Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988. 17 dv Lesendur NÚ KR. ENGIR TVEIR POKAR EINS \ / Hi^ ÍSLENSKAR GETRAUNIR V III I þróttamiöstööinni v/Sigtún ■ 104 Reykjavik ■ island • Sími 84590 GETRAUNAVINNINGAR! 26. LEIKVIKA 27. FEBRÚAR 1988 VINNINGSRÖÐ 11 2-1 22-2XX-1 22 1. VINNINGUR: 12 RÉTTIR, KR. 3.524.410 237884 (11/11).+ 2. VINNINGUR, 11 RÉTTIR, KR. 38.048 42358 43880 95183 127084 T01460+ 42598+ 46340' 97659 227428+ * = 2/11 Kærufrestur er til mánudagsins 21.03.88 kl. 12.00 á hádegi. PÓSTSENDUM J^annprbaberðluntn €rla Snorrabraut 44, sími 14290 LUKKUPOKAR VERDMÆTI KR. 3.000,- Einstæðar mæður og „skattfríðindin“ H.G. skrifar: Núna hefur fjármálaráðherra, J. B.H., tilkynnt einstaeðum mæðrum hvað hann sé þeim góður. Hann ictli að frfa þær við að þurfa að greiða skatt af meðlögunum! Að vonum verða einstæðar mæður al- veg himinlifandi. En sá góði maður er nú ekkert að „gefa“ þessa pen- inga því hann hugsar bara eins og Steingrímur Hermannsson eftir klandrið með grjónagrauthm; viö látum bara pabbana borga. - Og þar með fauk næst síðasta opinbera viöurkenningm um foreldratign forræðislausra feðra. Þannig eru blessuð gæðin. Böm- in, sem málið snýst um, standa alveg í sömu sporum, móðirin hef- ur örlítiö meira peningavald, en faðirinn að sama skapi minna. Bömin fá ekki krónu. Eför gamla kerfinu ætti faöirinn að borga 920 kr. í skatt af hveiju meðlagi en þess í stað verða þaö 1.840 kr. Einhverjum þætti þetta ekki mik- ið. en ef þessi upphæð er margfól- duð með íjórum er þetta bara töluvert, eða kr. 7.360. Persónulega myndi ég miklu fremur vfija sjá þessa peninga fijá mæörunum en í ríkiskassanum. Þá er komið að því að ég geri ör- litla grein fyrir mínum málum. Ég á fjögur böm úr tveimur mls- heppnuðum hjónaböndum og er því greiðandi aö fjórum meðlögum, samtalskr. 20.900 á mánuði, og með þessari skattheimtu eru þetta orðn- ar 28.260 kr. á mánuði. Ef við berum svo saman laun verkamanna hjá Eimskip, sem eru 32.000 kr. í dag- vinnu, sem því miður era nokkuð algeng laun, sér hver maður aö þaraa er vcrið að innheimta hjá mér rétt tæp mánaðarlaun. Málilutningur Félags einstæðra foreldra hefur oftast verið einhliða og á þá leið, að allir meðlagsgreið- endur hafi það svo gott, þar sem meðlögin séu svo lág, og einhvem veginn hefur þeim tekist aö kjafta sig inn á alþingismenn og ráðherra, þannig að alltaf skal reynt að bæta hag mæðra með aukinni innheimtu frá feðranum. Og núna eigum við að fara aö borga skattana fyrir þær líka. Ef heldur fram sem horfir verður það næst að við eigum að gefa þeim þriggja vikna frí og borga fyrir þær til sólarlanda svo að þær geti end- umærst til nýrra stórátaka og' finna nýja leið til að ná dýpra í vasa okkar. Það er einnig önnur hlið á þessu. máli sem alltof sjaldan kemur fram og þaö er þegar meðlagsgreiðandi finnur verðuga, heiðarlega konu, giftir sig og eignast Qölskyldu. Þá eru allar svona ráöstafanir lirein ögrun viö þá fjölskyldu. En það er eins og öllum sé sama um þá hlið málsins. Sú kona, sem við þessar aðstæöur býr, virðist ekkert hafa um máliö að segja, hún verður að lifa og sætta sig við ofsóknir Félags einstæðra foreldra og ríkisvalds- ins. Ég get ekki annað en borið virð- ingu fyrir þessum konum sem standa með mönnum sínum í gegn- um þykkt og þunnt til að komast út úr þeim þrengingum. Ég tala nú ekki um er launaumslagið kemur tómt og búið er að innhemta mcð- lögin og skattana. Félag einstæðra foreldra hefur fengið til liðs við sig Félagsvísindadeild Háskólans til að sýna fram á stöðu sína til aö byggja málflutning sinn á og hampar þess- um niðurstöðum hvar sem er og framan í hvera sem er, hefur meira að segja látið birta niöurstöðurnar í fjölmiðlum til að afla sér samúöar almennings. Þær lugu kannski engu, en þær þögðu aftur á móti yfir hluta sannleikans, þ.e.a.s. hversu stór hópur það er sem er á vonarvöl og hvaö margar þeirra hefðu það bara ágætt! En það er mál að linni ofsóknum þessara kvenna og sendisveina þeirra. Ekki eru allir þingmenn og ráð- herrar sömu tækifærissinnarnir og Steingrímur og Jón Baldvin og langar mig til aö þakka Alexander Stefánssyni, fyrrv. félagsmálaráð- herra, fýrir kjark hans og þor við að útbúa viðauka við lög um drátt- arvexti á meölagsskuldir. Það þarf sterkan mann til að standa á móti þessari meðlagsglöðu samkundu. Ég man að þá þorðu ekki einu sinni meðlimir félagsmálanefndanna aö lyfia litla fingri af ótta. SAUÐÁRKRÓKUR Nýr umboðsmaður frá 1.0.88, Anna Kristjánsdóttir, Hólavegi 17, sími 95-5971 Óspektir og spellvirki ungmenna: Ólátafjorður? G.S.V. skrifar: Sem gamall Hafnfirðingur get ég ekki látið hjá líða að rita nokkrar lín- ur um óspektir ungmenna hér í bænum. Það virðist nú orðinn árviss atburður að ólæti brjótast út á þrett- ándakvöld. Lengi hefur maður leitt þetta hjá sér þar sem ég hef ekki komist í persónuleg kynni við skrfl- inn fyrr en síðasta þrettándakvöld. Þá þurfti ég aö bregða mér burt úr bænum og kom ekki tfl baka fyrr en snemma næsta morgun. Þegar ég ók heim að húsinu blasti við mér sjón sem ég mun seint gleyma. Öskutunn- an lá útflött í framgarðinum og ruslinu hafði verið tvístrað í allar áttir. Kótelettubeinum haföi verið dreift í grenitrén og mjólkurfemur, baunadósir og tóm smjörílát, ásamt öðrum tómum matarílátum, sem pakkað haföi veriö í fyrrverandi öskutunnu okkar, lágu ýmist um- hverfis húsið eða uppi á því. Matarleifamar sjálfar höfðu hins vegar fengið það hlutverk að prýða glugga húss míns til samræmis við garðinn. Kartöflum, roði og rauðkáli hafði verið haganlega smurt á gluggana. Ég ætla ekki að lýsa þeim aðferðum sem ég beitti við hrein- geminguna, það yrði of langt mál. Ég vil lýsa yfir hryggð minni vegna framferðis ungs fólks. Hins vegar áfellist ég ekki ungmennin heldur foreldra þeirra. Hafnfirskir foreldrar geta varla verið verri en aðrir íslend- ingar, hvað sem öllum bröndurum líöur. En þeir mættu hugsa meira um bömin sín í stað þess aö láta þau vaöa um bæinn rótandi í sorpi og vinnandi spellvirki á eigum annarra. Ég vona svo sannarlega' aö bót veröi ráöin á svo að framvegis geti maður sagt kinnroðalaust frá hafnfirsku sinni. 38 peru bekkir OPIÐFRÁKL. 10-10 VIRKA DAGA. 10-19 LAUGARDAGA. 13-19 SUNNUDAGA. SOLBADSSTOFA NÚATÚNI 17. SiMI 21116 PANTIÐ TÍMA 27 kæliviftur. Ík Bókamarkaðurinn er nokkuð árviss atburð- ur. í ár eru hátt á fimmta þúsund bóka- titlar á markaðnum og kennir þar ýmissa grasa enda koma þúsundir manna ár- lega á markaðinn. í Lífsstil á morgun er sagt í máli og mynd- um frá bókamarkaðn- um og því sem þar er að gerast. UHimflliL, . . Fyrir þremur árum var í tísku jjB að ganga í heimasaumuðum fatnaði. Uppselt var á öll saumanámskeið og biðlistar langir. í dag virðist áhuginn á saumaskap hafa dvínað og eru ástæðurnar I — V ' \ margvíslegar. DV leit inn á tvö sauma- námskeið og verður fjallað „.... wv-:gí 411 q 14'Æoz Ji . nánar um þessi efni í Lífsstíl á morgun. Nýverið hætti Feröa- skrifstofan Útsýn við fyrirhugaða ferð til Suður-Afríku vegna bréfs sem utanrikis- ráðherra ritaði ferða- skrifstofum. Það vekur hins vegar furðu að á sama tíma eru íslenskar mat- vöruverslanir fullar af ávöxtum frá Suður- Afriku. Neytendasíðan kannaði málið og verður sagt frá þvi í Lifsstíl á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.