Morgunblaðið - 17.11.1994, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994 43
GUÐMUNDUR ÞOR-
ARINN BJÖRNSSON
+ Guðniundur Þórarinn
Björnsson var fæddur á
Grjótnesi á Melrakkasléttu 2.
apríl 1903. Hann Iést á Sjúkra-
húsi Húsavíkur 3. nóvember
siðastliðinn og fór útför hans
fram frá Snartastaðarkirkju
12. nóvember.
GUÐMUNDUR Þórarinn Björnsson
var á 92. aldursári, þegar hann lést.
Björn Stefán, faðir hans, var bóndi
á Gijótnesi, fæddur þar. Hann gekk
í Möðruvallaskóla, var sonur Guð-
mundar Jónssonar frá Lóni í Keldu-
hverfi (Hallbjarnarstaðaætt) og Jó-
hönnu Björnsdóttur á Gijótnesi,
Jónssonar í Leirhöfn, Vigfússonar
í Garði í Kelduhverfi (ætt Hrólf-
unga). Móðir Jóhönnu var Vilborg
Gunnarsdóttir frá Hallgilsstöðum á
Langanesi, Gunnars sonar (Skíða
Gunnars). Aðalbjörg var dóttir Páls
Guðmundssonar bónda á Krákár-
bakka í Mývatnssveit og yíðar í
S-Þing en síðast bóndi í Ásbyrgi
N-Þing (Brúngerðisætt) og Guðrún-
ar Soffíu Jónasdóttur en hún var
ættuð úr Laxárdal S-Þing. Guð-
mundur Þ. kvæntist ekki og átti
ekki afkomendur. Systkini Gúð-
mundar Þ. voru fjögur, þessi í ald-
ursröð: Jóhanna, f. 1901, d. 1994,
giftist Hólmsteini Helgasyni og áttu
þau sjö börn, þeirra heimili var á
Raufarhöfn; Gunnar Páll, f. 1905
bóndi á Gijótnesi, nú búsettur á
Raufarhöfn, kvæntist Huldu Valdísi
Þorsteinsdóttur, hún lést 1974, þau
voru barnlaus; Baldur, f. 1907, d.
1981, bóndi á Gijótnesi, ókvæntur
og barnlaus; Borgþór, f. 1910,
framkvstj. í Reykjavík, kvæntur
Ingu Erlendsdóttur frá Hnausum i
Þingi, þau eru nú búsett í Kópa-
vogi, þau eiga fjögur börn.
Guðmundur hafði dottið og lær-
brotnað fyrir nokkrum vikum Var
gert að meiðslum hans á Akureyri
og lá hann þar nokkurn tíma en
var síðan fluttur til Húsavíkur, þar
sem honum var ætlað að dvelja á
meðan hann safnaði kröftum að
nýju.
Guðmundur Þ., en sá bókstafur
fylgdi jafnan með í nafni hans, til
auðkennis, þegar hann var nefndur,
hafði jafnan verið heilsuhraustur,
en þegar svo lengi hefur verið lifað
er dauðinn líkn frá þrautum og
þreyttum er hvíldin góð eftir langan
og annasaman lífsins vinnudag.
Guðmundur Þ. var borinn í þenn-
an heim á meðan verklag og þjóð-
líf var enn að miklu leyti með sama
móti og verið hafði á íslandi um
aldir. Hann lifði síðan ásamt sam-
tíðarmönnum sínum þá mestu þjóð-
lífsbyltingu og tækniframfarir sem
orðið hafa.
Ungu mennirnir á Gijótnesi
fylgdust vel með og tileinkuðu sér
fljótt tæknina eftir því sem hún
varð tiltæk. Þeir bræður, ásamt
frændum sínum á hinu búinu á
Gijótnesi, eignuðust t.d. eina af
fyrstu bifreiðunum, sem komu í
héraðið og það jafnvel áður en ak-
færir vegir voru komnir um allt
héraðið. Mótorar voru settir í báta
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka, og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram
í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í greinunum sjálf-
um.
á Gijótnesi snemma á öldinni og
farið var að rækta jörðina með
vélknúnum tækjum. Byggt var stórt
og fallegt steinsteypt íbúðarhús,
sem teiknað var af Guðmundi Þ.
og átti hann flest handtök við þá
byggingu, en fleiri komu þar að
verki, enda samhjálp mikil á Gijót-
nesheimilunum. I þetta hús flutti
fjölskyldan 1928 úr gamla bænum.
Á þeim árum, sem Guðmundur
Þ. var að alast upp og allt til fullorð-
ins ára var jafnan mannmargt á
Gijótnesi, allt að 30-40 manns á
tveimur heimilum. Á hinu heimilinu
á Gijótnesi réðu húsum föðursystir
hans Vilborg Guðmundsdóttir og
maður hennar Björn Sigurðsson,
trésmíðameistari frá Ærlækjarseli
í Öxarfirði. Þau áttu 11 börn. Það
þótti eftirsótt að komast á vist með
Gijótnesbændum og var þar margt
vinnufólk um lengri eða skemmri
tíma, einnig skólabörn. Gijótnes-
heimilin voru þekkt að myndarskap,
snyrtimennsku og verklagni og hús-
ráðendur vel menntir til munns og
handa.
Á Gijótnesi var um nokkurt skeið
haldinn skóli og fengnir til kennar-
ar að uppfræða æskuna, sem var
þar og á næstu bæjum að vaxa
upp. Var stórt herbergi í syðra
húsinu jafnan kallað skólastofa, en
þar fór kennslan fram. Var stofa
þessi á efri hæð, yfir og jafn stór
smíðastofu Björns Sigurðssonar.
Þar mun unga fólkið, a.m.k. dreng-
irnir, hafa fengið dijúga verk-
menntun.
Við þessar aðstæður ólst Guð-
mundur Þ. upp. Hann nam trésmíði
hjá Birni Sigurðssyni og síðan hús-
gagnasmíði um nokkurt skeið í
Reykjavík. Árið 1936 tóku þeir
bræður, Guðmundur, Gunnar og
Baldur við búi foreldra sinna. Guð-
mundur átti alla tíð hlut að búinu
með bræðrum sínum en starfsvett-
vangur hans var þó lengst af við
smíðar og húsbyggingar víðs vegar
um héraðið. Stærstu verkefnin, sem
hann stóð fyrir, voru flestar bygg-
ingar Kaupfélags Norður-Þingey-
inga á Kópaskeri, en einnig var
gjarnan leitað til Guðmundar um
byggingu ýmissa íbúðarhúsa sem
og annars konar húsa í héraðinu
og jafnvel víðar. Að sumum verk-
efnum vann hann í félagi við Sig-
urð Kristjánsson í Leirhöfn og um
nokkurt skeið ráku þeir Óskar son-
ur Sigurðar og Guðmundur tré-
smíðaverkstæði á Sæbergi, iðnaðar-
býli í landi Leirhafnar, en þar stóð
fyrir fiskverkunarhús, sem breytt
var í trésmíðaverkstæði. Ekki
reyndist nægur grundvöllur til
reksturs slíks verkstæðis eingöngu,
þannig að Guðmundur hvarf í vax-
andi mæli að húsbyggingum að
nýju, víðs vegar um héraðið. Um
helgar kom hann oftast heim í
Gijótnes og dvaldi þar einnig á
milli verkefna og gafst þá oft tæki-
færi til að byggja upp og bæta
húsakost á jörðinni.
Árið 1965 ákváðu bræðurnir á
Gijótnesi að bregða búi. Fluttu þeir
til' Raufarhafnar og reistu sér þar
íbúðarhús, þar sem Hulda, kona
Gunnars, bjó þeim notalegt heimili,
á meðan henni entist líf og heilsa.
Síðan hafa þeir búið þar saman
bræðurnir, fyrst þrír, en eftir lát
Baldurs þeir Gunnar og Guðmund-
ur.
Guðmundur Þ. var grannur mað-
ur, hávaxinn, beinn í baki fram á
elliár og bar sig vel á velli. Hann
var dagfarsprúður maður, sem
skipti ekki skapi. Hann var hvar-
vetna vel liðinn jafnt af þeim, sem
fólu honum verk, sem þeim er lutu
verkstjórn hans. Hann var hlýr og
glaðlegur í viðmóti en þó alvörugef-
inn og athugull. Hann var afskipta-
lítill af annarra hag.
Ég ber nöfn tveggja móður-
bræðra minna. Millinöfn okkar Guð-
mundar voru samstofna. Við kölluð-
um hvorn annan nafna, á meðan
ég var yngri. Slíku fylgir nánara
samband frænda. Stundum var, í
stríðni, reynt að koma mér í vanda
með því að fá mig til að gera upp
á milli þessarra tveggja nafna
minna. Ég kom mér ætíð staðfast-
lega undan slíku.
Við systkinin minnumst frænda
okkar með hlýju og þökk fyrir at-
hyglina, sem hann sýndi okkur ung-
um, og hjálpsemi við okkur og for-
eldra okkar, sem ætíð var til reiðu,
þegar þörf var á og henni varð við
komið. Mikill systkinakærleikur var
með móður okkar og Guðmundi.
Um hann vitna þeir fallegu innan-
stokksmunir, sem Guðmundur
smíðaði og gaf systur sinni á fyrstu
hjúskaparárum hennar.
Að leiðarlokum er okkur því þökk
í huga fyrir að hafa átt hann að
frænda. Éari hann í friði. Við biðjum
Guð að blessa minningu Guðmund-
ar Þ. Björnssonar.
Gunnar Þór Hólmsteinsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
INGVI RAFN ALBERTSSON,
Eskifirði,
er lést í Landspítalanum 9. nóvember,
verður jarðsunginn frá Eskifjarðarkirkju
laugardaginn 19. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeir, sem vilja minnast hins látna, vin-
samlega láti Landssamtök hjartasjúkl-
inga njóta þess.
María Hjálmarsdóttir,
Hjálmar Ingvason, Elínborg Þorvaldsdóttir,
Sigurveig M. Ingvadóttir,
Björgvin Ingvason,
Brynjar Rafn Ingvason,
Friðgeir Sumarliðason,
Aðalheiður Kristjánsdóttir,
Þórunn Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VÍGLUNDUR JÓNSSON
fyrrverandi útgerðarmaður
og heiðursborgari
Ólafsvikurkaupstaðar,
Lindarholti 7, Olafsvík,
sem lést miðvikudaginn 9. nóvember,
verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 19. nóvember kl. 14.00.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni
kl. 10.00.
Þeim, sem villja minnast hins látna, er vinsamlega bent á St.
Fransiskuspítalann í Stykkishólmi.
Úlfar Víglundsson, Guðrún Karlsdóttir,
Guðrún Víglundsdóttir, Pétur S. Jóhannsson,
Ragnheiður Víglundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Konan mín og móðir okkar,
JÓNINA B. ÞÓRHALLSDÓTTIR,
Háafelli,
verður jarðsungin frá Gilsbakkakirkju laugardaginn 19. nóvember
kl. 14.00.
Þorvaldur Hjálmarsson,
Edda Þorvaldsdóttir,
Jóhanna Þorvaldsdóttir.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MÁLMFREÐS JÓNASAR ÁRNASONAR
frá Eskifirði,
Maríubakka 12,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. nóvember kl. 13.30.
María Danielsdóttir,
Daníel Jónasson, Ásdis Jakobsdóttir,
Árni Jónasson, Anna Britta Vilhjálmsdóttir,
ÖrnJónasson, Helga Jóhannesdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
BALDURS KRISTJÁNSSONAR,
Kúrlandi 5,
Reykjavfk.
Sérstakar þakkir til lögreglustjóraembættisins og Lögreglu-
kórsins.
Unnur Sveinsdóttir,
Kristján Ágúst Baldursson, Stefanía Þorvaldsdóttir,
Sveinn Baldursson, Sesselja Signý Sveinsdóttir,
Einar Valur Baldursson
og barnabörn.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við fráfall
INGIBJARGAR K. KRISTINSDÓTTUR,
húsfreyju á Skarði,
Skarðsströnd.
Jón G. Jónsson,
Boga Kristinsdóttir,
Kristinn Jónsson, Þórunn Hilmarsdóttir
og fjölskylda.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu,
ur, tengdadóttur, systur, mágkonu, stjúpmóður,
og ömmu,
HÓLMFRÍÐARÓLAFSDÓTTUR
kennara,
Norðurgötu 47,
Akureyri.
móður, dótt-
tengdamóður
Jakob Jónsson,
Guðrún Halldórsdóttir,
Björg Ólafsdóttir,
Ása Jakobsdóttir,
Jakob Smári Pálmason,
Oddný Ragna Pátmadóttir,
Jón Jakobsson,
Magnea Sigurðardóttir,
Kristján Finnbogason,
Pálmi Ragnarsson,
Magnea Jóna Pálmadóttir,
Sigríður Ingibjörg Pálmadóttir.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við fráfall eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
bróður, mágs, afa og langafa,
STEINGRÍMS BENEDIKTS
BJARNASONAR
fisksala,
Sogavegi 158,
Reykjavík.
Kristin Kristjánsdóttir,
Bára Steingrímsdóttir,
Bárður Árni Steingrímsson,
Kristján Steingrímsson,
Laufey Steingrímsdóttir,
Erlingur Steingrímsson,
Steinþór Steingrímsson,
Sigrún Höskuldsdóttir,
Hólmfríður Sigurðardóttir,
Hannes Einarsson,
Hulda Arnsteinsdóttir,
Kristín Salome Steingrímsdóttir, Jóhann P. Jónsson,
Þórhallur Steingrímsson,
Gunnar Örn Steingrímsson,
Lilja Steingrímsdóttir,
Ólína K. Ermert,
Ásta Bjarnadóttir,
Jóhann Kristjánsson,
Jón Hjörtur Harðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þorgerður K. Halldórsdóttir,
Björk Magnúsdóttir,
Terry L. Ermert,
Jóna Bjarnadóttir,
Evlalía Sigurgeirsdóttir,