Morgunblaðið - 12.05.1998, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 12.05.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 49 MINNINGAR GUÐMUNDUR S. JÓNSSON +Guðmundur Sigurður Jóns- son fæddist í Ytrihúsum í Dýrafirði 10. nóvember 1928. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- vfkur 3. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 11. maí. Hann var einu sinni miklu yngri en ég og einu sinni miklu lægri í loft- inu en ég. Við áttum samt sama prestinn og sömu hreppsnefndina, við vorum Dýrfirðingar í húð og hár, langt aftur í aldir. Núna vorum við löngu orðin jafngömul og jafnhá til hnésins. Eins og fyrrum tíðkaðist lögðum við land undir fót, en fylgdumst aldrei að. Hann valdi sjóinn til að glíma við og varð „karlinn í brúnni“ en við hittumst og sáumst eins og sveitungar gjaman í þessu iði öllu sem okkar tími færði okkur í fang. Smá ævintýri rak einu sinni á fjörur hans. Það bar óvænt að og í engu undirbúið. Það varð að smá leyndar- máli en svona eins og gengur, þá var ég dæmd til að taka „haminn" og þá var ekkert leyndarmál lengur. „Þú bara segir ekki neitt og aldrei," sagði hann við mig, sem ég hef og efnt. Þetta litla atvik skóp samt sér- stakt samband á milli okkar. Því alltaf þegar fundum okkar bar sam- an fórum við að hlæja, það var regla. Svo flugu kímnisögur og brandarar alveg stafnanna á milli. Það var svo gaman að hittast. Guðmundur var mjög frásagnarglaður og trúi ég að fleirum finnist þar skarð íyrir skildi sem átt hafa orðastað við hann um dagana. Stundum fannst mér þó að ég þyrfti að taka hann á beinið, en það var tilgangslaust, hann kærði sig ekki um að rugla upp í stuttri stund, með einhverju sem engu breytti þegar upp var staðið. Fyrir stuttu hittumst við. Hann var mjög hress. „Nú er ég búinn að finna elli- dundið fyrir mig. Eg bara dansa og dansa alveg endalaust og ég er orð- inn ungur í annað sinn.“ Síðasti dansinn hefur verið stiginn og við Gummi spjöllum ekki oftar þessa heims. v/Nýbýlaveg SÓLSTEINAR 564 4566 egsteinar Lundi Hann var ekki hár í loftinu Ytri- húsabærinn neðst í túninu á Núpi í Dýrafirði. Margur snáði hefur tekið þar sín fyrstu spor. Guðmundur var þar ekki gestkomandi, forfeður hans hafa byggt Núp og þeirra fólk í mörg hundruð ár og gegnt virðuleg- ustu embættum þjóðar sinnar, svo sem prestar og sýslumenn. Með þessum línum kveð ég vin minn Guðmund með innilegu þakk- læti fyrir gleðistundir sem alltaf voru sérstakar og ég sakna þess að þær verða ekki fleiri. Öllum þeim sem þótti vænt um hann sendi ég samúðarkveðjur. Nína. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, fóstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. ^ninmnng H Erfidiykkjur H H H H H H H H H H H H H H H H H H H u Sími 562 0200 u riiiiiiiiiix: + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PÁLÍNA ÁSGEIRSDÓTTIR frá Bolungarvík, Blómsturvöllum 16, Neskaupstað, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn 14. maí kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á að láta líknarfélög njóta þess. Konráð Auðunsson, Magna Auðunsson, Lilja Hulda Auðunsdóttir, Kristinn Sigurðsson, Jóhann Auðunsson, Sæbjörg Jóhannsdóttir, Elísabet Auðunsdóttir, Fannar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRNS VILMUNDARSONAR, Flyðrugranda 8, Reykjavík, og heiðruðu minningu hans á margan hátt. Ólöf B. Björnsdóttir, Ragnar Kvaran, Ingunn G. Björnsdóttir, Helgi M. Magnússon, Jón Gunnar Björnsson, Valborg S. Ingólfsdóttir, Ingólfur Björnsson, Þorgerður Björnsdóttir, Steinþór Kári Kárason, barnabörn og barnabarnabörn. Yfirlýsing frá hollvinum Glímufélagsins Armanns MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá hollvinum Gllmufélagsins Armanns: „Miðvikudag, 29. aprfl og fimmtu- daginn 30. apríl, birtust frásagnir um að borgarráð hafi samþykkt fyr- ir sitt leyti drög samnings milli borgarinnar, Knattspymufélagsins Þróttar og Glímufélagsins Ár- manns. Þrátt fyrir þessar frásagnir og birtingar í blöðum, reyndist okkur erfitt að fá um málið staðfestar upp- lýsingar úr fundargerð. Við urðum að hóta kærum til að fá þær. I þessum drögum felst að Ar- mann glatar sjálfstæði sínu og heimilisfestu og ýmsar íþróttagrein- ar (8) eru færðar frá félaginu og fengnar Þrótti til eflingar. Vitað er að starfsmenn borgar- innar knúðu fram þá pólitísku ákvörðun að fjalla um málið og af- greiða þessi samningsdrög á borg- arráðsfundi hinn 28. apríl sl. Sömu aðilar veittu formanni Ár- manns upplýsingar um bréf okkar og gáfu honum tækifæri til að leggja inn á borgarráðsfundin bréf dagsett fundardag, 28. apríl, borg- arráðs. í bréfi því eru rangar og ósannar upplýsingar. Þessi vinnu- brögð eru ekki samkvæmt venjum um undirbúning borgarráðsfundar. Samþykkt þessa samnings er út í hött nema að borgarráð sé með öðr- um hætti formlega búið að svipta Armann eignum sínum og leggja til fjármuni til kaupa á nshæð í verk- stæðishúsi formanns Armanns (fyr- ir fangabragðaíþróttir og lyftingar) við Einholt 6 fyrir um 43 millj. króna sbr. orðalag samningsins „í íþróttahúsi á vegum Armanns". Að sinni verða ekki raktir allir þættir þessa ódæðis, en við mót- mælum af fullri alvöru og munum með öllum tiltækum löglegum ráð- um afhjúpa lögleysur og óheiðar- leika við málsmeðferð þessa. Reykjavík, 2. maí 1998. E.s. yfirlýsing þessi átti að birt- ast í blöðum fyrir 7. maí, en fyrir slysni varð það ekki. VEIÐIMAÐUR rennir í Arnarholtsflúð í Minnivallalæk á dögunum. Skot í Sog- inu - góð útkoma í Hítará SKOT kom í silungsveiðina í Sog- inu um helgina, en á laugardaginn veiddust t.d. 15 bleikjur fyrir landi Bíldsfells. Voru það að sögn yfir- leitt vænir fiskar, mikið í kring um 2 pund, en stærsta bleikjan um 5 pund. Heimsmeistaramót áhugamanna í dansi Annars hefur veiði gengið upp og ofan í Soginu og marga daga hefur lítið veiðst eða ekkert. Svo koma skotin og hafa menn þá verið að fá kannski 2-4 fiska. Veiðin í Bíldsfelli á laugardag minnir á að það er farið að líða á maí og þá hefur veiði jafnan glæðst. Góð útkoma í Hítará Vorveiðin í Hítará var að þessu sinni í apríl. Það var til reynslu, því það hefur ekki gefist vel síð- ustu vor að veiða í maí. Aprílveiðin gekk nokkuð vel. Samkvæmt upp- lýsingum frá Bergi Steingrímssyni hjá SVFR voru 85 bleikjur færðar til bókar í apríl. „Þetta fer sjálf- sagt eftir árferði. Það hefur verið hagstæðara í ár en síðustu árin. Það hefði verið fi-óðlegt að sjá hvemig veiðin hefði verið í maí að þessu sinni. Menn munu setjast niður og skoða málið og víst er að við erum nokkuð ánægðir með þetta,“ sagði Bergur. Þessi veiði er einnig athyglis- verð í ljósi þess að allmargir virkir dagar vom óseldir á svæðinu. Mest var bleikjan á bilinu 1 til 3 pund, en tvær þær stærstu vora 4,5 og 5 pund að sögn Bergs. Nær allur aflinn veiddist neðst í ánni, aðallega í Skiphyl. Nýtt hús í Gufudal Veiðimenn í Gufudalsá á Barða- strönd munu hafa afnot af nýju veiðihúsi á sumri komanda. Til þessa hafa leigutakar verið með hús að Kiðabergi til afnota fyrir veiðimenn, en það er all langt frá ánni. í fyrra misstu þeir húsið stóran hluta veiðitímans og vora nokkur holl á hrakhólum. Verður nú bætt úr og verður nýja húsið við vatnið sem Gufudalsá rennur í gegn um. „Við flytjum húsið vest- ur um helgina og byrjum að ganga frá því. Það verður tilbúið tíman- lega, á því er engin hætta. Það verður með öllum þægindum, m.a. rafmagni,“ sagði Pétur Pétursson, einn leigutaka árinnar. 30 pör taka þátt í keppninni HEIMSMEISTARAMÓT áhuga- manna í tíu dönsum „World amate- ui’ ten dances Championship 1998“ fer fram í Kaupmannahöfn laugar- daginn 16. maí nk. Keppni fer fram í Fredriksborg Hallen og hefur að- eins eitt par frá hverju landi rétt til þátttöku. Skilyrði fyrir þátttöku er að viðkomandi par hafi unnið meist- aratitil í sínu heimalandi. Þarna koma því saman til keppni bestu danspör hvaðanæva úr heiminum, og að þessu sinni eru skráð til keppni 30 pör. Keppt verður í fimm standard dönsum og fimm latin dönsum í flokki áhugamanna. Fyrir íslands hönd eru skráð til keppni þau Ragnheiður Þórann Ólafsdóttir og Hinrik Öm Bjama- son frá Dansíþróttafélagi Hafnar- fjarðar. Þau hafa dansað saman í rúm fjögur ár og verið í fremstu röð dansara í sínum aldursflokki, unnið til fjölda verðlauna á mótum hér heima og era m.a. núverandi Is- landsmeistarar í 10 dönsum og í standard dönsum. Einnig-hafa þau tekið þátt í keppnum í Blackpool á Englandi og á Norðurlandameist- aramóti í desember sl. Að undan- fómu hafa Ragnhildur Þiárann og r Hinrik Öm æft af kappi, iauk þess að vera í próflestri, en þau'eru nem- endur í Menntaskólarium við Hamrahlíð og Flensborgjarskólan- um í Hafnarfirði. Þau hkfa verið nemendur við Nýja dansskólann í Hafnarfirði, segir í fréttatilkynn- ingu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.