Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 61
09 61 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992 Tekjur tannréttingamanna um 40 milljónir króna á ári? Frá Vilhjálmi Inga Árnasyni: Heilbrigðisráðherra hefur upplýst á Alþingi að ætla megi að greiðslur vegna tannréttinga verði rúmar 960 milljónir króna á tveim árum. Þessar greiðslur renna að miklum hluta til 12 tannréttingamanna, sem sam- kvæmt því hafa um 40 milljónir króna í árstekjur hver um sig. Margur neytandinn spyr sig senni- lega hvort tölurnar sem ráðherrann gefur upp, geti verið réttar, en því miður er það svo þó þessi rányrkja innan heilbrigðiskerfisins sé stað- reynd og til komin með fijálsum samningi fulltrúa ríkisins við tann- réttingamennina. ' Hér fylgir dæmi um reikninga sem styður upplýsingar ráðherrans. Sé niðurstaða þessa reiknings notuð til að finna árstekjur tannréttinga- manns, kemur í ljós, að hann fær um 40 milljónir úr vösum almennings á ári. Fulltrúum verkalýðsins hefur ítrekað verið bent á þetta tekjumis- rétti, en þeir virðast hafa öðru þarf- ara að sinna en að leiðrétta vand- ann, hefur þó margur „félagsmála- pakkinn" sem þeir hafa óskað eftir af hálfu ríkisins, verið minni en þessi. Til að forðast misskilning skal það tekið fram að með tekjum tannrétt- ingamanns er átt við brúttótekjur, en með launum er átt við laun ein- staklingsins að meðtöldum launa- tengdum gjöldum. F.h. Neytendafélags Akureyrar og nágrennis, VILHJÁLMUR INGI ÁRNASON Pétursborg, Glæsibæjarhreppi. Réttlæti í pörtum Frá Ólafi Tryggvasyni: Réttlæti í pörtum er ekkert rétt- læti, það er aðeins niðurskorið rang- læti. Wiesenthal-stofnunin er ekki stofnuð til að leita réttlætis. Hún er stofnun hefndarinnar, stofnuð til að hefna fyrir glæpi sem framdir hafa verið gegn gyðingum. Væri það hlutverk hennar að leita réttiætis, væri hún fyrir löngu búin að ákæra bæði Begin og Shamir og fleiri for- ystumenn ísraels fyrir hryðjuverk, áþekk þeim sem nasistar frömdu, til dæmis í Lidice í Tékkóslóvakíu, og mörg fleiri. Sigurvegarar í síðasta stríði töldu sig þurfa að greiða skuld Þjóðveija fyrir líf 6 milljón gyðinga og fengu það endurgreitt með lífí nokkurra nasista og töldu sig þar með kvitta. En fyrir slíkt er ekki hægt að greiða með landskika í Litlu-Asíu, sem auk þess er annarra eign, og enn síður með leyfi til að leika aðra jafn grátt og þeir voru sjálfir leiknir eða þeirra fólk. Þar sem þessi stofnun er nú að leita hefnda en ekki réttlætis, eigum við íslendingar ekkert vantalað við hana og skuldum henni engin svör við neinum spurningum hennar, allra síst þar sem þær eru bornar fram með hroka þeirra sem þykjast hafa valdið og réttinn. ÓLAFUR TRYGGVASON Grandavegi 47, Reykjavík. LEIÐRÉTTIN G AR Zinkskortur og lesblinda í PRENTUN Morgunblaðsins á bréfi mínu til blaðsins um zinkskort og lesblindu hafa slæðst inn villur. í fyrsta hluta bréfsins hafa fallið niður setningarhlutar úr málsgrein sem átti að hljóða svo: „Skv. M. Tolonen (1) bendir bresk og finnsk rannsókn til að zinkstyrkur í blóði skólabarna sem þjást af lesblindu sé að meðaltali lægri en eðlilegt er. Skv. bresku rannsókninni var zinkstyrkur 26 skólabarna með lestrarerfiðleika um 'lh af zinkstyrk’ bekkjarfélaga þeirra sem ekki áttu við slíkt að glíma, en í þeirri finnsku voru 13 af 18 skólabörnum með lesblindu með zinkstyrk í blóði undir eðlilegu marki.“ Þá fengu skólabörnin í fínnsku rannsókninni sem nefnd er í bréfinu 15 milligrömm af zinki ásamt 100 míkrógrömmum (ekki mg) af seleni daglega. HERMANN ÞÓRÐARSON Brautarlandi 18, Reykjavík. Föðurnafn leiðrétt í Gárupistli sl. sunnudag var sagt frá ritinu Emblu, sem þijár konur gáfu út á árunum 1945-47. Ein þeirra var Karolína Einarsdóttir frá Miðdal, en föðurnafn hennar misrit- aðist. Karólína er semsagt ekki Ei- ríksdóttir. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á því. VELVAKANDI PÁFAGAUKAR Gulur páfagaukur tapaðist frá Bröttukinn 5 í Hafnarfirði. Upp- lýsingar í síma 652464. Lítill grænn páfagaukur flögraði út í Lönguhlíð 27. apríl. Vinsamlegast hringið í Eirik eða Susanne í síma 19713 ef hann hefur einhvers staðar komið fram. LEÐURSTÍG- VÉL Svart leðurstígvél tapaðist sl. þriðjudagskvöld á leiðinni frá Beykihlíð að Flókagötu. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 679513. GLERAUGU Gleraugu í gleraugnahúsi töp- uðust á annan dag páska í Ráð- húsinu við Tjörnina. Vinsamleg- ast hafið samband í síma 41122 á kvöldin. GÓÐ GREIN Lára Pálsdóttir: Ég vil þakka fyrir góða grein, sem birtist í Lesbók Morgun- blaðsins fyrir skömmu, Eitthvað sem lítur út eins og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson lista- mann. Þetta er grein sem við þurfum öll að lesa. DÚKKUKERRA Bleik dúkkukerra , dúkka og rósóttur kerrupoki töpaðust í leikskólanum Foldaborg í Graf- arvogi 14. apríl. Finnandi er vin- samlegast beðinn að hringja í síma 675369. ARMBAND Gullarmband með rauðum steinum tapaðist á sumardaginn fyrsta í Austurbænum. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 37951. KETTIR Köttur fæst gefins. Upplýs- ingar í síma 92-13845 eftir kl. 19. Laugardaginn 25. apríl týnd- ist tæplega árs gamall grábrúnn bröndóttur högni í Langholts- hverfinu í Reykjavík og er hans sárt saknað. Hann heitir Max og er með ljósbrúna hálsól og eymamerktur í hægra eyra, R1H251. Þeir sem kynnu að hafa orðið hans varir vinsamleg- ast hringið í síma 689798. Fund- arlaun. Átta vikna kettlingar, brön- dóttir og hvítir, kassavandir, fást gefins. Upplýsingar í síma 652472. Svartur fressköttur með hvítar loppur og hvíta bringu fannst við Hagaskóla 27. april. Eigandi getur vitjað hans í Kattholti. Læða ásamt kettlingum, sem eru bröndóttir, tvílitir og þrílitir, þarf að komast á gott heimili. Upplýsingar í síma 75542 HVOLPUR Svartur hvolpur fæst gefins. Upplýsingar í síma 652596. SKÓR OG PEYSA Poki með tvennum dansskóm, svörtum og hvítum, og peysu tapaðist á Hótel íslandi 21. apríl. Finnandi 687580 eftir kl. 13. Bestu þakkir til fjölskyldu minnar, vina og samstarfsfólks hjá SVR fyrir hlýjar kveÖjur og gjafir á 70 ára afmœli mínu. Guð blessi ykkur og gefi ykkur góÖa daga. Jóhannes G. Jóhannesson, Nönnugötu 6. Hjartanlega þakka ég ykkur alla þá vináttu og sœmd sem þiÖ sýnduÖ mér og fölskyldu minni á 70 ára afmœlinu 28. mars 1992. Hlýhugur ykkar mun verÖa mér varma- Og gleðigjafi um framtíð alla. Ég biÖ ykkur virkta í bráÖ og lengd. Barði Friðriksson. INNKAUPASTJÓRAR! Nýkomin sending af LADY JAYNE- hárvörum og franska PETITE-barnahárskrautinu. Einnig MANICARE, sem eru nagla- og húðsnyrtitæki o.fl. í besta gæðaflokki. BIRGÐIR FYRIRLIGG JANDI S: 22128 - 12128, Laugavegi 51. R STÉTIARFÉLAG VERKFRÆEXNGA AÐALFUNDUR Aðalfundur Stéttarfélags verkfræðinga verður haldinn í Verkfræðingahúsinu mánudaginn 4. maí nk. kl. 20.00. Fundarefni: 1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári. 2. Reikningsskil. 3. Skýrslur og tillögur nefnda félagsins. Stofnun sjúkrasjóðs — kynning. 4. Tillögur félagsstjórnar — lagabreytingar. Ráðning starfsmanns í 40-50% starf. 5. Kjör félagsstjórnar, formanns og varaformanns. 6. Kjör endurskoðenda. 7. Önnur mál. Stjórnin. Varst þö í Frfkirkjunni? Á undanförnum árum hefur fjöldi safnaðarfélaga fallið af skrá vegna búferlaflutninga, skv. gömlum stjórnvaldsreglum. Þessum reglum hefur nú verið breytt þannig að nú getur fólk verið í Fríkirkjusöfn- uðinum hvar sem það býr. Hvað með þig? Við höldum sérstaka kynningarsamkomu fyrir Fríkirkjufólk sem fallið hefur brott úr söfnuðinum af þessum sökum og aðra þá sem áhuga hafa, í nýja safnaðarheimilinu á Laufásvegi 13 sunnudag- inn 3. maí kl. 15.00 að iokinni guðsþjónustu dags- ins sem hefst kl. 14.00. Kaffiveitingar. Fríkirkjan í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.