Morgunblaðið - 17.11.1994, Side 1
88 SÍÐUR B/C/D
263. TBL. 82. ÁRG. • FIMMTUDAGUR17. NÓVEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Lögregluaðgerðir vegna mesta fjármálahneykslis í sögu Færeyja
Húsleit og handtökur vegna
fjársvika við skipasmíðar
Aðgerðir lögreglunnar ná einnig
til Danmerkur og Grænlands
Reuter
Stjómin fallin
DICK Spring, formaður írska
Verkamannaflokksins, lýsti því
yfir í gær að flokkur hans gæti
ekki lengur setið í ríkisstjórn
Alberts Reynolds. Sagði Spring
að hann gæti ekki tekið giida
afsökun Reynolds vegna skipun-
ar Harry Whelehan ríkissak-
sóknara í embætti forseta
hæstaréttar. Whelehan hefur
sætt harðri gagnrýni vegna
meðferðar hans á máli er varð-
aði kynferðislega misnotkun
prests á barni. Greidd verða at-
kvæði um vantrauststillögu á
stjórnina í dag en Spring sagði
að áður myndu ráðherrar hans
fara úr stjórninni. Á myndinni
má sjá Reynolds er hann mætti
til þingfundar í gær.
Þórshöfn. Morgunblaðið.
LÖGREGLAN í Færeyjum hóf í
gærmorgun umfangsmestu lög-
regluaðgerðir í sögu eyjanna vegna
gruns um fjársvik í tengslum við
skipasmíðar á síðasta áratug. Lög-
reglumenn gerðu áhlaup á um 200
stöðum fyrst og fremst í Færeyjum
en einnig í Danmörku og á Græn-
landi. I öllum tilvikum er um að
ræða mál sem tengjast Færeyjum
eða Færeyingum. Tólf rhanns hafa
þegar verið handteknir, þeirra á
meðal lögfræðingar, útgerðarmenn,
forstjórar og aðrir háttsettir menn.
Yfirheyrslur stóðu enn yfir í gær-
kvöldi og vildi lögregla ekki upplýsa
hvenær mönnunum yrði sleppt úr
haldi.
Lögreglan sýndi mikla hörku í
aðgerðunum. Einum umsvifamesta
útgerðarmanni Færeyja, Jógvan
Adolf Johannesen, sem situr á Lög-
þinginu fyrir Jafnaðarmannaflokk-
inn, var í gær tilkynnt að ef hann
léti ekki af hendi öll gögn varðandi
skipin sín tvö yrði hann handtekinn
og færður burt í járnum.
Til þessa hefur athyglin fyrst og
fremst beinst að tveimur skipa-
smíðaverkefnum, togurunum
Haugadrangi og Skálafjalli. í rétt-
arhöldunum vegna þeirra mála voru
ýmis önnur skipasmíðaverkefni
nefnd til sögunnar og eru aðgerðir
lögreglu í gær í framhaldi af því.
Svik vegna fimmtán togara
Til þessa hefur einungis ein
skipasmíðastöð, Skála Skipasmiðja,
verið staðin að fjársvikum í tengsl-
um við skipasmíðar. Nú hefur Tórs-
havnar Skipasmiðja bæst í hópinn.
Lögregla gerði áhlaup á fyrirtækið
í gær og hafði hundruð skjalamappa
á brott með sér. Tengjast skjölin
togurunum Stígarkletti og Hádegis-
kletti, sem eru í eigu Jógvans Adolfs
Johannesen.
Þó að lögreglan hafi í gær ekki
viljað tjá sig um málið leikur lítill
vafi á því að um fimmtán togarar,
sem smíðaðir voru á síðasta áratug,
tengjast málinu. Það eina sem lög-
regla hefur viljað upplýsa til þessa
er að dómari hafí veitt húsleitar-
heimild þegar þann 20. október og
að búast megi við að gripið verði
til frekari aðgerða í dag.
Allir hinir handteknu eru sakaðir
um að hafa svikið fé út úr fær-
eysku landsstjórninni, Skipasmíða-
sjóði Danmerkur, bönkum og öðrum
fjármögnunarfyrirtækjum. Felast
svikin í því að ekki var sagt rétt
til um hversu mikið eigið fé væri
fyrir hendi.
Færeyingum er mjög brugðið
vegna lögregluaðgerðanna og var
Þórshöfn sem lömuð í gærkvöldi.
Óheppilegt
Edmund Joensen lögmaður mun
í dag hefja viðræður við dönsku
ríkisstjórnina um efnahagslega og
samfélagslega framtíð Færeyja.
Hann sagði fréttirnar hafa komið
færeysku samninganefndinni í opna
skjöldu og að þetta gerðist á mjög
óheppilegum tíma.
Ihaldssamir bandarískir þingmenn
Repúblikanar
reyna að
fresta GATT
Washington. Jakarta. Reuter.
JESSE Helms, sem tekur við formennsku utanríkisnefndar öldungadeildar-
innar þegar nýkjörið þing kemur saman í janúar, hefur ritað Bill Clinton
Bandaríkjaforseta bréf og óskað eftir því að afgreiðslu frumvarps um
GATT-samkomulagið verði frestáð fram yfir áramót. A1 Gore varaforseti
sagði á blaðamannafundi í gær að ef afgreiðslu málsins yrði frestað á
Bandaríkjaþingi væri GATT-samkomulagið dautt.
Ætlunin er að GATT-samkomu-
lagið komi til lokaafgreiðslu á
Bandaríkjaþingi síðar í þessum
mánuði. Helms segir að kanna þurfi
betur kosti þess og galla fyrir
bandarískt samfélag.
„Fallist þú á það, herra forseti,
fullvissa ég þig um að það mun
greiða stórlega fyrir því að ég
tryggi að afstaða ríkisstjórnarinnar
í öllum þáttum utanríkismála njóti
sannmælis og tekið verði tillit til
hennar í störfum 104. þingsins,“
sagði í bréfi Helms til Clintons.
Sömuleiðis hafa öldungadeildar-
mennirnir og repúblikanarnir Larry
Craig frá Idaho og Strom Thurm-
ond frá Suður-Karólínu skrifað Bob
Dole, leiðtoga nýja þingmeirihlut-
ans, og óskað eftir seinkun á af-
greiðslu GATT.
Andvígir WTO
Þeir leggjast gegn stofnun nýrrar
viðskiptastofnunar, Heimsvið-
skiptastofnunarinnar (WTO), sem
ætlað er að komi í stað GATT.
Dole hefur ekki viljað segja hvort
hann muni greiða frumvarpinu at-
kvæði og látið í ljós fyrirvara við
ákvæðið um WTO.
Hann óttast það vald sem gerðar-
dómar stofnunarinnar fá til að
skera úr um kærur og ágreining
er varða skuldbindingar GATT-
samkomulagsins. I staðinn vill Dole
að Bandaríkjamenn ráði sjálfirferð-
inni, að þeir setji á stofn nefnd eða
stofnun til þess að yfirfara ákvarð-
anir og niðurstöður WTO fyrir
Bandaríkjaþing.
Brýnasta verkefni þingsins
Repúblikanar eru þó ekki sam-
stiga í afstöðunni til GATT-samn-
inganna því Newt Gingrich, vænt-
anlegur forseti fulltrúadeildarinnar,
hefur ítrekað lýst stuðningi við
GATT.
Bill Clinton forseti hefur reynt
að kæfa tilraunir repúblikana til
þess að knýja fram frestun á af-
greiðslu GATT-samkomulagsins.
Hann sagði í gær, að gífurlegir
hagsmunir væru í húfi fyrir Banda-
ríkjamenn, GATT væri fyrsta
skrefið í átt til þess að opna gífur-
lega markað'i í Asíu fyrir banda-
rískar framleiðsluvörur. Því væri
það allra brýnasta verkefni þings-
ins nú að afgreiða samkomulagið.
Umdeilt frumvarp samþykkt
ÞINGMENN óska Silvio Berlusc- lögur stjórnarinnar um skerð- 346 atkvæðum gegn 208. Ef til-
oni forsætisráðherra Italíu til ingu lífeyrisgreiðslna voru sam- lögurnar hefðu ekki verið sam-
hamingju eftir að umdeildar til- þykktar í atkvæðagreiðslu með þykktar hefði stjórnin fallið.
Ritstjóri Nordlys snýst gegn ESB-aðild
Sinnaskiptunum fagnað
Ósló. Morgunblaðið.
ANNE Enger-Lahnstein, leiðtogi
Miðflokksins og einn helsti forystu-
maður Evrópuandstæðinga í Nor-
egi, fagnaði því í gær að ritstjóri
Nordlys, stærsta dagblaðs Norður-
Noregs, hefði lýst yfir andstöðu við
ESB-aðild. „Þetta hefur mikla þýð-
ingu,“ sagði Lahnstein.
Þá er einnig orðið ljóst að Jens
P. Heyerdahl, yfirmaður Orkla-
samsteypunnar, tekur eindregið af-
stöðu gegn ESB. Orkla er næst
stærsta fjölmiðlasamsteypa Noregs
og á meðal annars Dagbladet.
Bæði ritstjórinn Ivan Kristoffer-
sen og Heyerdahl byggja andstöðu
sína á almennum ástæðum. Hey-
erdahl leggur áherslu á að Norð-
menn hafi yfírráð yfir atvinnufyrir-
tækjum sínum en Kristoffersen seg-
ist ekki vilja klofning þjóðarinnar í
tvær fylkingar.
Ritstjóri Nordlys hefur áður
gagnrýnt sjávarútvegssamning
Norðmanna við sambandið harðlega
en til þessa hefur ekki verið ljóst
hvort hann hygðist hvetja íbúa
Norður-Noregs til að hafna aðild.
Fyrir tveimur árum hvatti hann til
að sótt yrði um aðild en segir nú
að það hafi ekki jafngilt því að
hann vildi aðild heldur viljað fá á
hreint hvað Norðmönnum byðist.
Skoðanakannanir í Norður-Nor-
egi benda til að óákveðnir styðji nú
í auknum mæli aðild.