árum og áratugum hefur Fríkirkj- usöfnuðurinn í Reykjavík misst margt fólk úr söfnuðinum við flutninga, einkum yngra fólk með börn sem jafnan eru meira á far- aldsfæti hvar sem það býr á land- inu. Margir sem fallið hafa brott úr söfnuðinum skv. trúfélagaskrá telja sig þó enn vera safnaðar- félaga og er ókunnugt um breyt- ingu á því. Einnig telja sumir að við skírn, fermingu eða giftingu í fríkirkjunni eða hjá fríkirkjupresti verði sjálfvirk aðijci að söfnuðin- Listahátíð: Undrabörnin frá Rússlandi FIMM unglingar frá Rússlandi á aldrinum 12-17 ára halda tón- leika á Listahátíð í vor. Þeir eiga það sameiginlegt að teljast undra- börn í tónlist og hafa hvert um sig haldið tónleika víða um heim og leikið inn á hljómplötur frá unga aldri. Þau koma hingað á vegum alþjóðlegra samtaka er nefnast New Names, sem voru stofn- uð í Rússlandi 1989 með það að markmiði að styðja ungt hæfileika- fólk á sviðum menningar, lista og vísinda. um, en svo er ekki. Til þess þarf að undirrita serstaka skráningu hjá Hagstofu íslands eða presti. Til að koma þessum málum á hreint bið ég hvern og einn, sem telur sig í vafa um aðild sína og aðstandenda sinna að söfnuðinum, að kanna það hjá fríkirkjuprestin- um, Cecil Haraldssyni, sem einnig veitir upplýsingar þeim sem vilja, eða telja sig eiga samleið með okkur og vilja ganga í söfnuðinn. Sunnudaginn 3. maí nk. verður haldin sérstök kynningarsamkoma fyrir fríkirkjufólk, sem fallið hefur brott af félagaskrá á undanförnum árum og aðra þá sem fræðast vflja um fríkirkjuna. Guðsþjónusta verður kl. 14.00 og hefst samko- man að henni lokinni eða um kl. 15.00 í nýja safnaðarheimilinu á Laufásvegi 13. Við bjóðum alla velkomna. Höfundur er formaður Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík. Þeir sem koma fram á tón- leikunum eru gítarleikarinn Grig- iry Goriatsjov, 15 ára mennta- skólanemi frá Pétursborg. Hann kemur reglulega fram í rússneska sjónvarpinu og hlaut silfurverð- laun í alþjóðlegri gítarkeppni í Hollandi á síðasta ári; Alexander Kobrin, 12 ára gamall píanóleikari og nemandi við tónlistarakadem- íuna í Moskvu. Hann hefur komið fram með sinfóníu- og kammer- sveitum í heimalandi sínu og á síðasta ári gáfu samtökin New Names út hljómdisk með píanóleik hans; Ilia Konovalov, 15 ára gam- all fiðluleikari og nemandi við tón- listarakademíuna í Novosibrisk. Hann vann til þriðju verðlauna í alþjóðlegri keppni fiðluleikara sem kennd er við Veniavsky í Póllandi í fyrra; Olga Pushetchnikova, 15 ára píanóleikari frá Moskvu sem stundar nám sitt undir handleiðslu eins þekktasta píanókennara Rússlands, Evgeníu Timakinu. Olga sigraði í hinni árlegu píanó- leikarakeppni í Prag og Vladimir Pushetscímikov, 14 ára trompet- leikari og bróðir Olgu. Hann stundar nám við tónlistarakadem- íuna í Moskvu. -------»--»-■■♦----- ■ FÉLAGIÐ Ísland-Palestína efnir til morgunkaffisamsætis 1. maí í Hlaðvarpanum kl. 11. Elías Davíðsson mætir með nikkuna og tekur lagið áður en gangan og útifundur dagsins hefst. Búnaður: 9 Dieselhreyfill 9 Tengjanlegt aldrif 9 Tregðulæsing á afturdrifi 9 Framdrifslokur Verðkr. 1.449.600,-m.vsk Kjörinn bíll fyrir: 9 Vinnuflokka 9 Bændur S Iðnaðarmenn 9 Útgerðarmenn 9 Verktaka 9 Fjallamenn HEKLA LAUGAVEGI 174 Sl'MI 695500 A MITSUBISHI MOTORS ÞRJGGJA ARA ÆBYRGÐ Fæst einnig nied lengdum palli Kr. 1.621.600 - vsk. 319.131 Verð kr. 1.302.1^69 5 MANNA FÓLKSBÍLL MEÐ VÖRUPALLI TRAUSTUR OG ENDINGARGÓÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.