Morgunblaðið - 12.02.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Valdimar
SAUÐÁRKRÓKSFEÐGAR láta ekki atvikið á Gaddstaðaflötum í sumar þegar Óður varð staður i
úrslitakeppninni hafa áhrif á sig. Munu þeir verða með hestinn í notkun á húsi í vor og hyggjast
leiða allar hryssur sínar undir hann. Myndin er tekin í forkeppni A-flokks á Gaddstaðaflötum þegar
allt lék í lyndi hjá þeim félögum Óði og Hinriki Bragasyni.
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997 9
Félag stofnað um Óð frá Brún
Verðmæti hests-
instalið um 10
milljónirkr.
NÝLEGA var gengið frá stofnun
sameignarfélags um stóðhestinn
Óð frá Brún sem ber nafn hestsins.
Hlutirnir í félaginu eru 23 og hefur
hver þeirra rétt á að halda þremur
hryssum undir hestinn sem þýðir
að sextíu og níu hryssur verði leidd-
ar undir hestinn árlega.
Þrír af þessum hlutum tilheyra
félaginu og er ætlaðir til að standa
undir rekstri á hestinum. Verða
þessi níu pláss leigð á fijálsum
markaði og hefur verð undir hestinn
verið ákveðið 45 þúsund krónur á
hveija hryssu fyrir utan virðisauka.
Hver hlutur var seldur á fimm
hundruð þúsund og er því verð-
mæti hestsins ríflega 10 milljónir
króna. Seljendur hlutanna voru
Hinrik Bragason og Hulda Gústafs-
dóttir, en þau eiga stærstan hlut í
hestinum og eru með fþ'óra hluti.
Óður verður í notkun á Suður-
landi í sumar en verið er að leita
að girðingu. Það verða hinsvegar
Sauðárkróksfeðgar, Sveinn Guð-
mundsson og sonur hans, Guð-
mundur, sem munu nota Óð á húsi
og hyggjast þeir leiða allar sínar
hryssur sem mögulegt er undir Óð
í vor.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að þeir væru fyrst
og fremst að leita eftir góðu tölti
og miklum fótaburði. Einnig nefndi
hann að Óður væri kominn út af
Sörla í gegnum föður sinn Stíg frá
Kjartansstöðum sem væri undan
Náttfara Sörlasyni.
Ekki mun stefnt með Óð á sýn-
ingar í vor en Hulda kvað ekki úti-
lokað að hann kæmi fram á ein-
hveijum samkomum í vetur og vor
áður en hann byijar að sinna skyld-
um sínum.
Skemmtíkvöld
Úrvals-fólks
fyrir alla 60 ára og eldri.
Miðvikudaginn 19. febrúar verður skemmtikvöld Úrvals-fólks
í Súlnasal Hótels Sögu kl. 18.30, húsið opnar kl. 18.00.
Hin eina sanna Úrvals-fólks stemmning.
Kór eldri borgara á Selfossi,
stjórnandi Sigurveig Hjaltested.
Einsöngur: Guðrún E. Gunnarsdóttir
og Hafdís Hafsteinsdóttir,
nemendurí tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi.
Undirleikari: Aðalheiður Eggertsdóttir.
i
Danssýning
Dansflokkur frá Dansskóla Sigvalda.
Happdrætti
Veglegir vinningar í boði.
Dans
Hljómsveit Hjördisar Geirs
sér um fjörið.
Vegna mikillar aðsóknar óskast
pantanir sóttar sem fyrst.
Miðasala og borðapantanir hjá
Rebekku og Valdísi á skrifstofu
Úrvals-Útsýnar í Lágmúla 4
frá kl. 9.00-17.00
í síma 569 9300.
Verð aðeins 1.990 kr.
Miðinn gildir sem happdrættismiði.
ÚRVAL-ÚTSÝH
Lágmúla 4: stmi 569 9300,
Hafnarfirði: sími 565 2366, Keflavtk: sími 421 1353,
Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: stmi 462 5000
- og hjá umboðsmönnum um land allt.
Vertu áfram í öruggum höndum og endurnýjaðu spariskírteinin þín t nýjum
ríkisverðbréfum ef þú átt skírteini á innlausn í febrúar:
1. febrúar 1. fl. D 1992-5ár
10. febrúar 1. fl. D 1989-8ár
Tryggðu þér áfram góð kjör og skiptu gömlu
skírteinunum yfir í ný ríkisverðbréf. Við
aðstoðum þig og gefum góð ráð við skiptin.
Komdu með gömlu spariskírteinm
og skiptu yfir í ný *
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
s
UTBOÐ RÍKTSVERÐBRÉFA • SALA • INNLAUSN • ASKRIFT