Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1982, Page 11
11
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. LAUGARDAGUR 17. APRIL 1982.
It um hvippinn og hvappinn — Út um hvippinn og hvap
r
Svona sogja vísindamonnirnir að Josús hafi litiö út, samkvæmt rannsóknum á likklæðum hans.
Jesús fékk slag
Nýjustu fréttir herma að banamein
Jesú hafi verið hjartaslag sem fylgdi í
kjölfar hins andlega ójafnvægis er
hrjáði Jesúm síðustu dagana fyrir
krossfestinguna. Er þetta niðurstaða
rannsókna vísindamanna á líkklæðum
Jesú.
Samkvæmt rannsóknunum fékk
Jesús aðkenningu að hjartaslagi
aðfaranótt miðvikudagsins, þegar hann
dvaldi í Getsemane-garðinum, versnaði
svo þegar hann var handtekinn og enn
meir í göngunni löngu til Golgata. Er
talið að hann hafi látizt um 16 klukku-
stundum eftir fyrstu aðkenninguna,
þótt sumir vilji meina að um 60
klukkustundir hafi liðið þar á milli.
Það eru líkklæði Jesú sem þarna eru
lögð til grundvallar en á þeim er að
finna bletti er við efnagreiningu hafa
reynzt vera að hálfu leyti blóð og að
hálfu leyti litlaus líkamsvessi sem
verður til við hjartaáfall.
Þá telja sömu vísindamenn sig geta
sagt til um útlit Jesú með því að skoða
líkklæðin. Samkvæmt því var hann
1,79 á hæð og 79,320 kíló á þyngd.
Líkklæðin eru varðveitt í Tórínó á
Ítalíu þar sem prestar gæta þeirra dag
og nótt.
Dánarorsök Jesú og upplýsingarnar
um líkamsstærð hans voru birt í Sivilta
Catolica sem er opinbert málgagn
Jesúítahreyfingarinnar. Það er ítalski
læknirinn Malantrucco, sem starfar við
Sankti Péturs sjúkrahúsið í Róm, sem
hefur komizt að þessum niðurstöðum
eftir rannsókn á likklæðunum.
KÞ.
ífótsporSæ-
mundar fróða
„Til þess að verða galdramaður,
varð fyrst að læra að móta hugsunina
og gefa henni form og búning. Hvíta-
galdur er eins konar skóli í þessu efni
og undirstaða hins virkilega hugar-
galdurs eða svartfræði. ...” segir i
formála Galdraskræðunnar eftir
Skugga.
Galdraskræðan mun vera eitt örfárra
rita um galdra og galdrastafi og hefur
nú veriö endurútgefin af Bókavörð-
unni. Höfundur skræðunnar hét
Jochum M. Eggertsson og nefndi sig
Skugga. Hann er nú látinn fyrir
nokkru. Efni skræðunnar sótti hann til
gamalla handrita í Landsbókasafni
o.fl.
Ýmissa grasa kennir í Galdraskræð-
unni, ekki sízt galdrastafa fyrir öll
hugsanleg afnot. Til gamans er hér
mynd af staf til að fá stúlku. Um þann
staf segir: „Þennan staf skaltu skrifa á
svínsbelg úr blóði þínu úr vinstri geir-
vörtunni og láta siðan stúlkuna sofa á
honum næturlangt; og þarftu þá ekki
að biðja hennar eftir það framar.”
Engan staf fundum við í bókinni til að
hjálpa stúlkum að krækja í karl, en á
því eru líklega augljósar skýringar! Og
ef grannt er skoðað eru flestir galdra-
stafirnir til handa körlum til að nota í
þeim störfum sem í algleymi galdra á
Islandi voru enn þá karlastörf hvað
svo sem nú er orðið. Það skyldi þó
aldrei verða að kvenfólkið hafi stólað
meira á sjálft sig en annarlegar
kúnstir?!
BJÖRNINN
Njálsgötu 49 - Simi 15105
Smurbrauðstofan
MELTAWAY
SNJÓBRÆÐSLUKERFI
í bílastæði, tröppur, götur, gangstíga, torg og
íþróttavelli.
Síminn er: 77400
Þú nærð sambandi hvort sem er að nóttu eða
degi.
PÍPULAGNIR SF
Smiðjuvegur 28 — Box 116 — 202 Kópavogur
Til sölu
Mercedes Benz
Unimog
torfærubíll meö husi
Til sölu UNIMOG torfærubill með læstu drifi á öllum hjólum, mjög hátt
undir lægsta puntk.
Húsið er vel búið og vandað að gerð, m.a. eldavél, isskápur, fataskápur og
vaskur.
Gott svefnpláss cr fyrir 2 og gott borðpláss fyrir 4—5.
Þaki hússins má lyfta að framanverðu til þess að auðvelda umgang.
Hér er um að ræða lúxus torfærusumarbústað.
Upplýsingar í síma 31236 frá kl. 13—17 í dag og 9—18 virka daga.
Alþýdubankinn hf
Aðalfundur
Alþýðubankans hf árið 1982 verður haldinn í
Súlnasal Hótel Sögu Reykjavík laugardaginn 24.
apríl 1982 og hefst kl. 14.00.
Á dagskrá fundarins er:
a) Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við ákvæði
18. gr. samþykkta bankans.
b) Samþykktir og reglugerð bankans.
c) Tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvœðaseðlar
verða afhentir í aðalbankanum, Laugavegi 31,
dagana 20., 21. og 23. apríl nk. og við innganginn
á fundarstað.
F.h. bankaráðs Alþýðubankans hf.
Benedikt Davíósson
formaður
Þórunn Valdimarsdóttir
ritari.