Morgunblaðið - 12.02.1997, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Magnaður meðeigandi
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
MEÐEIGANDINN
„The Associate" ★ ★
Leikstjóri: Donald Petrie. Aðalhlut-
verk: Whoopi Goldberg, Diane Wi-
est, Eli Wallace. 1996.
GAMANMYNDIRNAR úr
bandaríska viðskiptalífinu segja
gjarnan frá einhverjum sem vinnur
sig upp í áliti og feitar stöður fyr-
ir sakir gáfna sinna og hæfileika
en þurfa að hafa svolítið meira
fyrir því en aðrir að vera metnir
að verðleikum. Ameríski draumur-
inn er sífellt að endurtaka sig.
Þannig gamanmynd er Meðeigand-
inn eða „The Associate" með Who-
opi Goldberg. Hún leikur einstakan
fjármálasnilling sem segir upp hjá
ráðgjafafyrirtæki á Wall Street
þegar hæfíleikalaus og undirförull
samstarfsmaður hennar sleikir sig
upp í yfirmannastöðuna er henni
var ætluð. Hún stofnar sitt eigið
ráðgjafafyrirtæki en kvenréttinda-
hreyfíngamar hafa aldrei komist
upp með neitt múður á Wall Street
og henni sem konu verður ekkert
ágengt. Svo hún býr til samstarfs-
mann, virðulegan eldri karlmann,
sem verður frægasti fjármálamað-
ur sögunnar á stuttum tíma og í
þokkabót furðulega líkur Marlon
Brando.
Myndin er mestmegnis sárasak-
laust gaman og nýtir gamanleik-
hæfileika Whoopi Goldbergs til
góðra verka. En hún hefur líka
alvarlegri undirtón fyrir þá sem
ekki em bara komnir til að hlæja,
um stöðu konunnar í einkaklúbb-
um karlasamfélagsins í íjármála-
heimi New York borgar. Hún á sér
ekki viðreisnar von nema búa til
karlmann sem hún vinnur með og
jafnvel þótt hann sé ekki til fær
hann allan heiðurinn af hennar
starfí. Svo hún verður að koma
honum fyrir kattarnef en það reyn-
ist ekki auðvelt.
Höfundar myndarinnar geta vel
hafa fengið hugmyndina úr „Being
There“; menn eru svo tilbúnir að
trúa góðum fréttum að það skiptir
þá engu hvaðan þær koma og sam-
starfsmaðurinn, sem Goldberg býr
til, verður að e.k. Messíasi fjár-
málaheimsins. Gamansemin snýst
um það umrót sem verður í lífi
Goldberg þegar hún hættir að ráða
við svikamyllu sína og hún er ágæt
í hlutverkinu; fær meira að segja
að gera það sem Eddie Murphy
gerir venjulega eða leika hvítan
karlmann. Eii gamli Wallace er
trúgjarn peningamaður og Diane
Wiest úrræðagóður einkaritari.
Meðeigandinn er ágætis dægra-
stytting með boðskap um stöðu
konunnar á Wall Street en stefnir
ekki á neina raunverulega dýpt og
skilur því lítið eftir sig.
Arnaldur Indriðason
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
HELGI Hjaltalín Eyjólfsson myndlistarmaður við fingraför
vinstri handar í verkinu „Ég“ í SÚM - sal.
Litblindur málari
Úr öskunni í eldinn
á samsýningu
KVIKMYNDIR
BíöhöIIin
ÆRSLADRAUGAR(THE
FRIGHTENERS) ★ ★ Vi
Leikstjóri Peter Jackson. Handrits-
höfundar Peter Jackson, Frances
Walsh. K vikmyndatökustj óri John
Blick, Alun Bollinger. Tónlist Danny
Elfman. Aðalleikendur Michael J.
Fox, Trini Alvarado, Peter Dobson,
John Astin, Dee Wallace-Stone, R.
Lee Ermey. 105 mín. Bandarísk.
Universal 1996.
SKILGREININGIN „svört hryll-
ingsgamanmynd" á hvað best við
Ærsladrauga. Framleidd af Robert
Zemeckis, sem átti eina slíka -
Death Becomes Her, fyrir fáeinum
árum. Þessum nýja grínhrolli leik-
stýrir Peter Jackson og gerir margt
vel. Frank (Michael J. Fox) er
skyggn einkaspæjari sem leitar
hjálpar afturganga er múgmorð
eiga sér stað í smábænum hans.
Þar er að verki fjöldamorðingi sem
virðist ekki hvíla í sinni öskustó á
náttborði kærustunnar, en hann
var grillaður í rafmagnsstólnum á
sínum tíma. Nýtur Frank einnig
aðstoðar læknisins Lucy í baráttu
sinni við hin yfirnáttúrulegu og
jarðbundnu öfl - sem einkum sam-
samast í hálfóðum alríkislögreglu-
manni. Þá kemur til sögunnar dul-
arfulla „húsið á hæðinni", með sín-
um enn undarlegri íbúum.
Óneitanlega brokkgeng mynd
en oftast ágætasta skemmtun.
Brellumar em óaðfinnanlegar, en
ekki lengur framlegar, það gerir
kannski gæfumuninn. Við höfum
séð þetta áður. Handritshöfundun-
um er ekkert heilagt þegar aftur-
göngubrandarar era annars vegar,
eins gott fyrir þá að rúnta ekki
um Vestfjarðakjálkann í vetrarfrí-
inu. Söguþráðurinn á fína spretti
þar sem Michael J. Fox á sinn lang-
besta leik allt frá Aftur til framtíð-
ar -myndunum , sem voru einmitt
gerðar af Zemeckis. Hann hefur
munað eftir þessari fýrram stjörnu
sinni, sem loksins lítur út fyrir að
vera komin á þrítugsaldurinn.
Samstarfíð skilar sér vel.
Trini Alvarado glæðir einnig
persónu læknisins talsverðu lífi
og Peter Dobson er spaugilegur
sem vitgrannur - og síðar meir
dauður og vitgrannur - maður
hennar. Dee Wallace Stone hefur
þroskast á þann veg að með ólík-
indum má teljast að hún eigi aft-
urkvæmt í sitt frægasta hlutverk
- í E.T., barnamyndinni góðu.
Hinsvegar stormar af henni með
axarkjaggið á lofti í myrkum
rangölum.. .
Það vantar aðeins herslumuninn
að úr verði fyrsta flokks skemmtun
en Ærsladraugar detta niður á
köflum, eins kennir endurtekninga
sem draga á langinn oftast spenn-
andi efnisþráð. Tónlist Danny Elf-
mans er hinsvegar til mikilla bóta.
Sæbjörn Valdimarsson
„ÉG VILDI Ieyfa sýningunni að
vera munaðarlaus, skilja hana
eftir og leyfa henni að spjara sig
sjálfri. En það er víst ekki hægt,
maður verður að sitja yfir
henni,“ segir Helgi Hjaltalín Eyj-
ólfsson myndlistarmaður sem
tekur sér orð ónefnds kollega
síns í munn og segir yfirsetuna
líkasta því að silja í gömlu bað-
vatni.
Verk Helga eru til sýnis i SÚM
— sal og á palli Nýlistasafnsins
við Vatnsstíg, en þó eru áhöld
um eftir hvern verkin eru þegar
þau eru skoðuð því nafn hans
kemur hvergi fram og verkin eru
eignuð alnafna kúbverskrar bylt-
ingarhelju, litblindum listmálara
og fleira fólki. Helmingur sýn-
ingarinnar er sem sagt unninn í
gegnum persónur sem Helgi
skáldaði upp eða ákvað að eigna
verkin og hann segir í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins
að hann vinni í raun eins og
skáldið sem lætur persónur í
sögu vinna fyrir sig.
Ég og mannieg þekking
Sýningin er mjög fjölbreytt og
unninn í marga miðla. Á palli eru
jafnt málverk, ljósmyndir og
höggmyndir, rétt eins og um
samsýningu sé að ræða, og uppi
eru verk sem líkjast
grafikþrykkjum á glerplötum,
baðvigt, hæðarmælir og bækur.
„Ég vildi að umhverfið hér uppi
yrði pínulítið sjúkrahúslegt,"
segir Helgi þegar blaðamaður
gengur með honum um
sýninguna. „Hér í SÚM-sal er ég
að velta mannlegri þekkingu
fyrir mér og hvernig við mælum
hana út og fíngraf örin, sem er
þetta litla skilur okkur að og
tengir okkur i leiðinni, eru hér
til beggja handa.“ Hann hefur
kosið að hafa engar skýringar
uppi við né titla. Verkin í salnum
bera þó yfírskriftina Ég og sá
sem kemur upp sér titilinn, að
hans sögn, segir hann með
sjálfum sér og þá er hann um
leið búinn að samsamast
sýningunni, orðinn hluti af henni.
„Hann verður sá Ég sem sýningin
á við.“
Á palli er sálin í verkinu að
sögn listamannsins, sálin í
sýningunni. Samsýning
ímyndaðra vina hans. Hann
bendir á þessu til útskýringar að
öll séum við í raun margar
persónur enda tileinkum við
okkur hluti frá mörgum ólíkum
samferðamönnum á lífsleiðinni.
Eitt verkið er litskyggna af
málverki eftir Hans Höfer sem
áhorfandinn sér í gegnum op á
sérsmiðuðum blikkkassa, verk
sem heitir málverk 400X400 cm.
„Þarna gerði ég málverk og tók
mynd af því og myndin er ofan
í þessum (jósakassa. Síðan get
ég fullyrt í textanum með
verkinu að málverkið sé 400X400
cm. Ég hef unnið töluvert mikið
með þetta áður, það er að búa
til sýningar, setja þær upp, taka
myndir af verkunum og selja í
bækling og sýna svo bara
bæklinginn.
Ég vil að gestir á sýningunni
sjái listamennina fyrir sér og
fari jafnvel að ímynda sér
hvernig lífi þeir lifi og hvernig
önnur verk þeirra líta út.“
Blaðamaður tekur undir þetta
og segist til dæmis gjarnan vilja
sjá fleiri verk eftir litblinda
máiarann sem á eina málverkið
á sýningunni en sjálfsagt er það
ekki hægt nema með því að búa
það tii sjálfur, í huganum.
T
IIMNRÖMMUN ú
SERTILBOÐ
Álrammar:
18x24 cm 300 kr.
20x25 cm 400 kr.
24x30 cm 650 kr.
30x40 cm 750 kr.
40x50 cm 980 kr.
50x70 cm 1.980skr.
i
SERTILBOÐ
Plaggöt:
40x60 cm 400 kr.
56x71 cm 500 kr.
60x90 cm 600 kr.
Á
SERTILBOÐ
Trérammar:
13x18 cm 300 kr.
18x24 cm 350 kr.
Á
Innrammaðir
speglar á
sértilboði
RAMMA INNRÖMMUN
MIÐSTOÐIN
SIGTUNI 10 - SIMI 511 1616
15%
afsláttur
af öllum
vörum og
innrömmun
T
S
A
L
A
6.-15 febrúar