Dagur - 02.03.1991, Side 11
Laugardagur 2. mars 1991 - DAGUR - 11
"^■mkurb.rr
-'ÍSSí!1 >ÍWu m,S
mzffisssyff.*5a,C‘
SfásáíSS SésTífHrS:
ylyl. .* ”, *«I,‘V u, • V'11 1
^_______ -r--p “ ,JJOr,(‘^íid?
sSr^ 1; &p€
n.vskopun í . ' ,ÍC*‘SSw ráji^S' .' :
Slynputifí •jy^rAS--' r‘"S:5-$:-“úf fciC^^CSS fÆ$d:
Mannlegi þátturinn
gieymdur?
Allir þeir sem komu í pontu
gagnrýndu á einhvern hátt tillög-
ur sjömannanefndarinnar. Pau
atriði sem flestir komu inn á eru
að tími til fækkunar er talinn of
stuttur. Einnig vantar að tekið sé
á svartamarkaðsbraski með kjöt.
Tryggingu vantar fyrir fjármagni
í sjóðakerfi landbúnaðarins. Til-
lögur vantar til atvinnuuppbygg-
ingar í sveitum til að mæta sam-
drætti í sauðfjárframleiðslunni.
Tryggja þarf að lækkun á verði til
bóndans skili sér í lækkuðu vöru-
verði til neytandans. Svokölluð
flöt skerðing á framleiðslurétti er
gagnrýnd vegna þess að víða
háttar þannig til að bú þola ekki
frekari skerðingu.
Þeir fundarmenn sem til máls
tóku gerðu flestir grein fyrir að
vandi sauðfjárframleiðslunar
væri mikill. Framleiðslan sé of
mikil og aukist á næstu árum ef
ekkert verður að gert. Að áliti
margra hafði nefndinni sést yfir
mannlega þáttinn og gleymt því
að á bakvið tölurnar er um að
ræða lífsviðurværi þúsunda
manna. Haukur Halldórsson for-
maður Stéttarsambands bænda
var einnig gagnrýndur harðlega
fyrir að láta nafn bændasamtak-
anna undir skýrsluna eins og hún
er.
Ljóst er að óbreyttar verða til-
lögur sjömannanefndar tæplega
samþykktar af Stéttarsambandi
bænda, miðað við að viss atriði
skýrslunnar voru gagnrýnd harð-
lega og hversu miklar undirtektir
sú gagnrýni fékk frá á fjórða
hundrað fundargesta.
Verslunin Litla flugan og tímaritið Á veiðum:
Efna til fluguhnýt-
ingarsamkeppni
Verslunin Litla flugan hefur í
samvinnu við tímaritið Á veiðum
efnt til fluguhnýtingarsamkepp-
ni.
Keppt verður í tveimur
flokkum. Annars vegar í lokuð-
um flokki sem er þrískiptur.
Keppendur hnýta þrjár klassísk-
ar fjaðraflugur Blue Charm,
Crossfield og Night Hawk.
Nákvæmar uppskriftir, sem
fylgja ber, er að finna í tímaritinu
A Veiðum, l.tbl., 7. árg.
Mönnum er í sjálfsvald sett
hvort þeir senda inn eina, tvær
eða allar þrjár flugurnar en fyrir
bestu þrennuna eru veitt glæsileg
verðlaun. 12 feta tvíhendisstöng
af gerðinni Lamiglass og Lam-
son-veiðihjól með viðeigandi
línu.
í>ar að auki verða veitt stök
verðlaun fyrir flugu af hverri
tegund, 15 þúsund króna úttekt
fluguhnýtingarefnis frá Litlu flug-
unni.
Hins vegar er keppt í opnum
flokki og má hver keppandi
senda inn flugur að vild. Veitt
verða þrenn bókaverðlaun.
Grundvallarbækur um flugur og
flughnýtingar eftir Bates, Jörg-
ensen og Rice.
Flugurnar skal senda Litlu
flugunni, pósthólf 958, 121,
Reykjavík, í umslagi merktu
Fluguhnýtingarsamkeppni. í
umslaginu skal vera minna
umslag, lokað, sem í er nafn,
heimilisfang og símanúmer send-
anda.
Síðasti skiladagur er 5. apríl
1991.
Bílasýning á Akureyri:
Nissan Sunny og Prairie
Um helgina verður opin bílasýn-
ing hjá Bifreiðaverkstæði Sigurð-
ar Valdimarssonar að Óseyri 5 á
Akureyri. Nýjustu bílarnir frá
Nissan verða sýndir, en BSV er
með söluumboð fyrir Ingvar
Helgason hf.
Sýningin er opin í dag, laugar-
dag, milli kl. 14.00 og 17.00, og á
sama tíma á morgun, sunnudag.
Aðaláherslan er lögð á að sýna
Nissan Sunny og Nissan Prairie
4x4 7 manna, en þetta er í fyrsta
sinn sem þessir bílar eru sýndur á
Akureyri. Sölumenn frá Ingvari
Helgasyni hf. verða á staðnum,
og munu veita allar upplýsingar
um kaup og kjör. Bílaáhuga-
menn eru sérstaklega hvattir til
að skoða nýjungarnar frá Nissan,
sem hafa vakið athygli víða um
lönd.
Borgarbíó:
Glæpir og
afbrot
Kvikmyndin Glæpir og afbrot
eftir Woody Allen verður sýnd í
Borgarbíói í dag og næstu daga á
vegum Kvikmyndaklúbbs Akur-
eyrar. Sýningar verða laugardag
og sunnudag kl. 17 og á mánudag
kl. 19.
Þessi mynd hefur hlotið mjög
góða dóma og fengið ýmist fjórar
eða fimm stjörnur hjá gagnrýn-
endum. Meðal leikara eru
Woody Allen, Alan Alda, Mart-
in Landau, Anjelica Huston og
Sam Waterston.
Akureyringar og nærsveita-
menn eru hvattir til að láta þenn-
an stórviðburð ekki fram hjá sér
fara.
III FRAMSÓKNARMENN
l||l AKUREYRI ||||
Bæjarmálafundur
Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90,
mánudaginn 4. mars kl. 20.30.
Rætt um dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar.
Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram-
sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig
varamenn.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
Skemmtidagskrá sem byggir á söngferii hins vinsæla söngvara
Viihjálms Vilhjálmssonar.
Næstu sýningar 9., 15., 16., 22. og 23. mars.
FRAM KOMA:
Ellý Vilhjálms, Þorvaldur Halldórsson, Pálmi Gunnarsson,
Rut Reginaids, Hermann Gunnarsson, Ómar Ragnarsson
og Magnús Kjartansson.
Hljómsveit:
Magnús Kjartansson, yilhjálmur Guðjónsson, Finnbogi Kjartansson,
Ásgeir Óskarsson og Pétur Hjaltested.
Stjórn dagskrár: Egill Eðvarðsson.
MATSEÐILL
Forréttur:
Blandaðir heitir sjávarréttir í butterdeigskænu
Aöalréttur:
o9 satfW'
Haf,ð *
Heilsteiktar nautalundir með rjómalagaðri koníakspiparsveppasósu,
Hassel kartöflum og smjörsoðnu spergilkáli
KW,erð
og i
Eftirréttur:
Itölsk ostaterta með þeyttum rjóma og ávöxtum
Eftir að skemmtidagskrá lýkur er dansleikur til kl. 03:00.
Miöaverö: 3.900,- krónur
Boröapantanir í síma 77500
Við «g!>*
' 1-11II UV I I