Morgunblaðið - 17.11.1994, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Útflutningur
á fiski - og fólki
EKKI einu sinni, heldur tvisvar á
örfáum árum hefur mér hlotnast sá
I óvænti heiður að verða númer á aðal-
I fundum Landssambands íslenskra
útvegsmanna, síðast núna á dögun-
um. í bæði skiptin hafa Kristján
Ragnarsson sjálfur og Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra vitnað til
Ur mín, beint og óbeint í ræðum sínum
til fundarins. Kristján nefnir mig í
sömu andránni og þá aðila, sem hon-
um virðist einna mest uppsigað við,
— Alþýðuflokkinn og ritstjóra Morg-
unblaðsins — en sjávarútvegsráðherr-
ann bendlar mig við
draugagang. Hvort
tveggja er að sjálfsögðu
alvörumál fyrir mig, þeg-
ar í hlut eiga jafn
skyggnir og farsælir
menn í hvívetna.
Það er gagnrýni vert
í þessari umfjöllun
þeirra, úr því að þeir á
annað borð tóku málið
til meðferðar, að þeir
skyldu ekki með rökum
ræða það efni, sem ég
hef á undanfömum mán-
uðum kynnt í þjóðmála-
urriræðunni. Ég hef þar
lagt fram all viðamikla
greiningu á vandanum,
sem íslenskt samfélag
stendur frammi fyrir í atvinnumálum.
Við þá greiningu hef ég bætt skoðun-
um um, hvemig skuli brugðist við
vandanum, sem greiningin leiðir í ljós.
Þetta geri ég eingöngu í þeim fróma
tilgangi að reyna að liðsinna mönnum,
sem skipa ábyrgðarstöður og hafa
atvinnu af því að taka samfélagslega
mikilvægar ákvarðanir. Ég hef
áhyggjur af þróun þessa samfélags,
sem böm mín og bamaböm verða
vonandi hluti af miklu lengur en ég.
Hver má eða má ekki
ræða þjóðmálin
Þessu mætir Kristján Ragnarsson
ekki með viti borinni umræðu. Hann
beitir sömu aðferðum núna og hann
gerði á aðalfundi LÍU fyrir nokkmm
áram. Þau vinnubrögð mátti oft sjá
í gamla Þjóðviljanum og vora eflaust
lærð í austurvegi. í stað þess að ræða
efni málsins reynir hann að gera lítið
úr mér og gefur raunar í skyn, að
ég eigi ekkert með að blanda mér í
þjóðmálaumræður. Astæðan, sem
hann tilgreindi hér á áranum var sú,
að ég stjómaði þá fyrirtæki, sem rek-
ið var með stórtapi. Núna, þegar fyrir-
tækinu vegnar betur, er sú ástæða
fram talin, að fyrirtækið búi við of
hagstætt rafmagnsverð. Ruglrök-
semdafærsla af þessu tagi er ekki
svara verð. Greiningar mínar og mál-
flutningur liggja fyrir og vilji Kristján
Ragnarsson vera viðtalshæfur for-
ystumaður þeirra samtaka, sem hann
fer fyrir, verður hann að ræða efni
málsins í stað þess að ergja sig út í
mig. Ég skipti engu máli í þessu sam-
bandi, en það gerir málefnið svo sann-
arlega.
Kristjáni til huggunar skal þess
getið, að mér þykir félagsskapurinn
' með Morgunblaðinu í ræðu hans vera
góður. Ekkert blað hefur lagt- meira
til viti borinnar umræðu um atvinnu-
mál. Þar sem ber í milli sjónarmiða
ritstjóra Morgunblaðsins og Kristjáns
Ragnarssonar er sá munur á umræð-
unni, að Morgunblaðið hefur rökstutt
mál sitt vandlega, en það hefur Krist-
ján ekki gert. Blind og að miklu leyti
ímynduð hagsmunagæsla hefur kom-
ið í staðinn fyrir rökræðu.
Þegar Kristján spyrðir mig í ræðu
sinni saman við Alþýðuflokkinn má
sjá jákvæðar hliðar á því, þegar
grannt er skoðað. Þótt Alþýðuflokk-
urinn sé á flestan veg illa haldinn um
þessar mundir og þar á
ofan á göngu inn í Evr-
ópubandalagshamrana
verður það ekkert frá
honum tekið að hafa
staðið vörð um eign þjóð-
arinnar, en ekki sægreif-
anna, á auðlindinni í haf-
inu við ísland. Það eru
kratamir, sem eiga mest-
an heiður af fyrstu grein
fiskveiðistjómarlaganna,
þar sem þessi eignarrétt-
ur þjóðarinnar er stað-
festur. Það ákvæði vogar
enginn stjórnmálamaður
sér að fella úr gildi úr
þessu, þótt æði margir
séu í því liði þeirra Krist-
jáns og Þorsteins, sem
vilja ómerkja ákvæðið með öðrum
ráðum. í því efni þykir mér stefna
Alþýðuflokksins betri en afstaða ann-
arra flokka.
Meginsjónarmiðin
Þegar litið er í sjónhendingu yfir
þau viðhorf, sem fram komu á nefnd-
um fundi LÍU, kemur skýrt í Ijós hið
algera skilningsleysi þessara forystu-
manna í sjávarútvegi á stöðu hans
og skyldum við samfélagið. Kristján
segir í ræðu sinni: „Er ekki kominn
tími til, að við áttum okkur á því, að
tilvera þessarar þjóðar byggist á físk-
veiðum og þær munu áfram verða
burðarásinn í atvinnulífínu? Það er
því niðurrifsstarf við sjávarútveginn
og íslenskt atvinnulíf að klifa á nauð-
syn þess að draga mátt úr sjávarút-
veginum með nýjum skattgreiðslum.
Nær væri fyrir Alþýðuflokkinn, rit-
stjóra Morgunblaðsins og forstjóra
Jámblendifélagsins, svo einhveijir séu
nefndir, að ræða hvemig best væri
hlúð að þeirri atvinnustarfsemi sem
þjóðin byggir afkomu sína á.“
Afstaðan er skýr: Við eigum að
halda áfram að vera hráefnaframleið-
endur með öll okkar brothættu egg
í einni og sömu körfunni. Við eigum
sem þjóð að halda áfram að bjarga
útvegsmönnum frá þroti þegar illa
árar og láta þá og sjómenn eiga hagn-
aðinn óskertan, þegar auðlindin í haf-
inu er gjöful. Við eigum að láta sveifl-
umar til sjávarins halda áfram að
kreista líftórana úr því, sem eftir er
af atvinnugreinunum í landi, eins og
gerst hefur linnulaust undanfarna
áratugi. Við eigum að láta lífskjör
fólksins í landinu smáfjara út og
sætta okkur við að hafa ekki efni á
því velferðarsamfélagi, sem við nú
búum við — hvað þá öðru betra.
Skammsýnin, þröngsýnin — mér
Ég hef hvergi gert til-
lögu um að rýra hlut
útgerðarinnar á nokk-
urn hátt annan en þann,
segir Jón Sigurðsson,
en að koma á sam-
keppni innan greinar-
innar.
liggur við að segja blindan — sem í
þessum viðhorfum felst er öldungis
skelfileg. Hún vísar ekkert nema nið-
ur á við.
Útvegur — burðarás
atvinnulífsins
Allir viðurkenna mikilvægi útvegs-
ins. Jafnvel illþýði eins og ég hef
gert það í öllum mínum skrifum.
Skoðanir mínar á hvers sé þörf til
að við getum náð flugi fyrir íslenskt
atvinnulíf fela einmitt í sér aðferð til
að útvegurinn verði í alvöranni
„burðarásinn í atvinnulífinu" pins og
Kristján Ragnarsson kallar eftir. En
þá væri sjávarútveginum beitt eins
og eimreið í þágu atvinnulífsins alls,
en ekki einungis í þágu útgerðanna
í landinu.
Það er vert að árétta í þessu sam-
bandi, að ég hef hvergi gert tillögu
um að rýra hlut útgerðar á nokkum
veg annan en þann að koma á sam-
keppni innan greinarinnar, sem verð-
launar þá, sem reka sína útgerð vel,
en grisjar út hina, sem gera það ekki.
Það er jafnframt leið til að styrkja
útgerðina sem atvinnugrein.
Þrátt fyrir þetta ræðir Kristján
Ragnarsson ekki málið efnislega.
Hann drepur því á dreif með upphróp-
unum, sem koma kjama málsins ekk-
ert við. Með því gefur hann til kynna,
að hann kæri sig ekkert um að útveg-
urinn sé burðarásinn í neinu atvinnu-
lífi nema sjálfum sér. Þetta er blind
hagsmunagæsla þegar þörf er fyrir
opna framtíðarsýn fyrir atvinnulífið í
heild.
Og í þessu tekur sjávarútvegsráð-
herra þátt. Hann telur, að einhveijir
veiðileyfagjaldsdraugar hafi verið
kveðnir niður á sl. vori með lagasetn-
ingu um fískveiðistjórnun, sem í raun
engan vanda leysti. Sannleikurinn er
sá, að það hafa engir uppvakningar
verið á ferli kringum þá Þorstein
Pálsson og Kristján Ragnarsson. Það
er ungt og bráðlifandi fólk, um 20.000
ungir menn og konur, sem horfa kvíð-
in fram á árin framundan þegar þau
koma út úr skóla til fundar við at-
vinnulíf, sem hefur engan þann vöxt,
sem þarf til að taka við því til starfa.
Hvert ætla þeir félagar, Kristján
Ragnarsson og Þorsteinn Pálsson, að
vísa þessu fólki? Núverandi viðhorf
þeirra fela í sér stefnu um að flytja
mikið af því út.
Höfundur er lögfræðingur og
framkvæmdastjóri íslenska
járnblendifélagsins.
mraarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 651147
17., 18.0219. nóvember
í Því tilefni veitum viö 15% atslátt
af öiium peysum oö biússum
Opið laugardaga frá kl. 10-16
Jón Sigurðsson
Það hálfa
væri nóg
I STARFI með
börnum uppgötvar
maður margt. Til
dæmis hvað börn eiga
á ákveðnu þroskastigi
erfitt með að setja sig
í spor annarra og hvað
þau, undir 7 ára aldri,
eiga erfitt með að
skilja reglur. Ef þau
fara í leiki, sem byggj-
ast upp á ákveðnum
reglum, þá reyna þau
yfirleitt að breyta
reglunum sér í hag.
Þeir sem vinna uppeld-
isstarf með börnunum
telja það mikilvægt
atriði í undirbúningi
fyrir líf barnsins að það öðlist
færni til að setja sig í spor ann-
arra og meðtaki hlutverk reglna.
Þetta kemur til dæmis oft fram
hjá yngri börnum í leiknum
„stikk“. Þá halda börnina að þeg-
ar þau nást'geti þau breytt regl-
unum og verið stikkfrí nánast
hvar sem er. Oft á tíðum skapar
þetta mikil vandræði í leiknum
vegna þess að eldri börnin sætt-
ast ekki á að breyta reglunum.
Þau eldri sættast ekki á hugsana-
gang þeirra yngri enda yfirleitt
komin lengra áleiðis á þroska-
brautinni.
Samstarf
Mér hefur oft á tíðum komið
þessi samlíking í hug þegar ég
horfi upp á vinnubrögð þing-
mannsins Jóhönnu Sigurðardótt-
ur. í september síðastliðnum
hvarf Jóhanna úr þingflokki Al-
þýðuflokksins. Ýmsir hafa velt því
fyrir sér hvers vegna fleiri félagar
hennar t.d. úr Alþýðuflokknum
og þingflokki hans fylgdu ekki
þessum „heiðarlega og duglega“
stórnmálamanni eftir sem fyrir
örfáum mánuðum vildi verða for-
ingi flokksins og sóttist stíft eftir
því á flokksþingi. Enginn úr þing-
flokknum hafði áhuga á að fylgja
henni eftir.
Ég tel það vera vegna þess að
við í þingflokknum horfðum upp
á ótrúleg vinnubrögð hennar sem
einkenndust af lítilli samstarfs-
fýsi, ótrúlegri sjálflægni og að
geta sjaldnast eða aldrei sett sig
í spor annarra í samstarfi.
Þetta hafa þeir aðilar aldrei
tjáð sig um opinberlega.
Ábyrgð
Eftir að þingmaðurinn hóf að
vera sjálfstæður í eigin flokki tel
ég að stjórnarandstaðan á Alþingi
hafi uppgötvað á sinn hátt þessi
skrítnu vinnubrögð þingmannss-
ins.
Skyndilega hóf Jóhanna að
dæla inn á Alþingi þingmálum
um skattamál, um endurskoðun
fæðingarorlofs, jafnréttismál og
fleiri mál. Það var engu líkara en
hér væri á ferðinni stjórnarand-
stöðuþingmaður en ekki þingmað-
ur sem hefði haft framkvæmdar-
vald á höndum í ríkisstjórninni
undanfarin 7 ár.
í ræðustól veit maður aldrei
hvort hún talar sem þingmaður í
eigin flokki, fyrrverandi ráðherra,
stjórnarliði eða stjórnarandstæð-
ingur. Hún ber enga ábyrgð. Það
er ekki henni að kenna hvernig
skuldastaða heimilanna hefur
versnað svo um munar. Það er
Framsóknarflokknum að kenna.
Hún ber ekki ábyrgð sem jafnrétt-
isráðherra undanfarin
7 ár að staða kvenna
hefur versnað og
launamisrétti aukist.
Hún ber enga ábyrgð
á þessum málum þrátt
fyrir setu í ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar,
Steingríms Her-
mannssonar og Þor-
steins Pálssonar. Þetta
eru dæmi um stíl á
vinnubrögðum Jó-
hönnu Sigurðardóttur.
Það getur enginn
tekið það af þing-
manninum að hann
hefur um árabil verið
einn duglegasti og af-
kastamesti ráðherra þessa lands.
Jóhanna hafði ætíð stuðning fé-
laga sinna til að koma fram mál-
um en hún er fljót að sparka í
þá þegar hún hafði tækifæri til.
Dæmi um það má nefna. Guð-
mundur Árni Stefánsson studdi
hana með ráðum og dáð innan
flokksins í baráttumálum hennar.
Þegar Jóhanna tilkynnti um hugs-
anlegt sérframboð sitt stóð Guð-
mundur í orrahríð í fjölmiðlum.
Þá lét hún þess getið að hún ætl-
Vinnubrögð Jóhönnu
Sigurðardóttur ein-
kenndust af lítilli sam-
starfsfýsi, segir Petr-
ína Baldursdóttir, og
ótrúlegri sjálflægni.
aði að standa fyrir bættri siðbót
í stjórnmálum. Á afar kurteisleg-
an máta sparkaði hún í sinn helsta
stuðningsmann þegar hann hefði
þurft á stuðningi að halda. Þann-
ig launar Jóhanna stuðning!
Stikk
Hún ber ekki ábygð. Hún sakar
ríkigstjórnina sem hún hvarf úr
fyrir 4 mánuðum að hafa aukið
launamun í þessu landi. Það búi
tvær þjóðir hér. Hún ætlar að
bjarga þessu fólki með framboði
sínu.
Ég spyr: af hverju er hún ekki
búin að því? Er ekki skrítið að
hafa verið ráðherra í 7 ár og engu
fengið áorkað í þessum efnum
hafandi allar forsendur til þess?
Það er hreint ótrúlegt ef 20%
þjóðarinnar ætlar að láta glepjast
og telji að Jóhanna geti töfrað
fram lausnir á þjóðmálum si
svona.
Það er ábyrgðarleysi að starfa
eins og hún gerir. Alls ekki trú-
verðugt og eykur ekki virðingu
fyrir viðkomandi.
Það er einfaldlega ekki hægt
að vera „stikk“ á gjörðum sínum
þegar manni dettur í það í hug.
Alveg eins og börnin verða að
læra að í leiknum gilda ákveðnar
reglur sem þau verði að Iúta, jafn-
vel þó það sé þeim í óhag, verður
persónan Jóhanna Sigurðardóttir
að skilja að í stjórnmálum ber
hver stjórnmálamaður ábyrgð á
gjörðum sínum og fortíð.
Höfundur er þingmaður
Alþýðuflokksins í
Rcykjaneskjördæmi.
Petrína
Baldursdóttir
94026
Word eámskeið
og verkfræöiþjónustan
/uskóli Halldórs Kristjanssonar
Tölvu-i _
Tölvuskóli Halldórs Kristjá
Grensásvegi 16 • ® 68 80 90