Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987. 5 ____________________________Fréttir Mosfellshreppur verður Mosfellsbær - Hveragerði kaupstaður 1. júlí og Borgames fyrir áramót Fjótfijólaleigur: Selja sig dýrt Nú virðist vera í uppsiglingu íjöldi íjórhjólaleiga. Þegar hafa nokkrar tekið til starfa og samkvæmt upplýs- ingum, sem DV heíúr frá leigunum, er leigugjaldið í hærra lagi ef miðað er við verð á bílaleigubílum. Gjald fyrir sólarhringsnotkun á fjórhjólum er á bilinu 5000 til 5500 krónur. Hjá Bílaleigu Akureyrar fengust þær upp- lýsingar að Pajero-jeppi kostaði 2.450 krónur á sólahring. Þá er eftir að reikna kílómetragjald og söluskatt. Ef slíkum jeppa er ekið 75 kílómetra á sólarhring og greiddur söluskattur þá er sólarhringsgjaldið rúmlega 5.000 krónur. Það er ólíkt hvað þessi tæki, fjórhjól annars vpgar og Pajero-jeppi hins veg- ar, kosta til leiganna. Gott fjórhjól kostar um 250.000 krónur en Pajero- jeppi kostar hins vegar 850.000 krónur. Fyrir einn jeppa má fá 3,5 fjórhjól. Samkvæmt upplýsingum sem DV fékk á skrifstofu lögreglustjórans í Reykjavík þarf ekki leyfi til að hefja rekstur leigu með fjórhjól. Náttúru- vemdarráð hefúr af þessu miklar áhvggjur og hafa þeir farið þess á leit við dómsmálaráðuneytið að ekki verði gefin leyfi fyrir leigum af þessu tagi. I lögum og reglugerðum er lögleg notkun fjórhjólanna afar takmörkuð en það stöðvar ekki stöðuga sölu á nýjum hjólum. -sme Þann 9. ágúst næstkomandi skipt> ir Páll Guðjónsson, sveitarstjóri Mosfellshrepps, um starfsheitL Hann verður titlaður bæjarstjóri Mosfells- bæjar. Mosfellshreppur, langfjölmennasti hreppur landsins, með um 3.800 íbúa, er nefhilega að verða kaupstaður. Hreppsnefndin ákvað 3. júní sfðast- liðinn að nafn bæjarins yrði Mos- fellsbær eftir að skoðanakönnun, sem gerð var meðal íbúanna, sýndi að 76% vildu það nafn. Hveragerði, þar sem búa um 1.450 manns, er hins vegar næsti hreppur landsins sem verður kaupstaður. Það gerist eftir tvær vikur, 1. júlí. Stykkishólmur og Egilsstaðlr 1 síðasta mánuði urðu tveir hrepp- ar að kaupstöðum, Stykkishólmur þann 22. maí og Egilsstaðir þann 24. maí, báðir með um 1.300 íbúa. Horfur eru á að fimmti hreppurinn bætist í röð kaupstaða á þessu ári. Allar líkur eru á að Börgames, þar sem búa um 1.700 manns, verði bær síðar á þessu ári, að sögn Eiríks öl- afssonar, skrifetofústjóra hreppsins. Effcir þessar breytingar verður Höfii í Homafirði fjölmennasti hreppur landsins, með rúmlega 1.500 íbúa. Lítill áhugi á Hornafirði „Ætli það verði nokkru sinni. Við höfúm enga dulda vanmáttarkennd þótt við heitum ekki bær eða bæjar- stjóm," sagði Hallgrímur Guð- mundsson, sveitarstjóri Hafriar- hrepps, spurður um hvenær Höfii yrði að bæ. Taldi hann slika breyt- ingu tilgangslitla. Páll Guðjónsson, verðandi bæjar- stjóri Mosfellsbæjar, er á öðm máli. Hann tekur sem dæmi að gjöld Mos- fellshrepps vegna sýsluvega, sem falla niður við breytinguna, væm áætluð á þessu ári um 4,5 milljónir króna. Um það bil helmingur þess- ara fj ármuna færi nú út fyrir sveitar- félagið. Ennfremur gæti Mosfellsbær feng- ið eigin lögreglusamþykkt, sjúkra- samlag og möguleiki opnaðist á áfengisútsölu. Imynd sveitarfélagsins ,3tœrsta breytingin er kannski ímynd sveitarfélagsins. Það er engin launung á því að bær og bæjarstjóm em litin öðrum og meiri augum en hreppur og hrcppsnefnd," sagði Páll. Samkvæmt nýju sveitarstjómar- lögunum getur hreppsnefnd ákveðið breytingu yfir í kaupstað ef minnst 1.000 manns hafa búið í þéttbýli í hreppnum samfleytt í þrjú ár. Auk áðurgreindra sveitarfélaga geta Ölfushreppur (þar er Þorláks- höfii), Miðneslireppur (kunnari sem Sandgerði), Garður og Blönduós orðið að kaupstöðum á þessu ári ef hreppsnefiidir þeirra ákveða svo. -KMU ívAíáKSÍ] Unnið við niðursetningu fyrstu vélasamstæðunnar i nýrri verksmiðju Lystadúns. DV-mynd S Bruninn í Lystadún: „Rekstrarstöðvunar- tiyggingin skiptir sköpum fyrir okkur“ Kristián Sigmundsson framkvæmdastjóri Rúmur mánuður er nú liðinn frá því að eldsvoðinn varð í verksmiðju Lystadúns við Dugguvog. Ekki er búið að meta tjónið sem varð á v^erksmiðju- húsinu. Vonir standa til að matið verði tilbúið í þessari viku. Eigendur verksmiðjunnar vom með svokallaða rekstrarstöðvunartrygg- ingu og mun þetta í fyrsta sinn sem reynir á slíka tryggingu hér á landi. Kristján Sigmundsson sagði að Ly- stadún hefði keypt tryggingapakka hjá Sjóvá og þar hefði þessi trygging verið innifalin. Kristján sagði enn- fremur að fyrir þá kæmi þessi trygging til með að skipta sköpum hvað varðar framtíð fyrirtækisins. Lofaði Kristján mjög samvinnu Sjóvá við Lvstadún. Tjón vegna rekstrarstöðvunar verður metið þegar reikningar ársins liggja fyrir. Nú er Lystadún búið að koma sér fyrir á nýjum stað, Smiðjuvegi 4 í Kópavogi. Fyrsta vélasamstæðan er komin til landsins og fleiri vélar vænt- anlegar bráðlega. Kristján sagðist vongóður að þeir næðu fúllum afköst- um von bráðar. -sme Burðarþolið: Mikil gagn- lýni á skýrslugerðina „Umræður um þolhönnun eru ekki nægilega jákvæðar. Að draga persónur inn í umræðurnar er þess- um málum ekki til framdráttar, það verður að forðast slíkt,“ sagði Ragn- ar Sigbjömsson, forstöðumaður Verkfræðistofnunar Háskólans, en hann hefur gagnrýnt vinnubrögð þau sem viðhöfð vom við gerð skýrslunnar. Ragnar hefur, ásamt Hákoni Ólafssyni, forstjóra Rann- sóknastofnunar byggingariðnaðar- ins, sent frá sér yfirlýsingu vegna burðarþolskönnunarinnar. Ragnar undirritar yfirlýsinguna skömmu eftir að hann gagnrýndi gerð hennar harkalega. Ragnar hefur meðal ann- ars sagt: „ .. .ég harma þetta sérstak- lega vegna þess að hér á í hlut samstarfsaðili úr verkfræðingastétt sem hefur notið álits og virðingar." Hér á Ragnar við Hafstein Pálsson, deildarverkfræðing hjá RB, en Haf- steinn er faglega ábyrgur fyrir burðarþolsskýrslunni. Fáum dögum síðar hirtist rnnrædd yfirlýsing en þar segir: „Vegna mis- skilnings, sem gætt hefúr í umræð- unni um burðarþolskönnunina sem gerð var fyrir félagsmálaráðuneytið, vilja undirritaðir taka fram: 1. Könnunin leiðir ótvirætt í ljós að hönnun og eftirlit með byggingum er áfátt. 2. Undirritaðir gera sér vonir um að könnúnin leiði til jákvasðrar þróun- ar við hönnun bygginga með vem- legu átaki í staðlamálum á sviði þolhönnunar." Það hafa fleiri en Ragnar Sig- björnsson gagnrýnt skýrsluna. Hönnuðir að einu húsanna tíu gerðu athugasemd við niðurstöður nefnd- arinnar. I niðurstöðunum segir að burðarþol þess húss sé ekki fullnægj- andi. Hafsteinn Pálsson hefur undirritað yfirlýsingu til hönnuða hússins þar sem hann dregur dóm nefndarinnar til baka. Athygli hefur vakið að fjögur af tíu húsum, sem gerð var úttekt á, vom hönnuð af fyrrverandi eða nú- verandi starfsmönnum byggingar- fulltrúans í Reykjavík. Það fer fjarri að þeir.menn hafi hannað svo hátt hlutfall af byggingum í Reykjavík. Athygli hefúr einnig vakið að ekkert húsanna tíu er hannað af stóm verk- fræðistofunum. Starfsmenn þeirra flestra vom í nefndinni sem vann að skýrslunni. Fyrrverandi starfs- maður byggingarfulltrúa hefur sagt við blaðamann DV að sér þyki liggja ljóst fyrir að þeir verkfræðingar, sem unnu að könnuninni, hafi notað þetta tækifæri til að knésetja ákveðna menn og er þar að sjálf- sögðu átt við starfsmenn byggingar- fulltrúa. Þessu neita forsvarsmenn RB al- farið. Hákon Ólafsson segir að ekki hafi verið vitað hverjir væm hönn- uðir húsanna, að Foldaskóla undanskildum. Vitað var hverjir vom hönnuðir hans. Ein stærsta verkfræðistofa lands- ins er verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen. Einn eigenda hennar, Níels Indriðason, var einn nefndar- manna. Þegar Níels var inntur eftir hvort honum þætti það eðlilegt að ekkert húsanna hefði verið hannað af hans fyrirtæki, þar sem það hefúr annast hönnun á aragrúa bygginga í Reykjavík, sagði hann: „Ég vil ekki tjá mig um það.“ -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.