Morgunblaðið - 17.11.1994, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Varmaskiptar
[Áratuga reynsla
SINDRI
- sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 ■ SÍMI 562 72 22
AÐSENDAR GREINAR
Er Alþingi íslendinga óþarft?
Opið bréf til formanna þing-flokka Fimm rökstuddar tillög-
Helgi Hjálmarsson
7
T
Hárprýði - Fataprýðí
Opnumídag
glæsilega
stærri verslun
í Borgarkringlunni
Betri þjónusta
Glæsilegt
vöruúrval
Ver/Ö
hjartanlecja
velkomm
Nýtt
Hárprýði — herrasérþjónusta
fyrir gervihár (tímapantanir).
opnunartHboö:
Limbönd, sjampó,
hárnæring
fyrir gervihár.
'Ifataprýði
BOKmmium,
L m, SlMI 3234/
UNDANFARIÐ hef
ég velt þessari spurn-
ingu fyrir mér og mið-
að við núverandi
starfshætti þingsins
og umræður um nauð-
syn þess að fækka
þingmönnum hvarflar
að manni að svara
þessari spurningu ját-
andi. Tökum nýlegt
dæmi. í kjölfar hins
hörmulega morðs á
barni í Noregi hafa
umræður farið af stað
í fjölmiðlum um stöðu
löggjafar hér á landi
í ofbeldismálum
barna. Það kom ekki beinlínis á
óvart að staðan er mjög slæm, en
menntamálaráðuneytið hefur haft
það á sinni könnu að semja lög
um þetta efni frá 1986 án þess
að skila nokkru frá sér. En er það
virkilega hlutverk framkvæmda-
valdsins að semja lög um þetta
efni? Hvar er frumkvæði löggjaf-
arvaldsins, Alþingis? Til marks um
afleita stöðu þingsins þá hvarflaði
ekki einu sinni að fjölmiðlafólki
að tala við þingmenn um þessi
mál. I ljósi þessa spyr ég hvernig
þingmenn geti verið of margir
þegar löggjöf er ábótavant í mörg-
um mikilvægum málum. En það
er ekki nóg með að mikið skorti
á varðandi frumkvæði að lagasetn-
ingu, heldur getur eftirlit þess með
störfum framkvæmdavaldsins ver-
ið ákaflega óskilvirkt. Hver man
t.d. ekki eftir gagnslausum um-
ræðum utandagskrár á Alþingi um
SR-mjöls málið þar sem þing-
mönnum kom ekki einu sinni sam-
an um kaupverðið á fyrirtækinu!
Því miður er það svo, að gagn-
rýni er sjaldnast uppbyggileg.
Menn eru iðnir við að gagnrýna
án þess að koma með hugmyndir
að betrumbótum. í þessari grein
verður þó leitast við að setja fram
uppbyggilega gagnrýni á þingið
með því að koma með hugmyndir
að breyttum starfsháttum þess.
Tillögumar eru eftirfarandi:
1. Þingmönnum á að vera
óheimilt að gegna öðrum störfum
en þingmennsku, einkum og sérí-
lagi eiga þingmenn ekki að starfa
á vegum framkvæmdavaldsins.
Ástæður:
SRtvgmiMfifrife
- kjarni málsins!
■ Kemur í veg fyrir
hagsmunaárekstra.
Hvernig eiga þing-
menn sem handhafar
fj árveitingarvaldsins
að geta haft eftirlit
með notkun - fram-
kvæmdavaldsins á
fjármunum þegar þeir
starfa báðum megin
borðsins? Þessir hags-
munaárekstrar eru
augljósastir þegar
þingmenn eru yfir-
menn opinberra sjóða
og hygla sínu kjör-
dæmi, sbr. Stefán
Valgeirsson fyrrver-
andi forstjóra hlutafjársjóðs og
Matthías Bjarnason stjórnarform-
ann Byggðastofnunar.
■ Kemur í veg fyrir að óljóst sé
hvar trúnaður þingmanna liggur,
sbr. að Vilhjálmur Egilsson þiggur
hærri laun hjá Verslunarráðinu
heldur en kjósendum. Hveijum er
hann trúr?
■ í dag eru bankaráð ríkisbank-
anna nær eingöngu skipuð þing-
mönnum og því er óhætt að segja
að þingið sé óhæft til að hafa eftir-
lit með starfsemi þeirra. Hags-
munaárekstrar vegna þessa komu
berlega í ljós þegar Álbert Guð-
mundsson var alþingismaður og
formaður bankaráðs Utvegsbank-
ans auk þess að vera stjórnarmað-
ur í Hafskipum hf.
■ I samræmi við þessa reglu er
eðlilegt að ráðherrar sem valdir
eru úr hópi þingmanna víki af
þingi og varamaður þeirra taki
við. En eins og alkunna er, hafa
ráðherrar í nógu öðru að snúast
en þingmennskunni auk þess sem
þetta skerpir enn frekar á aðskiln-
aði löggjafar- og framkvæmda-
valds.
2. Þingið á að starfa allt árið
(að undanskildu eðlilegu 5-6
vikna sumarleyfi).
Ástæður:
■ Kemur í veg fyrir misbeitingu
framkvæmdavaldsins á heimild til
setningar bráðabirgðalaga.
■ Gerir starfsemi þingsins mark-
vissari þar sem hætt verður að
miða þingstörfin við fríin. Hver
kannast ekki við að klára verði
hitt eða þetta frumvarpið fyrir
jólaleyfí, páskaleyfi eða sumar-
leyfí? Þá hafa gjarnan safnast upp
öll stærstu og mikilvægustu mál
þingsins. Þau eru svo iðulega af-
greidd í næturvinnu á síðustu dög-
um þingsins með miklum ágöllum
vegna þess að stór hluti þing-
manna hefur ekki einu sinni haft
tíma til að lesa frumvörpin.
Benda má á ummæli forsætis-
OKIFAX 1000
Fjölhæft
og öflugt
faxtæki
Meðal eiginleika
má nefna:
• Fyrir venjulegan pappír
• Sími og fax (sjálfskipting)
• Sfmsvari innbyggður
• 70 númer í minni
• Fjöldasendingar
• Skúffa fyrir 100 A4 síður
• Arkamatari
• Ljósritun allt að 99 síður
• Ósonfrfr
• Fjölmargir möguleikar
s.s. tölvutenging,
minnisstækkun o.fl.
OKI
Tækni til tjáskipta
OKIFAX 1000 er nú á kynningarverði
kr. 149.000,-stgr. m. vsk.
B5 Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664
ur eru bornar fram af
Helga Hjálmarssyni í
grein hans og telur
hann þær geta gjörbylt
störfum Alþingis.
ráðherra þess efnis að e.t.v. væri
rétt að kjósa í haust vegna óvenju
stutts þinghalds í vetur. Venjulegt
þinghald er þó ekki nema rétt um
mánuði lengra og því má ljóst
vera af ummælum ráðherrans að
það standi nokkuð tæpt að þingið
komi yfírleitt nokkru í verk!
■ Það liggur í augum uppi að
með nútíma samgöngutækni eru
þingmenn vel í stakk búnir til að
sinna kjördæmi sínu árið um kring
þó að þingið sé starfandi. Því
væri fásinna að halda því fram,
að þingmenn þurfí þessi löngu frí
til að sinna kjördæminu. Þessu til
frekari sönnunar má geta þess að
séra Gunnlaugur Stefánsson lætur
sig ekki muna um að gegna prests-
embætti að Heydölum austur á
fjörðum samhliða þingmennsk-
unni!
3. Þingið á að hafa frumkvæði
að flestri lagasetningu. Þannig
eiga fagnefndir þingsins, í stað
ráðherra eins og nú tíðkast, að
skipa vinnuhópa til að vinna fyrir
sig ákveðin frumvörp. Þá eiga
þessir vinnuhópar að skila af sér
frumvörpum en ekki skýrslum eins
og algengast er.
Ástæður:
■ Flest hagsmunamál þjóðarinn-
ar eru þverpólitísk og því eiga all-
ir þingmenn að geta unnið að þeim
í sátt og samlyndi og með því
skapað meiri festu í stjórn lands-
ins.
■ Kemur í veg fyrir að sömu mál
séu endurunnin við hver stjórnar-
skipti. Sem dæmi má nefna vinnu-
brögðin við mótun menntastefn-
unnar hér á landi. Svavar Gestsson
fyrrverandi menntamálaráðherra
skipaði nefnd til að vinna að
skýrslu um þessi mál, en sú skýrsla
náði ekki að verða að lögum. Þeg-
ar svo núverandi menntamálaráð-
herra kom til starfa taldi hann
þessa skýrslu að sjálfsögðu vera
gagnslausa svo hann skipaði nýja
nefnd til að vinna að þessu máli.
Sú nefnd skilaði skýrslu ekki alls
fyrir löngu eftir þriggja ára starf.
í ljós kom að 70 af þeim 90 atrið-
um sem nefndin taldi mikilvæg við
endurskoðun menntastefnunnar er
getið í fyrri skýrslunni. Ef nýr
menntamálaráðherra tæki við eftir
næstu kosningar kæmi það engum
á óvart þó hann byijaði frá grunni
aftur!
■ Tryggir að framkvæmdavaldið
úthluti sér ekki óeðlilegum völdum
með ótæpilegum heimildum til
setningar reglugerða 'eins og allt
of algengt er í núgildandi lögum.
■ Kemur í veg fyrir að þingmenn
í stjórnarandstöðu firri sig allri
ábyrgð af lagasetningum líkt og
nú tíðkast. Sem dæmi má nefna
að í Danmörku hafa menn verið
svo lánsamir að hafa minnihluta-
stjórnir sem hafa haft samráð við
alla þingmenn í meiriháttar mál-
um.
4. Fagnefndir þingsins eiga að
staðfesta með atkvæðagreiðslu
skipanir ráðherra í veigameiri
embætti á vegum framkvæmda-
valdsins, svo sem eins og banka-
stjóra og forstjóra ríkisfýrirtækja.
Atkvæðagreiðslan fer fram eftir
opinbera yfirheyrslu nefndarinnar
á viðkomandi.
Ástæður:
■ Gerir ráðherra erfíðara um vik
að misbjóða þjóðinni með skipun-
um á mishæfum flokksgæðingum
í mikilvæg embætti.
■ Sá aðili sem tilnefndur er í stöð-
una kynnir fýrir þinginu og þjóð-
inni hvers megi vænta af honum
í embætti.
5. Draga á úr utandagskrárum-
ræðum en í þeirra stað á að opna
nefndastörf þingsins. Þannig eiga
fagnefndir að hafa opinberar yfir-
heyrslur á handhöfum fram-
kvæmdavalds þegar þær telja sig
þurfa nánari útskýringar á emb-
ættisverkum þess. Einstakir með-
limir fagnefndanna eiga að geta
krafist slíkra yfírheyrslna.
Ástæður:
■ Slíkar yfírheyrslur hafa marg-
falt meira upplýsingagildi fyrir
almenning heldur en ómarkvissar
utandagskrárumræður þar sem
einn þingmaðurinn talar í austur
og hinn í vestur og hlustandinn
hefur ekki hugmynd um hver fer
með rétt mál þar sem grunnstað-
reyndir málsins koma yfirleitt ekki
fram.
■ Með þessu er skapaður opinber
vettvangur fyrir handhafa fram-
kvæmdavaldsins til að útskýra
embættisverk sín. Þar með dregur
úr vægi fjölmiðla í þessum málum,
en þeir eru sem kunnugt er iðu-
lega gagnrýndir af stjórnvöldum
fyrir þá sök að valda ekki þessu
hlutverki, þ.e.a.s. að greina á hlut-
lægan hátt frá embættisverkum
framkvæmdavaldsins.
■ Þetta gerir framkvæmdavaldið
miklu sýnilegra almenningi en nú
er og er því hluti af því að gera
stjórnkerfið opnara.
Kæru þingflokksformenn, það
er mitt mat að þessi fimm atriði
gætu gerbylt störfum þingsins til
hins betra og aukið tiltrú almenn-
ings á því. Ég bíð því spenntur
eftir viðbrögðum ykkar.
Höfundur er verkfræðingur.
] 94024 flf® ®ll ll f TÖ teSWiiigto vu- og verkfræðiþjónustan TölvusKóli Halldórs Kristjánssonar Grensásvegi 16 - © 68 80 90 0 » itlml
Umsókn um framlög úr
Framkvæmdasjóði aldraðra 1995
Stjórn FramkvæmdasjóÖs aldraöra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr sjóönum
áriö 1995. Eldri umsóknir koma aðeins til greina sóu þær endurnýjaöar. Nota
skal sérstök umsóknareyðublöö, sem fylla ber samviskusamlega út, og liggja þau
frammi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Einnig er ætlast til aö umsækj-
endur lýsi bróflega einingum húsnæðisins, byggingarkostnaöi, verkstöðu, fjármögn-
un, rekstraráætlun, þjónustu- og vistunarþörf, ásamt mati þjónustuhóps aldraðra
(matshóps), og þar með hvaða þjónustuþætti ætlunin er að efla. Umsókn skal
fylgja ársreikningur 1993, endurskoðaöur af löggiltum endurskoðanda, og kostnaö-
aryfirlit yfir fyrstu níu mánuði ársins 1994.
Só ofangreindum skilyrðum ekki fullnægt óskilur sjóðstjórnin sór rótt til aö vísa
umsókn frá. Umsóknir skulu hafa borist sjóðstjórninni fyrir 1. desember 1994,
heilbrigöis- og tryggingamólaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra.