Morgunblaðið - 12.05.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 12.05.1998, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þorskstofninn nú stærri en allan þennan áratug Niðurstöður togararalls sýna að ný- liðun í stofninn er þó enn óhagstæð ÞORSKSTOFNINN er nú stærri en hann hefur verið allan þennan áratug samkvæmt niðurstöðu fjór- tándu stofnmælingar botnfiska, togararallsins svokallaða. Þorsk- stofninn hefur vaxið verulega síð- ustu þrjú ár eftir að hafa verið í mikilli lægð og hefur stofninn ekki verið stærri síðan 1989. Nýliðun í stofninn er þó enn óhagstæð og því ekki horfur á verulegum vexti hans á allra næstu árum nema nýliðun batni frekar. Skýrsla Hafrannsóknastofnun- arinnar um ástand nytjastofna sjávar og aflahorfur fiskveiðiárið 1998/99 er í vinnslu. Niðurstöður í togararalli eru aðeins einn liðurinn í stofnmati þorskstofnsins. Auk togararallsins er stuðst við gögn um aldursgreindan afla í veiðunum, afla á sóknareiningu skv. afladag- bókum og fleiri gögnum. Tillögur um veiðiráðgjöf næsta fiskveiðiárs munu liggja fyrir síðar í mánuðin- um. Stofnmæling botnfiska á ís- landsmiðum (togararall) fór fram í 14. sinn dagana 5.-25. mars. Fjórir togarar voru leigðir tii rannsókn- anna og toguðu þeir á 489 stöðum allt umhverfis land. ís á Vest- fjarðamiðum hamlaði í fyrsta sinn sýnatöku, svo að ekki reyndist unnt að Ijúka sýnatöku á því svæði á umsömdum leigutíma. R/s Bjarni Sæmundsson hélt sýnatöku áfram, þegar ísinn hopaði dagana 2.-7. Vfsitala veiðistofns þorks 1985-1998 Þúsundir tonna 0 100 200 300 400 500 1985 I 1986 1 1987 J 1988 t 1989 111 1 1990 1 1991 J k 1992 já i 1993 I 1994 1 6 f 1995 , , 1 1996 ... , , ,1 1997 - 1998 i apríl. Alls tókst að Ijúka við 518 stöðvar af 533 stöðvum skv. upp- haflegri áætlun. Sjávarhiti við botn var hár og á norður- og austurmiðum var hann allt að 2°C hærri en á sama tíma árið 1997. Þá var sjávarhiti við suð- urströndina einnig með hæsta móti. „Stofnvísitala veiðistofns þorsks er á greinilegri uppleið eftir lægð á árunum 1992-95. Þessi stækkun stofnsins á fyrst og fremst rætur að rekja til árangurs veiðistjómun- ar undanfarin ár. Þá mælast bæði árgangur 1992 og 1993 nokkru stærri en fyrir ári. Þeir árgangar sem bætast í veiðistofninn á næstu tveimur árum (árgangar 1995-96) eru báðir undir meðallagi og ár- gangur 1996 talinn lélegur. Ovissa ríkir enn um stærð 1997 árgangs- ins,“ segir í niðurstöðum Hafrann- sóknastofnunar. Hótaði konu í Heiðmörk Konur varaðar við að vera einar á ferð UNGUR maður ógnaði konu með hnífi í Heiðmörk á laugardags- morgun og skipaði henni að horfa á meðan hann fróaði sér. Þegar hann hafði lokið sér af hljóp hann á brott. Konan var ein á gönguferð í Heiðmörkinni um klukkan hálftíu á laugardagsmorgun þegar maður- inn spratt upp úr vegkantinum með buxumar á hælunum, otaði hnífi að konunni og gaf henni fyrir- mælin. Hún taldi ráðlegast að gera eins og maðurinn sagði henni þar sem hann var mjög æstur. Lög- regla telur að þau viðbrögð hennar hafi verið rétt. Konan gat gefið greinargóða lýs- ingu á manninum sem hún telur að sé rúmlega tvítugur en lögregla er engu nær um hver þarna var á ferð. Lögreglan beinir þeim til- mælum til kvenna að vera ekki ein- ar á ferð í Heiðmörkinni á þeim tímum þegar h'tið er um manna- ferðir. Morgunblaðið/Júlíus FRA SLYSSTAÐ í Kjósinni á laugardag. Ung kona beið bana í umferðarslysi UNG kona lét lífið í um- ferðarslysi sem varð á Vesturlandsvegi, nálægt Eyrarkoti í Kjós, á sjötta tímanum á laugardag. Bíllinn, sem hún ók, lenti framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Bflstjóri þess bfls var fluttur lífshættulega slas- aður á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í Fossvogi. Lögreglunni var til- kynnt um slysið kl. 17.55. Ökumennimir, sem voru einir í bflun- um, voru báðir fastir og tók töluverðan tíma að losa þá. Við áreksturinn kviknaði í annarri bifreiðinni. Vesturlandsvegur var lokaður í rúmar tvær klukku- stundir vegna slyssins og var umferð beint um Miðdalsveg á meðan. Konan sem lést hét Kristín Hjaltested, 25 ára gömul, til heimilis í Kúrlandi 23 í Reykjavík. Hún stundaði kennara- nám við Háskólann á Akureyri og þjálfaði kvennaflokka hjá KA í handknattleik. Hún var ógift og bamlaus en átti foreldra og þijú systkini í Reykjavík. Samkvæmt upplýs- ingum sérfræðings á gjörgæsludeild Sjúkra- húss Reykjavíkur í gær var líðan hins ökumannsins óbreytt en honum er haldið sofandi. Kristín Hjaltested Varnir gegn hrossa- sótt felldar úr gildi FELLDAR hafa verið úr gildi vamir gegn útbreiðslu hitasóttar- innar sem herjað hefur á hesta- kyn landsmanna og er þar með horfið frá því að skipta landinu upp í sýkt og ósýkt svæði. Landbúnaðarráðherra gaf í gær út reglugerð þessa efnis að tillögu yfirdýralæknis og er ákvörðunin tekin á grundvelli þess að hitasóttin hefur nú borist í Skagafjörð „og þar með yfir þann helsta náttúrulega þröskuld sem vonast var til að gæti tak- markað útbreiðslu hennar,“ að því er fram kemur í frétt landbúnað- arr áðuneytisins. Varað við að flýta fyrir útbreiðslu Ennfremur segir að í ljósi reynslu af útbreiðslu veikinnar á Suður- og Vesturlandi séu yfir- gnæfandi líkur taldar á að smitefni hafi þegar borist víða um Norður- land og jafnframt að það muni með tímanum berast um allt landið. „Yfirdýralæknir varar engu að síð- ur hrossaeigendur eindregið við því að flýta fyrir útbreiðslu veik- innar og hvetur þá til þess að forð- ast samgang við bæi þar sem veik- in kann að vera til staðar. Hrossa- eigendur eru ennfremur hvattir til að auka eftirlit með hrossum sínum og kalla til dýralækni ef vart verð- ur við alvarleg sjúkdómseinkenni, s.s. hrossasótt, klums eða langvar- andi lystarleysi." 1.156 störf vegna Reykjavíkurflugvallar Efnahagsáhrif flug- vallarins 11 milljarðar EFNAHAGSLEG áhrif Reylyavík- urflugvallar eru rúmir 11 milljarðar króna og þar skapast 1.156 störf. Þetta kemur fram í skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla íslands vann fyrir Flugmálastjóm um at- vinnuáhrif Reykjavíkurflugvallar. I skýrslunni kemur fram að um Reykjavíkurflugvöll fari um 400 þúsund manns árlega í áætlunar- flugi innanlands en auk þess séu umsvif vegna leiguflugs nokkur. Fjöldi farþega sem fara um Reykjavíkurflugvöll hefur vaxið stöðugt undanfarin fimm ár. Tölur fyrir fyrstu þrjá mánuði þessa árs virðast benda til 13% aukningar umfram fyrstu þrjá mánuði ársins 1997. Innlendir vöruflutningar hafa á hinn bóginn dregist saman. 8,3 milljarðar vegna starfsemi utan flugvallar Fyrirtæki sem starfa á Reykja- víkurflugvelli veltu á síðasta ári yf- ir þremur milijörðum kr. Mest var velta flugfélaga og flugskóla, 2.230 milljónir kr., Flugmálastjóm velti 465 milljónum kr., Landhelgis- gæslan 321 milljón kr. og önnur starfsemi 80 milijónum kr. Bein áhrif starfsemi Reykjavík- urflugvallar em samkvæmt skýrslunni 3.096 milljónir kr., þ.e. efnahagsáhrif þeirrar starfsemi sem verður til beint við rekstur flugvallarins, og 8.304 milljónir kr. vegna óbeinna og afleiddra áhrifa starfseminnar, þ.e. vegna þeirrar starfsemi sem verður til utan flug- vallarins vegna starfsemi á honum. ► MIKIL hreyfing hefur verið á fast- ugt. Því veldur m. a. lág ávöxtunar- eignamarkaðnum í ár. Eftirspurn er krafa á húsbréfum, sem er hagstætt mikil, en verð hefur þó haldizt stöð- fyrir markaðinn. Sérblöð í dag Iþróttir Fylgstu með nýjustu f réttum Alfreð vill fá Oleg Titov til Hameln í Þýskalandi/B1 Guðni Bergsson ekki með landsliðinu til Cannes/B12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.