Dagur - 02.03.1991, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Laugardagur 2. mars 1991
matorkrókur
Fiskur og ís úr Grímsey
- Hólmfríður Sólveig Haraldsdóttir leggur til
uppskriftir helgarinnar
Það er Hólmfríður Sólveig
Haraldsdóttir Vallargötu 3 í
Grímsey sem leggur til upp-
skriftirnar í matarkrókinn að
þessu sinni. Hólmfríður er
heimavinnandi húsmóðir og
hefur nóg að gera við að ala
upp sitt yngsta barn sem er
átta mánaða gamalt.
Aðspurð sagði Hólmfríður
að í Grímsey væri hægt að fá
flest til baksturs og elda-
mennsku en það sem hún
kallaði afbrigðilegt pantaði
hún frá Akureyri eða keypti
þegar hún skytist í bæinn.
Hólmfríður kemur með
þrjá fiskrétti enda sagði hún
að auðvelt væri að fá ferskan
og góðan fisk af ýmsum teg-
undum í Grímsey. Einnig er
hún með uppskrift af góðum
heimagerðum ís og íssósu en
villdi taka fram að fyrir þá
sem væru að hugsa um lín-
urnar væri rétt að fara varlega
í ísinn og sósuna.
Hólmfríður sagðist hafa
gaman af því að gera tilraunir
í bakstri og eldamennsku og
líkaði manni hennar Óla
Bjarna Ólafssyni sjómanni
vel tilbreytingar í matseld-
inni. Annars sagði Hólmfríð-
ur að góðir eiginmenn borð-
uðu að sjálfsögðu allt sem
konur þeirra elduðu. En
snúum okkur nú að kræsing-
unum.
Uppskrift af graflaxi
4 kg laxaflök (einnig hœgt að
nota aðrar fiskteg.)
Kryddblanda:
4 msk. salt
Vi pipar
1 tsk. finkull
1 msk. saxaður laukur
(má vera meira)
4 msk. dillduft.
Fiskfiökin lögð á álpappír og
kryddblöndunni stráð yfir.
Flökin lögð saman og roðið lát-
ið snúa út og pakkað vel inn í
álpappír. Látið liggja í kæli í 14-
15 tíma, snúið einu sinni. Borið
fram með ristuðu brauði smjöri
og sinnepssósu.
Sinnepsósa:
250 mayonaise
1 msk. sterkt sinnep
1 msk. hunang
dill eftir smekk.
Djúpsteiktur fiskur
700 g fiskur (ýsa, lúða, karfi,
skötuselur, steinbítur)
Jafningur til að láta fiskinn
liggja í fyrir djúpsteikingu:
1 bolli hveiti
2 tsk. karrý
Vi tsk. lauksalt
Vi paprika
2 tsk. salt
ögn af pipar
4 msk. pilsner
I egg
3A bolli mjólk
Jafningurinn hrærður saman
og fiskurinn skorinn í smábita
og þerraður vel. Fiskurinn lát-
inn liggja í 20 mín. í jafningnum
fyrir djúpsteikingu. Borið fram
með frönskum kartöflum og
hrásalati.
Fiskbakstur í smurosti
500 g fiskur
2 tómatar
'A dós sveppir
5-6 msk. smurostur (rœkju
og sveppa)
rjómalögg
Tómatar og sveppir saxaðir
og látnir krauma á pönnu.
Smurosturinn þynntur með
rjóma og hrært í skál. Sveppun-
um og tómötunum hrært saman
við. Fisknum velt upp úr hveiti
og velt á pönnu í stutta stund,
salt og pipar stráð yfir. Fiskur-
inn settur í eldfast mót osturinn
settur yfir og bakað í 20-25 mín,
við 175 gráðu hita. Smurostinn
er gott að velgja í örbylgjuofni
áður en hann er hrærður
Eplakaka
Vh dl möndlur
100 g smjör
VA dl sykur
2 egg
6 epli (meðalstór)
Möndlurnar hreinsaðar og
saxaðar. Þeytt saman smjör,
sykur og eggjarauður, möndl-
um blandað saman við. Eggja-
hvíturnar stífþeyttar og blandað
saman við möndlumassann.
Flysjuð og kjarnalaus eplin sett
í smurt mót og möndlumassan-
um smurt yfir. Bakað í 30 mín.
við 175 gráðu hita. Borið fram
með þeyttum rjóma eða ís.
Hólmfríður skorar á Bryndísi
Karlsdóttir á Akureyri að koma
með uppskriftir í næsta matar-
krók.
Heimagerður ís með Daim
1 l rjómi
6 egg
6 stykki Daim
200 g sykur
Rjóminn þeyttur sér og egg
og sykur þeytt saman. Daim-
stykkin mulin (ekki í duft)
blandað saman við eggin og
sykurinn. Rjómi hrærður saman
við eggin og sykurinn. Sett í
mót og fryst í sólarhring
Heit íssósa
3 dl rjómi
100 g suðusúkkulaði
4 st. Mars
Sett í pott og látið sjóða við
minnsta hita í ca. 30 mín. og
borið fram heitt með ísnum.
vísnaþáttur
Þá koma nokkrar vísur sem
magister Ingólfur Davfðsson
sendi mér. Minnist hann þar
æskuáranna heima á Stóru-
Hámundarstöðum.
Slæ í sinu út á engi,
upp á hjalla fyrir völl.
Bú og frú í góðu gengi
úr grasi vaxa bömin öll.
Krakkar leika, kátur póstur
kaffiflösku í sokk mér ber.
Kul afhafi, kaldur gjóstur,
í kyrri lautu drukkið er.
Borðdúkurinn blessað grasið,
blóm í holti prýðin mest.
Hallarveggir háreist fjöllin,
himinblámans hvelfing sést.
Halla ég mér að hlýrri þúfu
hænublundur seig á brá.
Gríp til orfsins endurnærður.
Upp, upp, stúlkur, nóg er Ijá.
Lætur hátt í hrafni og spóa,
hjörð á beit í grænni hlíð.
Sjófugl kliðar, syngur lóa,
sveitin brosir unaðsfríð.
Fyrir landi fuglar synda,
frakkur selur teygir haus.
Fannir skreyta fjallatinda,
fyrstur Helgi bú hér kaus.
Sigurður Helgason á Jörfa
kvað við drykkju:
Gleði valda gómatól,
gerumst aldrei linir,
sterkir halda staupajól
stórkeraldavinir.
Enn kvað Sigurður:
Rannveig þykist mikil mær
meður hvítum lokkum.
Á brúði standa berar tær
báðum fram úr sokkum.
Bólu-Hjálmar kvað um
mann:
Góðverka var sjónin sjúk,
svartan bar á skugga,
ágirndar því flygsufjúk
fennti á sálarglugga.
Næstu vísur eru fengnar hjá
gömlu fólki, en höfundar eru
gleymdir.
Tíminn bak við tjaldið hljótt
taumaslakur rennur.
Lífsins vaka líður skjótt,
Ijós að stjaka brennur.
Efþú hikar og segir satt
þeir segja þig vera að Ijúga,
en ef þú lýgur og lýgur hratt
þá líta þeir við og trúa.
Úti þó að andi kalt
á ég nóg af vonum,
leysi snjóinn lifnar allt,
líður að gróindonum.
Helst það eykur hrellingu
hér í lífsins skvaldri
er kallar þú mig kéllingu
konu á besta aldri.
Gleymskunnar í saltan sjó
sökkva snauðir þjófar.
Eitthvað lengur endast þó
afreksmenn - og bófar.
Að hann dáið hafi úr hor
held ég rengja megi,
en eitt er tryggt, hann varí vor
vel framgenginn eigi.
Þorsteinn Guðmundsson frá
Skálpastöðum kvað:
A hverfulleikans hála stig
heimur sveik að vonum.
Einn á bleikum eltir mig,
ekki skeikar honum.
Næstu vísu kvað Daníel
Kristinsson.
Á vill fenna auðnuleið
oft í menning villtri.
Glópar renna gönuskeið
gulls í sennu trylltri.
Enn kvað Daníel:
Bræði dylja og beygja má,
biðlund skilja sanna.
Skæðir byljir skella á
skapi viljamanna.
Kristján Helgason hafði
keypt rafmagnshellu af Pálma
Pálmasyni í Raforku. Nokkru
síðar sendi hann kaupmanni
vísur í þakklætisskyni:
Það var mikið happ ég hlaut
hellu frá þér Pálmi,
nú að elda góðann graut
gerist enginn tálmi.
Svo var annað sem ég fann
síst að minna gangi
því hún eyðir andskotann
engu rafurmagni.
Undarlegt mun þykja þér
það ég viðurkenni
en það stenst, því aldrei er
eldað neitt á henni.
Haraldur Hjálmarsson frá
Kambi kvað:
Þegar vínið færist fjær
fer að versna líðan,
það sem virtist grænt í gær
gránað hefur síðan.
Líklega er sá löngu dauður
sem orti eftirfarandi gaman-
vísur um mataræði fólks fyrr
á tímum og nefndi þær, Úr
öllum áttum:
Það er næsta náttúrlegt
með neysluvilja traustan
að beinakexið borða frekt
bragnar fyrir austan.
Matvendnin er mótlæti,
má ei auka forðann.
Seðjast mest á selketi
seggir fyrir norðan.
Eru jafnan ánægðir,
afla hafa bestan.
Sterkir verða og staðlyndir
af steinbít fyrir vestan.
Þó að treinist ævin enn
oft með maga þunnan.
Þorskhausana þiggja menn
þráfalt fyrir sunnan.
Næstu vísu kvað Karl Á.
Ágústsson í Litlagarði á þeim
tíma er þeir höfðingjar voru á
dögum er nefndir eru í vís-
unni. Vísan var vini send:
Verði þér aldrei veröld myrk.
Veiti þér Drottinn
Marsjalstyrk,
Benjamíns ráðdeild blessist
þér.
Bjarni þá fyrir hinu sér.
Ekki veit ég hver orti þessa
vísu um hin kunnu málaferli
Björns á Löngumýri:
Lundin Björns er stinn sem stál,
stýrir búi nettu,
hefur unnið öll sín mál,
af og til með réttu.
Óvíst er um höfund næstu
vísna, utan hvað Tómas
Guðmundsson botnaði hina
seinni í skyndi:
Harmur berst um hugarsvið,
hjartað skerst afergi.
Þegar mest ég þurfti við
þá voru flestir hvergi.
Hárin mér á höfði rísa
er hugsa ég um fríðleik þinn.
Þetta er annars ágæt vísa,
einkum seinni parturinn.
Hulið er mér með öllu, hver
orti svo til konu sinnar:
Þú ert ágæt elskan mín,
óska ég það héldist.
Eins og besta brennivín
sem batnar þegar það eldist.
María Rögnvaldsdóttir frá
Réttarholti kvað á köldum
vetri:
Undan þykkjuþungri brún
þorri snjónum renndi.
Sá hefur marga ramma rún
rist með kaldri hendi.
Ennþá kári eykur fár,
ógnum gárar sundin,
hann er grár og gnauðar þrár
gjálfrar báran undir.
Þá koma vísur eftir Pétur
Jónsson.
Mannlýsing:
Rísa asnaeyrun há,
úlfs er vanginn þunnur,
tígrísaugun grimmu gljá,
gapir höggorms munnur.
Þessi er af öðrum toga:
Mætti ég fegurð meiri sjá
mundi ég reyna að vaka
meðan logar ljósið á
lífsins vonar stjaka.