Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987. Útlönd e Verðum að sýna samninga- vilja jafiiframt vaifærni „Á sama tíma verðum við að sýna varkárni og gæta þess að skaða ekki varnarmátt okkar.“ George W. Jaeger, aðstoðarframkvæmdastjóri stjórnmáladeildar Atlantshafsbandalagsins. DV-mynd HV Leiðtogar vestrænna ríkja virðast í dag binda miklar vonir við þann hóp leiðtoga í Moskvu sem stundum er nefhdur nýja kynslóðin. Helsti forvígismaður þess hóps er að sjálf- sögðu Mikhail Gorbatsjov, aðalrit- ari kommúnistaflokks Sovétríkj- anna. Með honum virðast hafa komið nýir straumar í sovésk stjóm- mál og frá honum virðast nú blása nýir vindar inn í deilumál austurs og vesturs. Þessi sovéski leiðtogi virðist ólíkur öllum fyrirrennurum sínum. Hann hefur sett fram tillögur um miklar umbætur í innanríkismál- um lands síns og hefur vakið mikla athygli á Vesturlöndum fyrir tillögu- gerð sína um afvopnunarmál og, að því er virðist, einlægan samnings- vilja. Ný kynslóð alls staðar? Það er hins vegar oíúrlítið villandi að leggja of mikla áherslu á það að ný kynslóð sé komin til valda í Sov- étríkjunum. Við nánari athugun má sjá ýmis merki þess að hið sama sé að gerast innan vesturveldanna, að þar séu að verða breytinar er kunna að verða afdrifaríkar. Þótt manna- skipti hafi ekki verið áberandi virðast nýjar hugmyndir hafa rutt sér ofurlítið til rúms meðal þeirra sem veita forstöðu samningum við austantjaldsþjóðir. Viðhorf kalda stríðsins eru á undanhaldi. Sú við- leitni að skapa vesturveldum, með Bandaríkin í forystuhlutverki, hem- aðarlega og stjómmálalega aðstöðu til að knýja fram vilja sinn í hinum ýmsu heimshomum er að víkja fyrir hugmyndum um friðsamlega sambúð án ofríkis. Leiðtogar og embættismenn Atl- antshafsbandalagsins vilja yfirleitt lítið ræða þessar breytingar, vilja halda því fram að sammngavilji og sáttfysi hafi ávallt ráðið ferð banda- lagsins. Það þarf þó ekki að fara langt aftur í söguna til að sjá að stefna bandalagsins var mun ágeng- ari, laut meira að þvi að halda yfirburðum yfir Sovétmönnum í stað þess að láta sér nægja jafhvægi. Það felur því að minnsta kosti í sér áherslubreytingu þegar utanrík- isráðherrar allra NATO-ríkja láta frá sér fara yfirlýsingu þar sem gefið er grænt ljós varðandi afvopnunar- viðræður. George W. Jaeger, næstæðsti yfir- maður stjómmáladeildar NATO, er talandi dæmi um þessar breyttu áherslur. Hann lýsir því fúslega yfir að þótt gæta verði varfæmi í viðræð- um við Sovétmenn verði ríki Atl- antshafsbandalagsins nú að þekkja sinn vitjunartíma og sýna vilja ti) þess að ganga til samninga við Sov- étmenn. „Það er ýmislegt sem bendii til þess að Sovétmenn séu að reyna að opna þjóðfélag sitt,“ segir Jaeger, „og séu famir að sýna viðbrögð við ýmsu sem þeir minntust aldrei á áður. Hversu tortryggnir sem við höfum tilhneigingu til að vera verð- um við að ganga til samninga að því marki sem þeir sýna einlægan vilja til.“ Óttast afturhvarf Þótt Jaeger gerist að þessu leyti talsmaður þess að ganga eins langt við samningaborðið og unnt reynist slær hann jafnframt á varúðar- strengi. „Við verðum að gæta þess að missa ekki vamarmátt okkar,“ segir hann og talar í því sambandi um að vestrænar þjóðir haldi hem- aðarmætti sínum á því stigi að þær geti verið vissar um að ekki verði á þær ráðist. Hver sá hemaðarmáttur er fæst ekki skilgreint. Jaeger, líkt og aðrir embættismenn NATO, færist undan nánari umfjöllun á því. Hann bendir þó á að þær þjóðir sem um ræðir verði að geta fúllvissað væntanlega árásaraðila um að yfirgangur verði árangurslaus. Ljóst er að áður en vesturveldin telja sér óhætt i kjamorkuvopna- lausri Evrópu verða að koma til verulegar breytingar á jafnvæginu í hefðbundnum herafla. f dag hafa ríki Varsjárbandalagsins um 3,8 milljón- ir manna undir vopnum, á móti 2,4 milljónum í herjum NATO-ríkja. Sovétmenn geta teflt fram um 50 þúsund skriðdrekum, á móti 22.500 skriðdrekum NATO. Og Sovétmenn ráða yfir um átta þúsund herflugvél- um á móti 4.600 í flugsveitum NATO-ríkja. Þetta jafnvægisleysi er einn liður þess að jafnvel talsmenn samninga við Sovétríkin, þeirra á meðal Jaeg- er, vilja sýna varúð. Þeir óttast ekki einungis að Gorbatsjov kunni að reynast tvöfaldur í roðinu heldur ekki síður hitt að hann missi tökin á stjóm sinni. Ljóst er að staða aðalritarans er að mörgu leyti viðkvæm heima fyr- ir. Umbótatillögur hans hafa fengið allnokkra mótstöðu innanlands og meira að segja leiðtogar annarra kommúnistaríkja A-Evrópu hafa tekið þeim heldur fálega. Austur- Þjóðverjar hafa ekki tekið undir þær og Nicolae Ceausescu, forseti Rúm- eníu, hefúr gagnrýnt þær opinber- lega. Þá virðast margir af herforingjum sovéskra herja vera mótfallnir samn- ingastefnu aðalritarans, telja vafa- lítið að með henni sé vegið að valdi þeirra. Því telja margir NATO-menn nauðsynlegt að fara mjög varlega. Ef gengið yrði til umfangsmikilla samninga við ríkisstjóm Gor- batsjovs, og hann yrði síðan settur af í kjölfar þeirra, gætu viðkomandi samningar gert stöðuna milli stór- veldanna enn erfiðari en hún er í dag. „í öllum samningum af þessu tagi eru ákvæði sem hægt er að grípa til í slíkum tilvikum," segir George Ja- eger, „þannig að vesturveldin yrðu ekki í þeirri stöðu að þurfa ein að standa við það sem um var samið. Hins vegar er því ekki að leyna að það tæki vafalítið langan tíma að komast að nýju á skrið í afvopnunar- málum.“ Af hverju tortryggni? Tortryggni sú, er gætir meðal manna í þessum efnum, á sér sínar orsakir. Fyrir nokkru birtust viðtöl í DV við sendiherra Sovétríkjanna og Bandaríkjanna á íslandi þar sem báðir gerðu hana að umræðuefni. Hennar gætir mikið á báða bóga og eins og sendiherramir bentu á liggja sögulegar, stjómmálalegar og hem- aðarlegar forsendur til grundvallar. „Við getum ekki enn treyst því fullkomlega að stjómvöld, sem ekki virða mannréttindi sinna eigin þegna, muni virða okkar rétt nokk- urs,“ segir George Jaeger og undir það taka margir leiðtogar vestur- veldanna. I því er einnig að leita orsaka þess að Vesturlandabúar vilja gera mannréttindabrot Sovét- manna og það hvemig þeir hundsa ákvæði Helsinki-sáttmálans að at- riði í samningum við þá. „Meðan staða mannréttindamála helst óbreytt í Sovétríkjunum getur samn- ingavilji þeirra reynst helber blekk- ing,“ bætir Jaeger við. Þessar efasemdir em í sjálfu sér skiljanlegar þegar viðræður standa milli tveggja risa sem byggja stjóm sína á jafnólíkum forsendum og Bandaríkjamenn og Sovétmenn. Vesturlandabúum ógnar það sem þeir nefna alræði í Sovétríkjunum. Á móti hljóta Sovétmenn að óttast hversu stefnumörkun Vesturlanda er háð duttlungum kjósenda og jafri- vel einstakra stjómmálamanna. Þeir þykjast einnig greina ýmis merki þess að mannréttindi séu ef til vill ekki jafnvel í heiðri höfð á Vestur- löndum og látið er í veðri vaka. Framkvæmd lýðræðis er víða með vafasamari hætti, svo sem skýrt hef- ur komið fram í afstöðnum kosning- um á Bretlandseyjum þar sem meirihlutastjóm íhaldsflokksins hefúr ekki meirihluta kjósenda á bak við sig. I ljósi þess hvemig kosning- ar em framkvæmdar í Bandaríkjun- um er einnig auðvelt að halda því fram að þar ráði enginn meirihluti alþýðu ferðinni. í trausti aflsins Leiðtogar Vesturvelda hafa að sjálfsögðu lengi gert sér grein fyrir þessari gagnkvæmu tortryggni, þótt málatilbúnaður þeirra byggist á kenningum um að Sovétríkin hafi ekkert að óttast úr vestri, vestrið allt að óttast úr austri. Þeir em einn- ig sammála um að gera verði ráðstaf- anir til að komast ffarn hjá þessu vantrausti ef ekki reynist unnt að eyða því. „Við verðum að vera hemaðarlega sterkir," segir Reagan Bandaríkja- forseti sem hefur gert endumpp- byggingu hemaðarmáttar Bandaríkjanna að helsta baráttu- máli sínu undanfarin sex ár. Þótt margir leiðtogar taki undir orð forsetans gætir annarra áherslna hjá þeim mörgum. George Jaeger telur nauðsynlegt að vesturveldin sýni styrk en með öðrum hætti en forseti hans talar um. „Sovétmenn ganga nú til samninga vegna þess að við höfum sýnt að við stöndum saman um vamir okkar,“ segir hann og vísar þar til þess að Evrópuríki reyndust tilbúin að setja niður kjamorkuvopn í löndum sínum til að mæta ógnuninni er þótti stafa af SS-20 flaugum Sovétmanna. Jaeger telur því, að því er best verður skilið, að styrkurinn þurfi að felast í samstöðu aðildarríkja Atl- antshafsbandalagsins. Með tilliti til þess ættu ríkin ekki að þurfa að ganga til vemlegrar uppbyggingar .hefðbundins herafla síns. Þau þurfa þá aðeins að sýna Sovétmönnum svart á hvítu að þau séu reiðubúin til þeirrar uppbyggingar ef á þarf að halda. Spumingin er aðeins hversu langt þau þurfa að ganga áður en Sovét- menn virða þann kost vænni að draga úr sínum vígbúnaði. Einhliða afvopnun í þessarri kenningu á rætur sínar sú óánægja sem hugmyndir um ein- hliða afvopnun, kjamorkuvopna- laus svæði og annað af því tagi hafa vakið með Bandaríkjamönnum og ýmsum öðrum leiðtogum NATO- ríkja-. Hugmyndir breska verkamanna- flokksins um að leggja niður kjam- orkuvígbúnað Breta, sem voru liður í kosningabaráttu þeirra síðastliðn- ar vikur, ollu nokkrum ugg meðal Bandaríkjanna. Hið sama gildir um hugmyndir um kjamorkuvopnalaus Norðurlönd og fleiri. „Slík staða myndi gera Sovét- mönnum kleift að ganga að vestur- veldunum einu í senn, í stað þess að glíma við þau sameinuð," segir Jaeger og svipaðra skoðana gætir hjá bandarísku utanríkisþjón- ustunni. Þá gætir einnig nokkuð þeirrar skoðunar að ef einstök aðildarríki Atlantshafsbandalagsins lýstu sig kjamorkuvopnalaus væm þau þar með að valda því að kjamorkuvopn- um austantjaldsríkja yrði beint meira að þeim sem hefðu kjamorku- vígbúnað. Þar með tækju aðildarrík- in ekki lengur sömu áhættu og kominn yrði ójöfnuðui' innan banda- lagsins sem gæti orðið erfiður að ráða við. Það sem veldur mestum ugg gagn- vart þessum hugmyndum er þó sú skoðun að ef þær komast i fram- kvæmd gætu þær gert Sovétmönnum kleift að reka fleyg milli Bandaríkj- anna og Evrópu. I framhaldi af því gætu þeir náð vígbúnaðarsamkomu- lagi sem þeim væri svo hagstætt að þeir gætu hafið kerfisbundna kúgun Evrópu á gmndvelli yfirburðastyrks síns. Þegar rætt er um þessa hugsan- legu kúgun er í raun ekki verið að fjalla um að sovéskur her komi til með að streyma inn í vestanverða Evrópu og taka lönd þar hervaldi. „Sú kúgun, er menn óttast, er mun flóknara og óræðara fyrirbrigði en bein beiting hervalds,“ segir Jaeger. „Um er að ræða að koma í veg fyrir að hemaðarstaða Sovétríkjanna verði svo sterk að hún fari að hafa áhrif, bein eða óbein, á það hvernig samningum þau ná við vestræn ríki. Viðskiptasamningum, stjómmála- legum samningum og svo framveg- is.“ Ógnarjafnvægi áfram I raun er það sem stjómvöld vest- urveldanna óttast, umfram annað, að Sovétmenn seilist til áhrifa, verði leiðandi afl í Evrópu allri enda verð- ur að telja mjög ólíklegt að þeir freistist til að beita beinu herafli. Staða mála yrði að minnsta kosti að breytast vemlega til þess. Sovétmenn vita að herjum NATO í Evrópu er ætlað að verja V-Þýska- land í eina viku en á þeim tíma er áætlað að liðsstyrkur berist frá Bandaríkjunum. Því má ætla að sov- éskir herforingjar leggi ekki til atlögu við vesturveldin nema þeir telji tryggt að geta náð markmiðum sínum innan þessara tímamarka. Leiða má rök að því að hvorugur aðilinn, það er Sovétríkin eða Bandaríkin, telji mögulegt að há takmarkaða kjamorkustyrjöld. Hvomgt ríkið muni því grípa til kjamorkuvopna fyrr en í lengstu lög. Af þessu má draga þá ályktun að stórveldin tvö muni gæta þess vandlega að ógna ekki öryggi hvort annars ef hjá því verður komist. í ljósi þessa má sjá að ógnaijafnvægið kemur til með að gilda áfram meðan hemaðarbandalögin tvö em við lýði. Það er í raun ekkert sem bendir til þess að Sovétmenn séu reiðubún- ir eða verði í náinni framtíð reiðu- búnir til að bjóða þessu jafnvægi birginn með beinum hemaðarað- gerðum gegn Evrópuríkjum. Hins vegar er ljóst að þeir vilja gjama seilast til áhrifa, jafiivel breyta stöðu mála, til þess að ríki V-Evrópu verði Sovétríkjunum hliðholl í framtíðinni á svipaðan hátt og þau hafa verið Bandaríkjunum frá lokum annarrar heimsstyrjaldar. Um það stendur slagurinn í Evr- ópu í dag. Leiðtogar NATO-ríkja krefjast samstöðu og tala um styrk og viðhald jafnvægis til þess að eiga ekki á hættu að þurfa að mæta Sov- étmönnum við samningaborð þar sem þeir hafa yfirburðastöðu og geta knúið fram vilja sinn með litlum til- kostnaði. Þess vegna verður allt sem raskað getur samstöðu NATO-ríkja þeim þymir í augum. -HV Byg&t á samtölum við George W. Jaeg- er, aðstoðarframkvæmdastjóra stjórn- máladeildar NATO, embættismenn bandarísku utanríkisþjónustunnar og aðra aðila, íslcnska og erlenda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.