Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987. Kvikmyndir Hápunktur spennunar. Stallone lætur vöðvana tala enn einu sinni, en tekst illa upp. Háskólabíó/Á toppinn: Slakur Stallone Over the top. Bandarisk frá Cannon Group Inc. Leikstjóri: Menaham Golan. Handrit: Stirling Silliphant Myndataka: David Gurfinkel. Aðalhlutverk: Sylvester Stallone, Robert Loggia, Susan Blakely, David Menden- hall, Rick Zumwalt, Chris McCarty og Terry Funk. Enn einu sinni er Sylvester Stall- one kominn á kreik og ekki er fjölbreytni í hlutverkavali frekar en endranær. Að þessu sinni leikur hann Lincoln Hawk, flutningabíl- stjóra á úr sér gengnum vörubíl, og hans helsta tómstundagaman er að fara í sjómann á þeim krám sem hann hann kemur við á leiðum sín- um yfir Bandaríkin. Myndin segir frá því þegar hann hittir 12 ára gamlan son sinn, Micha- el, í fyrsta skipti að tilstuðlan deyjandi barnsmóður sinnar. Sonur- inn er ofdekrað yfirstéttarbam sem hefur alist upp hjá forríkum móður- afa sínum og vill upphaflega ekki sjá foðurinn. Myndin fjallar síðan um hvemig samband þeirra feðga þróast og tilraunir afans til að stía þeim í sundur. Eins og við er að búast endar myndin í geysispenn- andi heimsmeistarakeppni í sjó- manni þar sem hryllilegustu tröll taka þátt auk Stallones, sem auðvit- að er hógværðin uppmáluð, en sigrar þó með yfirburðum. Og heitasta ósk sonarins upp frá því er að verða heimsmeistari í sjómanni.. .eins og pabbi! Ekki ýkja mikil frávik í söguþræði frá Rocky og Rambo. Ef það em ekki hnefaleikar eða heilt herlið, sem vinna þarf á þá, er það eitthvert kraftatröllið í sjómanni. Og há- punkturinn er í lokauppgjörið síðast í myndinni þar sem aðalsöguhetjan nær augnsambandi við ástvin sinn (í þessu tilfelli soninn þar sem hann stendur í þvögu meðal þúsunda áhorfenda). Við þetta fíleflist sögu- hetjan, enda þarf hann bráðnauð- synlega að berjast fyrir ást sonarins, nælir sér í heimsmeistaratitil og myndin endar í faðmlögum. Allt þetta gerist undir dúndrandi banda- rískri rokktónlist, að þessu sinni saminni af Giorgio Moroder sem m.a. samdi tónlist í kvikmyndinni „Stayin’ alive“ fyrir nokkrum árum með John Travolta í aðalhlutverki og bróður Stallones í aukahlutverki. Tókst Moroder betur upp með tón- listina þá en nú. Ef nokkur skyldi kannast við bandarísku kvikmyndina The Champ, sem sýnd var hér fyrir nokkrum árum með John Voight og Faye Dunaway í aðalhlutverkum, þá er söguþráðurinn ekki ósvipaður, en þessi er þó ólíkt flatari og fullvæmin á stundum. Stallone er fámáll að vanda en lætur vöðvana tala. Hlutverkið í heild er afturfór frá síðustu Rockymynd og mátti þó varla við því. Eina stjaman í þessari mynd er David Mendelhall sem leik- ur soninn unga og kemst vel frá því. -BTH fæst í blaðasölunni á járnbrautarstöðinni i i Kaupmannahöfn. VAIMIAR ÞKt... Garðslátt, ánamaðka, vélritun, gluggaskreytingu, þýðingar, túlk, forritun, tækifærisvísu, ráðgjöf, > hellulagnir, sölufólk, prófarkalestur, bókhald, parketlögn, málningu, saumaþjónustu, innheimtufólk, inn- og útflutningsþjónustu.. Hafðu samband. 62-33 88 Leikhús Útvaip - Sjónvarp Þjóðleikhúsið Leikför Þjóðleikhússins 1987 Hvar er hamarinn? Hnífsdal 18. júní. Bolungarvik 19. júní. Flateyri 20. júní. Þingeyri 21. júni. Bildudal 22. júní. Patreksfirði 23. júni. Króksfjarðarnesi 24. júní. Búðardal 25: júni. Stykkishólmi 26. júní. Grundarfirði 27. júni. Hellissandi 28. júni. Borgarnesi 29. júni. Akranesi 30. júní. 'hl Hirsdimann I Loftnet og loftnetskerfi. Það besta er aldrei of gott. Ávallt fyrirliggjandi fyrir allar rásir. Hirsihmann loftnet eru heimsþekkt gæðavaræ M Hirsthmann loftnet, betri mynd, . betri ending Heildsala, smásala. Sendum í póstkröfu. Reynsla sannar gæðin Leiðbeinum, fúslega við uppsetningu. Týsgötu 1 - simar 10450 og 20610. Þriðjudagur 16. júm Sjónvazp 18.30 Villi spæta og vinir hans. 22. þátt- ur. Bandarískur teiknimyndaflokkur. Þýðandi Ragnar Ölafsson. 18.55 Unglingarnir i hverfinu. Þriðji þáttur. Kanadískur myndaflokkur ,í þrettán þáttum. Hér eru á ferðinni gamlir kunn- ingjar, Krakkarnir í hverfinu, sem nú eru búnir að slíta barnsskónum og komnir i unglingaskóla. Þýðandi Gunnar Þorsteinsson. 19.25 Fréttaágrip á táknmáli. 19.30 Poppkorn. Umsjón: Guðmundur Bjarni fiarðarson, Ragnar Halldórsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Samsetn- ing: Jón Egill Bergþórsson. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Bergerac. Breskur sakamálamynda- flokkur í tíu þáttum. Fyrsti þáttur í nýrri syrpu um Bergerac rannsóknarlög- reglumann á Ermarsundseyjum. Þýðandi Trausti Júliusson. 21.35 Umræðuþáttur. Astand og horfur í íslenskum stjórnmálum. 22.30 Stál (Steel). Bandarlsk bíómynd frá 1979. Leikstjóri Steve Carver. Aðal- hlutverk: Lee Majors, Jennifer O'Neill, Art Carney og George Kennedy. Myndin er um þá kjarnakarla sem reisa háhýsi í stórborgum. Verktaki einn bíð- ur bana við vinnu sína en dóttir hans tekur þá við og leggur allt kapp á að Ijúka byggingu föður sins. Hún hefur barðsnúinn flokk stálsmiða sér við hlið en óvandaðir keppinautar gera þeim allt til bölvunar. Þýðandi Þórhallur Eyþórsson. 00.20 Dagskrárlok. Stöð 2 16.45 Hörkukvendi (Getting Physical). Átakanleg og persónuleg bandarisk sjónvarpsmynd frá árinu 1984. i aðal-1 hlutverkum eru Sandahl Bergman, Alexandra Paul og David Naughton. Leikstjóri er Steven Hilliard Stern. Kendall Gibley vinnur á ferðaskrifstofu auk þess sem hún þreifar fyrir sér sem leikari. Kvöld eitt verður hún fyrir árás á leið heim frá vinnu og er hún rænd. I reiði sinni og vanmætti tekur hún til sinna ráða. 18.20 Knattspyrna - SL mótið - 1. deild. Umsjónarmaður er Heimir Karlsson. 19.30 Fréttir. 20.00 Miklabraut. Bandarískur framhalds- þáttur með Michael Landon oy Victor French i aðalhlutverkum. Einfaldar dyggðir og jákvætt lífsviðhorf ein- kenna þennan þátt um engilinn á jörðu niðri og aðstoðarmann hans. 20.50 Bölvun bleika pardusins (Curse of the Pink Panther). Gamanmyndirnar um bleika pardusinn hafa hvarvetna notið mikillar hylli og er þessi frá 1983 sú sjöunda I röðinni. Með helstu hlut- verkfara David Niven, Robert Wagner, Herbert Lom og Joanna Lumley. Leik- stjóri er Blake Edwards. Þegar besta leynilögreglumanns Frakka, Jacques Clouseau, hefur verið leitað árangurs- laust í heilt ár létu sumir sér kannski detta í hug að ráða næstbesta lög- reglumanninn til að finna hann. En ekki lögregluforinginn Dreyfus, hon- um liggur ekkert á að finna helsta andstæðing sinn. Með aðstoð tölvu Interpol hefur hann upp á versta lög- reglumanni heims og ræður hann til verkefnisins. 22.35 Brottvikningin (Dismissal). Fimmti þáttur ástralsks framhaldsþáttar I sex hlutum. Árið 1975 varforsætisráðherra Ástraliu vikið frá störfum. Brottrekstur hans var upphaf mikilla umbrota I ástr- ölskum stjórnmálum. Aðalhlutverk: Max Phipps, John Stanton og John Meillon. 23.25 Lúxuslif (Lifestyles of the Rich and Famous). í þessari bandarisku þátta- röð er skyggnst á bak við tjöldin hjá hinum ríku og frægu. I þessum þætti veita Donald Sutherland, Ryan O'Neal og Jay Bernstein áhorfendum innsýn i líf allsnægtanna. 00.15 Öryggisvöröurinn (The Guardian). Bandarísk spennumynd frá 1984 með Martin Sheen, Louis Gosset jr. og Art- hur Hill I aðalhlutverkum. Leikstjóri er David Greene. Ibúar fjölbýlishúss i New York ákveða að stemma stigu við innbrotum og öðrum glæpum I hús- inu. Þeir ráða öryggisvörð til starfans og þykir hann standa sig vel þó að starfsaðferðir hans séu nokkuð harð- neskjulegar. Þó kemur að því að einn íbúanna fer að gruna að ekki sé allt með felldu og rannsakar fortið öryggis- varðarins. Þar kemur ýmislegt I Ijós sem er ekki við hæfi barna. 01.50 Dagskrárlok. Útvaxp rás I 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleik- ar. 13.30 í dagsins önn - Breytingaaldurinn, breyting til batnaðar. Umsjón: Helga Thorberg. 14.00 Miðdegissagan:„Franz Liszt, örlög hans og ástir" eftir Zolt von Hársány. Jóhann Gunnar Ólafsson þýddi. Ragnhildur Steingrímsdóttir les (3). 14.30 Operettutónlist. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Afrika - Móðir tveggja heima. Þriðji þáttur: Hlekkjuð heimsálfa. Umsjön: Jón Gunnar Grjetarsson. (Endurtekinn þáttur frá sunnudagskvöldi). 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.05 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. Tilkynningar. 17.05 Siödegistónleikar. a. „Carnival d'Aix", fantasia eftir Darius Milhaud. Michel Béroff leikur á píanó með Fil- harmoniusveitinni f Monte Carlo; Georges Prétre stjórnar. b. Sónata I Es-dúr op. 167 eftir Camille Saint- Saens. Wilfried Berk leikur á klarinettu. Elisabeth Seiz leikur á píanó. 17.40 Torgið. Umsjón: Einar Kristjánsson og Sverrir Gauti Diego. 18.00 Fréttir. Tilkynningar. 18.05 Torgið,' framhald. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endur- tekinn þáttur frá morgni sem Guð- mundur Sæmundsson flytur. 19.40 Glugginrt - Louisianasafnið i Dan- mörku. Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir. 20.00 Kínverskir hljómar. Hljómsveit kvik- myndaversins í Peking leikur þjóðlega tónlist I útvarpssal. Kynnir: Arnþór Helgason. 20.40 Málefni fatlaðra. Umsjón: Guðrún Ögmundsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá deginum áður). 21.10 Ljóðasöngur. Gerard Souzay syngur lög eftir Robert Schumann, Johannes Brahms og Richard Strauss. Dalton Baldwin leikur á píanó. 21.30 Útvarpssagan: „Leikur blær að laufi" eftir Guðmund L. Friðfinnsson. Höfundur les (12). 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Mynd af listamanni. Sigrún Björns- dóttir tekur saman þátt um Óskar Gíslason kvikmyndagerðarmann og ræðir við hann. (Áður útvarpað 15. febrúar sl.) 23.25 íslensk tónlist. Sunnukórinn á ísafirði syngur „Cantötu V" og „Mold og dagar" eftir Jónas Tómasson, auk íslenskra þjóðlaga I útsetningum Hjálmars H. Ragnarssonar. Stjórnandi er Jónas Tómasson en aðrir flytjendur eru María Maríusdóttir, Szymon Kuran, Einar Jóhannesson og Sigriður Ragnarsdóttir. Kynnir Sigurður Einars- son. 24.00 Fréttir. 0.10 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stef- ánsson. (Frá Akureyri). (Endurtekinn þáttur frá morgni). 1.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam- tengdum rásum til morguns. Útvarp rás II 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Á milli mála. Umsjón: Leifur Hauks- son, Guðrún Gunnarsdóttirog Gunnar Svanbergsson. 16.05 Hringiðan. Umsjón: Broddi Brodda- son og Erla B. Skúladóttir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Á grænu Ijósi. Umsjón: Kristján Sig- urjónsson. 22.05 Háttalag. Umsjón: Gunnar Salvars- son. 0.10 Næturvakt Útvarpsins. Gunnlaugur Sigfússon stendur vaktina til morguns. Fréttir eru sagðar klukkan 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00. Svæðisútvaxp Akuxeyxi 18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni - FM 96,5. Umsjón: Tóm- as Gunnarsson. AlfaFM 102,9 8.00 Morgunstund: Guðs orð og bæn. 8.15 Tónlist. 12.00 Hlé. 13.00 Tónlistarþáttur með lestri úr Ritning- unni. 16.00 Dagskrárlok. Bylgjan FM 98,9 7.00 Pétur Steinn og morgunbylgjan. Pétur kemur okkur réttum megin fram úr með tilheyrandi tónlist og lit- ur yfir blöðin. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 9.00 Valdis Gunnarsdóttir á léttum nót- um. Sumarpoppið allsráðandi, af- mæliskveðjur og spjall til hádegis. Litið inn hjá fjölskyldunni á Brávallagötu 92. Fréttir kl. 10.00 og 11.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.