Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987. 15 Sévfiagsmunaþjónustan Kvennalistakonum var skítsama um afleiðingarnar. Þótt það kostaði minnst 30% verðbólgu þegar í stað, þá kröfðust þær hækkunar lægstu launa sem skilyrði íyrir þótttöku í ríkisstjóm. Hagfræðingar úr öllum áttum bentu kvennalistakonum á að það þýddi ekki að breyta aldagömlum launahlutföllum í þjóðfélaginu með lagaboði. Konurnar neituðu að hlusta. Afstaða Kvennalistans er dæmi- gerð fyrir það þegar stjómmála- flokkar hætta að bera hagsmuni þjóðarinnar í heild sinni fyrir brjósti. KjaUarmn Ólafur Hauksson útgefandi hjá Sam-útgáfunni Þessi afstaða er dæmigerð fyrir þá blindu að halda að landinu verði stjórnað með hrærigraut sérhags- muna. Sérhagsmunaflokkarnir Kvennalistinn er ekki einn ó báti. Nær allir stjórnmálaflokkamir í landinu taka sérhagsmuni fram yfir þjóðarhag. Sumir reyna reyndar að blanda þessu saman. Framsóknarflokkurinn stendmy misskilinn vörð um úreltan land- búnað, með dyggum stuðningi Sjálf- stæðisflokksins. Landbúnaðarsukk- ið kostar tugi milljarða og stendur þjóðfélaginu fyrir þrifum. Þessir flokkar em svo hræddir við að missa atkvæði sérhagsmunahóp- anna, sem tengjast landbúnaði, að þeir hjakka lamaðir í því fari að láta skattgreiðendur halda uppi vonlaus- um atvinnurekstri. Kíkinn fyrir blinda augað ísland er markaðsþjóðfélag. Lög- mál framboðs og eftirspumar ríkja. Alþýðubandalag og Kvennalisti neita að viðurkenná þessi lögmál. Þessir flokkar telja að sérhags- munum ákveðinna hópa verði best borgið með því að setja lög sem ganga þvert á markaðslögmálin. Þessir flokkar setja kíkinn fyrir blinda augað þegar þeir mæna á heiminn í kringum sig. Þeir eru ó móti vem íslands í Atlantshafs- „Stjórnarmyndunarviðræður hafa tekið ógnarlangan tíma vegna þess að þar hafa fulltrúar flokkanna fyrst og fremst verið að gæta sérhagsmuna sinna manna.“ „Framsóknarflokkurinn stendur misskilinn vörð um úreltan landbúnað, með dyggum stuðningi Sjálfstæðis- flokksins. Landbúnaðarsukkið kostar tugi milljarða og stendur þjóðfélaginu fyrir þrifum." bandalaginu jafnvel þótt almenn skynsemi segi að það sé ein besta vömin fyrir því að halda Islandi lýð- ræðisríki. Sérhagsmunaflokkur Alberts Lítið hefúr reynt á stjórnvisku borgaraflokksmanna. Kosningajdir- lýsingar þeirra bentu hins vegar til að þeir ætluðu fyrst og fremst að sinna sérhagsmunamálum - litla manninum. Þeir ætla að standa við hlið litla mannsins í baráttunni við kerfið. Flokkurinn ætlar að vera á móti því kerfi sem hann þvkist vera að byggja upp með veru sinni á Al- þingi. Hagsmunir heildarinnar Stjórnmálaflokkar eiga fyrst og fremst að si r.na hag allrar þjóðarinn- ar. Þjónkun þeirra við sérhagsmuni er óviðeigandi. Sérhagsmunir eiga að vera mál viðkomandi hópa í þjóð- félaginu en ekki alþingismanna. Stjórnannyndunarviðræður hafa tekið ógnarlangan tíma vegna þess að þar hafa fulltrúar flokkanna fyrst og fremst verið að gæta sérhags- muna sinna manna. í raun ætti ekki að vera erfitt fyr- ir raunsæja stjómmálamenn að setja saman ríkisstjórn. Markmið hennar þmfa ekki að vera flókin. Þar nægir að setja á oddinn að ríkisreksturinn verði í samræmi við það sem þjóð- félagið þolir og að atvinnufyrirtækin í landinu fái frið til að bæta afkomu sína. og þar með afkomu launþega. Sérhagsmunum er nefnilega best borgið með því að þjóðfélagið þrífist vel í heild sinni. Ef stjórnmálaflokk- amir hafa sérhagsmuni að megin- markmiðum þá er enginn eftir til að hugsa um hagsmuni heildarinnar. Kvennalistinn gerir hinum lægst- launuðu mest gagn með því að hjálpa til við að byggia upp öflugt atvinnulíf og draga úr umsvifum rík- isins. Ólafur Hauksson Bara að erfðalögunum væri breytt Gömlu hjónin höfðu þrælað og púlað allt sitt líf. Þau höfðu menntað bömin sín 6 að bestu getu og nú vom þau öll flogin úr hreiðrinu. Þau gömlu höfðu bæði verið gift áður og áttu sitt hvort barnið frá fyrra hjóna- bandi. En samkomulagið var gott. Þau höfðu ekki gert upp á milli bam- anna og mikið var gaman þegar öll súpan, börn og barnaböm, kom í heimsókn á sunnudögum. Þá var gott að hafa rúmgott hús. Að vísu fannst sumum að húsið væri óþarflega stórt. Það fannst þeim gömlu ekki. Það var notalegt að hafa aukaherbergi þegar krakkarnir komu utan af landi til þess að sinna hinum ýmsu erindum. Það hafði líka komið sér vel hérna um árið þegar hún Gunna þeirra hafði skilið við manninn að þau höfðu útbúið séríbúð í húsinu sínu. Þama hafði Gunna búið með stelpu- hnokkann sinn og raunar fleiri. T.d. bamabörnin sem voru að byrja að stofha bú. Þetta var raunar dálítið skrítið nú til dags. Engin opinber trúlofun, hvað þá gifting. Þetta hét víst pappírslaust1 hjónaband. Þótt þeim gömlu væri þetta á móti skapi þá sættu þau sig við það, þótti gam- an að geta hlaupið undir bagga á meðan unga fólkið var að koma undir sig fótunum. Lífið lék við þau. Þau áttu líka mörg sameiginleg áhugamál. Ekki síst garðinn sem meira að segja hafði að geyma ýmsar sjaldgæfar blóma- tegundir. Það er heldur ekki svo lítill félagsskapur af því þegar þau „Seinna, mikið seinna. Þá jafnaði gamli maðurinn sig eftir konumiss- inn. Það er sagt að timinn lækni öll sár. Ekki samt hans. Það var of seint að snúa til baka. Hann gat ekki fengið húsið sitt, garðinn sinn.“ vom að skiptast á við vinina með hinar ýmsu plöntur. Þá gerðist það. Gamla konan fékk hjartaslag og dó. Eftir stóð gamli maðurinn. Miður sín og utan við sig af sorg. Meira en það. Hann gat ekki hugsað. Starði úti í loftið. Gleymdi að borða. Svaf misvel. Stundum á nóttunni. Stundum á daginn. Bömin fylgdust áhvggjufull með þeim gamla. Þetta vai' vandræða- ástand. Gamli maðurinn orðinn 75 ára gamall. Elliheimili? Já. elliheim- ili gæti verið lausnin. Það lá í augum uppi að sá gamli gat ekki séð mn sig sjálfur. Gleymdi meira að segja blómunum sínum. Aðaltómstunda- gamninu. Ráðstefna bak við tjöldin Félagsráðgjafi var fenginn með í spilið. Það varð heljarmikil ráð- stefna. Þó fór svo að meirihluti bamanna var á móti elliheimili. Bak við tjöldin fór minnihlutinn að at- huga hvemig hægt væri að kaupa þann gamla inn á elliheimili. Það var notuð klíka, sambönd. A meðan sat gamli maðurínn og reyndi að hugsa. Hann botnaði ekk- ert í öllu þessu umstangi. Hann bara saknaði konunnar sinnar. Hvar var hún? Af hverju kom hún ekki og eldaði fyrir hann, talaði við hann eins og venjulega? Sum bamanna gerðu sér grein fyr- ir þvi að sorgin getur valdið því hjá ungum sem gömlum að sálarlífið fer í rúst um lengri eða skemmri tíma. Enginn gat samt tekið þann gamla heim, þótt ekki væri nema tíma- bundið. Það voru jú allir að vinna. Heilu dagana var enginn heima. Hver vissi nema að sá gamli myndi kveikja í húsinu. Honum dytti kannski í hug að elda sér eitthvað. Myndi gleyma pottinum á eldavél- inni. Kjallariim Erna V. Ingólfsdóttir húsmóðir mæla. Það nægir til þess að ógilda erfðaskrána." Það tókst honum. Og nú var allur svstkinahópm-inn kom- inn í hár saman. Því fór sem fór. Aður en gamli maðurinn vissi af var búið að ráð- stafa öllu. Selja húsið hans sem hann og kona höfðu stritað við að koma upp. Garðurinn. Hver vissi hvernig höndum vrði farið um blómin hans? Sá gamli var kominn í 10 fermetra herbergi á elliheimilinu. Ekkert pláss fyrir hlutina hans. Sjálfsagt að skipta þeim á milli bamanna. Það var ekki einu sinni pláss fyrir bæk- urnar hans. Bara rúmið. einn stól. sófaborð og hillu með smámunum. Jú. sjónvarpið stóð þama i einu hominu. Hann hafði ekki einu sinni rænu á að kveikja á því. „Skítt með hana,“ hugsaði húsbyggjand- inn. „Ég fæ annað hvort hálfsystkina minna til þess að mótmæla. Það nægir til þess að ógilda erfðaskrána.“ Það tókst honum. Og nú var allur systkinahópur- inn kominn í hár saman.“ Seirrna, miklu seinna. Þá jafnaði gamli maðurinn sig eftir konumiss- inn. Það er sagt að tíminn lækni öll sár. Ekki samt hans. Það var of seint að snúa til baka. Hann gat ekki feng- ið húsið sitt, garðinn sinn. Hvað þá heldur gat hann safhað saman allri íjölskyldunni i 10 fermetrum. Það hefði heldur ekkert þýtt. Það ríkti fullur íjandskapur á milli systkina- hópsins eftir erðamálin. Annar hver maður talaðist ekki við. Og gamli maðurinn horfði sorg- mæddur í gaupnir sér. Erna V. Ingólfsdóttir Meirihluti barnanna stakk upp á því að fengin væri húshjálp. Einhver gæti fengið frítt húsnæði í litlu íbúð gamla mannsins og hugsað mn hann... Minnihlutinn var ósam- mála. Einn var að byggja. Hugsaði í launú að gott væri að fá þama peninga til að létta undir með sér. Nú vom góð ráð dýr. Þau gömlu höfðu gert með sér erfðaskrá og sam- kvæmt henni mátti sitja í óskiptu búi. „Skítt með hana,“ hugsaði hús- byggjandinn. „Ég fæ annað hvort hálfsystkina minna til þess að mót- L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.