Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNl 1987. 7 Atvinnumál Gisli Gunnarsson merkir fyrirtæki sinu fyrstu kassana sem seldir voru á fiskmarkaðnum í Hafnarfirði. DV-mynd KAE „Alvegfrabært“ - sagði Gísli Gunnarsson, fyrsti kaupandinn á fiskmarkaðnum „Það er hreint út sagt frábært að fá fiskmarkað og ég er ánægður með það_ verð sem ég fékk þessa 100 kassa á. Ég ætla að kaupa aðra 100 kassa til viðbótar en það er einmitt það magn sem við þurfum fyrir þriðjudags- og fimmtudagsvinnsluna hjá okkui'," sagði Gísli Gunnarsson, annar tveggja eigenda hraðfrystistöðvarinnar Sjáv- arfiskur hf. í Hafnarfirði, sem hreppti 100 fyrstu kassana á uppboðinu í gær. Gísli sagði að Sjávarfiskur hf. hefði keypt mest af trillunum undanfarið en yfir vetrarvertíðina af þeim bátum þar sem fisk hefði verið að fá. Hann benti á að þetta verð, sem hann bauð í fisk- inn, 33,60 krónur fyrir kílóið, væri nærri gamla verðlagsráðsverðinu. Samkvæmt því hefði hann orðið að greiða 3Ö,6Ö krónur fyrir 'kílóið og að auki 10% kassauppbót og þess væru dæmi að greiða þyrfti löndunargjald. Gísli sagðist eiga von á því að verð- ið hækkaði ef fiskurinn væri stærðar- flokkaður en þetta væri sanngjamt verð fyrir blandaðan fisk. Hann sagði að í mörgum tilfellum þyrfti að greiða trillukörlunum mun hærra verð fyrir fiskinn en þetta, einkanlega ef lítið bærist af fiski og þá yrðu menn að taka allar tegundir. Gísli var mjög umsetinn fjölmiðla- fólki vegna þess að hann var fyrsti kaupandinn á markaðnum og sagði hann þegar mest gekk á: „Ég hefði sleppt því að kaupa þessa hundrað kassa ef ég hefði vitað þessi ósköp fyrirfram." -S.dór Uppboð alla virka daga þegar fisk er að fá - sagði Einar Sveinsson, forstjóri fískmarkaðarins í Hafnarfírði Einar Sveinsson, forstjóri fiskmark- aðarins f Hafnarfirði, stjómaði sjálfur fyrsta uppboðinu og gerði það af rögg- semi, líkt og hann væri þessu alvanur. Mikið mæddi á uppboðshaldaranum að fylgjast með spjöldum á lofti meðan boðin stóðu yfir. Einar sagði í samtali við tíðinda- mann DV að fyrsta uppboðið hefði gengið svipað og hann hefði átt von á. Hann sagðist líka vera ánægður með verðið sem fékkst fyrir fiskinn, miðað við aðstæður. „Ég held að við megum bara vel við una, bæði hvað márgir komu að bjóða í og eins það verð sem menn em tilbún- ir að greiða. Við megum ekki gleyma því að mikið barst af fiski fyrir helgina og á miðvikudaginn er frídagur. Þetta lofar því vissulega góðu,“ sagði Einar. Hann var spurður hvemig starfsem- inni yrði háttað í framtíðinni. Hann sagði fyrirhugað að vera með uppboð alla virka daga, jafrivel á laugardögum líka ef nóg bærist að af fiski. „Ég á von á því að yfir vetrarvertíð- ina bjóðum við upp tvisvar á dag þegar aflinn er mestur. En á meðan aðeins eitt uppboð verður á dag höfum við hugsað okkur að það fari fram síðdeg- is en það verður bara að koma í ljós hvemig best verður að hafa þetta," sagði Éinar Sveinsson forstjóri. -S.dór Einar Sveinsson med köflótta uppboöshúfu gerir upp dæmiö við einn kaupandann á markaðnum i gær. Pétur sjómaður Sigurðsson, fyrrum alþingismaður, ásamt utanrikisráð- herra, Matthíasi Á. Mathiesen, á fiskmarkaðnum i gær. DV-mynd KAE Nýkomin til landsins! POLflRIS fjórhjól Ótvíræður sigurvegari samkvæmt prófun Nýtt Polarisumboð í Reykjavík: Inter rent/Bílaleiga Akureyrar Skeifunni 9 - Símar 31615 og 31815. Sala - Viðgerðir - Varahlutir en önnur - afteins 205 kg - 22 hö. Algjörlega sjálfskipt Hátt og lágt drif með 100% læsingu á öllum hjólum Læsist sjálfkrafa í framdrifi þegar þörf krefur Vökvabremsur á öllum hjólurn • 6" fjöðrun á öllum hjólum Allar gerðir fyrirliggjandi Komið og fáið bæklinga Einkaumbob á íslandi Hjólbarðaþjónustan Hvannavöllum Ub, Akureyri simi 96-22840 Aðeins kr. • 185 þúsund Góðir greiðsluskilmálar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.