Dagur - 01.05.1990, Side 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 1. maí 1990 81. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Gránutelagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599 j
Byssumaður í Gagnfræðaskóla Ólafsijarðar veldur umsáturs ástandi í bænum:
Gafst upp fyrir víkingasveit með alvæpni
Sá fáheyrði atburður varð í
Ólafsfírði í gær að vopnaður
maður braust inn í Gagnfræða-
skólann og hótaði að skjóta á
fólk í nágrenninu. Hann skaut
tveimur skotum úr haglabyssu
að lögreglumönnum við skóla-
lóðina, og lenti annað skotið í
hlið lögreglubíls. Engin slys
urðu þó á fólki, en talsverðar
skemmdir voru unnar á hús-
næði Gagnfræðaskólans. Sjö
víkingasveitarmenn fóru til
Ólafsfjarðar, en þurftu ekki að
beita vopnum eða táragasi sem
þeir höfðu meðferðis.
Maðurinn sem urn ræðir er 24
ára Ólafsfirðingur. Hefur hann
alloft áður komið við sögu lög-
reglu og yfirvalda, en hefur þó
ekki lent í neinu sem talist getur
stórvægilegt. Hann mun hafa átt
við áfengisvandamál að stríða, en
auk þess sögðu Ólafsfirðingar
sem rætt var við að maðurinn
hefði misnotað lyf, jafnvel eitur-
lyf. Talið var að hann væri í
vímuástandi í gærmorgun.
Byssumaðurinn tók tvíhleypta
haglabyssu frá kunningja sínum
ófrjálsri hendi, skömmu áður en
hann braust inn í skólann. Lög-
reglan Ieitaði mannsins um
bæinn, en vart varð við hann í
húsnæði Gagnfræðaskólans á sjö-
unda tímanum í gærmorgun.
Börn, sem voru stödd skammt
frá, heyrðu skoti hleypt af klukk-
an 07.15. Mun það skot hafa lent
í hlið lögreglubílsins, af um 30
metra færi. Fleiri skotum skaut
hann út um glugga, í átt að hótel-
inu.
Lögreglan í Ólafsfiröi og menn
úr björgunarsveit S.V.F.Í.,
Tindi, lokuðu þegar götum áð
Gagnfræðaskólanum. Símasam-
band var haft við nemendur skól-
ans og þeim tilkynnt að ekki yrði
úr samræmdu prófi í stærðfræði,
sem halda átti í gær. Önnuðust
félagar í Björgunarsveitinni
Tindi það verk.
Kaupfélag Eyfirðinga:
177 milljónir
króna í mínus
„Við verðum að standa bet-
ur sainan uni þetta félag,
tryggja að við getum snúið
aftur þeim taprckstri sem nú
er til betri vegar og tryggt að
Kaupfélag Eyfírðinga verði
það sterka afl í þcssari
byggð sem það hefur alltaf
verið.“
Þetta sagði Jóhannes Sig-
valdason, formaður stjórnar
KEA á aðalfundi félagsins sl.
laugardag.
Þar var upplýst að 177 millj-
óna tap hefði orðið á rekstri
KEA á sl. ári, en tapið var 235
milljónir króna árið 1988.
Heildarvelta félagsins árið
1989 nam tæpum 11 milljörð-
um króna. Rekstrartekjur
voru 7,8 milljarðar en rekstr-
argjöld 7,6 milljarðar. Nánar
er sagt frá aðalfundi KEA á
bls. 5 í dag. óþh
Eftir að byssumaðurinn hafði
skotið í sundur stórt fiskabúr og
skemmt fleiri innanstokksmuni
hringdi hann í nokkra menn,
m.a. lögregluþjón á Akureyri
sem hann þekkti. Lögreglu-
þjónninn hafði áður starfað í
Ólafsfirði. Laust eftir átta kvaðst
maðurinn myndu gefast upp, en
lét þá ósk eða skilyrði í ljós að
umræddur lögreglumaður kæmi
til Ólafsfjarðar og ræddi við sig
áður. Varð hann við þeirri ósk.
Sjö víkingasveitarmenn fóru til
Ólafsfjarðar vegna þessa máls,
sex frá Reykjavík en einn frá lög-
reglunni á Akureyri. Þeir fóru að
skólanum sinn úr hverri átt, með
alvæpni og byssur á lofti. Foringi
þeirra ræddi við manninn, sem
kom óvopnaður út um sundur-
skotinn glugga í anddyrinu.
Gekk maðurinn með hendur á
höfði til lögreglumannanna um
tíuleytið, og óku þeir honum
Hátíðisdagur verkalýðsins, 1.
maí, er í dag. Hátíðahöld
verða um allt land af því
tilefni, undir stjórn 1. maí-
nefnda verkalýðsfélaganna.
Hátíðahöldin á Akureyri hefj-
ast kl. 13.45, með leik Lúðra-
sveitar Akureyrar við Alþýðu-
,húsið. Því næst er kröfuganga en
tafarlaust á lögreglustöðina.
Sofnaði hann þar skömmu síðar.
Víkingasveitarmenn gerðu
vettvangskönnun, en rannsókn-
arlögreglumenn frá Reykja-
vík komu seinna um daginn
vegna skýrslugerðar og rann-
sóknar á vettvangi.
Tóm skothylki lágu á stéttinni
við anddyri skólans þegar að var
komið, rúður voru brotnar, t.d.
var kringlótt gat í einni rúðunni
sem skotið hafði verið í gegnum
af litlu færi.
Ólafsfirðingar fylgust með
atburðum af húsþökum og bíl-
skúrsþökum, með sjónauka og
myndavélar.
Víkingasveitarmenn vörðust
allra frétta er þeir voru spurðir.
Þó sagði Jón Bjartmars, foringi
þeirra, að þetta væri í fyrsta sinn
sem sveitin væri kölluð út „í
alvöru“ svo langt frá Reykjavík.
að henni lokinni útifundur fyrir
framan Alþýðuhúsið. Jökull
Guðmundsson flytur ávarp
dagsins, einnig verða flutt ávörp
þriggja stéttarfélaga. Opið hús
verður á 4. hæð Alþýðuhússins,
þar verða flutt skemmtiatriði,
söngur, leikþáttur o.fl. Barna-
gæsla verður í hliðarsal. EHB
• Einna alvarlegasti flötur þessa
rnáls mun vera að skotið var á
lögregluþjóna. er þeir sinntu
skyldustörfum.
Óskar Þór Sigurbjörnsson,
skólastjóri, sagði í gær að þrátt
fyrir allt hefðu skemmdir getað
orðið rniklu meiri en raun varð á.
„Maðurinn fór augljóslega ekki
Gengið hefur verið frá samn-
ingi milli Slippstöðvarinnar hf.
á Akureyri og útgerðarfyrir-
tækisins Oss hf. í Vestamanna-
eyjum um að smíðað verði nýtt
togskip fyrir útgerðina hjá
Slippstöðinni á Akureyri. Eins
og hlaðið skýrði frá fyrir helg-
ina á skipið að afhcndast eftir
14 mánuði en byrjað verður á
smíðinni í haust.
Samnjngur milli aðila var
undirritaður á föstudag. Hann er
gerður með fyrirvara um að fyrir-
greiðsla fáist frá Fiskveiðasjóði
Islands til smíðinnar og verður
umsókn þess efnis send sjóðnum
nú á næstunni. Þá er samningur-
inn einnig gerður með fyrirvara
unt samþykki stjórna fyrirtækj-
anna en eins og blaðið hefur
skýrt frá hafði stjórn Slippstöðv-
arinnar falið Sigurði Ringsted,
forstjóra, að ganga frá samningn-
um viö Ós hf.
Smíðaverð skipsins er um 260
milljónir og verður það búið til
tog- og netaveiða. Skipið verður
mjög svipað raðsmíðaskipi Slipp-
stöðvarinnar að stærð en það skip
er óselt. Aðspurður segir Sigurð-
ur Ringsted að ekki hafi komið til
greina að útgerðin keypti rað-
smíðaskipið í stað þess að láta
smíða nýtt þar sem skipið sé ekki
hingað inn til að valda
skemmdum, þar hefur annað leg-
ið að baki. Björgunarsveitar-
menn stóðu sig mjög vel, þeir
afgirtu stórt svæði og héldu fólki
frá. Auk þess var gengið í nær-
liggjandi hús og menn beðnir að
hafa vara á sér," sagði hann.
útbúiö á þann hátt sem útgerðin
hafi óskað eftir. JÓH
Þórshöfn:
Listi fram-
farasinna
sjálfkjörinn
Nú cr Ijóst að engar kosningar
verða á Þórshöfn 26. júní nk.
Aðeins einn framboðslisti er
koniinn fram, listi framfara-
sinnaðra kjósenda, og hann
telst því sjálfkjörinn.
Að sögn Brynhildar Halldórs-
dóttur, formanns kjörstjórnar,
frantlengdi kjörstjórn framboðs-
frest um tvo daga, eins og lög
kveða á um í slíku tilfelli. Enginn
annar listi kom fram og því skipa
fimm efstu menn listans hrepps-
nefnd Þórshafnarhrepps til næstu
fjögurra ára. Þeir eru: Jóhann A.
Jónsson, framkvæmdastjóri, Jón-
as S. Jóhannsson, skipstjóri,
Hilmar Þ. Hilmarsson, verk-
smiðjustjóri, Þuríður Vilhjálms-
dóttir, fulltrúi og Ragnhildur
Karlsdóttir, fulltrúi.
Nánar er fjallað um sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor á bls.
2. óþh
Víkingasveitarmenn, vopnaöir
skaininbyssúm, táragasi og
hríöskotabyssum, ganga út af
lóð skólans. Litla myndin var
tckin er byssuniaðurinn var
færður í lögreglujeppa.
Myndir. EHB
1. maí:
Hátíðarhöld á Akureyri
EHB
Byssumaðurinn skreið lít um sundurskotinn glugga þegar hann gafst upp.
Slippstöðin smíðar nýtt skip:
Umsókn um fyrirgreiðslu
til Fiskveiðasjóðs