Morgunblaðið - 12.02.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
SYSTIR María Dolor, Torfhildur Steingrímsdóttir, Systir Tanja, Guðfinna Mathiesen og Helgi
Helgason ræða saman eftir messu í Hafnarfirði.
Kærleiksboðberar í íslenskunámi
SYSTUR af reglu Móður Theresu
frá Kalkútta, fjórar að tölu, sem
komu til íslands í lok síðasta
árs, hafa farið i heimsóknir til
ýmissa safnaða kaþólsku kirkj-
unnar og á stofnanir hennar und-
anfarið.
Systurnar fóru um helgina í
heimsóknir í söfnuðinn á Suður-
landi, en þar er messað i Hvera-
gerði tvisvar í mánuði. í söfnuð-
inn í Hafnarfirði fóru svo sama
dag í heimsókn þær systir Tanja,
sem er yfirmaður þeirra, og syst-
ir María Dolor. Var þar fjölmenn
messa með yfir 100 kirlgugestum
sem drukku saman bollukaffi á
eftir messunni og spjölluðu við
systurnar. Auk þessa eru systum-
ar komnar í nám í íslensku fyrir
útlendinga við Háskóla íslands
og fá einnig aðstoð í sókninni.
Kærleiksboðberar
Systur þessar eru af þeirri
reglu er hvað þekktust hefir orð-
ið á öldinni og þá ekki síst stofn-
andi hennar, Móðir Theresa frá
Kalkútta. Em þær og regla
þeirra í daglegu tali nefndar
Kærleiksboðberarnir. Segjast
þær hyggja gott til verunnar á
Islandi þrátt fyrir snjó og kaldan
vetur.
Þær hafa komið sér fyrir að
Hjallaseli 14 í Reykjavík og hafa
sett upp kapellu á fyrstu hæð
hússins þar sem þær halda dag-
lega bænastund.
Rekstrarskilyrði sauðfjárbænda
Ohagstæður sam-
anburður við ESB
REKSTRARSKILYRÐI sauðfjár- Árleg beingreiðsla á vetrarfóðraða
bænda hér á landi eru mun lakari
en í löndum Evrópusambandsins
þar sem styrkir eru miklir á sam-
bærilegum landsvæðum og hlýrri.
Gera má ráð fyrir að ef ísland
væri aðili að ESB fengju allir fjár-
bændur hér á landi um eða yfir 3
þúsund krónur í beingreiðslur þar
sem ísland hefði trúlega allt verið
skilgreint sem hálendissvæði.
í löndum ESB eru beingreiðslur
til sauðfjárbænda ekki tengdar
framleiðslu eins og hér heldur er
greitt út á vetrarfóðraðar ær, og
þá hafa beingreiðslur í kornrækt
verið verulegar og hafa óbein áhrif.
Þetta kom fram í erindi Ketils A.
Hannessonar, hagfræðings hjá
Bændasamtökum íslands, sem
hann flutti á Ráðunautafundi 1997
sem hófst á Hótel Sögu í gær og
lýkur næstkomandi föstudag.
í erindi Ketils kom m.a. fram að
í löndum ESB er kvóti á þann
gripafjölda sem greitt er á úr sjóð-
um ESB og beingreiðslur eru á
ær, en hver þjóð fær landskvóta
og hver bóndi síðan sinn kvóta.
Beingreiðslur eru út á kornrækt,
olíu- og próteinjurtaframleiðslu og
einnig það land sem ekki er sáð í.
á er 2.048 kr. og á harðbýlum
svæðum kemur til viðbótar 604 kr.
beingreiðsla á vetrarfóðraða á og
hálendisbændur fá að auki
315-670 kr. á vetrarfóðraða á.
Sagði Ketill að ef ísland hefði
gengið í Evrópusambandið myndu
sennilega allir fjárbændur á íslandi
fá þessar beingreiðslur vegna þess
að ísland myndi verða skilgreint
sem hálendissvæði.
í samanburði, sem Ketill gerði
grein fyrir á þeim rekstrarskilyrð-
um sem skoskur fjárbóndi býr við
annars vegar og íslenskur fjárbóndi
hins vegar, kemur fram að miðað
við bú með 100 ám eru 54% af tekj-
um skoska bóndans beingreiðslur
en 51% af tekjum þess íslenska.
Breytilegur kostnaður hjá íslenska
bóndanum er hátt í helmingi meiri
en hjá þeim skoska og framlegð j
skoska búsins því nokkuð meiri.
Þannig næmu tekjumar af skoska
búinu samtals 606.323 kr. og því I
íslenska 885.540 kr, en breytilegur
kostnaður á skoska búinu næmi
142.044 kr. og 237.300 kr. hjá því
íslenska. Þannig væri framlegðar-
stig skoska búsins 76,57 en þess
íslenska 73,20.
Búist er við að það skýrist í þessari viku í hvaða farveg kjaraviðræðurnar fara
Nýrra tillagna að
vænta frá báðum
Hreyfíng vírðist vera að komast á kjaraviðræður. Forystumenn
landssambanda ASÍ sátu á löngum fundum í gær og er stefnt að
því að þau kynni sameiginlega launastefnu í vikulok. Forystumenn
----?-----------------------------------------
VSI sátu einnig á fundum, en reiknað er með að þeir kynni nýjar
hugmyndir á fundi með samninganefnd VMSÍ í dag. Egill Ólafs-
son fylgdist með því sem er að gerast í kj aramálum.
FORMENN landssambanda ASÍ
eru að leggja lokahönd á yfirlýsingu
um sameiginlega launasteftiu og
kröfugerð á hendur stjómvöldum
um breytingar i skattamálum og
fleiri málum. Stefnt er að því að
kynna yfírlýsinguna i lok vikunnar.
Samninganefndir Verkamanna-
sambandsins og vinnuveitenda hitt-
ast hjá ríkissáttasemjara í dag og
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins ætla vinnuveitendur að
kynna nýjar humyndir á fundinum.
Samninganefndir vinnuveitenda
og VMSÍ hittust hjá ríkissátta-
semjara í gær. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins kynntu vinnu-
veitendur á fundinum hugmyndir
sem verða ræddar frekar á samn-
ingafundi á morgun. Vonast er
eftir að vinnuveitendur útfæri þær
frekar á fundinum. Einn heimilda-
maður Morgunblaðsins sagði fund-
inn geta ráðið úrslitum um fram-
hald viðræðnanna. Samninganefnd
VMSÍ ræddu hugmyndimar í gær
og er því að vænta einhverra við-
bragða af þeirra hálfu í dag.
Formenn landssambandanna og
forseti ASÍ ræddu saman á tveim-
ur fundum í gær þar sem farið var
yfir málin. Milli funda komu samn-
inganefndir verslunarmanna og
Verkamannasambandsins saman
til að fara yfir fyrirliggjandi tillög-
ur. Samninganefnd Samiðnar kem-
ur saman í dag.
Undanfarnar vikur hafa for-
menn landsambandanna unnið að
því að samræma sjónarmið varð-
andi kröfur á hendur ríkisvaldinu.
Þessari vinnu hefur miðað hægar
en stefnt var að af ýmsum ástæð-
um. Samiðn og Rafiðnaðarsam-
bandið hafa lagt mikla áherslu á
að knýja á um breytingar á skatta-
kerfinu, en Verkamannnasam-
bandið hefur ekki haft nákvæm-
lega sömu áherslur.
Kröfur VR valda óróa
Kjarakröfur Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur, sem kynntar
voru í fyrradag, virðast hafa kom-
ið talsverðu róti á kjaramálin. Að
sumra áliti hefur þetta útspil já-
kvæð áhrif á meðan aðrir segja
það spilla fyrir þeirri vinnu sem
var í gangi. Innan VMSÍ er tak-
mörkuð hrifning á tillögum VR.
Þar hafa menn viljað fara krónu-
töluleið, en ekki prósentuleið eins
og VR leggur til. Eins telja marg-
ir innan VMSÍ að þriggja ára
samningstími, sem er í tillögum
VR, sé of langur.
Einn viðmælandi Morgunblaðs-
ins sagði þó að útspil VR í fyrra:
dag virtist ætla að auðvelda VMSÍ
og iðnaðarmönnum að ná saman
um áherslur í kjaramálum. Ástæð-
an væri sú að með því að taka
höndum saman við iðnaðarmenn
vonaðist forysta VMSÍ eftir að
henni tækist að koma í veg fyrir
að tillögur VR yrðu ráðandi í kjara-
viðræðum næstu daga.
Fyrir gerð síðustu kjarasamn-
inga var nokkur ágreiningur innan
ASÍ um hvaða leið ætti að fara.
VR kynnti þá ítarlega kröfugerð á
blaðamannafundi með líkum hætti
og gert var í fyrradag. Segja má
að tillögur VR hafi orðið ofan á
því samningarnir, sem gerðir voru
í febrúar 1995, byggðu að stórum
hluta á þeim ramma sem VR bjó
til. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins óttast margir innan for-
ystu VMSÍ að það sama gerist
aftur núna. Þeir leggja því áherslu
á að ná samkomulagi við iðnaðar-
menn um áherslur í kjaramálum
og koma þannig í veg fyrir að VR
leggi línuna í kjarasamningunum.
Samninganefnd Landssam-
bands verslunarmanna sat á löng-
um fundi í gær. Innan nefndarinn-
ar eru skiptar skoðnir um hvort
landssambandið eigi að styðja til-
lögur VR. Landssambandið semur
fyrir hóp sem er ekki eins samsett-
ur og VR. í VR er mjög stór hóp-
ur skrifstofufólks, sem er á sæmi-
lega háum launum. Innan Lands-
sambands verslunarmanna er hins
vegar mun stærra hlutfall af-
greiðslufólks á tiltölulega lágum
launum. Meðal þessa fólks er and-
staða við hugmyndir VR um vinnu-
staðasamninga.
VR fer sjálft með samningsum-
boð fyrir félagið og það á því eng-
an fulltrúa í samninganefnd
Landssambands verslunarfólks.
Óvissa um störf |
jaðarskattanefndar
Innan verkalýðshreyfingarinnar |
er fylgi við það sjónarmið að breyt-
ingar á skattakerfinu séu forsenda
fyrir gerð nýrra kjarasamninga.
Rafiðnaðarsambandið og Samiðn
hafa lagt mikla áherslu á þetta sjón-
armið. Formaður Rafiðnaðarsam-
bandsins hefur látið hafa eftir sér
að ef stjómvöld geri ekki breyting-
ar á skattakerfinu hljóti rafiðnaðar- ;
menn að endurskoða kröfugerð sína
og hækka kjarakröfumar.
Alls óvíst er hvaða tillögur j aðar- |
skattanefnd ríkisstjómarinnar ger-
ir, en henni var falið að koma með
tillögur sem fela í sér lækkun
jaðarskatta. Nefndin hefur fundað
vikulega að undanfömu, en enginn
fundur hefur verið boðaður í nefnd-
inni eftir síðasta fund.
Ólafur Davíðsson, ráðuneytis-
stjóri og formaður nefndarinnar,
segir að áherslumunur sé á milli
nefndarmanna um hvaða breyting-
ar eigi að gera. Nefndin hafi velt
upp ýmsum tillögum og látið
reikna út áhrif þeirra. Þessi mál
séu hins vegar mjög flókin og
margvísleg sjónarmið uppi. Hann
segir óvíst hvenær nefndin skili
áliti.
Sáttatilraun Dagsbrúnar
ekki skilað árangri
Undanfarið hefur forysta Dags-
brúnar og forysta VSÍ rætt óform-
lega saman, en 'að samkomulagi
varð í upphafi mánaðarins að
hætta formlegum viðræðum hjá
ríkissáttasemjara og kanna sam-
komulagsgrunn í óformlegum
samtölum. Halldór Björnsson, for-
maður Dagsbrúnar, segir að þessi
tilraun til að ná samkomulagi virt-
ist ekki ætla að skila árangri.
Hann segist gera ráð fyrir að
Dagsbrún óski eftir formlegum
samningafundi hjá sáttasemjara í
lok vikunnar.