Morgunblaðið - 12.02.1997, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997 31 -*v
Morgunblaðið/Silli
FORMENN eignaraðildarfélaga og bæjarstjóri við vígsluna. F.v.:
Einar Njálsson, Jón Friðrik Einarsson, Hrönn Káradóttir og
Magnús Þorvaldsson.
Ný björgunar-
stöð á Húsavík
Húsavík. Morgunblaðið.
BJORGUNARSVEITIN Garðar,
kvennadeild Slysavarnafélagsins og
deild Rauða krossins á Húsavík
hafa reist sér nýja og vel búna
björgunar- og félagsaðstöðu í vel
staðsettu húsi við Húsavíkurhöfn.
Stöðin var vígð um síðustu helgi
við hátíðlega athöfn. Sóknarprest-
urinn, sr. Sighvatur Karlsson,
nefndi húsið Naust.
Við athöfnina sögðu Jón Kjart-
ansson, fyrrverandi formaður, og
Guðmundur Salómonsson, gjaldkeri
og framkvæmdastjóri, sögu húss-
ins. Árið 1993 seldi deildin Skelj-
ungi hf. fyrri húseign félagsins og
greiddi félagið vel fyrir þær eignir
og gerði deildinni mögulegt að festa
kaup á svokölluðu Vísishúsi, sem
var áður fiskverkunarhús við höfn-
ina. Húsið var gert upp og þar sköp-
uð góð aðstaða til geymslu tækja
auk æfínga- og félagssaðstöðu.
Þátt í kaupum á hinu nýja húsi
tóku einnig kvennadeild Slysa-
varnafélagsins og deild Rauða
krossins á Húsavík og hafa félögin
unnið ötullega saman að því að
breyta húsakostinum og bæta hann.
Hann er nú að fullu frágenginn og
hinn vistlegasti.
Kostnaður við bygginguna er nú
um 16,5 millj. kr. en þar er ekki
talin sú mikla vinna sem félags-
menn hafa innt af hendi endur-
gjaldslaust. Framkvæmdir hafa
miðast við ijárhag hveiju sinni og
skuld vegna byggingarinnar er í
dag um 400 þús. kr. sem gjaldker-
inn væntir að geta bráðlega greitt.
VEGNA blaðaskrifa og frétta af
aðgerðum nemenda í húsnæði skól-
ans í Laugarnesi hefur Kennarafé-
lag Myndlista- og handíðaskóla
íslands sent frá sér eftirfarandi:
„Kennarafélag Myndlista- og
handíðaskóla íslands lýsir yfir full-
um stuðningi við aðgerðir og kröf-
ur nemendafélags MHÍ um varan-
legar úrbætur á kennsluhúsnæði
nemenda og kennara í Laugarnesi.
Öllum ber saman um að ástand-
ið í Laugarnesi sé og hafi verið
óviðunandi frá fyrstu tíð. Þar fara
saman námsaðstæður og umhverfi
sem er beinlínis heilsuspillandi.
Ekki verður hjá því komist að hús-
næðinu verði lokað af Vinnu- og
heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur ef
Vígsluhátíðinni stjórnaði Vil-
hjálmur Pálsson, fyrsti formaður
björgunarsveitarinnar, og voru
margar ræður fluttar og gjafir
gefnar. Forseti Slysavamafélags
Islands, Gunnar Tómasson, flutti
ávarp og þakkaði það mikla átak
sem með þessari byggingu væri
unnið og sagði að ávallt hefði verið
gott samstarf milli aðalstöðvar fé-
lagsins í Reykjavík og Húsvíkinga.
Það sem félagið hefði veitt til stuðn-
ings starfmu á Húsavík væri með
glöðum hug gert því á Húsavík
hefði ávallt verið gott starf unnið.
Einar Njálsson bæjarstjóri
minntist sérstaklega starfs kvenna
að slysavamamálum. Þorgeir B.
Hlöðversson kaupfélagsstjóri til-
kynnti að Kaupfélag Þingeyinga og
tölvufyrirtækið Opin kerfí í Reykja-
vík gæfu félaginu veglegan tölvuút-
búnað. Aðalsteinn Baldursson af-
henti tækjagjöf frá Verkalýðsfélagi
Húsavíkur og byggingarfélaginu
Árvakri og Brynjar Halldórsson til-
kynnti um gjöf frá Kiwanisklúbbn-
um Skjálfanda. Örn Björnsson,
bankastjóri íslandsbanka, afhenti
100 þús. kr. gjöf til eflingar æsku-
lýðsdeildar björgunarsveitarinnar.
Að endingu ávörpuðu Jón Friðrik
Einarsson, formaður björgunar-
sveitarinnar, Hrönn Káradóttir, for-
maður Slysavamafélagsdeildar, og
Magnús Þorvaldsson, formaður
Rauðakrossdeildar, hátíðargesti og
þökkuðu orð og gjafir og buðu við-
stöddum veitingar og að skoða hús-
ið.
ekkert verður að gert.
Reynslan hefur sýnt okkur að
. fögur fyrirheit um úrbætur á hús-
næði skólans hafa ekki staðist. Það
verður að teljast óeðlilegt af stjóm-
völdum að ætlast til að nemendur
nemi og vinni við slíkar aðstæður
í þijú ár. Það er löngu orðið tíma-
bært að ráða varanlega bót á hús-
næðis- og vinnuaðstöðu nemenda
og kennara Myndlista- og handíða-
skóla íslands.
Kennarafélag Myndlista- og
handíðaskóla Islands tekur heils
hugar undir aðgerðir nemenda. Við
vonum að þær verði til þess að
tekið verði á þessum málum og
húsnæðisvandi og vinnuaðstaða
okkar allra verði bætt.
FRETTIR
Málþing um
kynferðis-
legt ofbeldi
MÁLÞING geng kynferðisofbeldi
verður haldið í Háskólabíói á laug-
ardagsmorgnum á næstunni frá
kl. 10-13. Yfirskrift fyrsta fundar-
ins er: Kynferðisofbeldi gegn börn-
um og verður hann 15. febrúar nk.
Margrét Steinarsdóttir flytur
fyrirlestur um viðhorf réttarkerfís-
ins til vitnsiburðar barna, Kristín
Dýrfjörð um vinnureglur kennara
í kynferðisbrotamálum, Guðrún
Jónsdóttir talar um þögn og bann-
helgi og veltir fyrir sér spurning-
unni hvers vegna að segja frá best
varðveitta leyndarmálinu. Björg
Eysteinsdóttir fjallar um kyn-
ferðisbrot gegn börnum frá sjónar-
hóli skólahjúkrunarfræðings, Ella
Kristín Karlsdóttir segir frá boð-
leiðum hjá Reykjavíkurborg þegar
grunur vaknar um kynferðisbrot
og Elfa Björk Ellertsdóttir veltir
fyrir sér umgengnisrétti barns og
hvort hann sé skilyrðislaus.
Yfírskrift næsta fundar sem
verður haldinn þann 22. febrúar
er andlegt og líkamlegt ofbeldi
gegn konum. Þann 1. mars verður
fjallað um nauðganir og þann 8.
mars verður málefnið vændi, klám
og kynferðisleg áreitni. Málþinginu
lýkur með almennum pallborðsum-
ræðum þann 15. mars með þátt-
töku fjölmargra er láta sig þessi
mál varða.
Myndakvöld
ogferða-^
kynning FI
MYNDAKVÖLD Ferðafélags ís-
lands verður haldið í kvöld, mið-
vikudagskvöld, í hinum stóra sam-
komusal ferðafélagsins í Mörkinni
6. Húsið verður opnað kl. 20 en
kynningin hefst kl. 20.30.
Fyrir hlé verður sagt frá og
sýndar myndir frá nýafstaðinni
þorraferð í Öræfasveit þar sem
m.a. voru skoðuð ummerki Skeið-
arárhlaups, t.d. ísgjá í Skeiðarár-
jökli og Skaftafell í vetrarbúningi.
Þá verða kynntar dagsferðir, helg-
arferðir, afmælisferðir o.fl. Einnig
kynntar ferðir til Grænlands og
Færeyja. Ólafur Sigurgeirsson,
Kristján M. Baldursson, Jón Viðars
Sigurðsson o.fl. sýna.
Eftir hlé segir Haukur Jó-
hannesson frá fræðsluferðum sín-
um á Strandir en þær verða tvær
nú í júní. Ennfremur sýnir hann
og segir frá ferð þangað í fyrra-
sumar. í þessum ferðum er gist í
nýju húsi FÍ í Norðurfírði.
Kaffiveitingar verða i hléi. Verð
er 500 krónur.
Ráðhús Reykjavíkur
Ljóð o g ljós-
myndir 12 ára
nemenda sýnd
DROTTNING loftbólanna er sýn-
ing í Ráðhúsi Reykjavíkur á ljóðum
og ljósmyndum eftir 300 12 ára
nemendur í 6 grunnskólum í
Reykjavík. Verkefnið var tilboð nú
á haustönn á vegum Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur þar sem nem-
endur komu með kennurum sínum
á stutt námskeið um ljósmynda-
sögu, myndbyggingu og mynda-
töku.
Hver hópur fékk úthlutað
ákveðnum svæðum í miðbæ
Reykjavíkur en hver nemandi átti
að taka mynd af viðfangsefni sem
gæti komið af stað hugarflugi er
leitt gæti af sér lítið ljóð. Afrakst-
ur þeirrar vinnu má líta í Ráðhúsi
Reykjavíkur dagana 11.-17. febr-
úar nk.
Fundur um
öryggismál á
Skeiðarársandi
FUNDUR um öryggismál á Skeið-
arársandi verður haldinn í Hofgarði
í Öræfum fimmtudaginn 13. febrú-
ar og hefst stundvíslega kl. 14 á
vegum Ferðamálafélags Austur-
Skaftafellssýslu.
Frummælendur eru Hafþór
Jónsson, frá Almannavörnum ríkis-
ins, Þór Magnússon, Slysavamafé-
lagi íslands, Páll Imsland, Raunvís-
indadeild Háskóla íslands, og Stef-
án Benediktsson, þjóðgarðsvörður
í Skaftafelli. Fundarstjóri er Ás-
mundur Gíslason.
Eftir Grímsvatnahlaupið sl.
haust hefur komið í ljós að nú þeg-
ar er viðsjárvert að ferðast um
hluta af Skeiðarársandi og það
sama er að segja inn við jökulinn.
Nokkur umræða hefur farið fram
um öryggismál á sandinum og Al-
mannavarnir ríkisins eru um þessar
mundir að ljúka við frumathuganir
á máiinu. Á fundinum verður lögð
fram skýrsla frá stofnuninni um
stöðu mála og jafnframt tillögur
sem lúta að öryggi ferðafólks á
svæðinu.
Fundurinn er öllum opinn en á
hann er sérstaklega boðið sýsluyfír-
völdum í báðum Skaftafellssýslum,
ferðaþjónustuaðilum austan sands,
ferðamálafulltrúa á Klaustri, full-
trúum björgunarsveita á svæðinu
og sveitarstjómum. Allir stærri
fjölmiðlar landsins fá vitneskju um
málið svo og ferðaskrifstofur
innanlands ásamt Ferðamálaráði.
Fundurinn er hugsaður sem vett-
vangur umræðna um öryggismál á
Skeiðarársandi jafnframt því að
kynnt verður skýrsla Almanna-
varna ríkisins sem fyrr greinir.
Kynning
á orlofsferðum
húsmæðra
KYNNINGARFUNDUR á vegum
orlofsnefndar húsmæðra í Reykja-
vík verður haldinn á Hótel Loftleið-
um, Víkingasal, fímmtudaginn 13.
febrúar og hefst hann kl. 20. Kynnt-
ar verða orlofsferðir sumarsins sem
í boði em.
í sumar verða farnar eftirtaldar
ferðir innanlands. í maí verða farn-
ar tvær fjögurra daga ferðir á Hót-
el Örk í Hveragerði, ein þriggja
daga ferð í Stykkishólm og Breiða-
fjarðareyjar og ein fjogurra daga
ferð til Akureyrar. í júnímánuði
verða farnar tvær vikuferðir á
Hvanneyri í Borgarfírði.
Þá verða famar þrjár utanlands-
ferðir. í apríl verður hálfsmánaðar-
ferð til Mallorka, í maí verður 5
daga ferð til Porto Roz f Júgóslavíu
og síðan ein vikuferð í júní um
hálendi Skotlands.
Hægt verður að bóka sig í ferðir
á fundinum. Skrifstofa orlofsnefnd-
ar á Hverfísgötu 69 verður opin frá
17. febrúar milli kl. 17 og 19.
Námskeið í
notkun GPS
staðsetningar-
tækja
BJÖRGUNARSKÓLI Landsbjargar
og Slysavarnafélag íslands stendur
fyrir námskeiði fyrir almenning um
notkun GPS staðsetningartækja í
Reykjavík laugardaginn 15. febrúar
kl. 10. Námskeiðið fer fram í hús-
næði Landsbjargar í Stangarhyl 1.
Námskeiðið er öllum opið en
gengið er út frá því að þátttakend-
ur kunni töluvert fyrir sér í notkun
áttavita og landakorta og mun nám-
skeiðið ekki nýtast öðrum.
Þátttökugjald er 2.000 kr. og er
hámarksfjöldi 15 þátttakendur.
Væntanlegir þátttakendur verða að
skrá sig á skrifstofu Björgunarskól-
ans í síðasta lagi fyrir hádegi föstu-
daginn 14. febrúar.
Kennarar MHI
styðja aðgerðir og
kröfur nemenda
Fornleiðastæði
fylgt inn að
Rauðará
HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer
í miðvikudagskvöldgöngu sinni, 12.
febrúar, kl. 20 frá Hafnarhúsinu
og fylgt fornleiðarstæði inn að
Rauðará og litið inn á Borgarskipu-
lag Reykjavíkur.
Bjöm Atlason umhverfísstjóri
kynnir tillögur að aðalskipulagi
Reykjavíkur næstu 20 árin. Til baka
verður gengið þar sem gangstígur
gæti legið árið 2000. Allir velkomnir.
Mótmæla niður- ^
skurði á fjár-
magni til
Sjúkrahússins
á Blönduósi
FYRIRHUGUÐUM niðurskurði á
fjárveitingum til reksturs Sjúkra-
hússins á Blönduósi er harðlega
mótmælt í ályktun fundar í stjóm
og trúnaðarmannaráði Verkalýðs-
félags A-Húnvetninga. Telur fund-
urinn „að ekki verði lengra gengið
með niðurskurðarhnífínn þar án
verulegrar skerðingar á þjónustu,
en slíkt er með öllu óásættanlegt“,
segir í áyktuninni.
Þá telur fundurinn að yfirlýsing-
ar ríkisstjórnarinnar um fjölgun
starfa í opinberri þjónustu á lands-
byggðinni samræmist illa því að á
sama tíma sé unnið skipulega að
fækkun slíkra starfa hjá ýmsum
opinberum stofnunum og þau flutt
til Reykjavíkur og kölluð þjónustu-
störf við landsbyggðina.
Skorað er á þingmenn Norður-
lands vestra og Héraðsnefnd A--^
Hún. að vinna ötullega að því að
strax á þessu ári verði tryggt fjár-
magn til uppbyggingar á endurhæf-
ingarstöð í kjallara byggingar Heil-
sugæslustöðvarinnar á Blönduósi.
V.A.H. bendir á fjölgun þeirra
sem þurfa á slíkri endurhæfingu
að halda sé mikil.
Rannsóknastofa
í kvennafræðum
Kveður lítt að
körlum?
RANNSÓKNASTOFA í kvenna-
fræðum við HÍ stendur fyrir rabbi
um rannsóknir og kvennafræði
nokkra fímmtudaga á vormisseri. Á
fyrsta rabbfundinum sem verður á
morgun fjallar Ingólfur Gíslason,
félagsfræðingur á skrifstofu jafn-
réttismála um tregðu karla til að
ræða um sjálfa sig sem félagslegt
kyn og varpar m.a. fram spuming-
unni „Kveður lítt að körlum?"
Fyrirhugaðir em sex rabbfundir
á vormisseri. Þeir fara allir fram í
stofu 101 í Odda og hefjast kl. 12
á hádegi. Meðal þess sem fjallað
verður um er hagfræði mismunun-
ar, kvennaréttur, ljóð íslenskra
kvenna, konur í sjávarbyggðum og
hlutur kvenna í fjölmiðlum.
■ REYKJA VÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir tveimur námskeiðum í
almennri skyndihjálp á næstunni.
Fyrra námskeiðið hefst fimmtudag-
inn 13. febrúar kl. 19-23. Einnig
verður kennt 17. og 18. febrúar.
Helgamámskeið verður haldið 22.
og 23. febrúar. Kennt verður frá kl.
10-17 báða dagana. Bæði námskeið-
in verða 16 kennslustundir. Kennt
verður í Fákafeni 11, 2. hæð. Þátt-
taka er heimil öllum 15 ára og eldri.
APOTEK
OPIÐ ÓLL KVÖLD
VIK.UNNAR.T1L KL 21.00
HRINGBRAUT 1 19, -VIÐILHOSIÐ.