Dagur - 01.05.1990, Side 20
Akureyri, þriðjudagur 1. maí 1990
Kodak
Express
Gædaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
^esta ^PediGmyndir'
l&K Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
WpWWWiBMWi^llllllllllllllllHIIHIIIiaillllllllllllHllllllllllllllltM
Fjölmcnni var á Húsavíkurflugvelli á laugardaginn þcgar forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, hcimsótti
Húsvíkinga í tilefni 40 ára afmælis bæjarins. Mynd: im
Aðalfundur Norðurlandsdeildar SÁÁ:
Glæsilegur árangur af
meðferð á göngudeild
- áfengismeðferð í vernduðu umhverfi
ekki alltaf nauðsynleg
Aðalfundur Norðurlandsdcild-
ar SAA var haldinn á Akureyri
í gær og þar gerði Ingjaldur
Arnþórsson, ráðgjafi, m.a.
grein fyrir þeim árangri sem
náðst hefur með starfi göngu-
deildarinnar á Akureyri. Hann
þykir mjög glæsilegur til þessa
og má nefna að tólf einstakl-
ingar, sem aldrei höfðu farið í
áfcngismeðfcrð, komu til með-
ferðar á göngudeild SAA-N og
hafa níu af þessum tólf ekki
drukkið aftur, tveir drukku eitt
kvöld en náðu sér aftur á strik.
Ingjaldur segist í mörgum til-
fellum ekki sjá ástæðu til að
senda menn til nteðferðar í
vernduðu umhverfi, en hvers
vegna skyldi þessi góði árangur
einmitt nást á Akureyri?
„Ég get ímyndað mér að vegna
fjarlægðar við Vog hafi myndast
jákvætt andrúmsloft fyrir þessari
tilraun á Akureyri. Það er ekki
eins létt fyrir alkóhólista hér að
skjótast í meðferð eins og á höf-
uðborgarsvæðinu og menn virð-
ast ■ fúsir til að prófa eitthvað
annað,“ sagði Ingjaldur.
Akureyringar sigruðu í Landsleiknum:
„Þetta voru góðar spumingar“
- sagði Guðmundur Gunnarsson, Reykjavíkurskelfir
Lið Ákureyringa sigraði lið
Reykvíkinga með miklum
glæsibrag í úrslitakeppni
Landsleiksins Bæirnir bítast
sem sýnd var í beinni útsend-
ingu á Stöð 2 sl. sunnudags-
kvöld. Keppnin var jöfn og
spennandi framan af en síðan
fór heilastarfsemi Akureyringa
í gang svo um munaði og í lok-
in höfðu þeir fengið 42 stig
gegn 24 stigum Reykvíkinga.
Sigurlið Akureyringa var skip-
að þeim Guðmundi Gunnarssyni,
fulltrúa, Helgu Erlingsdóttur,
nema, og Jónasi Baldurssyni,
verkamanni. Þau náðu ákaflega
vel saman og búa greinilega yfir
margþættri þekkingu og fróðleik
úr ýmsum áttum.
Reykvíkingar höfðu einu stigi
betur eftir fyrsta hluta spurninga-
keppninnar en síðan náðu Akur-
eyringar forystu og létu hana
ekki af hendi. Bilið breikkaði
stöðugt. Guðmundur gaf tóninn
með því að gjörþekkja íslenska
ráðherra frá fyrri tímum og í vís-
bendingaspurningunum voru
Reykvíkingar grátt leiknir.
„f>etta fór betur en ætla mátti
fyrirfram. Maður áleit þetta vera
hina öflugustu andstæðinga. Pað
seig alltaf á ógæfuhliðina hjá
þeint og það hefur dregið úr þeim
máttinn. En þetta voru góðar
spurningar,“ sagði Guðmundur
Gunnarsson í samtali við Dag í
gær.
Ein spurningin í vísbendinga-
hlutanum varðaði vökva og fyrsta
vísbendingin var fólgin í nafni
hans á arabísku. Guðmundur
svaraði hiklaust rétt, skyldi hann
kunna arabísku?
„Nei, en ég vissi það að alkó-
hól er eitt af örfáum orðum úr
arabísku sem notuð eru í ís-
lensku og þá var bara að skjóta á
það,“ sagði Guðmundur og var
hann að vonunt ánægður með
það að koma með sigurlaunin til
Akureyrar. SS
„Sú staðreynd er að renna upp
að það er hægt að ná, reyndar
með völdum hóp einstaklinga,
síst lakari árangri á göngudeild
en á meðferðarstofnun. Þetta
finnst mér stórkostlegt," sagði
Ingjaldur í samtali við Dag, en
þessi tilraun, að fara beint í
stuðningshóp án undangenginnar
meðferðar mun vera nýjung hér á
landi.
Hann bendir á að það sé mjög
dýrt að senda fólk í 6 vikna með-
ferð á stofnunum og augljóslega
ntikill ávinningur fyrir einstakl-
inginn ef hann getur náð sama
árangri á göngudeild. Hann getur
þá unnið samhliða meðferðinni
og engin röskun á heimilishögum
þarf að koma til.
í grein sem birtast mun í Degi
segir Ingjaldur: „Á þessunt fjórt-
án mánuðum, frá því fyrsti ein-
staklingurinn sem aldrei hafði
farið í meðferð byrjaði að mæta á
göngudeild, hef ég tekið tólf slíka
einstaklinga af báðum kynjum til
meðerðar í stuðningshópnum. Af
þessum tólf hafa níu ekki drukk-
ið áfengi aftur, tvö hafa drukkið í
tilraunaskyni eitt kvöld, en komu
strax aftur í stuðninginn og eru
edrú síðan. Einn hefur drukkið
áfram með líku mynstri og áður.
Hafa ber í huga áður en við blás-
um út þessar árangurstölur meira
en orðið er, að hér er vart um
meira en fáa mánuði að ræða hjá
suntum, lengri tíma hjá öðrum,
en byrjunin lofar góður og ég
mun svo sannarlega halda þessu
starfi áfram.“ SS
Forstöðumaður Húsnæðisskrifstofu á Akureyri:
Guðríður Friðriksdóttir ráðin
Blönduvirkjun:
SH verktakar hf. lægstir
- í byggingu starfsmannaskála
Landsvirkjun hefur opnað til-
boð í starfsmannaskála við
Blönduvirkjun. Tilboðið fól í
sér byggingu vistarvera starfs-
fólks með mötuneyti og
geymslum. Einnig var innifalin
frágangur lóðar og vegar að
húsinu. Húsið verður tveggja
hæða með risi og kjallara alls
2180 fermetrar að gólffleti.
Verklok við húsið eru áætluð
seinni hluta næsta árs og skal hús-
inu skilað full frágengnu. Alls
bárust ellefu tilboð í verkið. Þrjú
lægstu voru; SH Verktakar hf.
Tilboð 1. Hljóðar upp á
259.060.490 króna sem er 85,1%
af kostnaðaráætlun.
SH Verktakar hf. voru einnig
með næst lægsta tilboðið. Það
hljóðaði upp á 259.149.632 sem
er 85,2% af áætlun.
Hagvirki hf. var með þriðja
lægsta tilboðið. Hljóðaði það upp
á 260.560.546 króna sem er
85,5% af kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun sérfræðinga
hljóðaði upp á rúrnar 304 rnillj-
ónir króna. Tilboðin verða könn-
uð nánar með tilliti til útboðs-
gagna og mun Stjórn Landsvirkj-
unar taka ákvörðun urn hvaða til-
boði skuli tekið. kg
Lokahelgi Sæluviku fór að
mestu leyti friðsamlega fram í
Skagafirði. Dansleikir voru
víða á laugardagskvöld m.a í
Miðgarði Varmahlíð og Bifröst
Sauðárkróki. Ölvun var nokk-
ur á Sauðárkróki á laugardags-
kvöld þó ekki meiri en vant er
í lok Sæluviku.
Þrír bílstjórar á Sauðárkróki
voru teknir fyrir meinta ölvun við
akstur á laugardagskvöld. „Þetta
voru róleg Sæluvikulok fyrir utan
Guðríður Friðriksdóttir, þrí-
tugur byggingaverkfræðingur,
hefur verið ráðin forstöðumað-
ur væntanlcgrar Húsnæðis-
skrifstofu á Akureyri. Guðríð-
ur tekur við starfinu 1. júní.
Dan Jens Brynjarsson, for-
maður rekstrarnefndar
Húsnæðisskrifstofunnar, segir að
nítján umsækjendur hafi verið
unt stöðuna. Húsnæðisskrifstofan
tekur til starfa næsta sumar, en
Guðríður mun fyrst í stað annast
iskipulagningu starfseminnar og
undirbúa opnunina.
ölvunaraksturinn. Þó voru dans-
leikir víða í firðinunt á laugar-
dagskvöld,“ sagði Björn Mikaels-
son yfirlögregluþjónn á Sauðár-
króki.
Rólegheit voru einnig hjá lög-
reglunni á Blönduósi um helgina.
Að sögn lögreglunnar þar fara
annir sumarsins þó brátt að
hefjast. Fljótlega verða hafnar
radarmælingar í nágrenni
Blöndóss. Það er eins gott fyrir
ökufanta að hægja á sér í gegnum
Húnavatnssýslunnar. kg
Sauðárkrókur:
Róleg helgi hjá lögreglu
Guðríður hefur sinnt ýmsum
verkefnum á Akureyri, m.a. unn-
ið að ákveðnum verkum fyrir
Stjórn verkamannabústaða í
bænum, einnig hefur hún starfað
hjá verkfræðiskrifstofum, og
vann nýlega við hluta deiliskipu-
lags Oddeyrar.
Dan Jens Brynjarsson segir að
meðal næstu verkefna sé ráðning
á öðru starfsfólki Húsnæðis-
skrifstofunnar, en af þeim
ráðningum er ekkert að frétta,
enn sem komið er. EHB
, Dalvík:
I athugun að stoftia
nvja matvöruverslun
Jú, ég neita því ekki að þessi
hugmynd er í athugun,“ sagði
Kristján Ólafsson, fyrrum úti-
bússtjóri KEA á Dalvík þegar
borið var undir hann hvort
hann hyggist setja upp nýja
matvöruverslun á Dalvík.
Kristján Ólafsson starfaði um
35 ára skeið hjá KEA. Hann var
útibússtjóri á Dalvík og því næst
gegndi hann starfi fulltrúa kaup-
félagsstjóra Kaupfélags Eyfirð-
inga á sjávarútvegssviði þar til
fyrir skemmstu að honum var
sagt upp í tengslum við skipulags-
breytingar hjá féláginu.
„Auðvitað hlýt ég að fara að
vinna við það sem ég kann að
gcra. Það hlýtur að liggja í aug-
um uppi,“ sagði Kristján.
Hann sagði að húsnæðismálin
standi frekast í vegi fyrir þessari
hugmynd en þessa dagana sé í
athugun húsnæði á staðnum fyrir
starfsemina. Þau rnál kunni að
skýrast síðar í vikunni. Stærð og
gerð þessarar verslunar ráðist
nokkuð af húsnæðinu en ráðgerE
að fyrst um sinn að þetta verði
einungis matvöruverslun.
Á Dalvík er starfrækt ein mat-
vöruverslun, þ.e. Svarfdælabúð
útibús KEA en auk þess hefur
verslunin Dröfn haft ýmsar
nauðsynjavörur á boðstólnum.