Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988. Fréttir__________________________________________________________________________________dv lceland Seafood Corporation: Þolinmæði Long John Silver var á þrotum Ólafiir Amarson, DV, Harrísburg: DV hefur fyrir því áreiðanlegar heimildir að flótti hafi verið brostinn í lið starfsmanna Iceland Seafood Corporation undanfarnar vikur og mánuði. Margir starfsmenn fyrir- tækisins, sem DV ræddi við í gær, lýstu því yfir við DV að þeir heíðu alvarlega verið famir að íhuga að hverfa til starfa annars staöar. Ástæðan, sem starfsmenn gáfu upp, var að andrúmsloftið í fyrirtækinu, undir stjórn Eysteins Helgasonar og Geirs Magnússonar, hafi verið orðið þrúgandi og niðurdrepandi. Einnig munu samskipti við stærstu viðskiptavini fyrirtækisins hafa ver- ið orðin mjög stirð og aö sögn ýmissa heimildarmanna innan Iceland Sea- food, mun þolinmæði forráðamanna Long John Silver, sem er stærsti við- skiptavinur fyrirtækisins, á þrotum vegna samstarfsörðugleika við Ey- stein Helgason. Það kom á óvart að á blaðamannafundi í Reykjavík á mánudag hélt Eysteinn Helgason því fram að hann hefði ekki frétt af brott- rekstri sínum fyrr en hann var stöðvaður við hlið Iceland Seafood á fimmtudagsmorgun. Mjög áreiðan- legir heimildarmenn DV innan Iceland Seafood hafa hins vegar tjáð DV að þeim sé kunnugt um að Ey- steinn, sem var á ferðalagi er stjórn Iceland Seafood ákvað að reka hann á miðvikudag fyrir viku, hafi frétt af brottrekstrinum þegar hann var staddur í höfuðstöðvum Long John Silver eftir hádegi sama dag og á- kvörðunin var tekin. Sömu héimildir herma að þegar Eysteinn var stööv- aður í hliðinu hafi samstundis verið haft samráð við lögfræðing fyrirtæk- isins sem var á staðnum. Hann fyrirskipaði strax að Eysteini skyldi hleypt inn og þar var haft eftirlit með þvi þegar hann tók til sína hluti á skrifstofu sinni. Þetta þykir sjálfsögð varúðarráðstöfun og er höfð til að tryggja að menn, sem hafa verið reknir, taki ekki skjöl sem tilheyra fyrirtækinu á brott með sér. Nú hefur komið fram að endur- skoðendafyrirtæki Iceland Seafood, Laventol & Harward, hefur staðfest að Guðjón B. Ólafsson hafi ekki feng- ið hærri laun en um var samið þegar hann var forstjóri Iceland Seafood. Ýmsir háttsettir starfsmenn Iceland Seafood tjáöu DV í gær að maður með þá hæfileika og reynslu sem Guðjón hefur til að bera hefði auð- veldlega getað ráöið sig til annarra fyrirtækja í Bandaríkjunum og feng- ið margfold laun miðað við það sem hann hafði sem forstjóri Iceland Sea- food. Heimildarménn skýrðu DV einnig frá því að á meðan Guðjón var for- stjóri Iceland Seafood hafi birgðir fyrirtækisins alltaf verið bókfærðar á lægsta verði eins og kveður á í bandarískum lögum, jafnvel þó það hafi þýtt að afkoma fyrirtækisins liti ekki eins vel út og ef birgðir væru reiknaðar á hærra verði. Hins vegar hefði sú breyting oröið á á síðasta ári að birgðirnar hefðu verið bók- færðar á kaupverði þó markaðsverð hafi verið mun teegra. Þessi aðferð gefur ranga mynd af afkomu fyrir- tækisins á árinu; auk þess sem bandarískar reglur um uppgjör banna slíkt athæfi. Lögreglumenn við vettvangsrannsókn þar sem drengurinn var stunginn. DV-mynd S Unglingspiltur stunginn með hnrfi í gærkvöldi Launamál Guðjóns B. Ölafssonar: Guðjón vill ekki gefa upp laun sín - Eriendur segir þau hafa numið 1,1 milljón á mánuði Ólafiir Amarson, DV, Harrisburg: Fellur kaupleigu- frumvarpið Kaupleigufrumvarp Jóhönnu Sig- urðardóttur félagsmálaráðherra fékk mikla umrvðu á Alþingi 1 gær þegar það kom til fyrstu umræðu. Geir H. Haarde, sem sæti hefur átt í nefnd stjórnarflokkanna um kaup- leigufrumvarpið, gagnrýndi harð- lega málsmeðferð félagsmálaráð- herra. Taldi hann ráðherra ekki gera sér grein fyrir því að hún væri í stjórnarsamstarfi og taldi bókun hennar í ríkisstjórn á mánudaginn vegna efnahagsráðstafana ríkis- stjórnarinnar sýna það. Geir átaldi að þingílokkar stjórnarflokkanna hefðu ekki fengið að sjá frumvarfiið áður en það var lagt fram. Geir sagði að hann fyrir sitt leyti hefði samykkt frumvarpið en ófært hefði verið aö fá ekki að sjá það eins og þaö leit út í endanlegri afgreiöslu til aö gera athugasemdir. Alexander Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, hefur gagnrýnt þetta frumvarp Jóhönnu mjög og engin breyting varð á því í gær. Alex- ander sagöi aö þingflokkur fram- sóknarmanna gæti ekki stutt frumvarpið sem stjórnarfrumvarp fyrr en það hefði verið endanlega samþykkt í ríkisstjórninni. Sagði Alexander að þingmenn Framsóknar væru ekki skuldþundnir til að styðja þetta frumvarp eins og það liggur fyrir núna. Gagnrýndi Alexander sérstaklega aðferð félagsmálaráðherra við að leggja frumvarpið fram. Sagði Alex- ander félagsmálaráðherra hafa beitt vinnubrögðum sem ekki væri hægt annað en að mótmæla. Það er því greinilegt að þetta frum- varp Jóhönnu mun eiga eríiða leið í gegnum þing og ýjaði Alexander að því að hann myndi hugsanlega leggja fram nýtt frumvarp um kaupleigu- íbúðir innan verkamannabústaða- keriisins. Þá þykir frumvarpið ílókiö og kvörtuðu þau Kristín Einarsdótt- ir, Kvennalista, og formaður þing- tlokks framsóknarmanna, Páll Pétursson, yfir því. Efnislega sagði Alexander að kaup- leigufrumvarp Jóhönnu tæki ekki á aðalvandamálinu - því að þaö vantar meiri peninga inn t húsnæðiskerfið. Eins og kaupleigukerfið lægi núna fyrir kæmi það aðeins þeim efna- meiri til hagsbóta. Það er því ljóst að þetta frumvarp mun eiga erfitt uppdráttar, aðeins virðst vera eining um það innan flokks félagsmálaráðherra. Páll Pét- ursson sagði að þetta væri kosninga- mál alþýðuflokksmanna, því væri þetta mál knúið í gegn núna. Jó- hanna lét að því liggja að betra væri að ræða viö stjómarandstæðinga um húsnæðismál en stjómarsinna. Má því vera að hún ætli sér einhven stuöning þaöan þegar máliö kemur til afgreiðslu. -SMJ Til átaka kom á milli tveggja ungl- ingsdrengja í söluturni á Vesturgötu í gærkvöldi. Annar drengjanna stakk hinn með hnífi og særðist drengur- inn talsvert. Mikið blæddi úr sárinu. Drengurinn var fluttur á slysadeild Siguxsteiim Melsted, DV, Bieiðdalsvik: í fyrrinótt voru á ferð hér óskemmtilegir gestir, þrjú ung- menni, tveir pilar og ein stúlka, á bíl sem þau höfðu stolið. Hann var með Reykjavíkurnúmeri. Þau tóku fjóra bíla traustataki og brutust inn í bens- ínstöð þar sem þau tóku ýmislegt smálegt. Brá eigendum hinna stolnu bíla heldur betur í brún þegar þeir komu út í g'ærmorgun ög farartæki þeirra vora ekki á sínum stað. Einn fann sinn bíl inn við flugvöll og fólk- ið sofandi í honum en þangað er ekki hægt að komast nema fara í gegnum þorpið. Þau komu í fyrrakvöld í þorp- ið á stolinni Lödu sport og fóru síðan á báðum bílunum inn á dal. Þar óku til aðgerðar. Drengimir voru báðir undir áhrif- um áfengis. Sá sem beitti hnífnum gaf sig fram við lögreglu. Rannsókn- arlögregla ríkisins hefur málið til meðferöar. -sme þau út af við Asrúnarstaði og festu annan bílinn úti í mýri. Þar reyndu þau að stela bíl en tókst ekki, fóra þá á næsta bæ og tóku þar pickup bíl og fóra á honum út í þorp aftur. Þar tóku þau traustataki jeppa sem skemmdist töluvert þegar hann var settur í gang. Síðan lá leiðin inn allan dal og upp á Breiðdalsheiði en hún er lokuð. Á leiðinni óku þau niður flestar vegstikur og keyrðu á fólksbíl sem stóö við veginn, ýttu honum langa leið eftir veginum og Utan í girðingu og er sá bíll mikiö skemmd- ur og hinn töluvert. Bílinn, sem þau' komu upphaflega á, eyðilögðu þau áður en þau yfirgáfu hann - brutu allt sem hægt var að bijóta. Fólkiö er nú í vörslu lögreglunnar. Guöjón B. Ólafsson, forstjóri Sam- bandsins, sagði í samtali við DV í gærkvöldi að hann teldi nú tíma til kominn að láta staðar numið í því fjölmiðlafári sem undanfarna daga hefur umleikið hann vegna brott- rekstrar Eysteins Helgasonar og Geirs Magnússonar og einnig vegna ásakana Erlends Einarssonar um að Guðjón hefði þegið hærri laun en um var samið sem forstjóri Iceland Sea- food Corporation. Aðspurður vildi Guðjón ekkert tjá sig um yfiriýsingar Erlends Einars- sonar frá því í gær um að Guðjón hefði haft jafngildi 1,1 milljónar króna í mánaðartekjur er hann var forstjóri Iceland Seafood. Guðjón sagði að sér þætti miður að þetta mál í Iceland Seafood hefði verið blásið út í fjölmiðlum. Guðjón sagði að það væri eðlilegt í Banda- ríkjunum að þessi háttur væri hafður á við mannaskipti í fyrirtækj- um, sérstaklega þegar um yfirmenn væri að ræða. Hann sagði að þegar hann tók við fyrirtækinu 1975 hefði hann þurft að reka þónokkra menn og þá hefði ekkert veður verið gert út af því. Guðjón sagði að það hefði verið sér óljúft að taka þátt í þessum fjölmiðla- æsingi en að sú staöa hefði verið komin upp að hann hefði verið knú- inn til að skýra frá hlutunum til að leiðrétta ýmsar rangtúlkanir og gróusögur sem komnar hefðu verið á kreik. Hann sagðist telja þennan söguburð lítt til sóma þeim mönnum sem staðið hefðu þar að baki. Gísli Jónatansson: Skýrsla endur- skoðandans er ekki neitt neitt „Ég er alveg sannfæröur um að Guðjón B. Ólafsson á mikla sök á þeim samstarfsörðugleikum sem hafa verið innan Iceland Seafood Corporation í Harrisburg, ef þéir þá hafa verið nokkrir. Hann hefur rægt þá Eystein og Geir hvar sem hann hefur komið því við í marga mánuði. Hann hefur líka verið aö róa í starfsfólkinu og skapa þannig óánægju," sagði Gísli Jónatansson, kaupfélagsstjóri á Fáskrúðsfirði og stjórnarmaöur í Iceland Seafood, í morgun. „Þá finnst mér fúröulegt að menn skuli telja að þessi skýrsla banda- rísku endurskoðendana skuii vera álitin einhver hvitþvottur á Guö- jóni. Hún er ekki neitt neitt. Endurskoðandinn sagðist ekki hafa nein fylgiskjöl yfir þann kostnaö sem hann hefði greitt. Hann gat einungis lagt fram ein- hvetja áætlun, sem eílaust er komin frá Guöjóni. Ef útreikningar Erlends hefðu verið á annan hátt má allt eins búast við að teikning endurskoðandans hefði orðið það einnig. Mér finnst menn því taka full- stórt upp í sig í þessu máli. Ég vona að sjálfsögðu það besta og er ekki að segja aö um misferli hafi veriö að ræða en menn skyldu bíöa eftir niöurstöðum óvilhalls aðila, Geirs Geirssonar, áöur en þeir hvitþvo nokkum mann.“ -gse Ungmenni á stolnum bfl í Breiðdal: Fóru hamförum um dalinn og eyði- lögðu fjóra bða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.