Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1982, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982.
7
Vegna mikillar ef tirspumar...
Vegna eftirspurnar verður aukasýning á dans- og söngvaleiknum Jazz-inn sem
Jazzballettskóli Báru setti í svið undir stjórn Báru Magnúsdóttur. Aukasýningin
verður á sunnudaginn i Háskólabiói kl. 21. Jazz-inn er nútimasaga, dönsuð, sungin og
leikin við undirieik hressilegrar tónlistar frá Árna Scheving, Fryðrik o.fl. o.fi.
Það hafa ekki farið margar
sögur af leikritinu Uppgjörið,
farandsýningu Þjóðleikhússins,
sem sviðsett var í tilefni Árs
fatlaðra og hélt merkinu á lofti.
löngu eftir að því ári er lokið.
Uppgjörið var samið i hópvinnu
undir stjórn Gunnars Gunnars-
sonar en leikendur eru tveir, þau
Guðmundur Magnússon og
Edda Þórarinsdóttir. Leikritið
hefur verið sýnt í skólum og á
vinnustöðum í vetur og fengið
fínar undirtektir, enda skemmti-
legt og vekjandi um leið. Og
allra síðasta sýning verður i
Þjóðleikhúskjallaranum á
miðvikudaginn kemur kl. 20.30.
Lítið lát var á aðsókn að leik-
ritinu Elskaðu mig eftir hið
umrædda skáld frænda vorra
Dana, Vitu Anderson. Alþýðu-
leikhúsið sér ekki annað fært en
bjóða upp á aukasýningar á
leiknum og verða þær í kvöld og
svo á föstudaginn 23. apríl.
Tveir leikarar koma fram í
sýningunni, þau Tinna
Gunnlaugsdóttir og Arnar Jóns-
son.
Af Alþýðuleikhúsi er auk þess
það að frétta að Don Kíkóti fékk
aldeilis afburða dóma, ekki sízt
þeir Arnar og Borgar Garðars-
son í titilrullunum.
Sölusýning á notuoum
ÍT13ZD3 bílum
frá 10-4 alla laugardaga
Nú geta allir verið sérfræðingar í því að
velja og kaupa notaóan bíl.
Þiö athugið útlit bílsins, ástand hjólbaröa og annað sem sést.
og viö ábyrgjumst þaó sem ekki sést.
Tryggið góð og örugg viðskipti. veljið notaðan MAZDA BÍL MEÐ
6 MÁNAÐA ÁBYRGÐ. Við erum eini aðilinn á landinu sem veitir
ábyrgö á öllum notuðum bilum. og tryggir þannig öryggi i við-
skiptum. __
BÍLABORG HB
‘Smiðshöfða 23, sími 81299.
Fáar sýningar
eftirá Karlin-
umíkassanum
Garðaleikhúsið fer nú senn að
hætta sýningum á gamanleiknum
Karlinn i kassanum eftir Arnold og
Bach. 17. sýning er i kvöld kl. 20.30 i
Tónabæ (gamla Lidó). Leikstjóri er
Saga Jónsdóttir en með helztu hlut-
verk fara Magnús Ólafsson og Aðal-
steinn Bergdal. Myndin er úr einu
atriði leiksins.
<SÝNING laugardag og sunnudag KL. 14.00— 18.00