Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987. 31 Sandkorn Búist er við að fljótlega birti til og hlýni nokkuð frá því sem nú er. Þó er ekki reiknað með því að sólin iáti sjá sig. Vindur mun haldast hæg- ur norðaustan eða aust- lægur. Flug ætti því að geta gcngið samkvæmt áætlun. Veðurspá Vestlirska (réttablaósins -engin venjuleg veóurspá. Veðurspáin á Ísafirði Flugið er snar þáttur í líFi Vestfirðinga og svo mikilvægt að Vestfirska fréttablaðið birtir veðurfréttir undir heit- inu „flugspá“. Bach er ekki aðvestan Á dögunum var mikil M- hátíð fyrir vestan, en þetta var menningarhátíð mikil og haldin að frumkvæði Sverris Hermannssonar menntamála- ráðherra. Fjölmargt var á dagskrá, bæði alvarlegs eðlis og af léttara taginu, og mest- allt að vestan eða tengt Vestfjörðum hinum traustari böndum. Sérstök nefnd safnaði liði og meðal annars var ungur fiðiuleikari, HjörleifurVals- son, beðinn að lofa heima- mönnum að sjá hvernig hantera á fiðluna. Tók Hjör- leifur því ekki illa og settist yfir fiðlukonsert eftir Jóþann Sebastían Bach. Þegarhann hafði þaulæft Bach mundi ein- hver eftir því að segja Hjörleifi að hann ætti að leika eitthvað eftir vestfirskt tónskáld. Það lá auðvitað fyrir að Bach væri ekki að vestan og því varð fiðluleikarinn að hætta við Þetta var því eins konar vest- firsk uppreisnartilraun í Sjálfstæðisflokknum. Uppreisnarmennirnir hafa nú verið kældir, að sögn Þor- steins Pálssonar, og þurfa ekki að gera sér miklar vonir um ráðherrastóla á vegum flokksins í bráð. Fá félagsfræöi- lega aöstoö Uppfinningamenn hafa ekki átt upp á pallborðið í þjóð- félaginu og fæstir hafa komið hugmyndum sínum í gagn, nema þá helst í útlöndum. Nú er að verða breyting á þessu og á meðan Albert Guðmunds- son var iðnaðarráðherra stóð hann fyrir einS konar upp- fmningastormi. Nú er Iðn- tæknistofnun að efla aðstoð sína við uppfmningamennina og hefur meðal annars verið ráðinn þangað sérstakur mað- ur til þess að annast ráðgjöf og aðstoð, svo og til þess að byggja upp gagnabanka varð- andi uppfinningarnar. Og uppfinningamennirnir ættu Sverrir og Matthias - uppreisnarmennirnir að vestan. að róast í framhaldi af þessu, því í starfið var ráðinn félags- fræðingur. Hann heitir Emil Thoroddsen og verður sem sé eins konar „safnaðarprestur'* íslenskra uppfinningamanna. Tekið á móti bömum í Keflavík Málefni Sjúkrahúss Kefia- víkur hafa dottið hér inn hvað eftir annað, enda hefur verið mikið íjör þar syðra síðustu mánuðina. Berast nú óstað- festar fregnir af því að kvikmyndagerðarmenn í leit að góðu söluefni þykist jafnvel hafa dottið niður á gullnámu. Muna menn þá eftir vinsælu efni í sjónvarpinu um sjúkra- húsið í Svartaskógi. Það getur því farið svo að skreiðarkóng- urinn Ólafur Björnsson komist innan tíðar á hvíta tjaldið í svo ólíku hlutverki og sem formaður stjórnar frægasta sjúkrahúss á íslandi. Frá því síðast hefur það gerst að hætt hefur verið við lokun á fæðingardeildinni í sumar en í staðinn á að loka skurðstofunni. þátttöku í menningarhátíð Vestfirðinga að þessu sinni. Sverrir meðvest- firskan hósta Slysfarirnar í Sjálfstæðis- flokknum í síðustu viku hafa auðvitað orðið ýmsum að um- ræðuefni, enda þótt sjálfstæð- ar skoðanir hafi nú verið bannaðar í þingflokknum og formaðurinn tilkynni að slík slys hendi ekki aftur. Stóra slysið var auðvitað harkaleg ádeila Sverris Hermannssonar menntamálaráðherra á for- manninn og flokkinn. En þess verður að gæta að rétt upp úr M-hátíðinni fyrirvestan fékk Sverrir leiðindi í hálsinn. Nú er Svemr þingmaður Austfirðinga en á hins vegar uppruna sinn að rekja vestur aðDjúpiogersemsagtfædd- ur og uppalinn Vestfirðingur. Hinn sjálfstæðisráðherrann, sem gagnrýndi formann flokksins, er Matthías Bjarna- son viðskipta- og samgöngu- ráðherra og er ekki minni Vestfirðingur en Sverrir. auk þess sem hann er þingmaður fyrir heimabyggðir sínar. Umsjón: Herbert Guömundsson ÚRVAL - JÚNÍHEFTIÐ ER KOMIÐ Á BLAÐSÖLUSTAÐI ÓTRÚLEGA GOTT LESTRAREFNI - ÞÚ VERÐUR AÐ LESA ÞAÐ! Meðal annars Úrvalsefnis má nefna þetta: Margvísleg andlit Audrey Anne Wilder Hér er rakin raunveruleg saga konu sem þjáöist af margklofnum per- sónuleika. i henni bjuggu margar gjörólíkar persónur og gerðu það að verkum að hegðun hennar var gjörsamlega óútreiknanleg. Rakin er sagan af því hvernig Audrey Anne fékk hjálp og lækningu. Másleikfimi þjalfar hjartað Másleikfimi (eróbik) dugar ekki bara til að draga úr hættu á hjarta- sjúkdómum heldur flýtir hún fyrir þvi að við þrennum upp hitaein- ingum i stað þess að hlaða þeim utan á okkur, eyðir eitri úr líkaman- um og þætir heilsuna almennt. Við fáum nánari útlistun á því hvað másleikfimi raunverulega er. i hafdjúpunum með Jacques Cousteau Frá þvi þessi heimskunni könnuð- ur undirdjúpanna hóf feril sinn sem liðsforingi í franska sjóhernum hefur hann sýnt milljónum manna veröld sem þeir hefðu aldrei kynnst ella. Hann hefur fundið upp fjöld- ann allan af búnaði til köfunar, einn eða í félagi við aðra, og aflað ómetanlegs fróðleiks um lifið i sjónum. Krabbamein er erfðafræðilegt Tilraunir til að afhjúpa íeyndardóm krabbameins hafa staðið yfir I ára- tugi en fyrst nú eru vonirnar um að hann verði skilinn og ráðinn að nálgast það að verða raun- hæfar. Allt er þetta I framhaldi af nýjum uppgötvunum irianna um erfðaeiginleika sem genin flytja frá kynslóð til kynslóðar. - Það er gott að lesa þetta núna til að vera betur undirbúinn að taka við frek- ari fréttum af genunum sem koma í næsta hefti Úrvals. Leyniformúla Coca Cola Lengi hafa menn velt vöngum yfir þvi hvernig sú leyniformúla sé er liggur til grundvallar bruggun hins sivinsæla drykkjar, Coca Cola. Þvi verða menn að halda áfram enn um sinn en nýlega kom í Ijós að fyrirtækið átti aðra formúlu sem kannski er engu siður heilladrjúg en uppskriftin að drykknum góða. Kötturinn sem dó úr ástarsorg „Mér fannst þessi flækingslæða úfin og fráhrindandi. En Proska féll fyrir henni. Hann varð bókstaf- lega bergnuminn. Hefur þú nokkurn tima séð augu i ástföngn- um ketti? Það hef ég. Og þar sem þetta var enginn annar en hinn óprúttni og lifsreyndi Proska var umbreytingin enn meira áberandi. Urval KAUPTU ÞAÐ Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ - NÚNA! LAUSAR STÖEXJR HJÁ REYKJAVIKURBORG Starfsfólk óskast í heimilishjálp. Heilsdags- eða hluta- störf. Einnig unnið í smá hópum. Hentugt fyrir húsmæður og skólafólk. Upplýsingar í síma 18800. Heimilisþjónustan. Tillögur í samkeppni um ráðhús Reykjavíkur eru sýnd- ar í anddyri Borgarleikhúss dag hvern frá kl. 14.00- 22.00. Sýningunni lýkur sunnudaginn 21. júní. Borgarstjórinn í Reykjavík. LÖGTÖK Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengum úrskurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrir- vara á kostnað gjaldenda, en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu auglýsingar þessárar fyrir eftirtöldum gjöldum: Söluskatti fyrir júlí-des. 1986, og jan., febr. og mars 1987, svo og söluskattshækkunum, álögðum 1. okt. 1986 til 12. júní 1987; vörugjaldi af innlendri fram- leiðslu fyrir júlí-des. 1986 og jan„ febr. og mars 1987; mælagjaldi af dísilbifreiðum, gjaldföllnu 11. sept. 1986 og 11. febr. og 11. júní 1987; skemmtanaskatti fyrir júlí-des. 1986 og jan., febr., mars og apríl 1987; iaunaskatti, gjaldföllnum 1985; skipulagsgjaldi af ný- byggingúm, gjaldföllnu 1986, svo og aðflutnings- gjöldum, gjaldföllnum 1986. Reykjavík 12. júní 1987 Borgarfógetaembættið í Reykjavík. FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU: LAUSAR STÖÐUR VIÐ FRAMHALDSSKÓLA: Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöóur við eftirtalda framhaldsskóla framlengist til 22. júní: Við Menntaskólann á Akureyri, kennarastöður í þýsku, líffræði/efnafræði, ein staða, og ein staða í sögu og íslensku. Menntaskólann á Egilsstöðum, kennarastöður í frönsku, stærðfræði og tölvufræði. Menntaskólann við Hamrahlíð, kennarastöður i efna- fræði og tölvufræði. Menntaskólann við Sund, kennarastöður í stærðfræði og tölvufræði. Flensborgarskóla í Hafnarfirði, kennarastöður í dönsku, félagsfræöi, vélritun, viðskiptagreinum, þar á meðal bókfærslu, stærðfræði og eðlisfræði. Fjölbrautaskólann í Breiðholti, kennarastöður í eðlis- fræði, efnafræði, vélritun og almennum viðskiptafræð- um. Einnig hálf kennarastaða í félagsfræðum. Fjölbrautaskólann í Garðabæ, kennarastöður í við- skiptagreinum. Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki, kennarastöður í ís- lensku, stærðfræði og sérgreinum tréiðna. Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, kennarastöður í íslensku, ensku, eðlisfræði, stærðfræðigreinum, tölvufræði. Einnig hlutastarf í félagsfræði, líffræði, heilsugæslugreinum, lögfræði og tónmennt. Við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, kennara- stöður í ensku, dönsku, líffræði, efnafræði, eðlisfræði, verslunargreinum, rafmagnsfræði, málmsmíði, sér- greinum vélstjórnarbrautar, þýsku, stærðfræði og félagsfræði. Við Iðnskólann í Reykjavík, kennarastöður í hársnyrti- greinum, offsetprentun, offsetskeytingu, rafiðnagrein- um og tölvugreinum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.