Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987. 9 Starfsmaður rannsóknarstofu skoðar greiningarprófanir. - Símamynd Reuter Reyna bóluefni gegn eyðni á næsta ári Austum'skt lvíjafyrirtæki skýrði frá því í gær að það væri nú tilbúið með frumgerð af bólueíhi sem kynni að veita vöm gegn eyðni og vonast væri til að tilraunir á mönnum gætu hafist á næsta ári. Talsmaður fyrirtækisins sagði í gær að simpansi, sem gefið var þetta bólu- efni, hefði reynst ónæmur fyrir eyðni- veimnni án þess að nokkrar hliðarverkanir hefðu komið í ljós. Rannsóknir á virkni bóluefnisins á dýr verður haldið áfram til þess að reyna að ákvarða hversu mikla vöm það veitir gegn eyðniveimnni. Vonast er til þess að klíniskar tilraunir með efnið á mönnum geti hafist í ársbyijun 1988. Bóluefnið hefur verið nefnt GP 160. Talsmaður austurríska fyrirtækisins sagði í gær að ef frekari tilraunir sýndu að hliðarverkanir í mönnum væm litlar eða engar mætti vonast til að bólusetningar á áhættuhópum gætu hafist síðari hluta næsta árs. Þeir sem fjalla um eyðni leggja þó áherslu á að ástæða sé til að fullyrða sem minnst í þessum efnum. Enn eigi eftir að leysa mörg vandamál sem hindrað geta að hægt verði að fram- leiða bóluefhi gegn eyðni. Þeir vilja því ekki tala um þetta nýja bóluefhi sem einhvers konar bjargvætt, en við- urkenna að það sé allavega stórt skref í rétta átt. A meðan einbeita vísindamenn í öðrum fyrirtækjum sér að því að finna nýjar, einfaldari og ömggari aðferðir til að greina eyðnismit. Leggja þeir áherslu á að þrátt fyrir fréttir af hugs- anlegum bóluefnum sé ömgg greining smits og það að fá fólk til að haga lífi sínu á þá vegu sem minnka möguleika á útbreiðslu þess enn besta vömin sem þekkt er gegn sjúkdómnum. Kirkjan valdamikil á Filippseyjum Jón Omnur HalldórssonXlV, Lundúnum; Þótt íbúum Filippseyja fjölgi í það minnsta um 120 þúsund í hverjum mánuði hefur ríkisstjórn Cory Aquino ákveðið að stjórnvöld skuli lítið eða ekkert gera til að spoma við fólks- fjölguninni af ótta við að styggja kaþólsku kirkjuna. Sterk tengsl eru á milli stjómarinnar í Manilla og íhaldssamra afla sem stýra kaþólsku kirkjunni í landinu. Án aðstoðar kirkjunnar hefði Aquino ekki komist til valda og til að tryggja framtíð sína verður ríkisstjórnin að reiða sig á stuðning kirkjunnar. Flestir em sammála um að stórkost- legir efnahagslegir og þjóðfélagslegir erfiðleikar séu stórum erfiðari við- fangs vegna örrar mannfjölgunar. Sérfræðingar alþjóðastofnana telja að áætlanir stjómarinnar um mann- Qölgun séu of lágar. Á Filippseyjum búa nú 57 milljónir manna. Ríkisstjóm Aquino erfði frá hinum brottrekna einræðisherra, Marcosi, vísi að aðgerðum sem dregið gætu úr mannfjölgun. Kirkjan sýndi þessari viðleitni Marcosar fúlla andstöðu og vann hann sér andúð sumra kirkjunn- armanna. Margir innan kirkjunnar vilja ganga svo langt að banna sölu á smokkum með lögum. Þrátt fyrir að flestir ráðherrar lands- ins séu hlynntir aðgerðum sem dregið gætu úr fólksfjölgun em fáir sem þora að hreyfa málinu af ótta við að vinna sér óhelgi kirkjunnar. Stærstur hluti Filippseyinga býr í þorpum og bæjum til sveita en gífurleg vandamál fólksfjölgunarinnar sjást ir manna hírast þar í hreysum og á best í höfðuborginni Manilla. Þúsund- götum úti. MR.SCHULTZ, PRE&ideint MARCOS was 10 AMERICA j PLEASE |Ie| p brimq \m TkiPyt Kirkjan á Filippseyjum vill stöðva aðgerðir þær sem Markos, fyrrum forseti landsins, hóf gegn mannfjölgun á eyjunum. Stuðningsmenn Markosar vilja hins vegar fá hann til baka. - simamynd Reuter Lii/ Jlui m->? inlknhvl s«tf< LÍbr ais f ióodlff .Axl' ir/ irL£ [jAsJ.iiiiti » Útlönd Uppreisnarmenn myrtu 11 bændur Lögreglan í Perú segir að skæmliðar vinstrimanna hafi myrt ellefú bændur vegna meintrar samvinnu bændanna við hersveitir ríkisstjómar landsins. Lögreglan segir að morðin hafi verið framin á föstudag af skæmliðum maóista sem að jafhaði ganga hart fram gegn smábændum sem neita þeim um samvinnu. Að sögn lögreglunnar frömdu maóistamir verknað þennan í vitna við- urvist, öðrum til viðvömnar, og lýstu þvi yfir að á þennan hátt myndu þeir ganga í skrokk á öllum svikurum við málstað alþýðu landsins. Ekki reyndist unnt að staðfesta fregn þessa. Skoðar franskan vopnabúnað Vamarmálaráðherra Persaflóaríkisins Qatar er um þessar mundir staddur í París þar sem hann skoðar franskan vopnabúnað og ræðir við frönsk stjómvöld um kaup á vígbúnaði fyrir hersveitir sínar. Fregnir bárust út í gær af því að vamarmálaráðherrann hygðist festa kaup á fjórum Mirage-2000 orrustuþotum frá Frökkum en þær fengust ekki staðfestar. Talsmaður framleiðanda Mirage-þotnanna sagði hins vegar í gær að vafasamt væri að svo lítil pöntun yrði afgreidd. Kaupa tíu stórar farþegaþotur Viðskiptanefnd frá Taiwan mun í næsta mánuði ganga frá kaupum á tíu stórum farþegaþotum frá Bandaríkjunum, alls að verðmæti um 2,3 milljarðar Bandaríkjadala. Em þotukaup þessi liður í þeirri viðleitni stjómvalda í Taiwan að minnka ójöfnuð í viðskiptum landanna tveggja, en í dag flytja Taiwanbúar mun meira út til Bandaríkjanna heldur en þeir kaupa frá þeim. Talsmaður stjómar Taiwan sagði í gær að fest yrðu kaup á sex Boeing 747 þotum, svo og fjórum öðrum þotum san ekki var sagt hverrar gerð- ar yrðu. Klrfraði yfir landamæragirðingu Liðlega tvítugur austurþýskur tæknifrasðingur fiúði í gær yfir til Bavar- iu í Vestur-Þýskalandi með því að festa klifúrbrodda á skó sína og klífa yfir þriggja metra háa landamæragirðingu milli þýsku ríkjanna tveggja. Sama dag ílúðu tveir Pólverjar yfir til V-Þýskalands með þvi að fljúga lítilli flugvél yfir jámtjaldið og lenda henni á v-þýskum herflugvelli. Þeir kváðust hafa verið svo óhamingjusamir í Póllandi að ekki heföi verið við unað lengur. Ekki er vitað hvort mennirnir muni biðja um hæli sem pólitískir flótta- menn. Eitraði fyrir matargestina Öánægð aðstoðarkona á kinverskum veitingastað eitraði fsrir nær tvö hundmð matargesti á vinnustað sínum vegna óánægju með nýja reglu- gerð en samkvæmt henni minnkuðu aukagreiðslur til hennar. Setti konan skordýi'aeitur 1 hrískökur gestanna sem flestir voru skólaböm. Bömin, ásamt þrem kennurum sínum og fjórum öðrum fúllorðnum, vom flutt á sjúkrahús þar sem þau em nú til meðferðar. Ekkert þeirra lét lífið. Aðstoðarstúlkan hefúr verið dregin fyrir rétt. Hún er ein af þúsundum kínverekra launþega sem nú verða að sætta sig við launalækkun vegna þess að stjómvöld reyna að stemma stigu við aukagreiðslum. Sextíu dmkknuðu í bflslysi Óttast er að að minnsta kosti sextiu manns hafi drukknað þegar yfir- fullur almenningsvagn ók út í síki í Punjab, einu af norðurfylkjum Indlands, i gær. Indverska fréttastofan sagði að líklega hefðu allt að áttatíu manns látið lífið í slysi þessu en þær tölur fengust ekki staðfestar. Almenningsvagninn, sem var troðfullur af fólki og hlaðinn farþegum á þaki og utan á hliðum, féll út af brú niður í tíu metra djúpt síki. Martin Sheen handtekinn Bandaríski kvikmyndaleikarinn Martin Sheen var í gær handtekinn, ásamt um tvö hundmð félögum sínum, vegna mótmæla gegn tilraunum Bandaríkjamanna með kjamorkuvígbúnað skammt frá tilraunasvæði þeirra í Novadafylki. Við mótmæli þessi kom til átaka milli þeirra sem mótfallnir em tilraununum og þeirra sem telja þær nauðsynlegar. Þeir sem handteknir vom em allir mótfallnir kjamorkutilraunum og er þeim gefið að sök að hafa farið um land sem þeim var ekki heimilt að ganga, um. Kínverjar alltaf of seinir Hundmð kínverska embættismanna, þar á meðal nokkrir mjög háttsett- ir, em að jafnaði allt of seinir til vinnu sinnar, að því er kínverska fréttastofan Nýja Kína sagði í gær. Rannsóknarfréttamenn stofúnnar fylgdust i síðasta mánuði með emb- ættismönnum nokkurra ráðuneyta í Peking og komust að þeirri niður- stöðu að starfslið þeirra kæmi seint til vinnu sinnar, bæði að morgni og eftir hádegisverðarhlé. Þeir sem kæmu á réttum tíma slóruðu ofl fyrir utan skrifstofúr sínar og fengju sér matarbita hjá götusölum. I fréttinni er tekið fram að meðal þeirra sem mæta illa og seint séu háttsettir embættismenn sem ekið er um í límósínum frá stjóminni. Fjarvistm og seinagangur eru talin mikil vandamál í skriffinnskukerfi Kína, þótt starfsmenn þess eigi í orði kveðnu að vinna sex fúlla vinnu- daga á viku. Samkvæmt tilskipun ríkisstjómar landsins var hádegisverðarhlé stytt árið 1985. Starfkmenn vom svo óánægðir með þá tilhögun að feila varð hana niður enda munu þeir vanir tveggja og hálfrar klukkustundar hádegishléum því nauðsynlegt sé að fá sér lúr eftir matinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.