Dagur - 02.03.1991, Síða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 2. mars 1991
saa ÞÓRSHAMAR HE
l BILASALA
Glerárgötu 36, sími 11036 og 30470
Við emm bæði
í portinu
og salnum
Opið kl. 9-18 virka
daga og kl. 13-16
laugardaga.
Sýnum meðal annars
Pajero stuttan árg. ’85
Bensín - sóllúga - ný dekk.
M.M.C. Colt árg. ’87
Sjálfsk., hvítur, góður.
Nýjar Hondur
Allar gerðir
bíla á skrá
ÞÓRSHAHIAR HF.
| BÍLASALA
Glerárgötu 36, sími 11036 og 30470
Kynningarfundur á tillögum sjömannanefndar á Hvammstanga:
Mikil andstaða við áfanga
skýrslu sjömannanefiidar
- fundarmaður kallaði skýrsluna stríðsyfirlýsingu á hendur bændum
Mikið fjölmenni var á kynn-
ingarfundi sjömannanefndar á
Hvammstanga á þriðjudag.
Búnaðarsambönd Húnavatns-
sýsina og Strandasýslu stóðu
fyrir fundinum. Sex menn úr
sjömannanefndinni mættu en
Hákon Sigurgrímsson fram-
kvæmdastjóra Stéttarsambands
bænda vantaði. Björn Arnórs-
son hagfræðingur sat sem vara-
maður fyrir Ogmund Jónas-
son.
Guðmundur Sigþórsson fór
vandlega yfir áfangaskýrsluna og
rakti aðdraganda þeirra aðgerða
sem lagðar eru til í skýrslunni.
Haukur Halldórsson formaður
Stéttarsambands bænda kynnti
einnig tillögur nefndarinnar.
Að loknum framsöguræðum
voru leyfðar fyrirspurnir og gekk
einn af starfsmönnum fundarins
um salinn með hljóðnema og
spurðu fundargestir sjömanna-
nefndina úr sætum sínum. Á
meðan var safnað á mælendaskrá
og varð hún fljótlega full.
Margir ræðumenn réðust
harkalega að tillögum sjömanna-
nefndarinnar. Stefán Jónsson
bóndi á Kagaðarhóli sakaði
nefndina um að leggja til aðgerð-
ir sem munu valda mestu byggða-
röskun hérlendis á þessari öld.
Einnig sakaði hann nefndina um
að vanreikna tekjumissi ríkis-
sjóðs vegna fækkunar bænda. Þá
kom fram í ræðu Stefáns að hon-
um þætti undarlegt að nefndar-
menn segðust ekki eiga að koma
með tillögur að byggðastefnu en
samtímis Ieggi þeir fram tillögur
sem valda byggðaröskun.
Sem dæmi um áhrif niður-
skurðarins nefndi Stefán að
áburðarnotkun minnkaði um 490
tonn en það þýðir 50 milljón
króna samdrátt hjá Áburðar-
verksmiðju ríkisins. Samkvæmt
tillögum nefndarinnar á að lækka
afurðaverð um 2% til bænda á
komandi hausti. Sagði Stefán
þetta þýða 4% skerðingu á
launalið bóndans og spurði Ás-
mund Stefánsson forseta ASÍ
hvort honum þættu þetta góðir
kjarasamningar. í lok ræðu sinn-
ar sagði Stefán að bændur væru
vanir köldum vetrum en venju-
lega hefði vorað að lokum og
kallaði hann tillögurnar nefndar-
innar kaldar kveðjur til bænda.
Bændum sem vilja hætta
búskap gert það mögulegt
Fram kom í máli margra fund-
armanna að þó margt mætti finna
að tillögum áfangaskýrslunnar
FLUGLEIÐIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn
21. mars 1991 í Höfða, Hótel Loftleiðum og hefst kl.
14.00.
skv. 10. gr. samþykkta
Dagskrá:
1. Venuleg aðalfundarstörf
félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins
um heimild til stjórnar til að hækka hlutafé með sölu
nýrra hluta.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi,
skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en
7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félags-
ins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum
til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða
afhent á aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli,
Hlutarbréfadeild á 2. hæð frá og með 13. mars n.k. frá
kl. 09.00 til 17.00 og fundardag til kl. 12.00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundar-
gagna sinna fyrir kl. 12.00 á fundardegi.
Stjórn Flugleiða hf.
væru vissulega ljósar hliðar á
henni. Sú ráðstöfun að ætla að
greiða bændum fyrir framleiðslu-
rétt og einnig alla framleiðslu
verður að teljast mjög athygl-
isvert. Jósep Rósinkarsson bún-
aðarþingsfulltrúi Strandamanna
vakti athygli á þessari hlið máls-
ins og taldi það mikilsvert að
þeim sem vilja hætta búskap sé
gert það mögulegt fjárhagslega.
Jósep varaði við að tillögur um
flata skerðingu hefðu mjög
fjandsamleg áhrif fyrir yngri
bændurna. Einnig kom Jósep inn
á að hvergi er minnst á að skapa
vinnu fyrir þá tólf hundruð bænd-
ur sem verða atvinnulausir eins
og tillögurnar gera ráð fyrir.
Kratar til bjargar bændum
Margir ræddu um hvort tillögur
þessar yrðu að lögum í búvöru-
samningi á þessu þingi. Magnús
Pétursson taldi tillögunar stríðs-
yfirlýsingu á hendur bændum og
taldi að fundurinn ætti að for-
dæma þær. En fram kom í upp-
hafi fundarins að ekki yrðu nein-
ar ályktanir gerðar á fundinum
því hann væri einungis ætlaður
sem kynningarfundur. í lok ræðu
sinnar kom Magnús fram með þá
skoðun að kratar myndu stoppa
búvörusamninga á þessu þingi og
því ættu bændur ekki að venjast
að kratar kæmu þeim til bjargar.
Fulltrúar nefndarinnar svör-
uðu ræðumönnum eftir bestu
getu því segja má að hver einasti
ræðumaður hafi gagnrýnt áfanga-
skýrsluna mjög harðlega. Gunnar
Sæmundsson búnaðarþingsfulltrúi
Strandamanna gagnrýndi skýrslu
sjömannanefndar tnjög harðlega.
í máli hans kom fram að efla
þyrfti framleiðnisjóð og lífeyrir-
sjóð bænda. Einnig verði að sjá
jarðakaupasjóði fyrir fjármagni
ef hann ætti að gegna hlutverki
sínu.
Gunnar taldi það óréttlæti að
færa launalið bóndans niður því
alkunna sé að bændur hafi þurft
að draga mikið saman nú þegar
og frekari kjaraskerðing sé órétt-
lát.
Braskarar sviftir
framleiðslurétti
Heimaslátrun og framhjásala var
mörgum fundarmönnum mikið
áhyggjuefni ef tillögur skýrslunn-
ar ná fram að ganga. Gunnar
Sæmundsson lagði til að þeir
bændur sem yrðu uppvísir að
framhjásölu yrðu sviftir öllum
framleiðslurétti. Þótti Gunnari
að framhjásalan væri vaxandi
vandamál og síður en svo að á
henni sé tekið í tillögunum.
Einnig kom fram í máli Gunnars
að tryggja þyrfti að enginn inn-
flutningur búvara verði á þeim
tíma sem samningurinn á að ná
yfir.
Margir létu í ljós þá skoðun að
sá tími sem ætlaður er til fækkun-
ar um 70.000 fjár sé allt of
stuttur. Ef búvörúsamningur
verður samþykktur á Iíðandi
þingi kemur umrædd fækkun til
framkvæmda strax í haust. Elín
Líndal benti á að í Vestur-Húna-
vatnssýslu væri virkur fullvirðis-
réttur nýttur að fullu þannig að
öll skerðing á fullvirðisréttinum
kæmi fram í minnkandi fram-
leiðslu.
Elín sagði að svo illa mætti
aldrei fara fyrir bændastéttinni að
kratar þyrftu að koma henni til
bjargar. Þess má geta að Elín er
varaþingmaður framsóknar á
Norðurlandi vestra.
Ekki einungis vandi bænda
í máli Péturs Arnars Péturssonar
forseta bæjarstjórnar á Blöndu-
ósi kom fram að fleiri en bændur
hafa áhyggjur af samdrætti í
sauðfjárframleiðslunni. Pétur
Arnar sagði að ef tillögurnar um
niðurskurð næðu fram að ganga
þýddi það rothögg fyrir bæi eins
og Blönduós. A Blönduósi er
mikil úrvinnsla á landbúnaðar-
afurðum og lítil útgerð. Taldi
Pétur Arnar að bæir sem byggja
allt sitt á landbúnaði gætu ekki
tekið við þeim bændum sem eiga
að hætta samkvæmt tillögunum.
Pétur Arnar taldi að nefndin
hefði gleymt mannlega þættinum
við samningu skýrslunnar og um
væri að ræða afkomu fleiri en
bænda. Valdimar Guðmannsson
fornraður Verkalýðsfélags
Blönduóss gre.indi frá að í sínu
verkalýðsfélagi hefðu um 65%
félagsmanna framfæri af störfum
tengdum landbúnaði. Valdimar
sem einnig er fjárbóndi bauð
Ásmundi Stefánssyni bú sitt til
láns og skyldi Ásmundur hag-
ræða búi sínu eins og lagt er til í
skýrslunni.
Á meðal frummælenda á fundinum á Hvammstanga voru Guðmundur Sig-
þórsson skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu og formaður sjömanna-
nefndar, Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda og
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ en þeir eiga einnig sæti í sjömannanefnd.
Mynd: kg