Dagur - 01.05.1990, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Þriðjudagur 1. maí 1990
íþróttir
Liverpool meistari í 18. sinn
- Sheffield Utd. stefnir að meistaratitli í 2. deild
Um helgina fór fram næstsíð-
asta umferðin í ensku knatt-
spyrnunni og nú hefur flestum
spurningum verið svarað í 1.
deild. Liverpool er meistari,
en Aston Villa verður að gera
sér annað sætið að góðu. Þá
eru Millwall og Charlton fallin
í 2. deild, en það ræðst ekki
fyrr en í síðustu umferð hvort
Luton eða Sheflield Wed.
fylgja þeim niður. Enn er allt
óráðið á toppi 2. deildar þar
sem þrjú lið berjast um tvö
efstu sætin.
Liverpool vann sinn 18. meist-
aratitil á laugardag er liðið lagði
Q.P.R. að velli á Anfield.
Minnugir þess hvernig Arsenal
stal af þeim titlinum í fyrra voru
leikmenn liðsins staðráðnir í því
að láta ekkert slys henda að
þessu sinni. Liðið lenti þó í
kröppum dansi og hóf leikinn
illa gegn leikmönnum Q.P.R.
sem ekki voru mættir á Anfield
Deildabikarinn úrslitaleikur
Nottingham For.-OIdham 1:0
1. deild
Arsenal-Milhvall 2:0
Aston Villa-Norwich 3:3
Charlton-Sheffield Wed. 1:2
Chelsea-Everton 2:1
Liverpool-Q.P.R. 2:1
Luton-Crystal Palace 1:0
Manchester City-Derby 0:1
Southampton-Coventry 3:0
Wimblcdon-Tottenham 1:0
2. deild
Barnsley-W.B.A. 2:2
Brighton-Stoke City 1:4
Hull City-Bradford 2:1
Ipsvvich-Blackburn 3:1
Leeds Utd.-Leicester 2:1
Nevvcastle-West Ham 2:1
Plymouth-Watford 0:0
Port Vale-Portsmouth 1:1
Sheflicld Utd.-Bournemouth 4:2
Svvindon-Middlesbrough 1:1
Wolves-Sunderland 0:1
Úrslit í vikunni í 2. deild
Hull City-Plymouth 3:3
Portsmouth-Oldham 2:1
Watford-Stoke City 1:1
Leeds Utd.-Barnsley 1:2
Middleshrough-lpsvvich 1:2
Newcastle-Svvindon 0:0
Oxford-Brighton 0:1
3. deild
Bolton-Bristol City 1:0
Brentford-Blackpool 5:0
Bristol Rovers-Shrewsbury 1:0
Cardiff City-Fulham 3:3
Chcster-Rotherham 2:0
Leyton Orient-Birmingham 1:2
Mansfield-Crewe 2:1
Northampton-Huddersfíeld 1:0
Preston-Swansea 2:0
Reading-Bury 1:0
Walsall-Tranmere 2:1
Wigan-Notts County 1:1
4. deild
Burnley-Scunthorpe 0:1
Cambridge-Colchester 4:0
Carlisle-Torquay 2:0
Doncaster-Rochdale 4:0
Exeter-Scarborough 3:2
Gillingham-Lincoln 1:1
Grimsby-Wrexham 5:1
Hartlepool-Aldershot 2:0
Hereford-Pctcrborough 1:2
Southend-Halifax 2:0
Stockport-Chesterfield 3:1
York City-Maidstone 0:0
til þess að liggja í vörn, heldur til
að leika sóknarknattspyrnu. Roy
Wegerle náði forystu fyrir
Q.P.R. strax á 14. mín. og fór þá
um marga stuðningsmenn liðsins,
en Ian Rush náði að jafna leikinn
5 mín. fyrir hlé og það hleypti
nýju blóði í leikmenn liðsins.
John Barnes skoraði síðan sigur-
mark Liverpool úr vítaspyrnu í
síðari hálfleik eftir að brotið
hafði verið á Steve Nicol á víta-
teigslínu. Dómarinn taldi að
Danny Maddix hefði fellt Nicol
irtnan teigs og dæmdi strax víti.
Hinir nýju meistarar hefðu getað
unnið stærri sigur og Ronnie
Rosenthal var klaufi að skora
ekki undir lok leiksins, en mikill
fögnuður var í Liverpool í leikslok
er ljóst var að Liverpool hafði
endurheimt meistaratitilinn sem
leikmenn liðsins og aðstandendur
þess líta á sem sína eign.
Aston Villa þurfti að sigra
Norwich á heimavelli sínum til
þess að eiga einhverja möguleika
á titlinum og um tíma virtist sem
það yrði ekki erfitt verk. Pað var
þó Ruel Fox sem náði forystu fyr-
ir Norwich á 30. mín. og liðið hélt
þeirri forystu þar til á 63. mín. Þá
jafnaði Paul McGrath með skalla
eftir hornspyrnu Gordon Cowans
og á skömmum tíma fylgdu mörk
frá Tony Cascarino, hans fyrsta
fyrir Villa, og David Platt bætti
24. marki sínu á leiktímabilinu við
eftir undirbúning Tony Daley.
3:1 forysta virtist pottþétt fyrir
liðið og Liverpool yrði enn að
bíða um stund eftir meistaratitl-
inum. En enn einu sinni sannað-
ist að ekkert er öruggt í knatt-
Á sunnudag léku Nottingham
For. og Oldham til úrslita um
Deildabikarinn á Wembley og
var uppselt á leikinn. Forest
tókst að verja bikarinn sem lið-
ið vann í fyrra gegn 2. deildar
liði Oldham sem hefur staðið
sig mjög vel í báðum bikar-
keppnunum í vetur og gerði
það einnig í úrslitaleiknum á
Wembley.
spyrnu, á 79. mín. varð miðvörð-
urinn Öerek Mountfield fyrir því
að skora sjálfsmark og þegar 7
mfn. voru til leiksloka jafnaði
Robert Rosario leikinn í 3:3 og
gerði þar með út um síðasta von-
arneista Aston Villa.
Á meðan allt þetta fór fram
sigruðu fráfarandi meistarar
Arsenal lið Millwall á heimavelli
sínum 2:0. Bæði mörkin voru
skoruð í fyrri hálfleik af þeim
Paul Davis og Paul Merson, en
leikmenn liðsins geta varla verið
ánægðir með titilvörn sína sem
var ákaflega slöpp.
Enn berjast Sheffield Wed. og
Luton harðri baráttu við að
sleppa frá falli, en aðeins öðru
liðinu mun takast það. Staða
Luton er þó mun verri, liðið er
þrem stigum á eftir Sheffield og
hefur heldur verri markatölu. Ian
Dowie skoraði eina mark leiksins
ög sigurmark Luton á lokamínút-
unum gegn Crystal Palace og Iið-
ið hefur því enn smá von, á eftir
að leika á útivelli gegn Derby.
Sheffield Wed. á eftir heima-
leik gegn Nottingham For., en
liðið sigraði Charlton á útivelli á
laugardaginn. Sheffield Wed.
hafði yfir í hálfleik 1:0 með marki
David Hirst. Andy Jones náði að
jafna fyrir Charlton, en David
Hirst skoraði síðan sigurmark
Sheffield Wed., ákaflega mikil-
vægt mark, er 8 mín. voru til
leiksloka. Tottenham tapaði nú
loks leik, er liðið varð að lúta í
lægra haldi fyrir Wimbledon þar
sem John Fashanu skoraði eina
mark leiksins í fyrri hálfleik.
Chelsea sigraði Everton á
Það var langt frá því að vera
auðvelt fyrir Forest að vinna
Deildabikarinn . í fjórða sinn.
Sigurmarkið og eina mark leiks-
ins skoraði Forest úr sinni fyrstu
sókn í síðari hálfleik, eftir þunga
sókn Oldham fyrstu 3 mín. hálf-
leiksins. Nigel Clough sem að
öðru leyti sást varla í leiknum,
gerði mjög vel er hann skapaði
Nigel Jemson gott færi. Andy
Rhodes í marki Oldham varði vel
heimavelli 2:1 og voru öll mörkin
skoruð í síðari hálfleiknum.
Kerry Dixon skoraði bæði mörk
Chelsea, en Pat Nevin skoraði
mark Everton.
Derby hafði betur á útivelli
gegn Manchester City, Mark
Wright skoraði eina mark leiks-
ins í síðari hálfleik.
Southampton fór létt með
Coventry og sigraði 3:0 á heima-
velli sínum. Þeir Matthew Le
Tissier, Barry Horne og Russell
Osman skoruðu mörk Southamp-
ton í leiknum.
2. deild
Það er allt lagt undir í baráttunni
um sætin tvö í 1. deild í síðustu
umferðinni um næstu helgi. Liðin
þrjú sem berjast um þau unnu öll
leiki sína um helgina. Leeds Utd.
hefur nauma forystu í efsta sæti,
liðið sigraði Leicester 2:1 á
Elland Road í Leeds. Mel Ster-
land hægri bakvörður liðsins náði
forystu fyrir liðið í fyrri hálfleik,
en í þeim síðari tókst Leicester
að jafna leikinn. Það var síðan
fyrirliðinn Gordon Strachan sem
tryggði Leeds Utd. sigurinn með
marki 5 mín. fyrir leikslok. Leeds
Utd. tapaði í vikunni fyrsta
heimaleik sínum í deildinni í vet-
ur gegn Barnsley eftir að hafa
haft yfir með marki Chris Fair-
clough lengst af leiknum, en fékk
síðan á sig tvö mörk í lokin.
Leeds Utd. hefur farið mjög illa
með forskotið sem liðið hafði,
dómarar, hafa raunar lagt sitt af
mörkum og nú virðist sem liðið
þurfi að sigra Bournemouth á úti-
frá Jemson, en boltinn hrökk aft-
ur út og Jemson renndi honum í
autt markið. Oldham hafði und-
irtökin í fyrri hálfleiknum, leik-
menn liðsins börðust af krafti, en
fengu þó ekki nægilega góð færi.
Andy Ritchie átti þó gott skot
sem Steve Sutton markvörður
Forest varði vel. Sóknarlotur
Forest voru færri, en virtust betur
útfærðar og hættulegri. Rhodes
varði vel frá Franz Carr og Gary
Parker í fyrri hálfleiknum. Leik-
menn Oldham gáfust ekki upp og
börðust allt til loka, en þeir virt-
ust þreytast undir lokin og hinir
reyndu leikmenn Forest í vörn-
inni virtust hafa allt í hendi sér og
liðinu tókst að verja þetta eina
mark sitt og sigra íieiknum. Mið-
vörður Forest, Des Walker, var
valinn maður leiksins, en hann
hélt Ritchie í gjörgæslu allan
leikinn. Hjá Oldham átti Earl
Barrett mjög góðan leik í vörn-
inni og Neil Adams var hættuleg-
ur á hægri vængnum í fyrri hálf-
leik. Þorvaldur Örlygsson var
ekki í leikmannahópi Forest að
þessu sinni, en margir höfðu von-
ast til að hann yrði að minnsta
kosti á bekknum. Briap Clough
hældi liði Oldham mjög eftir leik-
inn og dáðist að baráttuvilja
leikmanna sem hann sagði að
hefðu verið framkvæmdastjóra
sínum Joe Royle til sóma. Öld-
ham á enn éftir 4 leiki í 2. deild
og hefur enn smá möguleika á að
komast í úrslitakeppnina í 2.
deild.
• Colchester féll úr deilda-
keppninni á sunnudaginn er liðið
tapaði 4:0 á útivelli gegn Cam-
bridge. Þ.L.A.
velli í síðasta leiknum til að
tryggja sér sæti í 1. deild. Það
verður erfitt því Bournemouth
þarf sigur í leiknum til að halda
sæti sínu í 2. deild. Það gæti því
farið svo að Leeds Utd. hafnaði í
þriðja sætinu eftir að hafa setið í
því fyrsta allt frá 16. desember í
vetur.
Sheffield Utd. stendur nú best
að vígi, liðið er aðeins stigi á eftir
Leeds Utd. og á eftir tvo leiki,
báða á útivelli gegn Blackburn og
Leicester. Sheffield Utd. lagði
Bournemouth að velli 4:2 á
heimavelli á laugardag.
West Ham hafði yfir 1:0 á úti-
velli gegn Newcastle í hálfleik, en
í þeim síðari tókst heimamönn-
um að snúa leiknum sér í hag og
sigra. Hefði Newcastle tapað
stigum í þessum leik hefði Leeds
Utd. verið komið í 1. deild.
Newcastle leikur um næstu helgi
á útivelli gegn nágrönnum sínum
Middlesbrough sem eiga í mikilli
fallbaráttu og verður þar örugg-
lega hart barist.
Swindon, Blackburn og Sund-
erland eru í sætum sem gefa rétt
til aukakeppni, en West Ham,
Wolves, Ipswich og Oldham hafa
ekki gefið upp alla von um þá
keppni enn.
Stoke City og Bradford eru
fallin í 3. deild, en þriðja sætið
reyna Middlesbrough, Bourne-
mouth, Barnsley og W.B.A. að
forðast. Þessi flókna staða á báð-
um endum sýnir hve keppnin í 2.
deild er spennandi og næsta helgi
verður einhverjum erfið, það er
næsta víst. Þ.L.A.
Staðan
1 deild
Liverpool 36 21-10- 5 71:36 73
Aston Villa 37 21- 6-10 54:35 69
Tottenham 37 18- 6-13 57:46 60
Arsenal 36 17- 7-12 50:35 58
Everton 37 17- 74 3 54:43 58
Chelsea 37 15-12-10 55:49 57
Southampton 36 15-10-11 69:59 55
Norwich 37 13-13-11 42:40 52
Wimbledon 35 12-15- 8 44:37 51
Q.P.R. 37 13-11-13 43:41 50
Coventry 37 14- 7-16 38:52 49
Nott. Forest 36 13- 9-14 48:47 48
Man. City 37 12-11-14 41:50 47
Derby 36 13- 7-17 41:36 46
Man. Utd. 35 12- 8-15 45:43 44
Crystal Palace 36 12- 8-16 39:64 44
Sheff. Wed. 37 11-10-16 35:48 43
Luton 37 9-13-15 40:55 40
Charlton 37 7- 9-21 31:56 30
Millvvall 37 5-11-21 38:62 26
2 . deild
Leeds Utd. 45 23-13- 9 78:52 82
Shcff. Utd. 44 23-12- 9 73:56 81
Newcastle 45 22-14- 9 79:51 80
Swindon 45 20-13-12 78:58 73
Blackburn 44 19-15-10 73:58 72
Sunderland 44 19-14-11 60:68 71
West Ham 44 18-12-14 73:56 66
Wolves 44 18-12-14 66:55 66
Ipsvvich 44 18-12-14 61:61 66
Oldham 42 17-12-13 61:52 63
Port Vale 44 15-15-14 61:55 60
Leicester 44 15-14-15 64:71 59
Portsmouth 45 14-16-15 60:64 58
Hull 44 13-16-15 53:59 55
Watford 45 13-15-17 55:59 54
Oxford 44 15- 8-21 56:62 53
Brighton 45 15- 8-22 55:71 53
Plvmouth 45 13-13-19 57:63 52
W.B.A. 45 12-15-18 66:68 51
Barnsley 44 12-15-17 47:69 51
Bournemouth 45 12-12-21 57:75 48
Middlesbrough 44 12-12-20 48:61 47
Bradford 44 9-13-22 43:66 40
Stoke 45 6-18-21 34:62 36
Franz Carr, útherji Forest, var líflegur gegn Oldham en tókst þó ekki að
skora.
Forest tók deildarbikarinn
- sigraði Oldham 1:0 á Wembley