Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987. Frjálst.óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð i lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Frjálshyggjan varir Raddir hafa heyrzt um, að svokölluð frjálshyggjubóla væri sprungin. Sumir segja, að kjósendur víða um heim hafi hafnað frjálshyggju. Þetta er einnig sagt um ís- land. Athygli beinist þessa síðustu daga að kosningaúr- slitum á Bretlandi og Italíu. Ef við skoðum þau úrslit og kosningar almennt að undanförnu, getum við ekki með sanni tekið undir, að tími frjálshyggju sé að líða. Hvað er frjálshyggja? I aðalatriðum er hún trú á, að frjáls markaðsbúskapur muni skila þjóðunum mestum tekjum. Lögð er áherzla á frelsi einstaklingsins og reynt að draga úr umsvifum hins opinbera. Sannarlega hafa Bretar ekki hafnað þessari stefnu í kosningunum nú. ítalir hafa heldur ekki gert það. Hið sama gildir um kjósendur víða um heim. Sókn frjálshyggju hin síðari ár birtist einkum þann- ig, að hægri flokkar viku, margir hverjir, frá miðjumoði og lögðu meiri þunga á stefnuna um frjálsan markað. En jafnframt gerðist annað. Helztu keppinautar hægri flokkanna, sósíaldemókratar og sósíalistar, tóku upp ýmis stefnumið frjálshyggjumanna. Töluverð breyting hefur orðið á flestum flokkum sósíaldemókrata. Þeir hafa víða skilið nokkru betur en áður, að öflug ríkis- forsjá og bákn leiða til stöðnunar. Þessir flokkar höfðu víða staðið fyrir mikilli fyrirgreiðslu við ákveðna hópa og svonefndum velferðarríkjum. En með hækkun olíu- verðs varð þetta æ þyngri baggi á ríkinu. Margir sósíaldemókratar, einnig hérlendis, vilja draga úr ríkis- afskiptum og leyfa meira frelsi á markaðnum. Enn merkilegra er, að í kommúnistaríkjunum hefur að und- anförnu gætt nokkurs skilnings á gildi markaðsfrelsis, þótt enn sé í litlu. Það gruggar þó vatnið, að margir hægri flokkar, svo ekki sé minnzt á sósíaldemókrata, daðra enn mikið við ríkisforsjá, þegar þeir hafa völdin. Þar kemur til til- hneiging stjórnmálamanna til þess að ráða sjálfir yfir sem mestum dúsum, sem þeir geti úthlutað gæðingum sínum. Þetta gildir mjög hérlendis. En þróunin hefur síðustu ár alls ekki verið fráhvarf frá miklu fylgi við frjálsan markaðsbúskap. Þvert á móti. Kjósendur hafa ekki hafnað frjálshyggju. Vissulega gerðu þeir það ekki í Bretlandi, heldur veittu Margréti Thateher öflugan stuðning. Skipti þá engu, þótt Verkamannaflokkurinn tæki sveigju til hægri fyrir kosningar til að reyna að stöðva sigurgöngu íhaldsflokksins. Kosningarnar á Ítalíu eru eitt helzta fréttaefnið í dag. Ekki er langt síðan varla gekk hnífurinn milli ít- alskra kommúnista og sósíalista. Þessir flokkar unnu víðast saman. Nú vinna sósíalistar kosningasigur. Þeir hafa síðustu ár fjarlægzt kommúnista og tekið upp stefnu með vaxandi áherzlu á einstaklingsframtak. Kommúnistum hefur mistekizt, einnig hinum stóra ít- alska kommúnistaflokki. Jafnvel þótt við lítum á úrslit síðustu kosninga hér heima, segja þau okkur ekkert um tap frjálshyggju. Að svo miklu leyti sem einhverjir flokkar hér hafa tekið upp einhverja frjálshyggju, gætir hennar nokkuð í Sjálf- stæðisflokknum. Hann tapaði að vísu, en margir helztu menn Borgaraflokksins hafa talizt fylgja frjálshyggju í nokkrum mæli. Auk þess færði Alþýðuflokkurinn sig nær slíkum sjónarmiðum fyrir kosningarnar. Sól sósíalismans hefur farið lækkandi. En við sjáum við athugun, að tiltrú á frjálsan markaðsbúskap hefur haldið sínu. Haukur Helgason Hægra megin við miðju Þessa dagana bendir margt til þess að stóra stundin sé að renna upp hjá Alþýðuflokknum. Jón Baldvin for- maður ætlar sér að skila flokknum inn í ríkisstjóm eftir nær 15 ára eyði- merkurgöngu utan stjórnar. Að vísu gengu kratar inn í vinstri stjórn haustið 1978, en sprengdu hana í loft upp að Benedikt Gröndal, þáver- andi formanni, fjarverandi haustið 1979. Þá átti að koma í staðinn „við- reisn“, þ.e. samstjórn með Sjálfstæð- isflokknum eins og 1959. Sá draumur komst þó ekki lengra en að mynduð var minnihlutastjóm kratanna í 4 mánuði í skjóli Sjálfstæðisflokksins. Vorið 1983 reyndu kratar aftur mik- ið til að komast í stjóm. Margir muna enn kröfu Kjartans Jóhanns- sonar, þáverandi formanns, um að fá að verða forsætisráðherra í þriggja flokka samstjóm eins og núna. Þá þurftu Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hins vegar ekki á Al- þýðuflokknum að halda og gáfu Kjartani langt nef. Staða Jóns Bald- vins er að. því leyti betri þessa dagana að nú vantar þriðja hjól undir vagninn. Samt bendir fátt til að það nægi Jóni til stjómarforystu. Þess í stað gerist Alþýðuflokkurinn nú bjarghringur íyrir Þorstein Páls- son og fyrrverandi ríkisstjóm. Uppskera af 200 fundum Jón Baldvin hefur ekki legið á liði sínu frá því hann steypti Kjartani Jóhannssyni af formannsstóli. Hann hefur þeyst um landið þvert og endi- langt á 200 fundi á þremur árum undir kjörorðunum „Hver á Is- landi?“ og „Brjótum múrinn" og nú síðast undir véfréttaauglýsingunni: „Hver talar á Austurvelli 17. júní?“. Á sama tíma hefur hann skrifað margar greinar hér í Dagblaðið und- ir kjörorðinu: „Vinstra megin við miðju“. Uppskera þessa ötula sáð- manns er að koma í ljós á þessum björtu vordögum: Þorsteinn Pálsson í forystu ríkisstjómar, Steingrímur Hermannsson honum til hægri handar við borðið og dyggur þjónn beggja, Jón Sigurðsson úr Þjóð- hagsstofnun, einn liprasti embættis- maður úr Kerfinu, tekur sæti hið næsta þeim í gervi fjármálaráðherra. Engum þurftu að koma á óvart kærleikamir með Jóni Baldvin og Þorsteini Pálssyni. Þeir sómst í fóst- bræðralag fyrir meira en ári að verða ekki viðskila að kosningum loknum. Eftir kosningaósigurinn þurfti Þor- steinn sannarlega á að halda vini í raun. Á hinu hefðu fáir átt von af Hannibalssyni að hann kostaði til heiðri sínum og sæmd og kjörorðum frá 200 fúndum og drægi Framsókn- armaddömuna að landi í leiðinni. „Þvílík saga finnst ekki í saman- lögðum antiquitatibus", svo vitnað sé í orð Jóns Marteinssonar í ís- landsklukkunni. Nennti ekki að hugsa til vinstri Jón Baldvin batt við það miklar vonir allt þangað til Borgaraflokk- urinn varð til að Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur næðu þingmeiri- hluta í kosningunum í vor. Þegar það brást var strax farið að litast um eftir varahjóli. Varla var búið að telja upp úr kjörkössunum þegar Jón Baldvin byrjaði að gera hosur sínar grænar fyrir Kvennalistanum og Alþýðubandalaginu og sárbiðja báða um að koma með sér í dans með íhaldinu. Á sama tíma lýsti hann Framsókn óalandi og óferjandi með þeim „árangri" að þurfa síðan að biðja Steingrím Hermannsson auðmjúklega afsökunar á stóryrðun- um. Kvennalistinn lét tilleiðast að prófa, en Alþýðubandalagið gaf Sjálfstæðisflokknum afsvar milli- liðalaust. Jón var hins vegar ekki á því að gefa sig, því að eftir að Þor- steinn Pálsson hafði gefist upp við „Ofan á allt þetta er svo erfðalögmálum Mendels snúið við, og eini íslendingurinn, sem örugglega hefur fæðst með forsætisráðherra í blóð- inu, er dæmdur óhæfur til annars en fjósverka á Framsóknarbúinu." KjaUariim Hjörleifur Guttormsson þingmaður fyrir Alþýðubandalagið sinni að hugsa um fjögurra flokka ríkisstjóm". Stjórnmálaforinginn, sem reynt hafði gagnvart kjósendum að stimpla sig inn „vintra megin við miðjú', sá nú enga glætu í þeirri átt. Dýr aðgöngumiði Alþýðuflokkurinn virðist reiðubú- inn að kaupa sig dým verði inn í þrotabú fyrrverandi stjómar. Ekkert af helstu kosningamálum flokksins ætlar að fá náð fyrir augum viðmæl- endanna og komast á blað í málefna- samningi nema í mesta lagi sem stílbrigði. Landbúnaðarstefnan verður áfram ómenguð frá Framsókn og Agli á Seljavöllum. „Lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn" var bara misskiln- ingur, sem ekki þarf einu sinni að fara í þjóðaratkvæði. Kaupleigu- íbúðir verða í besta falli fyrirsögn á „Stjórnmálaforinginn, sem reynt hafði gagnvart kjósendum að stimpla sig inn „vinstra megin við miðju“, sá nú enga glætu í þeirri átt.“ að mynda þriggja flokka stjórn kom Jón Baldvin í eins konar dulargervi og bað Alþýðubandalagið og Kvennalistann um að tala við sig um „samstjóm með þriðja aðila“, þ.e. Sjálfstæðisflokknum. Afhenti hann í leiðinni svökölluð „drög að málefnasamningi", sem augljóslega vom stíluð á íhaldið. Hvorki Al- þýðubandalagið né Kvennalistinn sáu ástæðu til að fara út í viðræður á þessum forsendum. Þingflokkur og framkvæmdastjóm Alþýðu- bandalagsins höfnuðu því 1. júní sl. að taka upp viðræður við Alþýðu- flokkinn með samstjóm við Sjálf- stæðisflokkinn fyrir augum. Eins og til að taka af öll tvímæli um það, til hvers refimir væm skornir, lýsti Jón Baldvin því samdægurs yfir í fjöl- miðlum að hann „nennti 'ekki einu blaði, enda aldrei hugsað til enda hvernig það dæmi ætti að ganga upp. Enginn skilur hvernig Jóhönnu varaformanni frá Örk dettur í hug að sækjast eftir ráðuneyti húsnæðis- mála með milljarðaloforðin á bakinu, nema þá fjármálaráðherra- efnið, Jón Sigurðsson, hafi lofað henni milljörðum í viðbót árlega úr ríkissjóði. Ofan á allt þetta er svo erfðalögmálum Mendels snúið við, og eini íslendingurinn, sem ömgg- lega hefur fæðst með forsætisráð- herra í blóðinu, er dæmdur óhæfúr til annars en fjósverka á Framsókn- arbúinu. Og það sem verra er: Það hafði gleymst að moka flórinn í gós- entíð þeirrar ríkisstjómar sem bundin hefur verið á bása í rösk fjög- ur ár. Hjörleifur Guttormsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.