Morgunblaðið - 17.11.1994, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Betri sala á mjöli úr rækjuskel
Framleiðslan verður aukin
á Krossanesi eftir áramót
Tískusýn-
ing Teru
LEÐURIÐJAN Tera á Grenivík
efnir til sýningar á framleiðslu-
vörum sínum á Góða dátanum
í kvöld, fimmtudagskvöldið 17.
nóvember. Tera tók þátt í sýn-
ingunni Lífsstíll 2000 sem fram
fór í Perlunni í Reykjavík um
liðna helgi þar sem kynnt var
nýjasta hönnun leðuriðjunnar,
töskur unnar úr íslensku lam-
baskinni, steinbítsroði og fylgi-
hlutum úr kindahorni. Einnig
sýndi fyrirtækið sérhannaðan
fatnað úr leðri og mokka. Norð-
lendingum gefst nú færi á að
sjá þessa sýningu á Góða dát-
anum.
VONIR standa til að framleiðsla
á mjöli úr rækjuskel aukist um-
talsvert hjá Krossanesverksmiðj-
unni eftir áramótin í kjölfar þess
að verksmiðjunni fer að berast
meira hráefni til vinnslunnar. Um
þessar mundir er framleitt úr 4-5
tonnum af skel á dag, en verk-
smiðjan ræður við allt að 30 tonna
vinnslu. Eftir að meira hráefni
kemur til er búist við að framleitt
verði úr um 60 tonnum af rækju-
skel á viku.
Mjöl úr rækjuskel hefut' verið
unnið í Krossanesi í þijú ár eða
frá því í nóvember árið 1991 og
lengi vel var framleitt á lager.
Þokkalega hefur gengið að selja
afurðirnar nú síðustu misseri en
þá fór að bera á hráefnisskorti að
sögn Jóhanns Péturs Andersen
framkvæmdastjóra. „Það stendur
til bóta því fram til þessa höfum
við eingöngu fengið skelina frá
Stýtu á Akureyri en eftir áramót
fáum við líka hráefni frá Söltunar-
félagi Dalvíkur," sagði hann
„Við höfum þraukað, framleidd-
um lengi vel á lager en nú selst
allt jafnóðum,“ sagði Jóhann Pét-
ur. Helstu markaðssvæði eru í
Noregi, Frakklandi og Bretlandi
en mjöl úr rækjuskel er einkum
notað í fiskafóður.
Þrautseiga
Verðið hefur verið frekar lágt
og er enn ekki til að hrópa húrra
fyrir, að sögn framkvæmdastjóra
en vinnslan stendur þó undir sér
og einnig taldi hann að líta bæri
á þá umhverfisvernd sem henni
fylgdi, í stað þess að fleygja rækju-
skelinni í sjóinn væri verið að vinna
úr henni nýtanlegar afurðir. Þá
skapaði vinnslan einnig störf við
verksmiðjuna.
„Við vonum að með þrautseigu
takist okkur að gera gott úr þess-
ari vinnslu þannig að við höfum
eitthvað upp úr henni,“ sagði Jó-
hann Pétur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sjúkraliðar á Akureyri hafa áhyggjur af breyttu stöðuhlutfalli
Víkja smám saman fyrir
hjúkrunarfræðingum
Island og
ESB
ÚTVEGSMANNAFÉLAG
Norðurlands efnir til opins
fundar í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 17. nóvember, á Hótel
KEA. Rætt verður um stöðu
íslensk sjávarútvegs og sam-
band íslendinga við Evrópu-
sambandið. Gestir fundarins
verða Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra og Tómas Ingi
Olrich alþingismaður.
Minningar-
tónleikar
ROKKTÓNLIST verður í há-
vegum höfð í Deiglunni í kvöld,
fimmtudagskvöld en þá koma
fram þtjár ólíkar hljómsveitir á
tónleikum; 26inchTv, Hún and-
ar og Skrokkabandið. Sú fyrst-
nefnda kemur fram í fyrsta
skipti, en hinar hafa skapað sér
nafn í tónlistarlífi bæjarins.
Tónleikamir eru haldnir í minn-
ingu Steinþórs Stefánssonar,
rokkara og verða m.a. flutt lög
eftir hann. Tónleikarnir hefjast
kl. 22.
Bókakynn-
ingu frestað
AF ófyrirsjáanlegum ástæðum
verður bókakynning sem vera
átti í Deiglunni í kvöld færð til
næsta miðvikudags, 23. nóv-
ember.
Svíar kynnast
fjarkennslu
ÍVMA
FJARKENNSLA Verk-
menntaskólans á Akureyri um
tölvur hefur vakið verðskuld-
aða athygli, en nú stunda um
50 manns nám við skólann en
hver og einn situr heima hjá
sér, hvort sem um er að ræða
á Hornafirði, Grindavík eða
ísafirði. Bytjað var á þessari
kennslu í fyrra og boðið upp
á einn áfanga í ensku, en við-
brögð létu ekki á sér standa
í haust þannig að 12 áfangar
eru í boði nú. Þeir Boo Hever
og Rolf Ehrenberg frá Gauta-
borg í Svíþjóð voru í Verk-
menntaskólanum á Akureyri
þar sem þeir kynntu sér upp-
byggingu fjarkennslunnar og
hrifust mjög. Fyrirhugað er
að bjóða upp á þennan mögu-
leika í um fimm þúsund manna
skóla á framhaldsskólastigi og
með fullorðinsfræðslu þar í
borg og væntanlega munu
þeir sækja sér fyrirmyndir til
Verkmenntaskólans í þeim
efnum. Á myndinni eru Hauk-
ur Ágústsson og Adam Ósk-
arsson frá VMA í efri röð og
Boo Hever og Rolf Ehrenberg
sitjandi.
SJÚKRALIÐAR á Akureyri lýstu
áhyggjum sýnum í kjölfar breyttra
stöðuhlutfalla á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri á fundi í fyrra-
kvöld, áður mönnuðu sjúkraliðar
um 60% af stöðum á deildum
sjúkrahússins á móti 40% hjúkrun-
arfræðinga en eftir breytingar sem
nú hafa gengið í gegn eru hlutföll-
in jöfn. Um er að ræða tilrauna-
verkefni sem verður í gangi naestu
mánuði. Fjölmennur fundur
sjúkraliða í Starfsmannafélagi
Ákureyrarbæjar var haldinn í
fyrrakvöld þar sem farið var yfir
breytingar á stöðuhlutföllum og
staða kjaramála rædd.
Arna Jakobína Björnsdóttir for-
maður Starfsmannafélags Akur-
eyrarbæjar, STAK,. sagði að
sjúkraliðar hefðu óneitanlega
áhyggjur af þeirri þróun sem í
gangi væri. Verið væri að auka
stöður hjúkrunarfræðinga á kostn-
að sjúkraliðanna og fyndist þeim
að sér þrengt. Þetta væri þróun
sem ætti sér aðdraganda og hefði
í raun gengið fyrir sig án þess að
enn hefði verið gipið til uppsagna
sjúkraliða.
Undir högg að sækja
• „Þetta er ansi erfitt mál og
eðlilegt að sjúkraliðar vilji spyrna
við fótum enda eiga þeir undir
högg að sækja. Það er ljóst að
sjúkraliðar hafa alla tíð starfað
undir stjórn hjúkrunarfræðinga og
bera ábyrgð á stöfum sínum
gagnvart þeim. Þetta er stétt sem
varð til þegar ekki var nægt
framboð á hjúkrunarfræðingum
en þar er að verða breyting á sem
á sér ýmsar skýringar í kjölfar
þess að Háskólinn á Akureyri er
farin að brautskrá hjúkr-
unarfræðinga og að hjúkr-
unarfræðingar eru farnir að sækja
á ný inn á sjúkrahúsin og að það
hefur kreppt að á almennum
vinnumarkaði koma þessi
vandamál hjá sjúkraliðunum upp,“
sagði Arna Jakobína.
Sjúkraliðar á Akureyri eru sem
fyrr segir í STAK og því ekki í
verkfalli líkt og félagar þeirra í
Reykjavík. Þeir hafa haft á bilinu
3-7% hærri laun en sjúkraliðar í
Reykjavík að sögn formannsins
auk annarra réttinda sem ekki
hafa verið metin í prósentum.
Tilboð í vöruflutninga milli
Akureyrar og Reykjavíkur
Kaupfélag Eyfirðinga óskar hér með eftir tilboðum í
vöruflutninga félagsins milli Akureyrar og Reykjavíkur
frá 1. mars 1995.
Gera má ráð fyrir að á yfirstandandi ári muni heildar-
vörumagnið sem, flutt er með bifreiðum milli Akureyrar
og Reykjavíkur fyrir Kaupfélag Eyfirðinga, verða um
7.500 tonn.
Nánari upplýsingar varðandi vöruflutningana gefur
Sigurður Jóhannesson, aðalfulltrúi kaupfélagsstjóra,
sími 30300.
Frestur til að skila inn tilboðum er til 28. nóvember nk.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Kaupfélag Eyfirðinga.
HÚSNÆÐISSKRIFSTOFAN Á AKUREYRI
Starf ráðgjafa
Húsnæðisskrifstofan á Akureyri óskar eftir starfs-
krafti í starf ráðgjafa. Umsækjandi þarf að vera
töluglöggur, eiga auðvelt með að umgangast fólk
og vera lipur í þjónustu. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi próf frá háskóla sem nýtist í starfinu.
Laun samkvæmt kjarasamningi Akureyrarbæjar.
Húsnæðisskrifstofan er reyklaus vinnustaður.
Umsókn, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist Húsnæðisskrifstofunni á
Akureyri, Skipagötu 12, sími 96-25311,
fyrir 23. nóvember nk.