Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 22
T 22_____________________MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992 Greinargerð ASÍ með miðlunartillögu ríkissáttasemjara Þeir tekjulægstu ná kaupmætti eins og- hann var í júní ALÞÝÐUSAMBAND íslands birt- ir greinargerð og skýringar með miðlunartillögu ríkissáttasemjara í fréttabréfi sínu sem er nýkomið út. Skýringarnar eru birtar hér á eftir i heild. „Samningar stéttarfélaganna hafa nú verið lausir síðan í september á síðasta ári. Kaup hækkaði síðast fyr- ir tæpu ári, þ.e. fyrsta júní 1991. Þó verðbólga hafi verið lítil hefur kaupmáttur sigið á tímabilinu og er nú rúmlega þremur prósentum lakari en hann var fýrst eftir þá hækkun. Samningaviðræður hófust á liðnu hausti á vettvangi einstakra sam- banda og félaga. í byijun febrúar var ákveðið að samningaviðræður yrðu á einu borði undir forystu ASÍ jafnframt því sem sambönd og félög fjölluðu áfram um sérmál sín. Fljótlega var tekið upp náið samstarf við BSRB og Kennara- samband íslands. í samfloti ASÍ og opinberra starfs- manna var megin launakrafan að ná kaupmætti júní á síðastliðnu ári. Krafist var kaupmáttartrygginga, úrbóta í velferðarmálum og aðgerða í atvinnumálum. Sérstök áhersla var lögð á að bæta stöðu þeirra tekju- lægstu. Samningaviðræður voru erfiðar. Það var togast á af hörku um lítið efni. Aðfaranótt 28. mars slitnaði upp úr viðræðum. Þegar viðræður hófust aftur 22. apríl blasti við að samningsstaðan var þröng, ekki yrði um miklar kauphækkanir að ræða og ríkisstjómin mundi ekki nema að takmörkuðu leyti koma til móts við kröfur samtakanna. Ákvörðunin um að hefla viðræður að nýju var ekki síst tekin með hliðsjón af erfiðu at- vinnuástandi. Niðurstaða liggur nú fyrir í formi miðlunartillögu sáttasemjara. Hún sýnir að töluverður árangur hefur náðst fyrir lágtekjufólk. Upphafs- hækkunin, 1,7%, samsvarar þeirri verðbólgu sem búist er við á samn- ingstímanum. Kauphækkunin kemur strax en verðbólgan smám saman á tímabilinu. Á samningstímanum er kaupmátt- ur félagsmanna ASÍ í heild áætlaður tæplega einu prósenti hærri en hann var nú í apríl. Kaupmáttur fólks með 80 þúsund króna tekjur á mánuði og þar yfir, sem ekki nýtur launa- bóta, yrði á samningstímanum rúm- lega hálfu prósenti betri en nú er og rúmlega þremur prósentum betri hjá fólki með 55 þúsund krónur á mánuði. Þeir tekjulægstu ná þannig á samningstímanum þeim kaupmætti sem var eftir launahækkunina í júní á síðasta ári, Allir hópar ná betri kaupmætti en nú er. Samskipti verk alýðssamtakanna við ríkisstjórnina hafa markast af því að hún hefur að undanfömu ráð- ist að ýmsum grundvallarréttindum launafólks. Samtökin hafa slegið skjaldborg um þessi réttindi. Þó árangur hafi ekki orðið sá sem von- ast var eftir felur yfirlýsing rík- isstjómarinnar í sér mikilvæg atriði, svo sem reglur um ríkisábyrgð á laun og atvinnuleysistryggingar; ákvörð- un um að ekki beri að greiða fyrir heimsóknir barna að sex ára aldri til heimilislækna, að hætt verði við að loka öldrunardeildum sjúkrahúsa og barnageðdeild Landspítalans; ákvörðun um að vextir í félagslega kerfinu verði ekki hækkaðir og bamabótakerfinu breytt lágtekju- fólki í hag. í viðræðum við ASÍ og atvinnurek- endur féllust stjórnvöld á að lækka vexti ríkisskuldabréfa í 6,5%, beita sér fyrir aðgerðum til að vaxtalækk- unin nái yfir Qármagnsmarkaðinn og reikna má með að almennir útlansvextir bankanna lækki í um 8'/2%. Þó vaxtalækkunin hefði þurft að vera meiri er hér um verulegan árangur að ræða sem skipt getur sköpum, ekki aðeins fyrir einstakl- inga heldur einnig fyrirtækin, af- komu og atvinnuuppbyggingu. Atvinnumálanefnd ASÍ og at- vinnurekenda lagði fram skýrslu með margvíslegum hugmyndum um að- gerðir í atvinnumálum. Forsætisráð- herra viðurkenndi í viðræðum við aðila að nú væri hættuástand í at- vinnumálum og að ríkisstjómin beri ábyrgð á því að tiyggja atvinnu- ástand og atvinnuuppbyggingu. At- vinnumál verða aldrei leyst með yfir- lýsingum. Þau verða ekki heldur leyst í nefnd. Til lausnar þarf þrotlaust starf, framtak og vilja og aðstæður sem gera uppbyggingu mögulega. Atvinnumálanefndin sem ríkisstjóm- in hefur ákveðið að skipa mun því ekki eyða óvissu í atvinnumálum en hún getur stuðlað að því að fmm- kvæði fái notið sín og beitt sér fyrir aðgerðum þar sem hættan er mest. Starf hennar getur haft úrslitaþýð- ingu. Með samningum á vinnumarkaði er óvissu eytt og stöðugleiki á að haldast. Vaxtaiækkun gefur atvinnu- lífinu svigrúm. Forsendur eiga því að vera til atvinnuuppbyggingar. Sú niðurstaða sem nú er fengin er auðvitað ekki sú sem við hefðum helst kosið. En sé litið til atvinnu- ástands og aðstæðna allra er skyn- samlegt að samþykkja þá tillögu sem er til afgreiðslu í félögunum. Kaupmáttur lágtekjufólks mun vaxa, stöðugleiki haldast og forsend- ur em lagðar að traustara atvinnu- ástandi. Samninganefnd ASÍ var einhuga í afstöðu sinni. Hún hvetur félags- menn samtakanna til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni um tillöguna og mælir með því að fólk greiði henni atkvæði. Að hverju er stefnt? * Að enginn lækki í kaupmætti. * Að auka kaupmátt lágtekju- fólks. * Að tryggja stöðugleika og draga úr atvinnuleysi. Hvernig er markmiðunum náð? Enginn lækki í kaupmætti. í miðlunartiilögu sáttasemjara er gert ráð fyrir 1,7% grunnkaups- hækkun þann 1. maí nk. í verðlags- forsendum er gert ráð fyrir 1,8% verðbólgu á næstu 12 mánuðum þannig að í lok samningstímans verð- ur kaupmáttur á svipuðu róli og hann er í dag ef einungis er miðað við upphafshækkunina. Kauphækkunin kemur strax en það tekur verðlagið 12 mánuði að ná sömu hækkun. Kaupmátturinn verður því 0,5% hærri að meðaltali á tímabilinu en hann var í upphafi þessa árs, sbr. töflu. Aukinn kaupmáttur lágtekjufólks. a) Launabætur. í miðlunartillögu sáttasemjara er gert ráð fyrir greiðslu sérstakra launabóta til þeirra sem voru í starfí í maí og desember á þessu ári. Fyrirkomulag á útreikningi þessara launabóta verð- ur með sama hætti og í síðustu samn- ingum, með þeirri undantekningu að viðmiðunarmörkin eru hækkuð úr 60 þ.kr. í 80 þ.kr. og hámark greiðslunn- ar fellur út. Launabæturnar lækka eftir því sem tekjur hækka upp að 80 þ.kr. 'viðmiðunarmörkunum eins og fram kemur í eftirfarandi dæmi: Dæmi um útreikning: M.v. 50 þ.kr. að meðaltali: (80.000 - 50.000)/2 = 15.000 kr. tvisvar á samningstímanum. M.v. 55 þ.kr. að meðaltali: (80.000 - 55.000)/2 = 12.500 kr. tvisvar á samningstímanum. M.v. 60 þ.kr. að meðaltali: (80.000 - 60.000)/2 = 10.000 kr. tvisvar á samningstímanum. M.v. 65 þ.kr. að meðaltali: (80.000 - 65.000)/2 = 7.500 kr. tvisvar á samningstímanum. M.v. 70 þ.kr. að meðaltali: (80.000 - 70.000)/2 = 5.000 kr. tvisvar á samningstímanum. M.v. 75 þ.kr. að meðaltali: (80.000 - 75.000)/2 = 2.500 kr. tvisvar á samningstímanum. Ljóst er að viðmiðunin við 80 þ.kr. hefur áhrif í tvennum skilningi. Ánn- ars vegar fjölgar þeim sem fá launa- bætur frá því sem var samkvæmt fyrri reglum. Samkvæmt upplýsing- um Kjararannsóknanefndar má gera ráð fyrir því að um 25-30% af land- verkafólki innan raða ASÍ fái ein- hverja launauppbót og er þetta nokk- uð stærri hópur en í síðasta samn- ingi. Þegar viðmiðunartalan hækkar úr 60 þ.kr. í 80 þ.kr. hækkar launa- bótin til fólks með tekjur undir 60 þ.kr. um 10 þ.kr. í hvort sinn. Þann- ig fær einstaklingur sem hefur 50 þ.kr. tekjur á mánuði 15 þ.kr. launa- bót í hvort skipti, en fékk 5 þ.kr. í hvort skipti í síðasta samningi. Hér er því um verulega aukningu að ræða. Fyrir þann hóp sem er með tekjur undir 80 þ.kr. á mánuði má meta launauppbótina sem ígildi sam- tals 1,6% launahækkunar m.v. 12 mánaða tímabil. í töflunni og á myndinni hér að framan er yfírlit yfir kaupmáttarþró- un mismunandi tekjuhópa innan ASÍ. Þar kemur fram, að ef dæmi er tekið af einstaklingi með 50 þ.kr. tekjur á mánuði eykst kaupmáttur hans fram til mars á næsta ári um 5% og ef miðað er við 60 þ.kr. á mánuði um 2,7% m.v. janúar á þessu ári. Það er hins vegar ljóst að kaup- mátturinn hefur farið lækkandi und- anfarna mánuði eða síðan laun hækkuðu síðast í júní 1991. Þannig hefur kaupmátturinn fallið um 3,3% frá 1. júní 1991 og um 1,5% síðan í september 1991 þegar kjarasamn- ingar runnu út. Með launabótunum er það hins vegar tryggt að kaup- máttur þeirra sem eru með tekjur undir 60 þ.kr. á mánuði verður í lok samningstímans svipaður og hann var í júní 1991. b) Eingreiðslur. Samkvæmt miðlunartillögu sáttasemjara mun orlofsuppbót hækka um kr. 500 og verður kr. 8.000. Desemberuppbót hækkar um kr. 2.000 og verður kr. 12.000. Hér er um nokkra raun- hækkun að ræða, en þess má geta að desemberuppbótin hefur ekki hækkað síðan í desember 1990. Ljóst er að þessar eingreiðslur vega þyngra hjá þeim tekjulægstu. c) Barnabætur. í yfirlýsingu rík- isstjórnarinnar er gert ráð fyrir breytingum á útreikningi barnabóta. Þær verði tekjutengdar að fullu á sama hátt og gerist með bamabóta- aukann i núverandi kerfi. Jafnframt verði barnabætur og barnabótaauki hjá fjölskyldum með tekjur undir meðaltali hækkaður að sama skapi og að samstarf verði haft við ASÍ, BSRB og Kennarasamband íslands um þessar breytingar. Þó nýtt kerfi hafí ekki verið útfært enn, má gera ráð fyrir að áhrif þessara breytinga á kaupmátt hjóna með 100-150 þ.kr. tekjur á mánuði, tvö börn og annað þeirra undir 7 ára aldri hækki um 2-3% og um 4-5% séu mánaðartekjur 50-100 þ.kr. Hins vegar munu bama- bætur lækka hjá þeim sem hafa háar tekjur. d Gjöld vegna læknisþjónustu. í yfírlýsingu ríkisstjómarinnar kem- ur fram að hámarksgreiðsla fyrir læknisþjónustu vegna bama í sömu fjölskyldu verði lækkuð úr 12.000 kr. í 6.000 kr. Þannig lækki hæsta hugsanlega greiðsla fjölskyldu í 30.000 kr. Jafnframt verður frítt fyrir böm 6 ára og yngri við komu á heilsugæslustöð eða til heimilis- læknis. Slík breyting veldur því að öryggi lágtekjufólks gegn fjárhags- legri byrði vegna læknisheimsókna eykst verulega. e) Lyfjakostnaður. í yfirlýsingu ríkisstjómarinnar er kveðið á um að heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra hafi samstarf við ASÍ, BSRB og Kennarasamband íslands um setningu nýrrar lyfjareglugerðar um hlutfallsgreiðslukerfí. Jafnframt er skýrt kveðið á um það í yfirlýsing- unni, að sett verður greiðsluhámark i þessu nýja kerfi til þess að koma í veg fyrir að þeir sem eiga við alvar- lega sjúkdóma að etja lendi í fjár- hagslegum hremmingum vegna lyfj- aútgjalda. Slíkt öryggi er ekki að fínna í núverandi lyfjareglugerð. f) Vextir í félagslega íbúða- kerfinu. í yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar er fallið frá fyrirhugaðri hækk- un á vöxtum í félagslega íbúðarkerf- inu á samningstímanum. Þar með tókst að koma í veg fyrir verulega hækkun á vaxtabyrði þess fólks, sem býr í félagslegum íbúðum. Að tryggja stöðugleika og draga úr atvinnuleysi Á undanförnum mánuðum hefur atvinnuleysi aukist umtalsvert, eink- um á höfuðborgarsvæðinu. í samningaviðræðunum voru gerðar kröfur um aðgerðir til að auka at- vinnuöryggi. Atvinnumál hafa því verið eitt helsta viðræðuefnið við atvinnurekendur að undanförnu. Samdráttur í sjávarafla og lækk- andi verð á útflutningi eru atriði sem ekki er hægt að ráða bót á með kjara- samningi. Aftur á móti er hægt með sameiginlegu átaki á innlendum vett- vangi að bæta og hlú að rekstrarör- yggi fyrirtækja og jafnframt skapa ný atvinnutækifæri. í bókuðu sam- komulagi samningsaðila og í yfirlýs- ingum frá ríkisstjórn og bönkum er tekið á nokkrum veigamiklum atrið- um í þessu sambandi. a) Lækkun vaxta. Lækkun vaxta er mikilvægt atriði til að draga úr kostnaði í rekstri fyrirtækja og bæt- ir þar með rekstarskilyrði þeirra, gefur svigrúm til launahækkana og eykur atvinnuöryggi. Einnig auka lægri vextir vilja til uppbyggingar og fjárfestingar og skapa atvinnu með þeim hætti. Með yfirlýsingu ríkisstjómarinnar um lækkun vaxta á ríkisskuldabréf- um og ríkisvíxlum og þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin er tilbúin að grípa til svo vextir á fjármagnsmarkaði lækki auk yfírlýsinga banka og spari- sjóða um lækkun vaxta, munu raun- vextir lækka a.m.k. um 1% innan viku til hálfs mánaðar. Nafnvextir munu lækka meira en nemur lækkun raunvaxta því með þeim stöðugleika sem fylgir samkomulagi á vinnu- markaði munu verðbólguviðmiðanir við vaxtaákvarðanir lækka. b) Óvissu eytt. Sátt á vinnumark- aði og horfur um stöðugt gengi ásamt litlum kostnaðar- og verð- hækkunum dregur úr óvissu í rekstri fyrirtækja og heimila. Stöðugleiki og minni óvissa eykur öryggi og áræði til framkvæmda og Qárfestingar. Þannig eykst eftirspum eftir fólki til starfa. c) Stefnumörkun í atvinnumál- um. í framhaldi af tillögugerð at- vinnumálahóps ASÍ og VSÍ/VMS frá því í mars síðastliðnum, þar sem reifaðar voru margar hugmyndir og aðgerðir sem gætu tryggt atvinnu og skapað ný störf, var ákveðið í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að skipa nefnd þessara aðila og sveitar- félaga. Þessi nefnd á að huga að stefnumörkun í atvinnumálum til að örva framleiðslu og tryggja atvinnu. Ríkisstjómin mun í samstarfi við aðila í atvinnulífi og á fjármagns- markaði beita sér fyrir útvegun fjár- magns svo að nefndin geti unnið markvisst að verkefnum sínum. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Eitt áhersluefni þeirrar kjaralotu sem nú er að baki var að ná því til baka sem stjómvöld höfðu tekið af fólki með efnahagsaðgerðum vetrar- ins og veq'a réttindi launafólks. ASÍ, BSRB og Kennarasamband íslands lögðu fram sameiginlegan lista yfír þau atriði í velferðarmálum sem þau töldu brýnt að stjórnvöld tækju á í tengslum við kjarasamninga og áttu fjölmörg viðtöl við ráðherra og að- stoðarmenn þéirra til að fylgja mál- um eftir. Það olli vonbrigðum hversu lítil viðbrögð stjómvalda vom og áttu þessi dræmu viðbrögð sinn þátt í því að upp úr samningaviðræðum slitn- aði í mars. Þegar hefur verið minnst á nokkra veigamikla þætti í yfírlýs- ingu ríkisstjómar sem samnings- aðilum var afhent við_ framlagningu miðlunartillögunnar. í inngangi yf- irlýsingarinnar er getið um markm- iðin: að tryggja atvinnu, lækka vexti og halda verðbólgu í skefjum. Auk þess sem að framan er sagt er rétt að geta eftirfarandi atriða: a) Ríkisábyrgð á laun. Þann 1. mars sl. tóku gildi lög um ábyrgð- arsjóð launa við gjaldþrot en lög um ríkisábyrgð á launum voru þá afnum- in. Helstu breytingar urðu þær að skattur var lagður á atvinnurekendur til að standa straum af kostnaði. Ríkisábyrgð á lífeyrissjóðsiðgjöldum var afnumin auk þess sem ábyrgðar- tími launa var skertur og ákvæði um vexti og kostnað við innheimtu kröfu tekin út úr lögum. Þess.u mótmælti ASÍ og krafðist þess að lögin yrðu færð í fyrra horf. ASÍ og VSÍ lögðu síðan fram sameiginlegar hugmyndir að nýjum lögum um ábyrgð á launum við gjaldþrot. í yfirlýsingu ríkis- stjórnar segir að hún muni beita sér fyrir því að réttur til greiðslu launa og lífeyris við gjaldþrot verði færður til samræmis við þessar hugmyndir. b) Atvinnuleysisbætur og fæð- ingarorlof. í sparnaðarátaki stjórn- valda voru uppi áform um að skerða atvinnuleysisbætur og breyta rétti til fæðingarorlofs. Ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu um að þessi réttur verði ekki skertur á samningstíman- um. c) Hjálpartæki. í vetur var regl- um um þátttöku sjúklinga í kostnaði við kaup á hjálpartækjum breytt og kostnaðarhlutdeild sjúklinga aukin. Það varð m.a. til þess að sykursýk- is-, stóma- og krabbameinssjúklingar þurftu að greiða mun hærri hlut í hjálpartækjum en áður hafði verið. Þetta var leiðrétt þá strax og í við- ræðum við aðila hjá heilbrigðisráðun- eyti og Tryggingastofnun ríkisins var því heitið að þessi ákvæði yrðu áfram 50.000 55.000 65.000 75.000 70.000 75.000 80.000 Meðalt. ASÍ Spáum þr. framf. vísit. l.jan. '92 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 160,2 1. febr. ’92 99,9 99,9 99,9 99,9 99,9 99,9 99,9 99,9 160,4 1. mars ’92 99,8 99,8 99,8 99,8 99,8 99,8 99,8 99,8 160,6 l.apríl’92 99,8 99,8 99,8 99,8 99,8 99,8 99,8 99,8 160,6 1. maí ’92 101,5 101,5 101,5 101,5 101,5 101,5 101,5 101,5 160,5 l-.júní ’92 103,7 103,0 102,5 102,1 101,7 101,4 101,1 101,3 161,1 l.júlí’92 103,4 102,8 102,3 101,9 101,5 101,2 100,9 101,1 161,5 l.ág. ’92 103,2 102,5 102,0 101,6 101,2 100,9 100,6 100,8 162,0 l.sept. ’92 102,8 102,2 101,7 101,3 100,9 100,6 100,3 100,5 162,5 l.okt. ’92 102,7 102,1 101,6 101,2 100,8 100,5 100,2 100,4 162,7 1. nóv. ’92 102,8 102,1 101,6 101,2 100,8 100,5 100,2 100,4 162,6 1. des. ’92 105,5 104,2 103,2 102,3 101,5 100,9 100,3 100,7 162,7 1. jan. '93 105,3 104,1 103,0 102,1 101,4 100,7 100,1 100,5 163,0 1. febr. '93 105,2 103,9 102,8 102,0 101,2 100,6 100,0 100,3 163,2 l.mars ’93 105,0 103,7 102,7 101,8 101,1 100,4 99,8 100,2 163,5 Meðalt. á árinu '92 102,1 101,7 101,3 101,0 100,8 100,6 100,4 100,5 á samnt. 103,7 102,9 102,3 101,7 101,2 100,8 100,5 100,7 Kaupmáttarbreytingar mismunandi tekjuhópa. Miðað er við almenn- ar launabreytingar, 1,7% 1. maí, launabætur, helmingur m.f. 80 þ.kr. 1. júní 1992 og 1. des. 1992. Orlofsuppbót hækki í 8 þúsund og desem- beruppbót í 12 þúsund krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.