Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988. Sandkom Spennið beltin! Nýumferöarlögtókugildiigær. , Mörgum veittist erfltt að fara eftir nýju ákvæðunum um að spenna bil- beltin og að aka með Ökuljósin allan sólarhringinn. Sumir gengu svo langt að þeir þorðu ekki að slökkva bílljós- in þótt þeir slökktu á vélinni og yflrgæfu bílinn því lögreglan sagðí að ökumenn ættu að lata loga á öku- ljósunumallan sólarhringinn! Þeir ökumenn vildu hafa allt sitt á hreinu en komu s vo aftur að rafmagnslaus- um bílunum. En þetta með bilbeltin veittist fleiri ökumönnum erfitt en notkun öku- ljósa. Undirritaður lenti til dæmis í þrengingum, í orðsins fyllstu merk- ingu, í gærmorgun. Hann ókafstað með Ijósin, eins og reyndar alla daga allan daginn, því honum finnst það Nú er elns gott fyrir ovana að fara aft vanja síg við bílbeltin því þungar sektlr liggja viö þvi að vera óspenntur og afslappaður í biln-, um, auk þess sem öryggið eykst tii muna við notkunina. Og mundu eftir Ijósunum. vera mikið öryggisatriði aö ökuljósin séu kveikt. En er hann var kominn hálfa leiðina á vinntistaðinn mundi hann skyndilega eftir bílbeltunum. Þau voru pínlega óspennt og löggan allt í kring, spennt eftir að fá að sekta óspennta vegfarendur. Þess vegna reyndi undirritaður að spenna beltin án þess að hægja ferð- ina og kostaði það næstum eigi færri en tvö umferðaróhöpp sem rekja hefði mátt beinlínis til notkunar bíl- belta. En þar mcð er sagan ekki öll sögð. Er komið var aö vinnustað og bíi- stjórinn ætlaði að stiga út úr bifreið- inni gekk það ekki sem skyldi. Hann var sem bundinn bifreiöinni sem ekki vildi sleppa ökumanni sínum. Og er ökumaöurinn reyndi að losa takið fannst enginn takki sem sleppti belt- inu. Nú upphófúst nokkrar svipting- ar milli ökumanns og bílbeltis og vegfarendur, sem áttu lcið framhjá stæðinu, undruðust hristinginn á bif- reiðinni, sérlega þar sem ökumaður virtist vera einn í bílnum. En allt gekk þetta að lokum og héðan í frá mun undirritaður silja upptendraður og uppsponntur í ökutæki sínu. Ný tíska Sandkom hefur það fýrir satt að prjónastofur, sem margar hverjar voru að leggja upp laupana vegna verkefnaskorts, séu nú aö keppast við að hanna nýja tískuvöru, sem örugg- lega mun tröllríða hinum islenska markaði í kjölfar nýju umferðarlag- anna. Þetta em pey sur og vesti í ýmsum htum með svartri, breiðri skárönd sem nær frá vinstri öxl og niður að mitti hægra megin. Slíkar peysur em taldar geta ruglað lög- regluþjóna, sem era á höttunum eftir óspenntum ökumönnum, í ríminu, Fréttir Samvinnuhreyfingin í sáram vegna valdatogstreitu: Valur og Erlendur róa að því öllum ámm að bola Guðjóni burt Þrátt fyrir þær alvarlegu væringar, sem eru innan Sambandsins, hefur Valur Arnþórsson, stjórnarformað- ur þess, enn ekki kallað saman stjórnarfund. Samkvæmt heimildum DV stóð til um síðustu helgi aö flýta reglulegum fundi sem halda á fyrri hluta mars- mánaðar. Á þeim fundi átti að taka fyrir ákvörðun stjórnar Iceland Sea- food um að reka Eystein Helgason forstjóra og Geir Magnússon aöstoð- arforstjóra frá fyrirtækinu. Fyrir lá aö stjórnin sendi frá sér einhvers konar yfirlýsingu þess efnis að hún harmaði þær aðferðir, sem beitt var við brottreksturinn, með skírskotun- um til þess félagslega grunns sem samvinnuhreyfingin er byggð á. Stjórnarfundi skotið á frest Þegar sjónvarpsstöðvarnar birtu fréttir um stórfenglegar peninga- greiðslur til Guðjóns umfram samninga og yfirlýsing Guðjóns og frekari fréttir komu í kjölfarið var þessum stjórnarfundi skotiö á frest. Þau átök, sem átt hafa sér stað innan æðstu stjórnar Sambandsins, voru allt í einu komin fram í dagsljósið og fátt virtist geta hindrað að enn frekari upplýsingar fylgdu í kjölfar- ið. Fundur í stjórn Sambandsíns hefði því ekki snúist um orðalag á ákúrum á Guðjón B. Ólafsson, sem krafðist brottrekstrar Eysteins og Geirs, heldur hefði öll barátta um völd í æðstu stjórn Sambandsins ver- ið til umfjöllunar.. Erlendur tryggði sér áhrif Forsögu þessarar togstreitu má rekja allt aftur til þess er Erlendur Einarsson var að undirbúa að stíga upp úr forstjórastólnum. A aðalfundi Sambandsins 1985 lagði hann fram umtalsverðar breyt- ingar á samþykktum Sambandsins. Þær fólu í sér minnkuð áhrif fram- kvæmdastjórnar sem í eiga sæti allir framkvæmdastjórar hinna ýmsu deilda Sambandsins. Erlendur gerði ráð fyrir nýrri stöðu, aðstoðarfor- stjóra, sem starfaöi við hlið forstjóra og saman heföu þessir menn meira að segja um rekstur Sambandsins en forstjórinn áöur. Þá gerði Erlendur ráð fyrir því að stjórnarformaður Sambandsins yrði fastur starfsmað- ur með aðsetur í Reykjavík og hefði eftirlit með starfseminni fyrir hönd stjórnar. Valur Arnþórsson stjórnarformað- ur setti sig á móti þessum breyting- um í meginatriðum og fannst sem Erlendur ætlaði sér að hafa fullmikil áhrif á framtíðarskipulag Sambands- ins áður en hann afhenti völd sín til annarra. Sumt úr tillögum Erlends náði þó fram að ganga. Umtalsverð- asta breytingin varð sú að Axel Gíslason, framkvæmdastjóri skipa- deildar, var ráðinn aðstoðarforstjóri í kjölfar þessara breytinga. En Erlendur tryggði sér áhrif á framtíð Sambandsins á annan hátt. Þannig réð hann Þorstein Ólafsson sem framkvæmdastjóra þróunar- og nýsköpunardeildar og Eggert Sveinsson sem framkvæmdastjóra fjárhagsdeildar þótt eðlilegt hefði mátt telja að hann léti nýjum for- stjóra eftir að velja sér samstarfs- menn. Þegar kom að kjöri arftaka Erlends í stjórn Sambandsins veitti Erlendur Val Arnþórssyni ekki full- an stuðning. Það hefur sjálfsagt orðiö til þess að Valur naut einungis stuön- ings sex stjómarmanna af níu. Valur tók þá ákvörðun, sem flestum kom á óvart, að gefa ekki kost á sér. Guðjón B. Ólafsson var því ráðinn en auk hans hafði hinn ungi aðstoðarfor- stjóri, Axel Gíslason, veriö nefndur til starfsins. Guðjón fór ekki að vilja þeirra Þótt Erlendur viki úr forstjóra- stólnum var hann enn valdamikill Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson innan Sambandsins, bæði vegna áhrifa sem fyrrverandi forstjóri og ekki síður vegna setu sinnar í stjórn- um flestra mikilvægustu dótturfyrir- tækja Sambandsins. Fljótlega eftir að Guðjón B. Ólafs- son tók við starfi forstjóra kom í ljós að hann var ekki á þeim buxunum að fara að vilja þeirra sem áöur höfðu stjórnaö. Hann dró úr áhrifum Axels Gíslasonar, lagði niður þróunar- og nýsköpunarsvið og þar með starf Þorsteins Ólafssonar og setti Kjartan P. Kjartansson yfir íjárhagsdeildina þegar Eggert Sverrisson var fluttur um set til Bretlands. Guðjón gekk því þvert á þær ráöstafanir sem Erlend- ur hafði gert til þess að tryggja stjórnun á Sambandinu sem honum væri að skapi. Samkvæmt heimildum DV sauð þó ekki upp úr fyrr en síðastliðið vor þegar Guðjón setti sig alfarið á móti tillögu Erlends og Vals Arnþórsson- ar, sem höföu aftur náð sáttum, um aö ráða Axel Gíslason sem fram- kvæmdastjóra verslunardeildar í stað Hjalta Pálssonar sem var að láta af störfum. Þrátt fyrir ítrekuð til- mæli Erlends pg Vals var Guðjón óhagganlegur. Átökin um stöðu Ax- els urðu í raun átök um það hver hefði völdin. Afstaða Guðjóns var löngu kunn innan Sambandsins þegar hann til- kynnti að hann hefði ráðið Ólaf Friðriksson sem framkvæmdastjóra verslunardeildar. Samkvæmt heim- ildum DV hafa Erlendur og Valur margsinnis staöiö í vegi fyrir ákvörð- unum Guðjóns frá því um mitt síðastliðið sumar. Samkvæmt heim- ildum DV hefur varla verið hægt aö túlka aðgerðir þeirra nema á þann hátt að þeir rói að því leynt og ljóst að koma Guðjóni frá með Axel í huga sem eftirmann hans. Deilur um laun og kostnað Erfiðleika Guðjóns við að fá vilja sínum framgengt varðandi brott- rekstur Geirs Magnússonar, aðstoð- arforstjóra Iceland Seafood, ber ekki hvað síst að skýra í þessu ljósi. Jafn- vel eftir að Guðjón lagði þessa-kröfu fram í stjórn fyrirtækisins fékkst það ekki samþykkt. Þegar Guðjón hélt áfram að krefjast brottvikningar Geirs og síðar einnig Eysteins lagði Erlendur Einarsson fram útreikn- inga í stjórn Iceland Seafood sem bentu til þess að Guðjón hefði fengið greiddan kostnað hjá fyrirtækinu langt umfram það sem um var sa- mið. Eins og Guðjón hefur sjálfur sagt var honum hótað með því að upplýs- ingar um þessar deilur um launamál hans yrðu gerðar opinberar ef hann stæði við þann ásetning sinn að reka Eystein og Geir. Sú hótun kom fram, að sögn Guðjóns, á síðasta ári. Um síðustu áramót fóru Valur Arnþórs- son og Geir Geirsson, endurskoöandi Sambandsins, vestur um haf til Harr- isburg til þess að kanna hvað hæft væri í þessum ávirðingum. Þá var nokkuð um liðið síðan rannsókn á einkahögum Guðjóns var hafin að ósk stjórnarformanns Sambandsins, Vals Árnþórssonar. Forstjóranum hótað Ástandið innan Sambandsins hef- ur því verið æði annarlegt undanfar- ið hálft ár eða svo. Samskipti forstjóra og stjórnarformanns hafa stirðnað eftir átökin um stöðu Axels í sumar. Erlendur Einarsson, fyrr- verandi forstjóri, lagði fram rök- stuðning fyrir hörðum ásökunum á hendur forstjóranum í stjórn Iceland Seafood á sama tíma og allt virðist hafa verið gert til þess að torvelda Guðjóni að ná fram vilja sínum varð- andi þetta fyrirtæki sem er sá hluti Sambandsveldisins sem hann þekkir best. Forstjóranum var sömuleiðis hótað að þessir útreikningar yrðu sendir til fjölmiðla ef hann fylgdi eft- ir ákvörðun sinni. Á sama tíma fyrirskipaði stjórnarformaður Sam- bandsins rannsókn á einkahögum forstjórans, að því er virðist án vit- undar hans. Þessi rannsókn kom til dæmis ekki inn á borö stjórnar Ice- land Seafood, þár sem Guðjón er formaður, fyrr en eftir að banda- rískir endurskoðendur höfðu lýst því yfir að launagreiðslur til Guðjóns væru samkvæmt samningum. í ljósi atburða síðustu daga verður að teljast ólíklegt að um heilt grói milli þeirra sem tekið hafa þátt í þessum átökum. Svo virðist sem allir aðilar liggi sárir. Guöjón B. Ólafsson hefur fengið á sig harðar ásakanir frá samstarfsmönnum sínum sem erfltt er að túlka á annan hátt en að hann hafi tekið sér svimandi upphæðir umfram það sem honum bar þegar hann var forstjóri Iceland Seafood. Upplýst hefur verið að Erlendur Ein- arsson bar fram þessar ásakanir í stjórn Iceland Seafood og lagði til þann útreikning sem þurfti til þess að rökstyðja þær. Þá hefur komið í ljós að Valur Arnþórsson fyrirskip- Valur Arnþórsson stjórnarformaóur og Erlendur Einarsson, fyrrverandi forstjóri Sambandsins, takast þarna í hend- ur. Valur hóf rannsókn á einkahögum Guðjóns og Erlendur bar fram ásakanirnar á hann í stjórn lceland Seafood.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.