Morgunblaðið - 17.11.1994, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
• HUGINN og Muninn segja frá
ásum heitir ný myndabók eftir Erik
Hjorth Nielsen. í bókinni er fróð-
leikur úr goðafræðinni. Hrafnar
Óðins segja ungum sínum frá jötn-
um og ásum. Ungarnir fá líka vitn-
eskju um heimstréð Yggdrasil og
hætturnar sem að því steðja og um
örlaganornimar og hlutverk þeirra.
Hildur Hermóðsdóttir þýddi söguna
sem erskreytt litmyndum á hverrí
síðu ogætiuð börnum á öllum aldrí.
Bókin er 28 síður, prentuð íDan-
mörku oggefin út af Máii ogmenn-
ingu. Verð hennar er 890 krónur.
• BALLETT — fyrstu árin heitir
bók er fjallar um undirstöðuatriði í
ballett, allt frá einföldustu sporum
til hinna flóknari, og fjöldi litljós-
mynda skýrir æfingarnar. Höfund-
urinn er Darcy Busseii, þekkt dan-
smær við Konunglega ballettinn í
London. Þóra Sigríður Ingólfs-
dóttir þýddi bókina en Nanna
Óiafsdóttir, listdanskennari og
dansskáld las yfir, gaf góð ráð og
skrifaði eftirmála.
Útgefandi erMál og menning. Bók-
in er 65 bls., prentuð á Ítalíu og
kostar 1.990 krónur.
• Nornadómur heitir ný bók eftir
Vilborgu Davíðsdóttur, sjálfstætt
framhald af sögunni Við Urðar-
brunn sem kom út á síðasta ári.
Söguhetjan, Korka Þórólfsdóttir,
hefur nú losnað úr ánauð, en samfé-
lagið setur leysingjum þröngar
skorður. Hún siglir með víkingnum
Atla til Orkneyja og vill komast
heim til íslands og bjarga hálfsyst-
ur sinni frá harðræði eigínmanns
sem engu eirir, en dómur örlaganna
ræður.
Helgi Sigurðsson gerði kápu bókar-
innarsem ergefin út afMáli og
menningu og prentuð hjá G. Ben-
Eddu hf. Bókin er 177 bis. ogkost-
ar 1.880 krónur.
• Hvergi óhult - Saga móður í
ótrúlegri eldraun á vígvöllum Iraks
og Kúrdistans er eftir Susan
Francis og Andrew Crofts en ís-
lenska þýðingu gerði Ingunn As-
dísardóttir.
í kynningu segir: „Fyrir hartnær
fjórum árum varð ung bresk stúlka
ástfangin af íröskum pilti og flutti
með honum til íraks. Þrátt fyrir
fátækt og erfiðleika við að fóta sig
í framandi landi var hjónabandið
gott og fjölskyldan óx og dafnaði.
En þegar Saddam Hussein komst
til valda tók að syrtá í álinn, skort-
ur og skömmtunarkerfi hélt innreið
sína og sprengjur og grimmdarverk
urðu daglegt brauð. Þó tók fyrst
steininn úr eftir að Persaflóastríð-
ið braust út og Kúrdaofsóknirnar
hófust.“
Útgefandi erForlagið. Bókin er
215 bls. aðstærð, auk myndasíðna.
Hún erprentuð íPrentsmiðjunni
Odda hf. og kostar 2.980 krónur.
• Orðabók barnanna er komin út.
Bækurnar eru fjórar og hver fyrir
sinn aldursflokk. í þessum harð-
spjaldabókum er fjöldi litríkra
teikninga. Skýrt letur og myndir
úr daglegu lífi barna. Þetta eru
myndaorðabækur fyrir lítil börn og
uppalendur.
Útgefandi erSetberg. Bækurnar
eru Orðabók barnanna fyríreins
árs börn. Orðabók barnanna fyrír
tveggja ára börn. Orðabók barn-
anna fyrír þriggja ára börn. Orða-
bók barnanna fyrir fjögurra ára
börn. Hver bók kostar 570 krónur.
• Mannslíkaminn í máli og
myndum í þýðingu Jóns O. Ed-
walds er komin út. í bókinni er lík-
ama okkar lýst í máli og myndum,
byggingu hans, líffærum og starf-
semi einstakra líffæra. Auk beinna
staðreynda flytur bókin ýmsan fróð-
leik sem veitir svör við spurningum
barna og unglinga. Bókin höfðar
einkum til barna og unglinga.
Útgefandi er Setberg. Bókin er
ístóru broti með 500 litmyndum
og teikningum. Hún er 96 bis. og
kostar 1.970 krónur.
Sjö í Sal
MYNDLIST
Hafnarborg
MÁLVERK, HÖGGMYNDIR
OG GRAFÍK
Samsýning. Opið alla daga (nema
þriðjud.) kl. 12-18 til 21. nóvember.
Aðgangur ókeypis
Á sýningunni eru þannig reyndir
listamenn á ferð, sem hafa sumir
hverjir unnið lengi að því að fræða
og leiðbeina næstu kynslóð lista-
manna; þó er þeirra eigin sýningar-
ferill engan veginn jafn umfangs-
mikill í öllum tilvikum og ætla
mætti um þá, sem eru í slíkum
lykilstöðum, og kemur það nokkuð
á óvart.
ÞAÐ eru ýmsar ástæður sem til-
greina má fyrir því að ákveðinn
hópur listamanna ákveður að efna
til samsýningar. Oft kemur tii sam-
eiginlegur listmiðill, svipuð við-
fangsefni, bakgrunnur eða aldur;
að þessu sinni á listafólkið sér sam-
eiginlegan vinnustað, en fram á
þetta ár hafa þau öll verið kennar-
ar við Myndlista- og handíðaskóla
íslands. Þetta eru þau Bjarni Daní-
elsson, Björgvin S. Haraldsson,
Edda Óskarsdóttir, Gunnlaugur St.
Gíslason, Helga Júlíusdóttir, Lísa
K. Guðjónsdóttir og Pétur Bjama-
son.
Sýningin er, þrátt góð tilþrif
sumra sýnendanna, fremur ósam-
stæð í heild sinni. í raun er hér
allt slétt og fellt, enda augljóslega
fagmenn á ferð; samt virðist vanta
einhvern þann neista, sem gæti
gert þetta að góðri samsýningu.
Flestir þeir sem sýna hér vinna
á einhvern hátt út frá hlutveruleik-
anum, og mest er um tilvísanir til
náttúrunnar, einkum í málverkun-
um. Gunnlaugur St. Gíslason er
löngu kunnur að hæfni sinni í með-
ferð vatnslitanna, eins og myndirn-
ar hér sýna glögglega; þó eru þær
í flestu kunnuglegar, og þannig
reynir ekki á nýja þætti í verkum
hans.
Björgvin S. Haraldsson sýnir
rúman tug olíumálverka, þar sem
smágerð náttúran birtist í fjöl-
breyttu litskrúði; myndirnar rísa
hins vegar sjaldnast á móti áhorf-
andanum, þar sem listamaðurinn
virðist halda aftur af litnum, þann-
ig að áhrifin verða nokkuð dempuð
fyrir vikið.
Lísa K. Guðjónsdóttir sýnir hér
einþrykk, en það er aðeins á stöku
stað sem glittir í þann tærleika,
sem einkenndi slík verk hennar á
sýningu í Gallerí Allra Handa á
Akureyri fyrr í haust; hér á eftir
að vinna betur úr þessum við-
kvæma miðli.
Verk Eddu Óskarsdóttur koma
einna best út á þessari sýningu,
einkum hið mikla flæði í vegg-
myndunum. Þar er myndaflokkur-
inn „Flæði“ (nr. 21) 'mest áber-
andi, en einnig er rétt að benda á
stórt verk á neðri gangi, sem tekur
sig afar vel út.
Helga Júlíusdóttir sýnir hér
nokkrar myndir án titils, sem eru
afar einfaldar að allri gerð, og dauf-
ar að sama skapi; ljósmyndaverk
Bjarna Daníelssonar vekja heldur
ekki mikinn áhuga, þrátt fyrir birtu
litanna.
Loks á Pétur Bjarnason nokkur
verk á sýningunni, sem eru öllu
þyngri en þær höggmyndir á opin-
berum stöðum, sem helst tengjast
honum, svo sem á Akureyri og
neðst við Skúlagötu í Reykjavík;
þár er þó ein undantekning á, þar
sem verkið er í viðkvæmri spennu
jafnvægisins.
Það er auðvelt að álykta, að
kennarar við verðandi listaháskóla
skuli vera í framvarðarsveit lista-
manna, hver á sínu sviði, en sú er
ekki raunin, sé litið til sýningarinn-
ar í heild. Þannig er tæpast hægt
að segja, að „Sjö í Sal“ rísi undir
væntingum að þessu sinni.
Hlutverk listkennara í listalífinu
hér á landi hefur sjaldan verið
rætt, enda blandast í þeim í misj-
öfnum hlutföllum staða listamanns,
kennara og mótanda listastefnu
hvers tíma, þannig að erfitt er að
segja til um, hvert hlutverkið skuli
hafa mest vægi. Slík umræða gæti
þó orðið áhugaverð, einkum þegar
breyting er framundan á skipulagi
mála á þessu sviði með tilkomu
Listaháskóla íslands.
Eiríkur Þorláksson
Nýjar bækur
Orðabók um
íslenska málnotkun
ÚT ER komin bókin
Orðastaður - orðabók
um íslenska málnotkun
eftir Jón Hilmar Jóns-
son, málfræðing hjá
Orðabók Háskóla Is-
lands. Orðabókin er
mikið verk, 698 blað-
síður auk 32 síðna for-
mála, og er afrakstur
margra ára vinnu Jóns
Hilmars og aðstoðar-
manna hans.
„Um orðtengsl og
málnotkunardæmi
fjallar hin nýja bók
Jóns Hilmars. Engin
íslensk orðabók af
þessu tagi hefur áður
verið til, og er með Orðastað bætt
úr brýnni þörf í skólum, atvinnulífi
og á heimilum fyrir orðabók sem
leiðbeinir um notkun
málsins í ræðu og riti
og birtir umhverfí orð-
anna í orðasambönd-
um og samsetning-
um,“ segir í kynningu.
í bókinni eru 11
þúsund uppflettiorð og
eru þar sýnd um 45
þúsund orðasambönd,
um 15 þúsund notk-
unardæmi tilgreind og
tiltekin um 100 þús-
und samsett orð.
Útefandi er Mál og
menning og er bókin
prentuð í Prentsmiðj-
unni Odda hf Orða-
staður - orðabók um
íslenska málnotkun fæst fyrst í
stað á sérstöku kynningarverði
7.900 kr.
Jón Hilmar Jónsson
Minningarbrot
Þórarins Eldjárns
ÉG man — 480 glefsur
úr gamalli nútíð eftir
Þórarin Eldjárn er
komin út. í bókinni rifj-
ar Þórarinn upp liðinn
tíma. Hér er ekki um
venjulegar æviminn-
ingar að Tæða, heldur
minningabrot sem
hvert um sig er til þess
gert að vekja upp
minningar hjá lesanda,
sem síðan getur spunn-
ið við þær sína eigin
sögu.
í kynningu segir
m.a.: „Hér er kannski
ekki um sagnfræði að
Þórarinn Eldjárn
ræða — nema ef vera
skyldi sagnfræði ein-
staklings sem í gegn-
um svipmyndir frá
bernsku og unglingsár-
um verður saga allra
þeirra sem muna sama
tíma. Saman mynda
brotin 480 talsins
skemmtilega mynd lið-
ins tíma.“
Útgefandi er For-
lagið. Ég man er 112
bis. að stærð og prent-
uð í G-Ben. - Eddu.
Margrét Laxness gerði
kápu. Bókin kostar
1.980 krónur.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
FRÁ hljómleikum strengja-
sveitanna í íþróttahúsinu í
Keflavík. Á litlu myndinni af-
hendir Kjartan Már Kjartans-
son skólasljóri Tónlistaskólans
í Keflavík Eiríki Árna Sig-
tryggssyni tónskáldi blómvönd
í lok tónleikanna.
Vel heppnað
strengjanem-
endamót
í Keflavík
Keflavík. Morgunblaðið.
„MÓTIÐ tókst í heild ákaflega
vel og við höfum ákveðið að
halda aftur mót að tveimur árum
liðnum," sagði Kjartan Már
Kjartansson, skólastjóri Tónlist-
arskólans í Keflavík, um æfinga-
og strengjanemendamót sem
fram fór í Keflavík um síðustu
helgi. Þar voru saman komnir til
æfinga og hljómleikahalds um
170 nemendur ásamt foreldrum
víðs vegar af landinu.
Kjartan Már sagði að mótsdag-
arnir hefðu að mestu farið í þrot-
lausar æfingar tveggja stórra
strengjasveita undir stjórn Ing-
vars Jónssonar og Bernharðar
Wilkinssonar. Á kvöldin hefðu
verið kvöldvökur, nemendur
hefðu farið í Bláa lónið og ýmis-
legt fleira gert sér til skemmtun-
ar.
í tengslum við mótið hefðu
verið haldnir tvennir tónleikar.
í Keflavíkurkirkju þar sem þær
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleik-
ari, Bryndis Halla Gylfadóttir
sellóleikari og Steinunn Birna
Ragnarsdóttir píanóleikari hefðu
haldið skemmtilega tónleika. Síð-
an hefðu strengjasveitirnar hald-
ið tónleika í íþróttahúsinu sem
einnig hefðu tekist vel og fengið
frábærar viðtökur og sérsta-
kelga nýtt verk eftir Eirík Árna
Sigtryggsson tónskáld og kenn-
ara sem þar var frumflutt. Nem-
endur og foreldrar voru sumir
langt að komnir, frá Egilsstöð-
um, Húsavík, Mývatni, Akureyri
og ísafirði.
Sjónleikurinn Sjö stelpur
Húsavík. Morgunblaðið.
LEIKKLUBBUR Framhaldsskól-
ans á Húsavík frumsýndi sunnu-
daginn 13. nóvember sl. sjónleik-
inn Sjö stelpur eftir Erik Thor-
steinson í þýðingu Sigmundar Ern-
is Arngrímssonar í leikstjórn Sig-
urðar Hallmarssonar. Leikritið
fjallar um eitt af vandamálum
unglinga og vekur til umhugsunar
um hvernig eigi að taka á því.
Hinar sjö stelpur leika: Þorbjörg
Bjömsdóttir, Eyrún Ýr Tryggva-
dóttir, Júlía Sigurðardóttir, Eva
Dís Þórðardóttir, Margrét Sve’rris-
dóttir, Elsa Þóra Árnadóttir og
Nanna Björg Hafliðadóttir. Með
önnur hlutverk fara Halla Rún
Tryggvadóttir, Björn Þórhallsson,
Björgvin Björgvinsson, Hjálmar
Ingimarsson og John Ingi Matta.
Um sviðshönnun sá gamall
nemandi skólans, Hallmar Sig-
urðsson, leikstjóri og ljósum
stjórnaði Jón Arnkelsson.
Morgunblaðið/Silh