Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988. 13 Ég þoli ekki mánudaga. Höfundur: Martin Eimer. Þýöandi: Þórgunnur Skúladóttir. Útgelandi: Iðunn 1987. Ég þoli ekki mánudaga er gaman- söm unglingasaga eftir höfundinn Martin Elmer. A baksíðu segir að hún hafi fengið alþjóðleg verðlaun sem besta unglingabókin 1987. Ekki er tilgreint hvaða verðlaun þetta voru né heldur hvar eða hvenær bókin kom fyrst út. í spéspegli skólalíflð kemur kunnuglega fyrir sjónir þó að einnig þar sé glensið númer eitt. „Lífiö hefst þegar skólagöngu lýkur. En þá er þaö kannski um seinan.“ Þetta er veggjakrot sem Daníel hefur fundið upp. Þrátt fyrir endalaust mánu- dagsklandur og raunar klúður vikuna út oft á tíðum þá er Daníel hugsandi strákur og hér er blandað saman viö ofurlítilli alvöru og veruleikaskoðun, en sagan er stað- sett í Kaupmannahöfn að því ég best fæ séð. Á margan hátt minna efnistök höfundar og ýkjur á stíl Auðar Haralds. Tvö lítil dæmi: „Augun á Áka stækka um fjögur númer.“ (39) „Mér tekst að drusla Jesper með inn á salernið. Hann hrasar niður í daunillt niðurfallið og grenjar eins og stunginn grís. Ég verð að halda honum meðan hann sprænir ofan í annan skóinn minn.“ (69-70) Alls staðar þar sem tilefni gefast er raunveruleikinn skoðaður í spé-' spegli og hafa báðir höfundarnir sérstakt yndi af óhöppum og fárán- leika. Hér er á ferðinni skemmtileg bók, full af fjöri, frásagnargleði og viö- burðaríkri atburðarás. Það ætti því engum að leiðast við lestur hennar. Menning Bókmenntir Hildur Hermóðsdóttir Þýðingin er góð, skrifuð á krass- andi máli svo sem er greinilega við hæfi þessarar sögu. Prágangur bókarinnar er einnig góður fyrir utan það að pappírinn er fremur grófur og láðst hefur að skrá praktískar upplýsingar s.s. um höf- undinn, útgáfustaðinn og ekki síst kápuhönnuð. Ég þykist þar kenna handbragð Brians Pilkingtons en þaö er getgáta. HH Óvenjulegar aðstæður Daníel lifir við óvenjulegar að- stæður. Hann býr með föður sínum sem hefur heima hjá sér nk. dýra- rannsóknarstöð. Hann vinnur sem dýrafræðingur við íjölmiðla og vegna rannsókna sinna heldur hann hitabeltisfugla, skriðdýr og alls kyns kvikindi sem kreflast drjúgs hluta af frítima feðganna. Móðir Daníels er dáin fyrir nokkr- um árum og hann hefur úti allar klær eftir kvonfangi handa fóður sínum því hann sér að það mundi létta þeim heimilisstöfin. Margar kvensur koma við sögu í þessu sambandi m.a. pilsklædd skraut- vera sem reynist karlmaður og óttast Daníel lengi vel um afdrif fóður síns í því sambandi en margt fer öðruvísi en ætlað er eins og fram kemur í lokin. Skólasystkini og kennari Daníels koma einnig við sögu og er þar misjafn sauður í mörgu fé. Skóla- skemmtun er á döfinni og uppreisn verður vegna meints kynþáttahat- urs kennarans og er Daníel þar potturinn og pannan, reyndar að nokkru leyti óvart. Vegna þessa og þess að hann tekur flakkara upp á arma sína lendir hann í nokkru klandri en allt fer vel að lokum, jafnvel ástamál feðganna. Glens oggaman Eins og menn geta getið sér til af framsögöu er hér á ferðinni farsakennd saga þar sem glens og grín er i fyrirrúmi. Persónur allar eru mjög kómískar og gildir það jafnt um aðalpersónur og aukaper- sónur s.s. nöldursama nágranna með nefið í hvers manns koppi, flakkarann sífulla, óþekktarorm- inn Jesper, afana með sínar dellur og sérviskur, klæðskiptinginn, kennarann o.fl. o.fl. Skólasystkini Daníels hafa líka hvert sín sér- kenni en eru þó nær veruleikanum heldur er margar aðrar söguper- sónur. Viðfangsefni þeirra og Beta VERKFÆRI ISELCO SF. Skeifunni 11d — simi 68646S 25%afsláttur til 15. mars HANDVERKFÆRI VERKFÆRAVAGNAR OG VERKFÆRASKÁPAR r „ EG ER ...vegna þess að ég hugsa, - og ég les fréttatímaritið til þess að fylgjast með ”! Þjódlíf Samtímaspegill íslenskra og erlendra málefna. Spennandi fréttatímarit sem lætur sér ekkert mannlegt óviðkomandi. FÆST Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.