Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988. Viðskipti ión Helgason hefur sett 190% gjald á innfluttar franskar Jón Helgason landbúriaöarráð- herra hefur sett 190 prósent jöfnun- argjald á innfluttar franskar kartöflur. Þetta gjald var áður 40 prósent. Tilgangurinn er að styrkja íslensku kartöfluverksmiðjurnar í Þykkvabæ og á Svalbaröseyri. Jöfn- unargjaldiö er hækkað á öllum kartöílum og vörum unnum úr þeim, eins og flögum, snakki og kartöflu- mús. Reiknað er með að gjaldið skili um 60 milljónum á ári, samkvæmt UDplýsingum Sveinbjarnar Eyjólfs- sonar, deildarstjóra í iandbúnaðar- ráðuneytinu, í gær. Þetta er ótrúlegt „Þetta er ótrúlegt af hálfu ráð- herra. Rikið ætlast til þess að almenningur og kaupmenn leggist á eitt um aö halda dýrtiðinni niöri en þetta er svo fordæmið sem fólkið fær Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 19 22 Lb.Sb. Ab Sparireikningar 3ja mán. uppsogn 20.5-25 Ab.Sb 6mán. uppsogn 21,5 27.5 Ab 12mán.uppsogn 23 30,5 Ab 18mán. uppsogn 32 Ib Tékkareikningar, alm. 8 12 Ab Sértékkareikningar 10 25 Ab Innlan verötryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsogn 3.5 4 Ab.Úb. Lb.Vb. Bb Innlán með sérkjörum 19 34 Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 5.75 7 Vb. Ab. Sb Sterlingspund 7.75 8.25 Úb Vestur-þýsk mork 2 3 Ab Danskar krónur 7.75-9 Vb.Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv-) 29,5 35 Sp Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 31 37 Sp Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(vfirdr.) 32.5 39 Sp Utlan verötryggö Skuldabréf 9,5-9.75 Allir nema Ub Útlán tilframleiðslu Isl. krónur 30.5 34 Lb.Bb SDR 7.75-8.25 Lb.Bb. Sb Bandarikjadalir 8.75 9.5 Lb.Bb. Sb.Sp Sterlingspund 11-11.5 Úb.Bb. Sb.Sp Vestur-þýskmork 5-5,75 Úb Húsnáeðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 51.6 4.3 á mán. MEÐALVEXTIR överðtr. fcb 88 36.4 Verðtr. feb. 88 9.5 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala feb. 1958 stig Byggingavisitala feb. 344 stig Byggingavisitala feb. 107.4stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1 . jan VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávoxtunarbréf 1.3927 Einingabréf 1 2.664 Einingabréf 2 1,551 Einingabréf 3 1.674 Fjolþjóðabréf 1.268 Gengisbréf 1.0295 Kjarabréf 2.660 Lifeyrisbréf 1.346 Markbréf 1,374 Sjóðsbréf 1 1.253 Sjóðsbréf 2 1.173 Tekjubréf 1.363 HLUTABRÉF Söluverö að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 130kr. Eimskip 384 kr. Flugleiðir 255 kr. Hampiöjan 138kr. Iðnaðarbankinn 155kr. Skagstrendingur hf. 189 kr. Verslunarbankinn 135 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 174kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um penjngamarkað- inn birtast f DV á fimmtudögum. hjá stjórnvöldum. Svo er að sjá að ríkið gangi á undan á öllum sviðum í hækkunum," segir Haukur Hjalta- son hjá Dreifingu sf., einum helsta innflytjanda franskra kartaflna. „Ég tel að heimild ráðherra til að hækka jöfnunargjaldiö með þessum hætti standist ekki. Heimildin er .veitt vegna þess að sagt er aö kart- öfluverð sé niðurgreitt erlendis. En svo er einfaldlega ekki og því er heimildin veitt ranglega," segir Haukur ennfremur. Jón Baldvin staðfesti frelsið i innflutningnum Stutt er síðan Jón Baldvin Hanni- bafsson fjármálaráðherra tók af allan vafa um að franskar kartöflur væru ekki leyfisvara heldur væri innflutningurinn frjáls en áhugi hef- ur verið á því meðal kartöflubænda að banna innflutning á frönskum kartöfium. Fyrir áramót lagðist 40 prósent toll- ur ofan á innkaupsverð franskra kartaflna. Þar ofan á kom vörugjald og síðan 40 prósent jöfnunargjald. Um áramótin var tollurinn lækkaður Jón Helgason hefur sett jöfnunar- gjaldið á franskar i 190 prósent. niður í 30 prósent og vörugjaldið fellt niður en jöfnunargjaldið var 40 pró- sent eins og áður. Það voru þessi síðastnefndu 40 prósent sem breytt- ust skyndilega í 190 prósent í gær. Tómas Tómasson, veitingamaður i Hard Rock. „Hefði kosíð annað,“ segir hann um hækkunina. Líst illa á þessa hækkun - segir Tómas Tómasson „Mér líst illa á þessa hækkun, hún þýðir að hækka þarf verð á frönskum kartöflum á veitingastööum og því taka neytendur að sjálfsögöu illa. Þess vegna hefði ég kosið að þessi hækkun hefði ekki átt sér stað,“ seg- ir Tómas Tómasson, veitingamaður í Hard Rock Café, um hækkun jöfn- unargjaldsins á innfluttar franskar kartöflur í 190 prósent. Tómas segir ennfremur að þvi mið- ur séu gæði íslensku frönsku kart- aflnanna ekki eins jöfn og innfluttra franskra. „Þess vegna velja veitinga- menn frekar innfluttar franskar kartöflur. Óstöðugleikinn er versti óvinur veitingamannsins." Að sögn Tómasar eru góðar ís- lenskar franskar kartöflur samt sem áður hreint lostæti og mjög vinsælar. „Og á vissan hátt skil ég sjónarmið innlendra framleiðenda. Það er verið aö reyna að koma í veg fyrir að fram- leiðsla á íslenskum frönskum kart- öflum stöðvist.” -JGH segir Haukur Hjaltason. Jöfnunargjaldið á innfluttum flög- um og snakki hækkaði einnig í gær. Það fór úr 40 prósentum í 100 pró- sent. Þetta er gert til aö hjálpa Þykkvabæjarverksmiðjunni í Garðabæ sem framleiðir flögur, skrúfur og fleira nasl sem auglýst hefur verið hressilega. Þá hækkaði ráðherra jöfnunar- gjaldið á kartöflumús. Músin bar áður 40 prósent jöfnunargjald en eft- ir gærdaginn 50 prósent jöfnunar- gjald. Peningarnir renna í ríkiskassann - En renna þessir auknu skattar til framleiðenda innanlands, til við- bótar við bætta samkeppnisaðstöðu? „Nei. Jöfnunargjaldinu er ætlað að styrkja samkeppnisstöðu innlendra framleiðenda. Peningarnir renna í ríkissjóð en það segir hvergi að þeir eigi að renna til framleiðendanna,“ segir Sveinbjörn Eyjólfsson í land- búnaðarráðuneytinu. -JGH Eggert hefur ekki keypt nýtt skip í stað Gísla Áma Eggert Gíslason, einn kunnasti skipsijóri landsins, hefur ekki keypt nýtt skip í stað loðnubátsins Gísla Árna sem hann seldi á dögun- um og kom mörgum á óvart. „Það veröur bara aö koma í ljós hvort ég kaupi nýtt skip, það er ekkert frágengiö í þeim efnum,“ segir Eg- gert. Um þaö hvers vegna hann hefði selt Gísla Árna sagöi Eggert aö margt heföi komið til, en erfitt hefði verið fyrir hann einan að reka skip- iö eftir aö Einar Árnason hætti með honum í rekstri skipsins fyrir rúm- um þremur árum. Það vár Fiskimjöl og lýsi í Grindavík sem keypti Gísla Árna. Framkvæmdastjóri þess fyrirtækis er Pétur Antonsson, en hann var áöur framkvæmdastjóri Krossa- nesverksmiðjunnar á Akureyri í nokkur ár. -JGH landsins. „Reksturinn var erfiður." Jón Baldvin Hannibalsson staðfesti nýlega að fullt frelsi væri til að flytja inn franskar kartöflur en kartöflu- bændur hafa viljað banna innflutn- ing þeirra. Verðið rúmlega tvöfaldast „Þetta þýðir að kílóið af innfluttum frönskum kartöflum, sem áður kost- aði um 75 krónur i heildsöluverði, fer í um 145 krónur við þessa hækkun,“ Verð landbúnaðarvara í Þýskalandi og á íslandi Kjúklingar 456 Smjör Rjómi Mjólk Ísland-Þýskaland. Island hefur vænan vinning í verði á landbúnaðarvörum. Um kíló er að ræða, nema í mjólkinni, þar er miðað við litra, og í rjomanum þar sem miðað er við hálfan lítra. Verð landbúnaðarvara er mun hærra á íslandi en í Þýskalandi. Þetta ér samkvæmt hinu þekkta riti um matvælaiðnaðinn í Þýskalandi, Deutsche Lebensmittel Zeitung. Mið- að er við heildsöluverö, það verð sem verslanir og hótel þurfa að kaupa vörurnar á. Vakin er athygli á að framleiðsluverðið er mun hærra vegna niðurgreiöslna sem bændur fá. Það er sérlega athyglisvert hvaö smjör og ijómi er miklu dýrara á íslandi en í Þýskalandi. Eins er mun- urinn mikill á kjúklingaverði. En lítum á meðfylgjandi súlurit. Grafík getur veriö sögu ríkari. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.