Dagur - 01.05.1990, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 1. maí 1990 - DAGUR - 11
Veturinn hefin* verið góður hjá mér
- segir Haukur Eiríkssoð, íslands- og bikarmeistari í skíðagöngu
66
Eins og komið hefur fram í
blaðinu stóðu skíðagöngu-
menn frá Akureyri sig geysi-
lega vel á Skíðalandsmóti
íslands sem fram fór í Reykja-
vík fyrir rúmri viku. Þeir voru í
verðlaunasæti í öllum greinum
og oftar en ekki var gullið
þeirra. Við heimkomuna tók
Þröstur Guðjónsson, formað-
ur Skíðaráðs Akureyrar, á
móti köppunum og afhenti
þeim blóm fyrir hönd SRA í
viðurkenningarskyni fyrir frá-
bæra frammistöðu. Dagur not-
aði tækifærið og ræddi við þá
Hauk Eiríksson, Kristján
Olafsson og Ingþór Bjarnason,
föður Rögnvalds Ingþórsson-
ar, en hann tók við vendinum
fyrir hönd Rögnvaldar sem fór
beint til Svíþjóðar að móti
loknu þar sem hann dvelur við
nám og æfingar.
Ef rennt er í snarheitum yfir
afrek Akureyringanna á lands-
mótinu þá unnu þeir tvöfalt í 30
km göngu, Haukur Eiríksson
varð þar sigurvegari og í öðru
sæti varð Rögnvaldur Ingþórsson
sem einnig er frá Akureyri. í 15
km göngu varð Haukur í 2. sæti
og Rögnvaldur því 3. en hlut-
skarpastur varð Sigurgeir Svav-
arsson frá Ólafsfirði. Haukur
varð síðan sigurvegari í tví-
keppninni sem var samanlagður
árangur úr þessum tveimur grein-
um og Rögnvaldur lenti í 2. sæti.
Kristján Ölafsson, félagi þeirra
frá Akureyri varð í 3. sæti í 10
km göngu 17-19 ára en hann er
aðeins 16 ára gamall. Loks sigr-
aði A-sveit Akureyrar, skipuð
þessum þremur mönnum, í 3x10
km boðgöngu eftir spennandi
keppni. Til að kóróna árangurinn
hlaut Haukur bikarmeistaratitil-
inn þar sem hann vann yfirburða-
sigur í stigakeppnum vetrarins.
„Það er ekki hægt annað en að
vera ánægður með árangurinn.
Við. bjuggumst nú kannski við
því að verða með þeim fremstu
þarna en ekki þessu,“ sagði
Haukur Eiríksson.
Sigur hans í 30 km göngunni
var af ýmsum talinn óvæntur en
Haukur er ekki á því. „Hann
kom mér ekkert sérstaklega á
óvart. Við erum mjög jafnir,
Rögnvaldur, Sigurgeir og ég. En
þetta voru vitanlega ánægjuleg
úrslit fyrir mig.“ Ingþór tók undir
með Hauk að þetta hefði ekki
komið á óvart. „Það er búin að
Hvera mikil pressa á Rögnvaldi.
Hann er búinn að keppa 26 sinn-
um frá áramótum og var farinn
að þreytast,“ sagði hann. Hauk-
ur bætti því við að Sigurgeir hefði
veikst úti í Svíþjóð, en hann
dvelur á sama stað og Rögnvald-
ur, og hann hefði verið rétt risinn
upp úr því.
Haukur sagðist lítið hafa æft í
vetur miðað við fyrri ár. „Ég æfði
mjög vel í fyrra og hittifyrra og
bý að því. Veturinn hefur verið
góður hjá mér en það má ekki
gleyma því að Rögnvaldur og
Sigurgeir hafa verið úti og ég
hefði kannski ekki unnið jafn-
mikið hefðu þeir verið meira
með. Ég tók þó góða skorpu eftir
Vetraríþróttahátíðina og er í
mjög góðu formi þessa dagana.
Ég held að það hafi átt við okkur
alla nema e.t.v. Rögnvald sem
náði ekki sínu besta formi,“ sagði
hann. Kristján tók undir þetta og
sagðist hafa æft mjög vel og vera
í góðu formi. Hann hefur komið
á óvart í vetur og nánast alltaf
verið í verðlaunasæti.
Skíðaganga hefur verið á
mikilli uppleið á Akureyri upp á
síðkastið og ætti að vera orðið
óhætt að tala um að bærinn sé
orðinn stórveldi í greininni. En
er það framtíðin?
„Það hefur orðið gífurlcg
aukning í þessu. Við vorum með
yfir 20 krakka hóp á Andrésar
Andar leikunum en það var það
mesta sem nokkur bær var með.
Það er því ekki annað að sjá en
að við eigum fríðan hóp sem á
örugglega eftir að verða í fremstu
röð á næstu árum. Það er mikið
af fólki sem vinnur að þessu, fjöl-
margir foreldrar taka þátt í starf-
inu og það verður virkilega
Haukur Eiríksson hefur unnið flest mót sem hann hefur tekið þátt í í vetur.
spennandi að fylgjast með
þessu," sagði Ingþór.
En hvenær taka þessir krakkar
við? Hvað verða þeir sjálfir lengi
í baráttunni? „Það er mjög ein-
staklingsbundið. Menn hafa orð-
ið heimsmeistarar 35-36 ára.
Besti aldur skíðagöngumanns fer
mikið eftir því hvernig hann æfir.
Ég mundi skjóta á að ntenn sem
byrja að æfa um 16 ára aldur
þurfi að æfa í 10-12 ár, þá séu
þeir á toppnum," sagði Haukur.
Af þessu má ráða að Kristján eigi
framtíðina fyrir sér en hamr'er
tregur á spádóma þar um. „Mað-
ur verður í þessu á meðan það er
skemmtilegt. Árangurinn hlýtur
líka alltaf að spila inn í," sagði
Hann. Ingþór taldi að Rögnvald-
ur myndi engan bilbug láta á sér
finna. „Það er mikið framundan.
Það er heimsmeistaramót 1991,
Ólympt'uleikar '92, heimsmeist-
aramót '93 og Ólympíuleikar aft-
ur '94. Það er því að miklu að
keppa. Honum líkar mjög vel í
Svíþjóð og verður þar næstu árin
og æfir við mjög góðar aðstæð-
ur."
Bæði Hauk og Kristján dreym-
ir um að komast erlendis og
dvelja þar við æfingar. Haukur er
búinn að sækja um inngöngu í
sama skóla og Rögnvaldur og
Sigurgeir eru í og ætlar sér að
flytja þangað með fjölskyldu sína
ifái umsóknin jákvæða nteðferð.
„Ef að svo fer og allt gengur vel
helli ég mér sjálfsagt á fullu út í
æfingar. Ég myndi láta skólann
ganga fyrir til að byrja með en ef
allt gengi að óskurn er aldrei að
vita nema maður myndi fara að
æfa af verulegum krafti," sagði
Haukur. Kristján sagðist ekki
reikna með að fara út næsta vetur
en menn væru að kanna fyrir
hann skóla í Svíþjóð og það væri
möguleiki að hann slægi til seinna.
Þeir félagar voru spurðir hvað
það væri sem heillaði við skíða-
gönguna og Haukur varð fyrir
svörum: „Hjá mér er það fyrst og
fremst að finna hvað maður er í
góðu formi þegar maður er búinn
að æfa vel og mikið. Að sjá langa
og bratta brekku fyrir frantan sig
og vita að maður getur þotið upp
hana án þess að þreytast er
dásamleg tilfinning. Éf maður er
í góðu formi líður manni virki-
lega vel eftir 30 km göngu."
Haukur og Kristján fóru að
lokum frant á að þökkum þeirra
til Skíðaráðs fyrir veittan stuðn-
ing yrði komið á framfæri og er
það hér nteð gert. „Við viljum
líka koma þökkum á framfæri til
starfsfólksins í fjallinu. Það hefur
reynst okkur vel, t.d. verið.dug-
legt að troða fyrir okkur brautir
og á þakkir skildar," sögðu þeir
Haukur Eiríksson og Kristján
Ólafsson.
Rögnvaldur Ingþórsson í boðgöngunni á Vetraríþróttahátíðinni fyrr í vetur.
Knattspyrnuæfingar
í íþróttahöllinni vorið 1990.
30. apríl kl. 17.00 stúlkur 14 ára og yngri \
30. apríl kl. 18.00 6. fl. (drengir 10 ára og yngri)
2. maí kl. 17.00 6. fl.
2. maí kl. 18.00 5. fl.
3. maí kl. 17.00 stúlkur14ára og yngri
3. maí kl. 18.00 5. fl.
7. maí kl. 17.00 stúlkur 14 ára og yngri
7. maí kl. 18.00 6. fl.
9. maí kl. 17.00 6. fl.
9. maí kl. 18.00 5. fl.
10. maí kl. 17.00 stúlkur 14 ára og yngri
11. maí kl. 19.00 5. fl.
Knattspyrnudeild K.A.