Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1982, Blaðsíða 14
MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF Á
14
MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR, LAUGARDAGUR 17, APRÍL 1982.
MANNLÍF FYRIR NORÐAN
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 17. APRtL 1982.
kcmur Ámi Sigurðsson
stýrimaður moð börnin sín um borð.
NO
RÐAN -
MANNLÍF FYRIR NORÐAN -
MANNLÍF FYRIR NORÐAN -
MANNLÍF FYRIR NORÐAN -
MANNLÍF
Starfsmonn Slippstöðvarinnar gátu vorið stoltir moð skipið.
Kristján Orant bHstjóri boið þoss að koma Slippstöðvarmönnum til síns
hoima. Þama or hann ábyrgðarfullur t.v. moð Páli Póturssyni.
Allir forðafærir Skagstrcndingar voru komnir niður á bryggju til að fagna örvari.
DV-myndir GS/Akureyrí.
Velkominn, Örvar”
Frá komuÖrvarstil heimahaf nar á Skagaströnd
„Þetla leggst bara vel i mig, þvi að ég
er með einstaklega góðan mannskap og
mér lizt vel á skipið i alia staði, sagði
Guðjón „Ebbi” Sigtryggsson, skip-
stjóri & Örvari, nýjum skuttogara Skag-
strendinga, f samtaii við DV.
Örvar er tæplega 500 rúmlesta skip,
sem völundar Slippstöðvarinnar A
Akureyri voru 130 vinnustundir að
smiða. Það mun samsvara þvf, að einn
maður hefði verið ein 65 ár að dunda
við smfði sldpsins. Það telst vart til tið-
inda nú oröið, að nýr togari bætist i
fisldskiptafiotann. Sumir segja jafnvel,
að fiskiskipaflotinn okkar sé orðinn
alltof stór. En það er önnur saga.
Þjóöhátíö
Það var uppi fótur og fit á Skaga-
strönd á miðvikudag fyrir páska, þegar
örvar sigldi í fyrsta sinn í heimahöfn.
Það var sól og blíða. Allir sem ferða-
færir voru stormuðu niður að höfn til
að fagna fleyinu. Börnin veifuðu ís-
lenzka fánanum og önnur voru með
blöðrur. Allir voru prúðbúnir. Það var
hátíð t bæ, rétt eins og þjóðhátíð í
stærri kaupstöðum. En ég efast um að
þjóðhátíðardagurinn á Skagaströnd
verði jafn tilkomumikill. Þannig fagna
smærri byggðarlög atvinnutækjum eins
og togara. Ég minnist ferða til Hríseyj-
ar með Snæfelli, Dalvíkur með Björg-
úlfi og Ólafsfjarðar með Sigurbjörgu.
Á öllum þessum stöðum voru móttök-
urnar stórkostlegar. Það er svo sem
ekkert undariegt, því að haft var á orði
um borð i örvari á leiðinni til Skaga-
strandar, að slíkt atvinnutæki þangað
samsvaraði 1—2 álverksmiðjum til
Akureyrar.
Rœður og bænir
Þegar örvar hafði verið festur
tryggilega við bryggju hófust ræðu-
höld. í upphafi flutti sóknarprestur
Skagstrendinga, sr. Oddur Einarsson,
blessunarorð. Síðan talaði Gunnar
Ragnars, framkvæmdastjóri Slipp-
stöðvarinnar. Afhenti hann Sveini Ing-
ólfssyni, framkvæmdastjóra Skag-
strendings, afsal fyrir skipinu. Síðan
fluttu þingmenn kjördæmisins ávörp.
Meðal þeirra voru ráðherrarnir Pálmi
Jónsson og Ragnar Amalds. Einnig tal-
aði Páll Pétursson, alþingismaður og
þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins. Flutti hann kveðju frá Eyj-
ólfi Konráð, þingmanni Sjálfstæðis-
flokksins, sem ekki hafði átt heiman-
gengt til móttökunnar. Þótti mörgum
kúnstugt, að sá kveðjuflutningur skyldi
koma í hlut Páls en ekki Pálma, flokks-
bróður Eyjólfs. Hafði Páll einnig á
orði, að gætu Skagstrendingar ekki
rekið slíkt skip, þá gætu engir íslend-
ingar það.
Gosþamb og
súkkulaöiát
Að ræðuhöldunum loknum var öll-
um boðið um borð til að skoða fleyið.
Yngsta kynslóðin fékk þar forgang, og
ekki nóg með það, börnin fengu gos-
drykki og „Conga” súkkulaði frá Ey-
þóri í Lindu, að skoðun lokinni. Voru
þau að vonum bústin og sælleg þegar
þau gengu frá borði.
Síðar um daginn var öllum „full-
orðnum” Skagstrendingum boðið í
„síðdegisdrykkju” í félagsheimilinu.
Þar stungu menn upp f sig ostabitum og
öðm góðgæti, sem var skolað niður
með ljúffengum veigum, allt í boði
Skagstrendings hf. Um kvöldið var
síðan stiginn dans með miklum elegans.
Dýr er
örvar allur
Eigandi örvars er Skagstrendingur
hf. Sveitarfélagið er þar lang-stærsti
hluthafinn, á um 40% af hlutafénu,
sem er um 8 m. kr. Þar af bættust við
2,3 m. kr. frá íbúum Skagastrandar
vegna togarakaupanna og hefur Skag-
strendingur þegar greitt sin 15% í
kaupverði skipsins. Fiskveiðasjóður
fjármagnar 75% og Byggðasjóður
leggur til þau 10%, sem upp á vantar.
Tilbúiö kostar skipið um 80 m. kr„
með öllu, þar meö töldum fjármagns-
kostnaði. Samsvarar það um 115 þús-
undum á hvern ibúa Skagastrandar.
Dýr er þvf örvar allur, en hann hefur
líka ýmislegt umfram venjulegan tog-
ara. Hann er sem sé búinn frystihúsi
með öllu sem tilheyrir, flökunar-, roð-
flettingar- og aðgerðarvélum, auk
frystibúnaðar. En hvers vegna?
Vantar nýtt
frystihús
„Þegar viö ákváðum að fara út í
kaup á nýjum skuttogara, þá var ljóst
að við urðum einnig að byggja nýtt
frystihús,” svaraði Sveinn Ingólfsson,
framkvæmdastjóri Skagstrendings hf.
„Gamla frystihúsið er þröngt og óhent-
ugt og þar verður ekki komið við þeirri
hagræöingu, sem tíðkast í fiskvinnslu
hérlendis í dag. Nú, stjórnvöld sam-
þykktu beiðni okkar um togarann, en
höfnuðu lánafyrirgreiðslu til byggingar
nýs frystihúss. Við sáum að vonlaust
var að gera út skip, sem ekki gæti land-
aö aflanum f heimahöfn, þannig að við
ákváðum að gera skipið að fljótandi
frystihúsi. Um borð í skipinu verður
hægt að vinna aflann fyrir Englands-
markað á sama hátt og gert er i mörg-
um frystihúsum hérlendis,” sagði
Sveinn.
Að öllu jöfnu verður hægt að vinna
um 25 tonn á sólarhring um borð i örv-
ari, en til þess þarf 24 manna áhöfn, I
stað 16 manna áhafnar á samsvarandi
togurum að stærð. En hvernig verður
verkaskipting?
„Þaö verður ekkibein verkaskipting
milli veiða og vinnslu, þaö ganga allir i
öll störf. Það voru ekki vandkvæði á
Sr. Oddur Einarason^flutti blossunarorfl.
Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar, afhonti
Ingdlfssyni, f ramk væmdastjóra Skagstrondings, afsal f yrir skipinu.
Svoini Börnin voHuflu fslonzka fánanum.
3W
sv.
r-1
*»
dí!
Bflmin fongu afl fara fyrst um borfl.
að manna skipið, því að færri komust
að en vildu, og aðeins 4 búa utan kaup-
túnsins,” svaraði Sveinn.
— Nú er kvenfólk í meirihluta í
flestum frystihúsum. Verða kvenmenn
í áhöfninni á örvari?
„Nei, ekki til að byrja með, en við
höfum alls ekki útilokað að taka kven-
fólk um borð.”
Fyrir á Skagstrendingur hf. togarann
Arnar sem keyptur var frá Japan 1973.
Sveinn var að lokum spurður um
rekstrarhorfur?
„Við gerum okkur góðar vonir um
að sameiginlega geti þessi skip staðið
undir sér. En við gerum okkur grein
fyrir að afborganir af nýja skipinu
verða erfiðar, t.d. hefur þróunin I
gengismálum mikið að segja. Miðað
við stöðuna núna t.d., þá yrði afborg-
anir af skipinu 5 m. kr. hærri ef lánin
yrðu tryggð samkvæmt gengi Banda-
ríkjadollars en ef þau yrðu tryggð sam-
kvæmt gengi svissneska frankans. Við
veðjuðum því á þann svissneska, þótt
við gerum okkur grein fyrir því að þró-
unin gæti snúizt við,” sagði Sveinn að
lokum.
Ætlaði að
vera ár
Skipstjóri á örvari er Guðjón Sig-
tryggsson, sem aldrei er kallaður annað
en „Ebbi” meðal kunningja. Guðjón
er ísfirðingur, var áður stýrimaður á
aflaskipinu Guðbjarti frá ísafirði og
hefur aldrei unnið við annað en sjó-
mennsku.
„Ég kom hingað til Skagastrandar
og tók við Arnari 1970. Upphaflega
ætlaði ég aö vera hérna i eitt ár, en hér
er ég enn. Ég kann vel við staðinn, hér
er rólegt og gott að vera, og hér er líka
sérdeilis góður mannskapur,” sagði
Ebbi.
Eiginkona Ebba er Halidóra Þor-
láksdóttir og gaf hún örvari nafn, þeg-
ar skipinu var hleypt af stokkunum.
Þegar örvar var afhentur, höfðu
samningar ekki verið gerðir við sjó-
mennina, enda „fljótandi frystihús”
nýjung f útgerð hérlendis. Um páskana
var farið í reynsluferð og eftir að séð
var hvernig hlutirnir gengu um borð,
tókust samningar. Verður skipta-
prósenta áhafnarinnar tæpum 2
prósentum hærri en á venjulegum skut-
togurum. Nú er örvar úti í sinni fyrstu
veiðiferð og þá ekki annað eftir en óska
Ebba og skipshöfn hans góðs gengis.
GS/Akureyri
Péll A. Pálsson or hirðljósmyndari Slippstöflvarinnar. Hór or hann ésamt
Ebba skipstjóra og Gunnari Skarphóðinssyni, starfsmannastjóra Slippstöflv-
arinnar.
Gamla kompan Björn á Löngumýri lót sig okki vanta og hann þckkir okkcrt
kynstóflabil.
Hjalti Skaftason, vöruflutningabflstjóri á Skagaströnd, var hross afl vanda. Pssr séu tll þoss afl akboi vantaði {glösin I kokktollvoizlunni.
Hór or Pálmi Jónsson landbúnaðarráflhorra, scnnilcga að ræða um
virkjun vifl Húnvctninga.
Blöndu- Hér er Guðjón „Ebbi" Sigtryggsson skipstjóri ásamt eiginkonu sinni. Hell-
dóru Þorláksdóttur, en hún gaf örvari nafn á sinum tima.
SNJÓKORN - SNJÓKORN - SNJÓKORN - SNJÓKORN - SNJÓKORN
ABt iandiö?
„Róleg páskahelgl um allt iand-
ið,” sagði DV í fyrirsögn á þriðju-
daginn. Þumlungi neðar á sömu siðu
stóð: „Akranes: Tvisetið i fanga-
geymslum”. Einhvern veginn passar
þetta ekki saman í mínum haus.
Skaginn hlýtur að falla undir „ailt
landlð”, en varia getur það talizt tii
rólegheita, að „grjótið” sé tvisetið.
Nema þá að það hafi flokkazt undir
varúðarráðstöfun, til að tryggja ró-
legheit. Ég minnist þess frá sokka-
bandsárum minum fyrir austan að
verðlr lagauna þar höfðu þann kæk
um tima að setja ákveðinn ólátasegg í
hlekld i upphafl hvers danslelks.
Flokkaðist sá verknaflur undlr varúð-
arráðstöfun.
Hvar er Andrés?
Þvi mlður hef ég hvorki heyrt né
séð Andrés vin minn Templar frá
Alkóhóli siðan síðast. Verða þvi eng-
ar sögur sagðar af þelm merkismanni
að þessu sinni.
Ðtthvaðnýtt
ÞaO er alltaf ánægjulegt, þegar
menn finna upp á einhverju nýju tii
aO auka fjölbreytnina i atvinnulif-
inu. Kaninurækt hefur verið barna-
gaman en nú hafa Bjarni Ólafsson
og Þrálnn Stefánsson spurt bæjarráð
Akureyrar hvort þeim verði heimil-
uð kaninurækt i húsi númer 18 við
Óseyri. Þetta var full-erfið spurning
fyrir bæjarráO, þannig aO henni var
visað tii bygginganefndar.
Bankastrlð
Nú hafa verkalýðsfélögin, rikls-
sjóOur og Alþýðubankinn sótt um
lóO i miOhæ Akureyrar fyrir verzlun-
ar- og skrlfstofubyggingu. LóOin sem
sótt hefur veriO um er þar sem nú
stendur biðskýll strætisvagnanna.
Mun riklssjóður ætla að byggja á
lóðlnnl stórhýsi fyrir skrifstofur bæj-
arfógeta og fleiri stofnanir hins opin-
bera, í samvtnnu vlð verkalýðsfélög-
in, sem væntaniega yrflu meO skrif-
stofur sinar i byggingunni. Jafnframt
mun vera gert ráð fyrir ráOstefnu- og
fundaaðstöðu i byggingunni og jafn-
vel einnig veitingaaðstöðu.
Alþýðubankinn eða ?
Þriflji aðilinn i þessu samstarfi er
Alþýðubankinn sem til þessa hefur
ekki haft útibú á Akureyri. Iðnaðar-
bankinn hefur aftur á móti verið með
útibú á Akureyri f mörg herrans ár. 1
mörg ár hefur bankinn beðið eftlr lóð
á miðbæjarsvæflinu, en ekki fengið
úrlausn. Nú hefur Iðnaflarbankinn
einnig sótt um áðurnefnda lóð og
jafnvel er hugsanlegt að Búnaðar-
bankinn geri það einnig. Væri nú
ekki nær fyrir bæjaryfirvöld að
greiða götu þeirra banka sem fyrir
eru, frekar heldur en afl stuflla að
einu bankaútibúinu enn?
Misheppnaður bW
Nú hafa Strætisvagnar Akureyrar
yfir afl ráða bil sem ætlaður er til
innanbæjarferða fyrir fatlaða. Fatl-
aðir munu þó ekkl vera alls kostar
ánægðir með nýja farkostinn. Telja
þeir afl mistök hafi átt sér stað við
gerð sérbúnaðar fyrir fatlaða, og þá
sér i lagi fyrir þá er eru i hjólastól. Er
billinn hár og hjólastólabrautin upp i
hann það brött að mikla krafta og
kjarkmenn þarf tii að hafa sig upp
hana. Upphaflega var ætlað að
kaupa áþekkan bil og er i notkun i
Reykjavik og reynzt hefur vel. Þó
voru gerfl trávik varðandi sérbúnafl-
inn sem ekkl reyndust til bóta. M.a.
er hjólastólabrautin tekln út um aft-
ur-dyr Akureyrarbilsins en um
hliðardyr Reykjavfkurbilsins. Þannig
getur Akureyrarbillinn i fáum tilvik-
um nýtt sér hæðarmismun gangstétt-
ar og götu.
Grða á fuiri ferö
Enn er unnifl að rannsókn og yfir-
heyrslum i sambandi við innbrottð i
bygglngu Hölds hf. aðfaranótt Þor-
láksmessu. Ekki hefur tekizt að upp-
lýsa hver eða hverjir voru að verki.
En Gróa á Leiti hefur fundið ýmsa
sökudólga. Menn eru nafngreindir og
sagt að þeir séu búnir „að játa”.
Önnur saga nafngreinir annan mann
og segir hann hafa játað eftir stanz-
lausar yfirheyrslur i marga sólar-
hringa. Sannieikurinn er hins vegar
sá, 14. april, samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar að ekkert nýtt hefur
komifl fram við rannsóknina. Já, hún
Gróa á Leiti Akureyrar lætur ekki að
sér hæfla.
Tryggið strax
Ólafur heitir sómakari á Akureyri.
Er sá umboðsmaður Almennra trygg-
inga hf. á staflnum. Annar maður
heitir Herbert og er Ólason, kallaflur
„Kóki”. Temur sá hesta, frystir
kartöflur og nú ætlar hann að fara að
steikja „Kóka-hamborgara”. Óli og
Kóki hittast stundura f kaffi við
„hringborðið” á „Teriunni". Eitt
sinn þegar Kóki kemur afl borðinu,
veður hann afl Óla, snýr harkalega
upp á nefnið á honum, kippir siðan
fast i — plopp — og sagði sfðan glafl-
blakkalega: „Þú tryggir ekki eftir á”.
MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORI DAN - MANNLÍF FYRIR NOROAN - MANNLÍF FYRIR NOROAN - MANNLÍF FYRIR NOROAN - MANNLÍF
FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐAN - MANNLÍF FYRIR NORÐ