Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1982, Síða 32
Landsvirkjun gagnrýnd fyrir að taka lægsta tilboði í lokubúnað Sultartangastíf lu:
NÆSTLÆGSTA TILBOD
ÞJÓDHAGSLEGA BETRA
— lægsta tilboðið gerir ráð fyrir hærri f járhæðum til erlendra aðila,
segir Samband málm- og skipasmiðja
„Það kom okkur mjög á óvart að
Landsvirkjun skyldi ekki sjá sér fært
og hagkvæmt að taka tilboði Stáls hf.
á Seyðisfirði og fleiri aðila, ekki sízt
vegna vinsamlegra viðræðna sem við
höfum átt við bæöi stjórnarmenn og
tæknimenn Landsvirkjunar,” sagði
Ágúst Hafberg, formaður Sambands
málm- og skipasmiöja, í samtali við
DV.
Hagsmunaaðilar í íslenzkum
málmiðnaði eru nú óhressir með þá
ákvörðun stjórnar Landsvirkjunar í
gær að taka tilboði Framleiðslusam-
vinnufélags iðnaðarmanna í loku-
búnað Sultartangastíflu. Vill Sam-
band málm- og skipasmiðja meina að
Landsvirkjun hefði átt að taka næst-
lægsta tilboöinu, tilboði Stáls og
fleiri, en ekki tilboði Framleiðslu-
samvinnufélagsins, jafnvel þó það
hafi verið lægst.
Rökstuðningurinn fyrir þvi er sá að
í lægsta tilboðinu, tilboði samvinnu-
félagsins, sé gert ráð fyrir því að er-
lendir aðilar framleiði búnaðinn en
innlendir annist aöeins uppsetningu.
Samkvæmt næstlægsta tilboðinu eigi
innlendir aðilar hins vegar mun meiri
hlut í verkinu, allt nema hráefnið sé
íslenzkt, hönnun, framleiðsla og upp-
setning sé unnin af fslenzkum aðilum.
Bent er á aö tilboð samvinnufélags-
ins geri ráð fyrir 5,3 milljónum króna
til erlendra aðila en tilboð Stáls að-
eins 2 mUIjónum, til hráefniskaupa.
„Samtök okkar hafa lagt áherzlu á
aö innlendum aðilum sé sköpuð að-
staða og tekið tillit til þess þjóðhags-
lega ávinnings, sem er af því að láta
innlenda aðila framleiða vöruna,”
sagði framkvæmdastjóri Sambands
málm- og skipasmiöja, Guðjón
Tómasson.
Ágúst Hafberg sagði að Raf-
magnsveitur ríkisins, Reykjavíkur-
borg og fleiri aðilar hefðu lengi notað
þá reglu að islenzk tilboð, með miklu
vinnumagni, mættu vera allt að 15%
hærri ep erlendu tilboðin. Slíkt væri
réttlætanlegt vegna þess að fjármun-
irnir skiluðu sér aftur i formi skatta
og annarra gjalda. Einnig fengist
þekking og reynsla sem styrkti ís-
lenzkt framtak. Sagði Ágúst ekki
nema 8,7% mun á tveim lægstu tii-
boðunum, væri miðað við sama verð-
lagsgrundvöll. Eðlilegast og hag-
kvæmast hefði því verið fyrir þjóðar-
búið að taka tUboði Stáls, enda hefði
það verið verulega lægra en kostnað-
aráætlun Landsvirkjunar.
-KMU.
AIK gort klárt í vorblíðunni á Húsavik. Trúloga vcrður Núpur glæsilegur oftir þrifabaðið og væntanloga málningu.
DV-mynd Einar Ólason.
Hekla. Fyrirvaralausar smásprenglngar
geta orflið I toppgfgnum.
DV-mynd Eirikur Jónsson.
Varað við ferðum
á Heklu:
Búast má við
sprengingum
hvenærsem er
Fyrirvaralausar smásprengingar geta
orðið f toppgfg Heklu næstu árin. Af
þeim sökum hafa Almannavarnir rikis-
ins varað vifl þeirri hættu sem getur
verið samfara þvi að ganga á eldfjallifl.
Dr. Sigurður Þórarinsson jarðfræð-
ingur hefur valdfl athygli á þessari
hættu. Bendir hann á að reynslan sýni
að bóast megi vifl smásprengingum i
gignum á toppi Heklu i nokkur ár eftir
að eldsumbrotum lýkur.
Jarðfræðinemar hafa nýverið orðið
vitni að slikum sprengingum i Heklu.
Ennfremur benda mælingar Norrænu
eldfjallastöðvarinnar og Raunvísinda-
stofnunar Háskólans tii þess að ekki sé
enn komin kyrrfl á Heklu. -KMU.
Áfall fyrir ríkisstjórnina:
Skyldusparn-
aðurinn kom-
inn í strand
— Albert og Eggert andvfgir
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um
skyldusparnað er komið í strand.
Bæði Albert Guðmundsson og Egg-
ert Haukdal Iýstu yfir andstöðu við
frumvarpið í viðtölum við DV í gær-
kvöld. Án þeirra getur rikisstjórnin
ekki komið málinu gegnum neðri
deild.
Yrði það töluvert áfall fyrir
stjórnina ef svo mikilvægt mál yrði
jarðað.
„Það er ekki verjanlegt af sjálf-
stæðismönnum að samþykkja svona
frumvarp, ekki undir neinum
kringumstæðum,” sagði Albert Guð-
mundsson alþingismaður um
stjórnarfrumvarpið um skyldu-
sparnað af hátekjum.
„Ég hef ekki verið talinn í því liði
sem gerði stjórnarsáttmálann,” sagði
Albert ennfremur.
„Ég tel að fólk sem staðið hefur i
skilum með öll sín opinberu gjöld
eigi að hafa frjálsan afnotarétt af því
sem þaðáeftir.
Þetta er grundvallarstefna Sjálf-
stæðisflokksins, að einstaklingurinn
fái að ráðstafa sínum tekjum og
sjálfum sér á frjálsan hátt eins og
frjáls maður.
Frumvarpið er andstætt mlnum
lifsskoðunum, ég greiði atkvæði á
móti þvi, ég tala á móti því. Ef aðrir
sjálfstæðismenn finna ekki hjá sér
hvöt til að vera á móti er það alvar-
legt mál,” sagði Alhert.
-KMU/HH.
Srfálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982.
íslenzkir
fiskréttirúr
færeyskum
kolmunna
— framleiddir hjá
lcelandic Seafood
íBandaríkjunum
„Ég get staðfest að Icelandic Sea-
food Corporation í Bandarikjunum
hefur keypt síðan í fyrrasumar verulegt
magn af kolmunnamarningi frá Fær-
eyjum. Marningurinn ér nýttur í fisk-
rétti og hefur líkað vel,” sagði Ólafur
Jónsson aðstoðarframkvæmdastjóri í
sjávarafurðadeild SÍS.
„Það skiptir hundruðum tonna sem
þarna er um að ræða. Ég hef trú á því
að mjög verulegur markaöur sé fyrir
fiskmarning, það er af einhverjum
ástæðum meiri eftirspurn nú en
framboð.”
f fréttaljósi DV i dag, á blaðsíðu 4, er
fjallað um kolmunnamál.
HERB.
Góður afli hjá
Vestfjarðabátum
Med 275 lestirá
Iínunaí21
róðriímarz
Mjög góður afli var hjá línubátunum
á Vestfjarðamiðum í marzmánuði. Jón
Þórðarson BA 180 kom t.d. með að
landi 275 lestir í 21 róðri en það gerir
um 13 lestir að meðaltali í róðri.
Jón Þórðarson var um páska kominn
með í allt 575 lestir. Vestri, sem einnig
er gerður út frá Patreksfirði, var þá
með 592 lestir en hann hætti á línu í
byrjun marz. Jón Þórðarson er því
núna aflahæsti línubáturinn á Vest-
fjörðum og þar með aflahæsti línubát-
urinn yfir allt landið.
-klp-
22.530 kærur
vegna ölvunarundir
stýriátíuárum
22.530 ökumenn voru kærðir fyrir
meinta ölvun við akstur hérlendis á
síðasta áratug, á árunum 1971 til 1980.
Er þessar upplýsingar að finna í skýrsl-
um Umferðarráðs.
Langflestir ökumannanna voru
gripnir á götum Reykjavíkur, 9.730
talsins.
Margir einstaklingar hafa verið
teknir oftar en einu sinni, grunaðir um
ölvun við akstur, og eru þeir því tví-
taldir, ef ekki margtaldir.
-KMU.
LOKI
Hvað ætli atkvæði
bóndans á Bergþórs-
hvoli kosti núna?