Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1..MAÍ 1992 17 Keflavík Atvinnuör- yggi fisk- verkafólks nær ekkert „Atvinnuöryggið hjá fiskverka- fólki er nánast ekkert og kaupið er ákaflega lágt. Það alvarlegasta er þó að allt. útlit er fyrir að við sem vinnum við saltfiskverkun munum missa atvinnuna á næst- unni,“ sagði Asthildur Guðmunds- dóttir fiskverkakona í Keflavík. Asthildur er úr sveit en hefur iengstum búið á mölinni og hefur starfað við fiskverkun í 22 ár - allt frá því að hún var 17 ára. Ásthildur sagði að sér litist illa á framkomna sáttat- illögu og sér fynd- ist verkafólk bera allt of lítið úr být- um. Allt of mikið af því sem væri til skiptanna færi í einhvers konar fé- lagsmálapakka sem skilaði sér illa Guðmundsdóttir til þeirra sem mest þyrftu á kaup- hækkun að halda. Ásthildur sagði að oft gengi illa að láta kaupið duga. Þau væru fjögur í heimili og maður- inn sinn ynni einnig út, en það dygði einfaldlega ekki til. „Sú var tíðin að næga vinnu var að hafa í físki í Keflavík, en nú eru aðrir tímar og með sama áframhaldi verða þeir ekki margir sem vinna við þessa atvinnugrein innan fárra ára. Það er með mig eins og fleiri sem starfa í þessari grein, að þegar við missum vinnuna er ekki í mörg hús að venda hvað aðra atvinnumögu- leika varðar.“ Fiskverkunarstöð Jóhannesar Jóhannessonar í Keflavík og þar létu þijú ungmenni, Halla Þor- steinsdóttir, Anna Pétursdóttir og Sveinn Kjartan Sverrisson, hendur standa fram úr ermum við að skapa þjóðinni gjaldeyri. Halla Þorsteins- dóttir hefur unnið sem fiskverka- kona síðan í haust. Hún er 20 ára og sagðist ætla að hætta í vor og fá sér þá aðra vinnu. Halla sagðist hafa stundað nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja en tek- Anna ið sér frí og verið Pétursdóttir „au pair“ í Banda- ríkjunum í eitt ár en ætlaði að halda áfram námi í haust. Hún sagði að vinnan væri oft skemmtileg, en kaupið mætti vera hærra. „Ég og unnusti minn erum að kaupa okkur íbúð Sveinn Kjartan Og okkur veitir Sverrisson ekki af öllu sem við getum unnið okkur inn,“ sagði Anna Pétursdóttir, sem er 18 ára. Anna sagði að það væri mikið átak að standa í íbúðar- kaupum og að þau yrðu að halda vel á spiiunum til að dæmið gengi upp. Sveinn Kjartan sagðist vel komast af með sín laun, enda væri hann enn einhleypur og í foreldrahúsum. BB og kjör upp á síðkastið, og einn- ig hefði hann kynnt sér mjög takmarkað hvað sáttatillga ríkis- sáttasemjara fæli í sér. Aðspurð- ur um hvaða þýðingu 1. maí hefði í hans huga sagði Óskar að dag- urinn hefði enga sérstaka mein- ingu fyrir sig, það væri bara gott að fá frí úr vinnunni þennan dag. Oskar sagðist vera nokkuð ánægður með launin sem hann fengi, en þó mættu þau vera eitthvað aðeins hærri. „Ég byrjaði í þessu starfi í september síðastliðnum og mér. finnst ég fá heldur minna fyrir launin nú en þá. Þess vegna mættu þau hækka aðeins meira en um þessi 1,7% sem rætt er um, og einn- ig mættu lægstu launin hækka tals- vert meira. Maður finnur fyrir því þegar maður er að versla hvað minna fæst fyrir peninginn, en sumt hefur þó lækkað eins og til dæmis bílar, og það finnst mér gott enda er ég að fara að kaupa mér bíl á næstunni,“ sagði hann. Reykjavík Ekki hægt að komast lengra mið- að við ríkj- andi ástand Ásthildur Óskar Már Óskarsson hægt að gera betur miðað við ríkjandi ástand," sagði hann. Kristján sagði að miðað við hvernig kjara- samningar væru gerðir í öðrum löndum þá færi allt of langur tími í samningsgerðina hér á landi. Þá finndist sér verka- lýðsforystan ekki Kristján vera trúverðug og E!narsson ekki hafa komið nægilega vel út. „Þeir vinna þessi mál ekki nóg á þeim tíma sem þeir hafa til þess og þeir lenda þess vegna alltaf í einhveiju stappi í restina. Þeir mættu því nota tímann betur. Það á aldrei að þurfa að koma til þess að þetta tefjist svona eins og það gerir ætíð. Það á bara að vera búið að ganga frá þessu um leið og samningstíminn er útrunninn. Út- koman núna miðað við sáttatillög- una er þó að mínu mati það lengsta sem hægt væri að komast miðað við ástandið, en varðandi laun þeirra lægst launuðu þá er þó aldr- ei nóg gert. Miðað við þessar lág- launabætur sem eru í tillögu ríkis- sáttasemjara þá virðast þær vera af hinu góða, og eins orlofsuppbót- in og desemberuppbótin," sagði hann. Selfoss Gjöld fyrir heilbrigðis- þjónustu afturför BB Keflavík Unga fólkið lét sitt ekki eftir liggja IJNGA FÓLKIÐ lét sitt ekki eftir liggja í saltfiskverkuninni hjá Hér á eftir fer úrdráttur úr ávarpi sem Iðnnemasamband ís- lands hefur sent frá sér í tilefni af 1. maí: „Hinn 1. maí, á alþjóðlegum bar- áttudegi verkafólks fylkir launafólk sér um kröfur verkalýðshreyfingar- innar um betra og fegurra mannlíf. Að undanförnu hefur hreyfingin staðið í erfiðum samningaviðræð- um, eða alveg frá því að þjóðarsátt- arsamningarnir runnu út um miðja september. Mjög illa hefur gengið að ná samningum og atvinnurek- endur hafa látlaust hamrað á því að atvinnulífið þoli engar kaup- hækkanir. Ofan á þetta bætist síðan niðurskurður ríkisstjórnarinnar í velferðarkerfinu og stóraukið at- vinnuleysi. Allur niðurskurður ríkis- stjórnarinnar hefur beinst gegn þeim sem minnst mega sín, barna- fólki, sjúklingum og ellilífeyrisþeg- um. Þetta er sá veruleiki sem verka- lýðshreyfingin hefur verið að reyna að ná samningum í. Reyndar má segja að undangengnar samninga- viðræður hafí fyrst og fremst snú- ist um að halda uppi vörnum fyrir velferðarkerfið, koma í veg fyrir Reykjavík Nokkuð ánægður með launin ÓSKAR Már Óskarsson tæplega 17 ára gamall verkamaður í Reykjavík sagðist lítið hafa fylgst með sanmingum um kaup frekari niðurskurð og reyna að ná til baka einhveiju af þeim niður- skurði sem verst bitnar á þeim sem minnst mega sín. Það er því alvar- legt mál ef hreyfmgunni tekst ekki að halda samstöðu innan sinna vé- banda í þessari baráttu vegna þess að sumir forustymenn hennar eru stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir að Iðnnemasamband íslands telji að það eigi að vera forgangsverkefni á næstunni, að beija niður vextina, er ljóst að kjör sumra hópa í þjóðfélaginu eru með þeim hætti að það þolir enga bið að bæta þau. Það verður að bæta kjör þeirra lægst launuðu verulega frá því sem nú er. Það hefur sýnt sig að það hefur gengið illa að jafna launakjör í gegnum kjarasamninga. Iðnnemasamband íslands er þeirrar skoðunar að verkalýðshreyfingin eigi að knýja stjórnvöld til að nota skattakerfið meira til tekjujöfnunar en nú er gert. Kröfur Iðnnemasambands ís- lands 1. maí eru: Lækkun vaxta. Bætt kjör þeirra lægst launuðu. Full atvinna. Samningsrétt til iðn- nema. Laun iðnnema verði pró- KRISTJÁN Einarsson trésmíða- nemi sem starfar við byggingu nýrrar flugstjórnarmiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelii sagðist hafa verið að kynna sér samn- ingsdrögin við Trésmíðafélagið, og sér findist þær sáttatillögur sem fram væru komnar í kjara- samningunum vera það sem hægt væri að komast miðað við ástandið í þjóðmálum. „Ég held að það sé ekkert hægt að komast neitt lengra og ekki hefði verið sentuhlutfall af launum sveina. Stöðvun réttindabrota á iðnnemum. Bætt verkmenntun. Enga vexti á námslán. Afnám hernaðarhyggju." „LAUNIN eru auðvitað of lág og ég vildi ekki hafa stórt heimili til að framfleyta," sagði Ásrún Magnúsdóttir starfsstúlka í eld- húsi Sjúkrahúss Suðurlands um kjaramálin. Ásrún sagðist vel skilja óþreyju ungs fólks sem hefði fyrir börnum að sjá og stæði í því að koma þaki yfir höfuðið. Hún sagði það hafa verið skref afturá- bak að skera niður í heilbrigðiskerf- Ásrún inu með því að Magnúsdóttir leggja þar á hærri gjöld. Þetta kæmi illa við fólk, sérstaklega vegna þess að það samrýmdist ekki hugmyndum þess um heilbrigðis- þjónustuna. „Það má auðvitað segja að upp- bætumar bjargi málunum að ein- hveiju leyti en samt sem áður verð- ur staðan erfið hjá mörgum. En mér finnst allt betra en verkföll, það hefur enginn hag af þeim. Ég ætla að taka þátt í atkvæða- greiðslunni og kynna mér málið 50 ára afmæli Verka- lýðsfélagsins Jökuls VERKALÝÐSÉLAGIÐ Jökull í Austur-Skaftafelssýslu heldur upp á 50 ára afmæli félagsins í dag á baráttudegi verkalýðsins. Dag- skrá dagsins verður því stærri í sniðum en venjulega. Hún hefst á hefðbundinni kröfugöngu frá húsi félagsins að Víkurbraut 4 á Höfn kl. 14, og þar á eftir verður útifundur við Sindrabæ. Björn Grétar Sveinsson for- maður félagsins flytur ávarp og Ásmundur Stefánsson forseti Al- þýðusambands íslands flytur ræðu. Að því loknu býður félagið til kaffisamsætis og verður með sérstaka dagskrá fyrir börn því samfara. Um kvöldið kl. 20.30 hefst síð- an afmælisdagskrá í Sindrabæ, en þar flytja ávörp þau Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð- herra, Sigurður Ingvarsson forseti Alþýðusambands Austurlands og Ásmundur Stefánsson forseti Al- þýðusambands íslands. Sönghóp- urinn Organicum Melos kemur fram, upplestur verður á ljóðum, leikþátturinn „Fyrir þeim Bened- ikt tróð“ verður fluttur og karla- kórinn Jökull syngur. Aðgangur að skemmtuninni er ókeypis og á hana eru allir velkomnir. Iðnnemasamband Islands: Skattakerfið verði notað frekar til tekjujöfnunar áður en ég greiði atkvæði. Vilji fólk hafa áhrif og vera með þá þýðir ekki að nöldra bara í eldhúskrókn- um,“ sagði Ásrún Magnúsdóttir. Sig. Jóns. Selfoss Eðlilegra að hækka skattleysis- mörkin „MÉR FINNST eðlilegra að hækka skattleysismörkin upp í 80 þúsund en að greiða láglauna- bætur vegna þess að þær fara allar beint í skattinn," sagði Arn- heiður Bjarnadóttir verslunar- maður í Vöruhúsi KÁ á Selfossi. Arnheiður sagði að það væri ýmis- legt sem fylgdi miðlunartillögunni sem væri til bóta svo sem lækkaður lækniskostnaður. Það kæmi sér vel fyrir fjölskyldur þar sem börn væru mörg. Hún sagði að óneitanlega væru þessi mál ofarlega í huga hennar og annarra enda ekki nein furða. „Ég ætla að taka ákvörðun um það hvernig ég greiði atkvæði eftir að hafa kynnt mér þetta allt saman betur. Ég held þó að við fáum ekk- ert betra í þeirri stöðu sem allt er í núna,“ sagði Arnheiður Bjarna- dóttir verslunaimaður á Selfossi. Sig. Jóns. Arnheiður Bjarnadóttir Selfoss Erfitt að una lágu kaupi Selfossi. „ÞESSI kauphækkun gerir lítið, menn eru jafn illa staddir með hana. Það er ekki nema fyrirtæk- in sjálf geri betur við sína starfs- menn,“ sagði Guðmundur Brynj- ólfsson vélvirki ' hjá smiðjum Kaupfélags Árnesinga um samn- ingainálin og þá kauphækkun sem fólgin er í miðlunartillög- unni sem greitt verður atkvæði um á næstunni. Guðmundur sagð- ist hafá fylgst með samningamálun- um svona eins og hver annar, ekki af neinni ná- kvæmni því menn hefðu takmarkaða trú á því að kaupið hækkaði. „Manni finnst ansi hart að þurfa að una þessu lága kaupi. Hérna hjá fyrirtækinu virðist lítið vera framundan nema þá helst uppsagnir að því er manni er sagt. Éins og launin eru núna þá gefa þau tæp hundrað þúsund á mánuði og með því að nýta skatt- kort konunnar að fullu þá gerir þetta um 80 þúsund til að fram- fleyta fjögurra manna fjölskyldu. Við fáum útborgað vikulega og maður er á núlli á hverjum föstu- degi, það má ekkert út af bera, þá verða vandræði. Ég er mjög ósáttur við miðlunartillöguna, finnst hún gefa of lítið og greiði henni því ekki atkvæði,“ sagði Guðmundur Brynjólfsson vélvirki. Sig. Jóns. Guðmundur Brynjólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.